Morgunblaðið - 06.04.2002, Síða 1

Morgunblaðið - 06.04.2002, Síða 1
79. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 6. APRÍL 2002 NORSKUR sérfræðingur í upp- lýsingatækni hefur varað við því að tölvuþrjótar geti brotist inn í tölvur bíla, sem eru búnir nýj- ustu tækni, og valdið slysum, til að mynda með því að láta bíl á 100 km hraða snöggbremsa. Þetta kemur fram í frétt norska dagblaðsins Aftenpost- en, sem segir að þegar séu til bílar sem geri tölvuþrjótum þetta mögulegt. Dýrustu gerðirnar af Mercedes Benz og BMW eru með tölvubúnað sem er tengdur við GSM-síma og í stöðugu sam- bandi við verkstæði eiganda bílsins. Ef bíllinn bilar fær verk- stæðið strax upplýsingar um bil- unina og getur lagfært hana. Tryggingafélag bíleigandans getur einnig stöðvað bifreiðina með því að hringja í GSM-sím- ann ef henni er stolið. „Þetta er allt saman gott og blessað,“ hefur Aftenposten eft- ir Arne Laukholm, yfirmanni upplýsingatæknideildar Ósló- arháskóla og formanni fagráðs skýrslutæknifélags Noregs. „En ef verkstæðið eða trygg- ingafélagið getur komist inn í tölvuheila bílsins getur tölvu- þrjótur gert það líka. Hugsið ykkur afleiðingarnar ef hann lætur bílinn snarbremsa,“ segir Laukholm. Tölvu- þrjótar geta stöðv- að bíla PERVEZ Musharraf, forseti herfor- ingjastjórnarinnar í Pakistan, kvaðst í gær ætla að efna til þjóð- aratkvæðagreiðslu í byrjun maí um hvort hann ætti að halda völdunum. Musharraf tók völdin í sínar hend- ur í október 1999 og lofaði að koma á lýðræði að nýju innan þriggja ára. Hann hefur boðað til þingkosninga í október. Þing Pakistans hefur kosið forseta landsins og talið er að með þjóðarat- kvæðagreiðslunni í maí hyggist Musharraf sneiða hjá þinginu og tryggja að hann haldi völdunum í fimm ár til viðbótar hver sem nið- urstaða kosninganna verður. Musharraf sagði að hann myndi ekki heimila tveimur fyrrverandi forsætisráðherrum, Benazir Bhutto og Nawaz Sharif, sem eru í útlegð, að snúa aftur til Pakistans og taka þátt í þingkosningunum. Bhutto og Sharif eru leiðtogar tveggja stærstu stjórn- arandstöðuflokka landsins. Báðir flokkarnir ætla að sniðganga þjóð- aratkvæðagreiðsluna og segja hana ganga í berhögg við stjórnarskrána. Þjóðarat- kvæði um Musharraf Íslamabad. AP. KÖNNUN hefur leitt í ljós að önnur hver þungun á Græn- landi endaði með fóstureyðingu á síðustu tveimur árum þótt grænlenskar konur eigi kost á fríum getnaðarvörnum, að sögn grænlenskra og danskra fjöl- miðla í gær. 809 fóstureyðingar voru skráðar á Grænlandi í fyrra og fæðingarnar voru þá 936. Árið áður voru fóstureyðingarnar 944 og jafnvel fleiri en fæðing- arnar, sem voru aðeins 887. Sofie Petersen, biskup Grænlands, hvatti til opin- skárrar umræðu í öllu sam- félaginu um fóstureyðingar. „Við höfum gerst sek um þann hugsunarhátt að ekkert sé at- hugavert við að fleygja börnum eins og gömlum leikföngum,“ sagði hún í viðtali við danska dagblaðið Berlingske Tidende. Öðru hverju fóstri eytt Kaupmannahöfn. AFP. ÍSRAELAR héldu áfram hernaðar- aðgerðum sínum á sjálfstjórnar- svæðum Palestínumanna á Vestur- bakka Jórdanar í gær þótt George W. Bush Bandaríkjaforseti hefði skorað á Ísraelsstjórn að flytja her- inn burt af palestínsku svæðunum. Ísraelskir skriðdrekar réðust inn í Tubas, 20.000 manna bæ á Vestur- bakkanum, og skriðdrekar og her- þyrlur gerðu árásir á hundruð vopn- aðra Palestínumanna í bænum Nablus og nálægum flóttamanna- búðum. Hörð átök geisuðu einnig í bænum Jenín. Að minnsta kosti 35 Palestínu- menn, þeirra á meðal 14 ára stúlka, og einn ísraelskur hermaður biðu bana í gær. Er þetta mesta mannfall á einum degi í árásunum til þessa. Sex liðsmenn vopnaðrar hreyfing- ar íslömsku samtakanna Hamas féllu í árás herþyrlu á hús í Tubas, þeirra á meðal leiðtogi hreyfingar- innar á Vesturbakkanum. Talið er að hann hafi skipulagt sprengjutilræði sem kostaði 26 Ísraela lífið í vikunni sem leið. Þá var einn af leiðtogum Al-Aqsa- hersveitanna, sem tengjast Fatah- hreyfingu Yassers Arafats, sagður hafa sprengt sig í loft upp fyrir slysni í Nablus. Ísraelskir hermenn fundu einnig lík fimm araba í Betlehem sem talið er að Palestínumenn hafi vegið vegna gruns um að þeir hafi veitt Ísraelum upplýsingar. Þrír aðrir meintir samstarfsmenn Ísraela voru vegnir í Tubas. Binyamin Ben-Eliezer, varnar- málaráðherra Ísraels, sagði að að- gerðunum yrði haldið áfram „um sinn“ þrátt fyrir áskorun Bush í fyrradag um að herinn yrði fluttur af sjálfstjórnarsvæðum Palestínu- manna. Ísraelskir fjölmiðlar sögðu að stjórn Ísraels teldi sig geta haldið aðgerðunum áfram í nokkra daga til viðbótar, að minnsta kosti þar til Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fer til Mið-Austur- landa í byrjun næstu viku til að reyna að binda enda á blóðsúthell- ingarnar. Embættismenn og dag- blöð í Ísrael bentu á að Bush hefði ekki krafist þess að herinn yrði flutt- ur tafarlaust af sjálfstjórnarsvæðun- um. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun í gærmorgun þar sem Ísraelar voru hvattir til að draga herlið sitt til baka „án tafar“. 72% Ísraela styðja hernaðinn Dagblaðið Jerusalem Post birti í gær skoðanakönnun sem bendir til þess að 72% Ísraela styðji hernaðar- aðgerðirnar á Vesturbakkanum. Herinn segist hafa tekið meira en 1.100 Palestínumenn til fanga og gert fjölmörg vopn upptæk, m.a. öfl- ugar sprengjur, belti sem notuð hafa verið til sjálfsmorðsárása og vél- byssur. Ísraelskir hermenn sátu enn um tugi vopnaðra Palestínumanna í Fæðingarkirkjunni í Betlehem. Fjórir af um 60 prestum, sem urðu innlyksa í kirkjunni, fóru þaðan í gær og þeim var ekið frá Betlehem í fylgd ísraelskra hermanna. Giacomo Bini, háttsettur embætt- ismaður í Páfagarði, sagði að ísr- aelskir hermenn og palestínsku upp- reisnarmennirnir hefðu valdið skemmdum á Fæðingarkirkjunni, einni af helgustu kirkjum heims. Reuters Öldruð palestínsk kona gengur framhjá ísraelskum skriðdreka nálægt torgi við Fæðingarkirkjuna í Betlehem. Stjórn Ísraels hunsar áskorun Bush forseta Ramallah, Jerúsalem. AP, AFP.  Hugsanlegir arftakar/21 ÍSRAELAR heimiluðu í gær Anth- ony Zinni, sendimanni Bandaríkja- stjórnar, að ræða við Yasser Ara- fat, leiðtoga Palestínumanna, í höfuðstöðvum Arafats í borginni Ramallah á Vesturbakkanum þar sem honum er haldið í herkví. Zinni, sem er til hægri á mynd- inni, ræddi við Arafat í 90 mín- útur og var þetta fyrsti fundur palestínska leiðtogans með erlend- um embættismanni í átta daga. Ísraelskir hermenn skutu táragas- hylkjum og höggsprengjum að blaðamönnum, sem reyndu að komast að fundarstaðnum. Byssu- hlaupum skriðdreka var einnig beint að hópnum. Talsmaður Arafats sagði að hann hefði skýrt Zinni frá því að Palestínumenn styddu vopna- hléssamning sem náðist í fyrra fyrir milligöngu George Tenets, yfirmanns bandarísku leyniþjón- ustunnar CIA. Ísraelar og Palest- ínumenn hafa deilt um hvenær koma eigi skilmálum samningsins í framkvæmd. AP Zinni ræðir við Arafat í Ramallah

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.