Morgunblaðið - 24.03.2002, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 B 15
bílar
NORSKA fyrirtækið Moxy trucks
framleiðir liðstýrða trukka eða jarð-
vegsflutningabíla eða búkollur eins
og þeir hafa stundum verið kallaðir.
Þetta eru burðarjálkar, taka 26 til 40
tonna hlöss og fara létt með. Fyr-
irtækið hefur undanfarin misseri
endurnýjað framleiðslu sína og er
um þessar mundir að kynna enn nýj-
ar gerðir með fjölmörgum endurbót-
um.
Sex megingerðir Moxy-trukka eru
nú fáanlegar og eru fimm þeirra nýj-
ar eða nýlegar. Þær eru allar lið-
stýrðar, með drifi á öllum þremur
hásingunum, vélar eru frá Scania og
skiptingar frá Komatsu. Sérfræðing-
ar Moxy eru síðan á bak við alla
tæknifræði og verkfræði sem hönn-
un og smíði trukkanna krefst.
Starfsmenn eru um 220 auk 30 sem
starfa í sölufyrirtæki Moxy í Banda-
ríkjunum. Um 80 söluumboð eru í 30
löndum víðs vegar um heiminn. Ár-
lega seljast um 400 Moxy-trukkar en
framleiðslugetan er um 700 bílar.
Jafnt átak og þyngdardreifing
á framhjól
Moxy-liðtrukkarnir eru einkum
frábrugðnir keppinautunum í einu
atriði sem er staðsetning snúnings-
legunnar. Hún er framan við hjöru-
liðinn á drifskaftinu sem hefur í för
með sér að drifátakið verður alltaf
jafnt á framhjólin burtséð frá því
hvernig þau velta og snúa í beygju.
Þar sem jöfn þyngdardreifing er á
framhjólin með þessu fyrirkomulagi
er nægilegt að hafa á þeim 45% læs-
ingu. Segja talsmenn Moxy að
trukkurinn sé mun liprari í öllum
meðförum en trukkar keppinaut-
anna sem verði að hafa 100% læs-
ingu. Með henni verði trukkurinn
stirðari í beygju og það þýði líka
meira dekkjaslit.
Grindin undir palli Moxy hallast
nokkuð fram á við. Gefur það jafnari
þyngd á alla öxla og þyngdarpunkt-
urinn verður líka lægri fyrir vikið
sem þýðir meiri stöðugleika. Enda
eru ekki dæmi um að mönnum hafi
tekist að velta þessum trukkum.
Bílstjórahúsin eru ámóta á öllum
gerðunum. Bílstjórinn situr hátt, í
um tveggja metra hæð yfir jörðu, og
hefur góða yfirsýn. Með hliðarspegl-
unum sést vel aftur með pallinum og
litlir speglar eru sérstaklega stilltir á
afturöxlana. Hægt er að stilla bæði
sæti og stýri á alla kanta. Gírstöng er
hægra megin við ökumannssætið og
á hægri helmingi mælaborðsins eru
stillingar fyrir miðstöð og loftkæl-
ingu. Beint fram af ökumanni eru
ljós sem sýna hvaðeina um líðan bíls-
ins auk hraða- og snúningshraða-
mæla. Þar sést einnig í litlum glugga
í hvaða gír bíllinn er.
Moxy er ýmist með sjálfskiptingu
eða valskiptingu. Valið er milli sjálf-
skiptingar og handskiptingar með
rofa og síðan skipt upp og niður með
því að ýta stönginni til hliðar.
Einfaldir í meðförum
Ekki var flókið að aka þessum fer-
líkjum á sléttri malarnámu og jafn-
vel heldur ekki flókið að bakka í
þrengsli með aðstoð góðra spegla.
Það sem er óvenjulegt er að hægt er
að beygja framhlutanum í kyrrstöðu
þar sem honum er ýtt til hliðar með
vökvadælum. Þessi beygjuhreyfing
er örlítið misjöfn eftir stærð Moxy-
trukkanna og eins finnst nokkur
munur á meðhöndlun þeirra og létt-
leika eftir stærð.
Morgunblaðið/jt
Moxy-trukkarnir geta borið allt frá 26 og uppí 40 tonna hlass.
Nýir burðarjálkar frá Moxy
Morgunblaðið/jt
Liðstýrðu trukkarnir eru liprir í meðförum.
KRAFTVÉLAR hafa frá
árinu 1995 flutt inn vélar frá
Moxy, í fyrstunni notaðar en
1998 var fyrsti nýi trukk-
urinn seldur. Í dag eru 30
Moxy liðstýrðir trukkar í
umferð hérlendis. Tvær aðr-
ar gerðir eru í umferð hér, 19
af gerðinni Caterpillar og
tveir frá Terex. Árni J. Sig-
urðsson, deildarstjóri sölu-
og markaðsdeildar Kraftvéla,
segir að aðeins fáeinir slíkir
bílar frá öðrum framleið-
endum séu í notkun, Moxy
sé ráðandi á þessum mark-
aði. En hvaða möguleikar
eru í frekari innflutningi? – Þeir eru
kannski helstir í tengslum við fyr-
irhuguð jarðgöng og virkjun á Aust-
urlandi ef við horfum til stórverkefna
sem þessi tæki myndu helst nýtast
í, segir Árni. – Það er auðvitað allt í
óvissu með þessi verkefni ennþá og
hvaða verktakar muni fá þau. Þar
hljóta einnig erlendir verktakar að
koma til og því hugsanlegt að þeir
myndu flytja inn eigin tæki.
Árni segir að talsverð umsvif fylgi
því að sinna þeim 30 Moxy-trukkum
sem nú eru í umferð. Umboðið verði
að liggja með helstu varahluti, svo
sem þá sem tengjast drif- og vökva-
búnaði, skiptingum og fleiri hluti.
Enda megi tæki sem þessi helst
aldrei stöðvast og því sé áríðandi að
geta leyst strax úr bilunum sem upp
kunna að koma. Árni segir sölu hafa
verið þokkalega síðustu árin. Fyrir-
tækið hafi af og til verið með einn til
tvo bíla tiltæka og reynt sé að af-
greiða pantanir með fárra vikna fyr-
irvara.
30 Moxy-trukkar
í umferð hérlendis
Morgunblaðið/jt
Árni Sigurðsson er sölustjóri Kraftvéla sem
hefur umboð fyrir Moxy-trukkana.
LIBERA 20
mjaðmasokkabuxur
með glærum tám.
Þegar mikið
stendur til.
Kynning
á morgun, mánudag,
í Lyf og heilsu
Austurstræti kl. 13-17
20% afsláttur
af öllum
vörum.
sokkar, sokkabuxur, undirföt
oroblu@islensk-erlenda.is
Austurstræti