Morgunblaðið - 24.03.2002, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 B 17
bílar
aðlagar geislann samkvæmt því.
Undir vélarhlífinni er fimm
strokka, 2,4 lítra vél sem skilar 300
hestöflum og 400 Nm togi. Við hana
er tengdur sex þrepa hálfsjálfskipt-
ur gírkassi með skiptitökkum á
stýrinu. Sett er í bakkgír með því að
þrýsta á hnapp í miðjustokknum.
Fjögur sjálfstæð sæti eru í bíln-
um og hægt er að fella aftursæt-
VOLVO sýndi á bílasýningunni í
Genf nýja X90 jeppann sinn en að
auki var þar frumsýndur nýr hug-
myndabíll, ACC2, sem sýnir hvernig
ný kynslóð V70 XC mun líta út. Von
er á þeim bíl á markað á næsta ári.
ACC2 er með stærri hjólaskálum og
grjótvörn á fram- og afturstuðara.
Hann er með sítengdu fjórhjóladrifi
eins og núverandi bíll en er kominn
á 18 tommu Michelin-nagladekk
sem hægt er að keyra á þótt springi
á þeim. Nýjung er framljósabúnað-
urinn sem er tengdur GPS-hugbún-
aði sem reiknar út hvort bílnum er
ekið á vinstri eða hægri akrein og
isbökin aftur og skapa mikið flutn-
ingsrými. Í innréttingunni er
blandað saman áli og burstuðu stáli
ásamt hlýrri náttúrulegum efnum.
Miðjustokkurinn tekur drjúgt rými
inni í bílnum en hann þjónar þeim
tilgangi m.a. að hýsa alls kyns
tæknibúnað, eins og t.d. handhelda
tölvu, stafræna myndavél og DVD-
spilara.
Ólíklegt er að framleiðslubíllinn verði í
líkingu við hugmyndabílinn að innan.
Volvo ACC2 sýnir
hvernig næsta kynslóð
V70 XC gæti litið út. Hugmynd að nýjum
Volvo V70 XC
SAMKVÆMT upplýsingum
frá Skráningarstofunni virð-
ist talsvert vera um að öku-
tæki af tilteknum gerðum séu
í notkun án þess að þau séu
skráð. Einkum er um að ræða
bifhjól, torfærutæki, t.d. vél-
sleða, tjaldvagna, dráttarvél-
ar og eftirvagna. Skráningar-
stofan bendir á að það ber að
hafa slík tæki skráð og tryggð
í samræmi við gildandi lög.
Eigandi ökutækis eða sá
sem á vegum hans hefur um-
ráð þess, t.d. innflytjandi eða
framleiðandi, ber ábyrgð á því að
ökutæki sé skráð.
Samkvæmt umferðarlögum er
gerð sú krafa að öll skráningarskyld
vélknúin ökutæki séu tryggð
ábyrgðartryggingu og að auki skal
ökumaður tryggður sérstakri slysa-
tryggingu ökumanns. Tjón af völd-
um óvátryggðra ökutækja getur
leitt til bótaábyrgðar eiganda og
þess er veldur tjóni. Einnig kann
tjónþoli sjálfur að missa rétt til bóta
ef hann mátti vita að ökutæki var
ekki vátryggt. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Alþjóðlegum bifreiða-
tryggingum á Íslandi sf. er fordæmi
fyrir því að endurkröfu vegna bóta-
greiðslna hafi verið beint að innflytj-
anda ökutækis sem afhenti ökutækið
án skráningar.
Um tryggingaábyrgð óvélknúinna
ökutækja gildir að ábyrgðarmaður
vélknúins ökutækis ber ábyrgð á
tjóni sem verður af völdum annars
ökutækis sem hið vélknúna ökutæki
dregur. Vátrygging dráttarökutæk-
isins tekur þannig einnig til aksturs
með tengd ökutæki. Ef hið tengda
ökutæki er skráningarskyldur eftir-
vagn eða tengitæki, en skráningar-
skyldu hefur ekki verið fullnægt,
getur það leitt til endurkröfuréttar
tryggingafélags dráttarökutækisins
á hendur ábyrgðarmanni þess.
Mörg óskráð og óvátryggð
ökutæki í notkun
Morgunblaðið/Kristján
Vélsleðar eru skráningarskyld ökutæki.
Vorum að taka upp nýjar vörur
Freemans - Bæjarhrauni 14 -
s: 565 3900 - www.freemans.is