Morgunblaðið - 24.03.2002, Qupperneq 11
Páskatilboð
Tilboðsverð 13.900 kr.
Öflugar CB-talstöðvar AM/FM 40 rása.
Citroën C5 Vel búinn bíllí millistærðar-flokki
SKODA Octavia er söluhæsti bíllinn á landinu
eftir fyrstu 11 vikur ársins. Alls höfðu selst 65
Octavia en næstsöluhæsti bíllinn er Toyota Cor-
olla með 62 bíla. Langt er síðan bíll af Toyota
gerð hefur ekki verið söluhæstur. Engu að síður
heldur Toyota yfirburðamarkaðsstöðu hér á
landi. Af þeim 65 Octavia sem seldust á þess-
um tíma voru 10 fjórhjóladrifsbílar seldir til bíla-
leigunnar Höldurs. Að sögn Guðrúnar Birnu
Jörgensen, markaðsstjóra Heklu, er Skoda sölu-
hæsti bíll fyrirtækisins það sem af er árinu, en
að auki selur Hekla, Volkswagen, Audi og Mitsu-
bishi.
Skoda Octavia söluhæst
CITROËN International notar lag íslensku hljóm-
sveitarinnar Bang Gang í auglýsingu á flaggskipinu
Citroën C5. Í nýjustu auglýsingu Citroën má heyra
lagið Sleep sem kom fyrst út á Ís-
landi árið 1997 í flutningi Bang
Gang. Lagið, sem samið er af
Barða Jóhannssyni, kom út hjá
East/West Warner í Frakklandi árið
2000 og hefur diskurinn You með
laginu selst í yfir 10 þús. eintökum þar í landi. Lögin
So alone og Sacred things fengu góða spilun ytra,
en lagið Sleep, sem ekki fékk jafnmikla athygli, er
þarna að fá uppreisn æru. Auglýsingastofa Citroën
í Frakklandi óskaði eftir því við East/West Warner
að fá að nota lagið í auglýsinguna sem undirstrikar
þá tækni og lúxus sem bíllinn Citroën C5 stendur
fyrir. Jafnframt var gerður samningur um notkun á
laginu á þeim bílasýningum þar sem bíllinn verður
kynntur á árinu 2002.
Íslensk tónlist
í auglýsingu Citroën
NÆSTA kynslóð Nissan Micra er þegar komin á markað í Japan undir
heitinu March. Bíllinn er gjörbreyttur og óvenjulegur útlits. Það var líka
núverandi gerð Micra þegar hún kom á markað í byrjun tíunda áratug-
arins, svo mjög að margir óttuðust að útlitið myndi fæla frá kaupendur.
Bíllinn varð á hinn bóginn geysivinsæll og var m.a. kjörinn bíll ársins í
Evrópu árið 1993. Ólíkt því sem gerist með flesta nýja bíla sem stöðugt
verða stærri, þá er ný Micra minni en núverandi gerð en er þó engu að
síður rúmbetri. Meðal nýjunga er að bílnum fylgir snjallkort í stað lykils.
Nissan hefur einnig afhjúpað sportgerð bílsins sem kallast S-Tune, og
er þróaður af Nismo, akstursíþróttadeild Nissan. Þessi gerð bílsins verð-
ur framleidd aðeins í takmörkuðu magni. Bíllinn er á 15 tommu álfelgum
með lágbarðadekkjum og á stífari sportfjöðrun. Hann er hins vegar ein-
ungis með 1,4 lítra vél sem þó er ögn aflmeiri en í hefðbundnu gerðinni.
Ný Micra og
líka í sportgerð
Micra S-Tune er sportgerð bílsins.
BÍLHEIMAR og Ingvar Helgason hf.
hafa að undanförnu kannað tækifæri til
útflutnings á notuðum bílum til Eystra-
saltsríkjanna. Hannes Strange, sölu-
stjóri hjá Bílheimum, segir að í þessum
löndum sé markaður fyrir notaða bíla og
Þjóðverjar hafi um árabil staðið að
ábatasömum útflutningi þangað. Til þess
að þetta verði raunhæfur kostur fyrir ís-
lensk bílaumboð, sem mörg hver eiga
mikinn fjölda notaðra bíla, þarf að koma
til lagabreyting sem fæli í sér endur-
greiðslu á virðisaukaskatti og aðflutn-
ingsgjöldum. Virðisaukaskatturinn er í
þessu tilfelli af söluverðinu til útlanda
sem yrði nálægt því sem það er á mark-
aði hér.
„Við höfum áður skoðað þetta mál en
ekki af sama þunga og núna. Við höfum
verið í samskiptum við erlenda aðila um
þetta mál og það er markaður fyrir not-
aða bíla í austurblokkinni,“ segir Hann-
es.
Þeir bílar sem helst kæmi til greina að
flytja út með þessum hætti eru bílaleigu-
bílar sem jafnan skila sér aftur til bíla-
umboðanna á haustin. „Bílaleigumarkað-
urinn hér er stór. Þar af leiðandi er mikil
sala í bílaleigubílum. Gallinn er hins veg-
ar sá að bílarnir koma til baka til umboð-
anna í stórum flota á haustmánuðum sem
er ekki besti sölutíminn. Í stað þess að
þurfa að fella verðið verulega til þess að
örva söluna, sem truflar markaðinn og
bílamerkið, viljum við finna leið til þess
að koma þessum bílum á annan markað,“
segir Hannes.
Sala til útlanda á notuðum bílum
myndi örva endurnýjun flotans hér á
landi, en hann hefur verið að eldast síð-
ustu misserin. Hugsanlega yrðu áhrifin
einnig þau að styrkja endursöluverð not-
aðra bíla.
Skoða útflutning
á notuðum bílum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
CITROËN er að setja á markað nýjan
smábíl, C3, sem leysir af hólmi Saxo. Bíllinn
keppir á sama markaði og Peugeot 206 og
Toyota Yaris, svo dæmi séu tekin, og verð-
ur komin í sölu hérlendis í maí. C3 var
kynntur blaðamönnum í Frakklandi í síð-
ustu viku þar sem reynsluakstur fór fram.
Það sem vekur hvað mesta athygli við C3 er
mikill fáanlegur búnaður og öflugar vélar.
Samkvæmt upplýsingum frá Brimborg,
umboðsaðila Citroën, verður bíllinn á sam-
bærilegu verði og Peugeot 206 og Toyota
Yaris. Þeir bílar sem hingað verða fluttir
inn verða með 1,1 lítra, 61 hestafla og 1,4
lítra, 75 hestafla vélum. Nánar verður sagt
frá bílnum síðar.
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
Citroën C3 kemur í maí. Hér er hann við
gamla eyðikirkju við bæinn Chantilly í Frakk-
landi.
Citroën C3
kynntur
í Frakklandi
JÜRGEN Hubbert, aðalframkvæmdastjóri
Mercedes-Benz, hefur viðurkennt í samtali við
þýska dagblaðið Handelsblatt, að tíðni gæða-
vandamála í tengslum við bíla fyr-
irtækisins hafi aukist á síðustu ár-
um. Þetta tengist innkomu
Mercedes-Benz á ódýrari markaði
með A-bílnum. Einnig hafi banda-
ríska framleiðslan á M-jeppanum
verið gagnrýnd fyrir innréttingar bílsins. Í Hand-
elsblatt var því haldið fram að einungis sex til 10
ára gamlir Mercedes-Benz bílar hafi komið vel út
í gæðakönnun TÜV í Þýskalandi. SLK sportbíllinn
kom best út úr könnuninni af bílum eins til
þriggja ára en hafnaði þó einungis í tólfta sæti.
Hubert kvaðst persónulega ætla að sjá til þess
að bætt yrði úr þessu og að Mercedes-Benz
fengi á ný óflekkaða ímynd gæðabíla.
Hubbert viðurkennir
gæðavandamál