Morgunblaðið - 06.04.2002, Side 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐA verður Evrópumálin með
opnum huga og ekki að útiloka í eitt
skipti fyrir öll aðild að Evrópusam-
bandinu eða aðildarumsókn. Ekki
ætti að taka langan tíma að kanna
áhuga annarra fyrirtækja en Norsk
Hydro á því að taka þátt í að reisa ál-
ver á Reyðarfirði. Ástæða væri til að
hafa áhyggjur af því að vönduð og
sjálfstæð fréttamennska ætti síður
upp á pallborðið á tímum sívaxandi
hraða og samkeppni í fjölmiðlaheim-
inum.
Þetta voru meðal þeirra atriða sem
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráð-
herra og formaður Framsóknar-
flokksins, gerði að umtalsefni í ræðu
sinni á vorfundi miðstjórnar flokksins
í gær.
Getum ekki útilokað aðild
í eitt skipti fyrir öll
Halldór sagði enga gagnrýni á
EES-samninginn felast í því að benda
á að umhverfi hans og forsendur hafi
verið að breytast. Spurningar vakni
hins vegar á líðandi stundu, um hvort
Íslendingar séu að missa af einhverju
sem bætist við, eða hvort aðstaða Ís-
lands og möguleikar til áhrifa og að-
ildar að ákvörðunum séu að minnka;
þetta séu einhver allra mikilvægustu
hagsmunamál þjóðarinnar nú og á
komandi árum. „Af þessum ástæðum
hef ég talið það skyldu mína sem
stjórnmálamaður, flokksformaður,
utanríkisráðherra, og sem Íslending-
ur, að vinna að þessum málum á þann
hátt sem ég hef gert. Ég er þeirrar
skoðunar að við verðum að skoða
þessi miklu mál með opnum huga og
ég tel ekki að við getum í eitt skipti
fyrir öll útilokað aðild eða aðildarum-
sókn að ESB. Við skulum ekki hraða
okkur um of heldur taka tillit til þess
að skoðanir eru skiptar og hagsmunir
virðast geta rekist á, a.m.k. til
skamms tíma litið.“
Um stöðuna í álversmálum sagði
Halldór að fyrst verði að fara fram
könnunarviðræður við nýja aðila. Þau
fyrirtæki sem koma til greina séu til-
tölulega fá og fyrir bragðið ætti það
ekki að taka ýkja langan tíma að
kanna hvort raunhæfur grundvöllur
sé fyrir leiðandi þátttöku þeirra í
byggingu álvers á Reyðarfirði. Þegar
fyrir liggi niðurstaða úr þeim viðræð-
um þurfi að meta hvort áhugi ein-
hvers þeirra sé nægilega mikill og
traustur til að hefja nýtt formlegt
samninga- og undirbúningsferli með
föstum tímasetningum. „Á því stigi,“
hélt Halldór áfram, „þurfum við að
gera það upp við okkur með hvaða
fyrirtæki verður gengið til samninga.
Um leið og formlegt undirbúnings-
ferli er hafið með tilheyrandi kostn-
aði, vinnu og vaxandi skuldbindingum
er ekki unnt að vera með tvo eða fleiri
viðmælendur á sama tíma.“ Þá minnti
Halldór einnig á áhuga Norðuráls-
manna um að auka framleiðslugetuna
úr 90 þúsund tonnum í 300 þúsund og
sagði viðræður nú standa yfir, bæði
við stjórnvöld, sveitarfélög og Lands-
virkjun og það ráðist væntanlega á
næstu mánuðum hvernig staðið verði
að stækkun Norðuráls.
Harðsoðin fréttamennska
meira áberandi
Halldór sagði að ekki væri laust við
að ástæða væri til þess að taka undir
áhyggjur ýmissa aðila víða erlendis af
sívaxandi hraða og samkeppni í fjöl-
miðlaheiminum sem geri það að verk-
um að hefðbundin fréttamennska sem
lúti ströngum siðareglum um vand-
virkni og sjálfstæði eigi síður upp á
pallborðið. „Ég held að sambærileg
þróun hafi átt sér stað hér á landi.
Harðsoðin fréttamennska er orðin æ
meira áberandi en hún gengur út á
fyrirsagnir og yfirborðsmennsku, í
stað þess að varpa ljósi á kjarna máls.
Ábyrgð fjölmiðla og vald þeirra verð-
ur nefnilega síst ofmetið og því er afar
brýnt að með þetta vald sé farið af
ábyrgð og réttsýni.“ Halldór sagði að
hér á landi bæri nokkuð á þeim rödd-
um sem telja að rekstur ríkisfjölmiðla
sé betur komin í höndum einkaaðila.
„Við framsóknarmenn höfum ítrekað
haldið fram rökum um mikilvægi öfl-
ugs ríkisútvarps fyrir almenning í
þessu landi. Aðeins þannig getum við
staðið vörð um hlutlæga frétta-
mennsku, frjáls og öflug skoðana-
skipti og eflingu íslenskrar tungu –
forsendu íslenskrar menningar. Í ljósi
þeirra breytinga sem orðið hafa á
landslagi íslenskra fjölmiðla, og fyr-
irsjáanlegt er að verði á þeim vett-
vangi, tel ég að þessar röksemdir eigi
við nú sem áður. Og raunar sem aldrei
fyrr.“
Sjávarútvegur hefur burði til
að standa undir meiri álögum
Halldór sagði mikla umræðu hafa
farið fram um stöðu og starfsum-
hverfi íslensks sjávarútvegs á undan-
förnum árum og raunar áratugum.
Miklar breytingar hafi verið gerðar á
löggjöf um stjórn fiskveiða og raun-
verulega tekur hún stöðugum breyt-
ingum. „Ég tel að nú sé að takast
bærileg sátt um framkvæmd sjávar-
útvegsstefnunnar þótt ekki geri ég
mér vonir um að nokkurn tíma verði
þörfum allra fullnægt í þessum efnum
fremur en öðrum.“ Halldór tók fram
að auknir byggðakvótar væru hins
vegar staðreynd og greinin hafi burði
til að standa undir meiri álögum og
þátttöku í annarri atvinnuuppbygg-
ingu í landinu. „Það er vel og því ber
að fagna.“
Halldór Ásgrímsson á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins
Morgunblaðið/Þorkell
„Ég tel ekki að við getum í eitt skipti fyrir öll útilokað aðild að ESB.“
Viðræður við álfélög þurfa
ekki að taka langan tíma
’ Segir hefðbundnafréttamennsku sem
lýtur ströngum siða-
reglum um vand-
virkni og sjálfstæði
nú eiga síður upp á
pallborðið ‘
Morgunblaðið/Golli
Atgangurinn var harður þegar leikar stóðu sem hæst en enginn meiddist þó.
Yngribekk-
ingar höfðu
betur
HINN árlegi gangaslagur í Mennta-
skólanum í Reykjavík fór fram í
gær, föstudag, þar sem eldri og
yngri bekkingar slógust á göngum
skólans samkvæmt gamalli hefð.
Urðu eldri bekkingar að játa sig
sigraða að lokum og bundu yngri
bekkingar þar með enda á 14 ára
samfellda sigurgöngu þeirra eldri.
Áralöng hefð er fyrir þessum slag,
sem fer þannig fram að dimmitendi,
eða sjöttu bekkingar með Inspector
plateraum (hringjara) í broddi fylk-
ingar, reyna að hringja inn til
fimmtu kennslustundar. Remenent-
ar, eða 3., 4. og 5. bekkingar, reyna
að varna þeim aðgengis að bjöllunni.
Takist þeim að halda eldri bekk-
ingum frá bjöllunni í 15 mínútur fá
þeir frí í kennslustundinni.
Að sögn Martins Inga Sigurðs-
sonar Inspector plateum áttu eldri
bekkingar við ofurefli að etja að
þessu sinni, enda var við óvenju
marga nemendur í 3. bekk að etja,
að ógleymdum 4. og 5. bekkingum.
Þessari sterku mótstöðu mættu að
sama skapi óvenju fáir 6. bekkingar
með fyrrgreindum afleiðingum.
ELDUR kom upp í frystitogaranum
Víði EA-910 rétt fyrir klukkan fimm
í fyrrinótt og sendi skipstjórinn út
hjálparbeiðni en afturkallaði hana
þegar skipverjum tókst að ráða nið-
urlögum eldsins. Togarinn var þá
staddur um 83 sjómílur vestsuðvest-
ur af Reykjanesi og var áhöfn þyrlu
Landhelgisgæslunnar kölluð út og
nálæg skip beðin að halda til móts
við Víði. Tíu mínútum eftir aðstoð-
arbeiðni skipstjórans var beiðnin
afturkölluð.
Eldurinn kom upp í umbúða-
geymslu skipsins sem er á millidekki
og myndaðist mikill reykur um borð,
enda mikið um vaxborinn umbúða-
pappír. Ekki er vitað um eldsupptök.
Skipið var á veiðum þegar eldurinn
kviknaði.
Að sögn Landhelgisgæslunnar
kom hjálparbeiðni frá skipinu klukk-
an 04.42 í gegnum Reykjavíkurradíó.
Áhöfn þyrla Gæslunnar var strax
kölluð út og varðskip sent á vett-
vang. Nokkrir togarar voru á veiðum
í námunda við Víði og héldu þeir
strax í átt til hans. Klukkan 04.54 var
aðstoðarbeiðnin afturkölluð af skip-
stjóranum en þá var þyrlan ekki far-
in í loftið.
Frystitogarinn Víðir er um 1.100
brúttótonn að stærð og er í eigu
Samherja hf. á Akureyri.
Áhöfn Víðis
EA réð niður-
lögum elds
um borð
Á FUNDI ríkisstjórnar í gær lagði
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráð-
herra, fram frumvarp til laga um
breytingu á lögum um heimild til
samninga um álbræðslu á Grundar-
tanga. Í frumvarpinu er lagt til að
tekið verði upp nýtt ákvæði í 1. gr.
laganna, sem kveði á um heimild
Norðuráls hf. til þátttöku í öðrum fé-
lögum eða að fjárfesta í öðrum grein-
um atvinnurekstrar með stofnun
dótturfélaga.
Í greinargerð með frumvarpinu
segir að umrædd lög séu ekki afger-
andi hvað þetta varðar og var talið
rétt að taka af skarið með því að
leggja til ofangreinda breytingu á
lögunum. Í lögum um járnblendi-
verksmiðju í Hvalfirði, og aðalsamn-
ingi ríkisstjórnar Íslands og Alusu-
isse Lonza-Holding Ltd., sem hefur
lagagildi, er að finna heimildir fyrir
Íslenska járnblendifélagið og Ís-
lenska álfélagið til þátttöku í öðrum
félögum og öðrum atvinnurekstri.
Þar sem góð reynsla sé komin á
rekstur Norðuráls séu ekki rök til að
takmarka starfsheimildir félagsins
umfram önnur sambærileg fyrirtæki
hér á landi. Að öðru leyti verða
starfsréttindi Norðuráls eingöngu
háð ákvæðum laga um fjárfestingar
erlendra aðila í atvinnurekstri.
Norðuráli
heimilað
að fjárfesta
í öðrum
greinum
HULDA Valtýsdóttir
blaðamaður hefur verið
skipuð formaður orðu-
nefndar hinnar ís-
lensku fálkaorðu í stað
Ásgeirs Péturssonar,
fv. bæjarfógeta, sem að
eigin ósk hefur fengið
lausn frá því embætti.
Sæti hans í nefndinni
tekur Ólafur G. Einars-
son, fv. ráðherra og forseti Al-
þingis.
Auk þeirra Huldu og
Ólafs sitja í nefndinni
Jón Helgason, fv. ráð-
herra og forseti Alþing-
is, Sigmundur Guð-
bjarnason prófessor og
Stefán L. Stefánsson
forsetaritari, sem jafn-
framt er orðuritari.
Varamaður í nefndinni
er Guðný Guðmunds-
dóttir konsertmeistari, segir í
frétt frá forsætisráðuneytinu.
Hulda Valtýsdóttir
formaður orðunefndar
Hulda
Valtýsdóttir
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Afgreitt á
mánudag
ÞRIÐJU og síðustu umræðu um
Kárahnjúkafrumvarpið lauk á Al-
þingi í gær en stefnt er að því að
það verði afgreitt sem lög frá Al-
þingi að lokinni atkvæðagreiðslu á
mánudag.
Fyrr í vikunni stóð til að halda
þingfund í dag en fallið var frá því.
Þingfundur hefst kl. 10.30 á mánu-
dag og er miðað við að atkvæða-
greiðsla um Kárahnjúkafrumvarpið
fari fram síðar um daginn.
Kárahnjúkafrumvarpið