Morgunblaðið - 06.04.2002, Side 6

Morgunblaðið - 06.04.2002, Side 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ FORSÆTISRÁÐHERRA, Davíð Oddsson, og íslenska sendinefndin skoðuðu í gær göngin við Cu Chi í nágrenni Ho Chi Minh-borgar sem skæruliðar Víetkong notuðu í stríðinu við Bandaríkjamenn. Sendinefndin skoðaði fríiðn- aðarsvæði, tók þátt í fjölmennri ís- lenskri viðskiptaráðstefnu Útflutn- ingsráðs Íslands og sat kvöldverðarboð hjá borgarstjóra Ho Chi Minh-borgar í Sameining- arhöllinni sem áður var forseta- höll Suður-Víetnams. Áhrifamikið var orðið sem Dav- íð Oddsson notaði við lok skoð- unarferðar um Cu Chi-stríðs- göngin og sagði að á þessum stað fengist innsýn í heim skærulið- anna. Opinberri heimsókn hans til Víetnams, í boði forsætisráðherra landsins, lýkur í dag. Cu Chi-göngin, sem eru einn þekktasti vígvöllur Víetnamstríðs- ins, eru um 75 kílómetra norð- vestan við miðborg Ho Chi Minh- borgar. Þau voru grafin með ein- földum handverkfærum á löngum tíma, eða frá 1948 að Víetnamar börðust við Frakka. Þau voru stækkuð mikið í styrjöldinni við Bandaríkjamenn og voru orðin um 250 kílómetra löng, á mörgum hæðum og með fjölda vistarvera, og lágu frá útjaðri borgarinnar sem þá hét Saigon og var höf- uðborg Suður-Víetnams og að landamærum Kambodíu. Þau voru sannkallað virki Víetkong, þar voru 5–6 þúsund skæruliðar í einu, vörðust og gerðu árásir og geymdu vopnabirgðir sínar. Háttsettur hershöfðingi, sem var leiðsögumaður forsætisráð- herra um svæðið, sagði að Banda- ríkjamenn hefðu talið göngin svo mikilvæg að ef þau væru í lagi myndi Saigon falla fyrr eða síðar. Hann sagði að Bandaríkjamenn hefðu lagt gífurlega áherslu á að ná svæðinu á sitt vald, meðal ann- ars með miklum sprengjuárásum. Sagði hershöfðinginn að á þeim tíma hefðu um 100 þúsund manns búið á Cu Chi-svæðinu og hefðu um 25 þúsund fallið, um helm- ingur óbreyttir borgarar. Ekki tókst að eyðileggja virkið og skæruliðar og norðanmenn unnu stríðið. Vinsæll viðkomustaður Meginhluti ganganna er nú fall- inn en Víetnamar hafa gert upp hluta þeirra til að gefa fólki inn- sýn í hetjulund og fórnfýsi þjóð- arinnar í baráttu fyrir samein- ingu, eins og það er orðað á einum stað. Er þetta vinsæll við- komustaður ferðafólks. Forsætis- ráðherra og fulltrúar í sendi- nefndinni gengu í gegnum nokkur göng og skoðuðu aðstæður. Þótti fólki nóg um að skríða stuttar vegarlengdir þótt búið sé að víkka göngin út og lýsa upp. Í göngunum og ofanjarðar eru varðveitt nokkur sýnishorn af víg- búnaði skæruliðanna og sprengj- um Bandaríkjamanna. Sýndar eru hinar frægu gildrur Víetkong, meðal annars með bambus- spjótsoddum sem Bandaríkjamann óttuðust mjög, að sögn hershöfð- ingjans. „Maður skilur nú að það hefur verið næstum vonlaust fyrir Bandaríkjamenn að eiga við þetta stríð,“ sagði Davíð þegar hann kom upp úr göngunum. Forsætisráðherra skoðar göng skæruliða við Cu Chi nálægt Ho Chi Minh-borg Innsýn í heim skæru- liðanna Davíð Oddsson forsætisráð- herra býr sig undir að skríða inn í ein af stríðsgöngum í Cu Chi sem sjást fyrir aftan hann. Eiginkona forsætisráðherra, Ástríður Thorarensen, fékk stráhatt að gjöf frá gestgjöfunum, hatt í stíl við þá sem víetnamskar konur nota mikið á hrísgrjónaökrunum og skartaði honum við skoðun Cu Chi-gang- anna. Verið er að færa þeim hjónum te við upphaf heimsóknarinnar. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Auk gangamunna voru víða lítil op ofan í göngin, vel falin í frumskóg- inum, sem skæruliðar gátu notað til að gera óvæntar árásir. Davíð Oddsson og Ástríður Thorarensen líta niður í eitt slíkt gat, ásamt Al- berti Jónssyni deildarstjóra og Ólafi Egilssyni sendiherra. Ho Chi Minh-borg. Morgunblaðið. VERÐLAGSVÍSITALA matar- og drykkjarvara var hæst á Íslandi af öllum Norðurlöndunum árið 2000. Það ár var hún 113,7 á Íslandi, 113,3 í Noregi, 104,0 í Svíþjóð, 103,9 í Finnlandi og 106,4 í Dan- mörku. Þetta kemur m.a. fram í skrif- legu svari ráðherra Hagstofu Ís- lands, Davíðs Oddsonar, við fyr- irspurn Rannveigar Guðmunds- dóttur, þingmanns Samfylkingar- innar. Í svarinu kemur einnig fram að verðlagsvísitala grænmetis á Norðurlöndunum hafi verið hæst í Noregi árið 2000. Það ár var hún 116,8 í Noregi, 115,0 á Íslandi, 105,4 í Finnlandi, 103,3 í Svíþjóð og 87,6 í Danmörku. Þá kemur fram að verðlagsvísi- tala fyrir landbúnaðarvörur hafi verið hæst á Íslandi árið 2000. Það ár var hún 112,3 á Íslandi, 111,7 í Noregi, 103,3 í Danmörku, 102,2 í Svíþjóð og 101,4 í Finnlandi.                             Verðlagsvísitala matvara Hæst á Íslandi FRAMKVÆMDASTJÓRI íslenska ráðgjafarfyrirtækisins Icecon ehf., fyrir hönd þess og Markviss ehf., undirritaði í gær í Ho Chi Minh borg samstarfssamning við Vasep, sam- tök framleiðenda og útflytjenda sjávarfangs í Víetnam. Felur samn- ingurinn í sér að unnið verður að þróun sjávarútvegs í landinu á næstu tíu árum fyrir allt að 10 milljarða króna. Davíð Oddsson forsætisráð- herra sem er í opinberri heimsókn í Víetnam var viðstaddur athöfnina. Þorgeir Pálsson, framkvæmda- stjóri Icecon ehf., segir að unnið hafi verið að undirbúningi samstarfs- samningsins í eitt og hálft ár en sjálf- ur hafi hann verið viss um að ýmis tækifæri fælust á markaðnum frá því hann var hér á ferð á árinu 1995, þá sem starfsmaður Útflutningsráðs Ís- lands. Sjávarútvegur í Víetnam þarf að hans sögn aðstoð við að þróast, meðal annars við uppbyggingu gæðamála og umhverfismála, og auka vinnslu- og markaðsþekkingu. Icecon muni í framhaldi af samn- ingnum skipuleggja áhugaverð verk- efni á þessu sviði, í samvinnu við heimamenn, og nýta sér sambönd sín til að fá erlend fyrirtæki til að fjár- festa í þeim. Líkur eru á að íslensk fyrirtæki muni taka þátt í slíkum verkefnum. Þorgeir leggur áherslu á að þótt samningurinn hljóði upp á 100 millj- ónir dollara samtals á tíu árum sé ekki hægt að tala um það sem verð- mæti samningsins heldur ákveðinn ramma sem báðir aðilar muni kapp- kosta að fylla út í. Hann sé fyrsta skrefið og síðan sé verkefni Icecon og samstarfsaðila að finna og skipu- leggja áhugaverð verkefni. Icecon semur við sjávarvöruframleiðendur og útflytjendur Laða að erlenda fjárfesta Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Davíð Oddsson forsætisráðherra óskar Nguyen Huu Dung, forstjóra Vasep, til hamingju með samninginn við Icecon. Auk þeirra Þorgeirs Pálssonar, framkvæmdastjóra Icecon, og forráðamanna Vasep voru Ólafur Egilsson sendiherra og Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Út- flutningsráðs, viðstaddir undirritun samningsins. Ho Chi Minh-borg. Morgunblaðið. FORSETI sænska þingsins, Birgitta Dahl, verður í opinberri heimsókn á Íslandi dagana 6. – 9. apríl í boði Halldórs Blöndals, forseta Alþingis. Í för með Birgittu Dahl verða eig- inmaður hennar, skrifstofustjóri þingsins og aðstoðarforstöðumaður alþjóðasviðs. Sænski þingforsetinn heimsækir Alþingishúsið mánudaginn 8. apríl kl. 14.30 og mun forseti Alþingis flytja honum kveðju úr forsetastóli kl. 15. Forseti sænska þingsins mun ræða við Halldór Ásgrímsson utan- ríkisráðherra og Geir H. Haarde fjármálaráðherra. Forsetinn mun snæða hádegisverð með formönnum þingflokka Sjálfstæðisflokks, Sam- fylkingar, Framsóknarflokks og Vinstri hreyfingarinnr – græns framboðs og eiga fund með formanni Samfylkingarinnar. Á dagskrá sænska þingforsetas er ferð til Vestmannaeyja þar sem bæj- arstjóri, forseti bæjarstjórnar, sýslu- maður og ræðismaður Svía í Vest- mannaeyjum taka á móti gestunum. Enn fremur verða sögusetrið á Hvolsvelli og Listasafn Íslands heim- sótt, segir í frétt frá Alþingi. Heimsókn forseta sænska þingsins ÁKVEÐIÐ hefur verið að hætta rekstri Fríkortsins og mun Fríkortið afnema punktaveitingar frá og með 1. júní. Eftir það verður hægt að inn- leysa punkta fram til næstu áramóta. Starfsemi fyrirtækisins verður síðan lögð niður í byrjun árs 2003. Ein helsta ástæða þess að Fríkort- ið ákveður að setja endapunktinn nú er sú, að markaðskannanir hafa sýnt dvínandi áhuga á tryggðarkerfum og þeirri umbun sem þau fela í sér, seg- ir í fréttatilkynningu. Árlegur kostnaður vegna reksturs fríkortakerfisins hefur verið umtals- verður og nú þegar vart verður dvín- andi áhuga er ljóst að árangur tryggðarkerfisins er ekki lengur við- unandi, segir í fréttinni. Fríkortið kveður ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.