Morgunblaðið - 06.04.2002, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 06.04.2002, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Ferðatorg 2002 í Smáralind Hafa ekki upp- götvað ævin- týralandið SEGJA má að vissarblikur séu á lofti hjáferðaþjónustuaðil- um innanlands þegar ljóst má vera að erlendum gest- um með Flugleiðum frá Bandaríkjunum og frá Evrópu með GO hlýtur að fækka umtalsvert á kom- andi sumri. Þetta er áhyggjuefni fyrir innlenda ferðaþjónustuaðila hér á landi, sérstaklega úti á landsbyggðinni, en því fer þó fjarri að fólk í greininni ætli að mæta vandanum liggjandi í kör. Til mótvæg- is hugsa Ferðamálasamtök Íslands sér að koma á fót nokkurs konar markaðs- torgi ferðaþjónustunnar hér á landi á næstunni. Verður sett upp svokallað Ferðatorg 2002 í Smáralind þar sem bryddað verður upp á einu og öðru. Pétur Ólafur Rafnsson er formaður samtakanna og hann svaraði nokkrum spurningum Morgunblaðsins. Hvað er Ferðatorg 2002, hvar verður það haldið og hvenær? „Sjaldan hefur verið brýnna að auka áhuga landsmanna á að ferðast um eigið land og njóta allr- ar þeirrar þjónustu sem aðilar ferðaþjónustunnar hafa á boðstól- um. Ár frá ári eykst breiddin í þjónustu og valkostum ferðaþjón- ustunnar um land allt. Til þess að kynna það sem í boði er hafa Ferðamálaráð Íslands og Ferða- málasamtök Íslands, í samvinnu við Sýningar ehf. og KOM ehf., ákveðið að standa fyrir Ferðatorgi 2002 í Vetrargarði Smáralindar 19.–21.apríl nk. Á Ferðatorgi 2002 gefst fagfólki ferðaþjónustunnar og almenningi kostur á að afla sér upplýsinga um valkosti í ferða- þjónustu innanlands.“ Hver er ástæðan fyrir Ferða- torgi 2002 og tilgangurinn? „Aðalástæðan er sú að kynna fyrir íbúum suðvesturhornsins hve fjölbreytt ferðaþjónusta landsmanna er orðin. Það á að kynna alla þá valkosti í afþreyingu sem eru í boði um allt Ísland. Landsmenn gera allt of mikið af því að bruna landshlutanna á milli í bíl í einum rykk og án þess að átta sig á því hve margt er hægt að skoða, upplifa og kynna sér á leið- inni. Ferðatorgi 2002 er ætlað að vera eins konar markaðstorg ferðaþjónustunnar þar sem aðilar í ferðaþjónustu geta sýnt við- skiptavinum sínum og almenningi það helsta sem þeir bjóða upp á í flutninga-, gisti- og afþreyingar- þjónustu á komandi háönn ferða- þjónustunnar.“ Hverjir standa að Ferðatorgi 2002? „Ferðamálasamtök Íslands, en innan þess eru átta landshluta- samtök og Ferðamálaráð Ís- lands.“ Á hvað verður helst lögð áhersla? „Það verður lögð áhersla á að kynna hvað er að gerast í hverjum landshluta. Afþreyingar- og skoðunarmöguleikar lands- byggðarinnar skipta hundruðum. Það má nefna vélsleðaferðir, hvalaskoðun, raftasiglingar, gönguferðir, hestatúra, kajakferð- ir, alls kyns veiði í vötnum og sjó. Ekki má gleyma öllum söfnunum á landinu, eins og hvala-, drauga-, byggða- og sjóminjasöfnunum að Vesturfarasafninu ógleymdu. Svona má áfram telja.“ Eru Íslendingar ekki duglegir að ferðast um eigið land? „Jú, að vissu leyti eru þeir það, en þeir hafa ekki enn uppgötvað ferða- og ævintýralandið Ísland. Það er svo margt að sjá sem er rétt við þjóðveginn þegar við ferðumst um landið okkar. Það þarf ekki að fara til Spánar eða Portúgal til þess að upplifa einstök ævintýri. Þau eru allt í kringum okkur.“ Hvernig verður Ferðatorg 2002 kynnt og hvernig verður því fylgt eftir? „Það er miðað að því að þetta verði upphafið að árlegu markaðs- torgi ferðamála þar sem almenn- ingur getur komið og kannað hvað er í boði og hvert sé mest spennandi að fara innanlands í frítímum. Ferðatorg 2002 er ekki vörusýning heldur markaðstorg þar sem hver og einn getur fundið eitthvað áhugavert fyrir sig og sína fjöl- skyldu.“ Getið þið lofað góðu veðri í sum- ar? „Já, það er ekki spurning. Vand- inn er að segja til um hvar á land- inu góða veðrið verður hverju sinni. Það verður fullt af góðu veðri og góðu ferðaskapi. Það er lóðið.“ Pétur Ólafur Rafnsson  Pétur Ó. Rafnsson er fæddur 1948 og uppalinn í Njarðvík, Akranesi og á Flateyri. Bjó síðan í Hafnarfirði 1988-96. Stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1968 og var við viðskipta- fræðinámfræðinám við HÍ og Há- skólann í Munchen 1968-74. Rak fyrirtæki í hjólbarðaiðnaði 1976- 85, og var síðan í ráðgjöf í um- hverfis- og ferðamálum til 2000. Pétur var formaður Heimdallar 1979-81, formaður Fram, félags sjálfstæðismanna í Hafnarfirði 1991-93, í stjórn FÍB, HSÍ 1981- 84 og í Ferðamálanefnd Hafn- arfjarðar 1990-94. Árið 2000 ráð- inn verkefnisstjóri hjá Ferða- málaráði. Er m.a. formaður Ferðamálasamtaka Íslands frá 1998, formaður Ferðamála- samtaka höfuðborgarsvæð- isinsfrá 1994, fulltrúi í Ferða- málaráði frá 1999 og í stjórn Upplýsingamiðstöðvar ferða- mála í Reykjavík frá 1998. Maki er Guðríður Friðriksdóttir flug- freyja hjá Atlanta og eru börnin fimm, Arnar Már, Björn Ársæll, Sólveig, Tinna og Harpa Þórunn. AUk þess eru barnabörnin fimm. Upphaf að árlegu mark- aðstorgi Nossararnir voru ekki einir um að draga hæstvirtan iðnaðarráðherra á asnaeyrunum. MEIRIHLUTI þjóðarinnar, eða 61%, vill að Landssíminn verði áfram í eigu ríkisins en 39% vilja að hann verði seldur. Þetta eru helstu niðurstöður skoðanakönnunar sem Gallup framkvæmdi fyrir þingflokk Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, VG, á viðhorfum almenn- ings til sölu Símans. Hringt var í 1200 manns á aldr- inum 16–75 ára, valda af handahófi úr þjóðskrá, og var svarhlutfallið tæp 70%. Könnunin fór fram dag- ana 6. til 19. mars en þess má geta að aðalfundur Símans fór fram 11. mars sl. Um átta af hverjum tíu, sem svöruðu, tóku afstöðu til spurningarinnar og ofangreind hlutföll eiga einmitt við þá sem af- stöðu tóku. Þrír þingmenn VG kynntu könn- unina fyrir blaðamönnum í gær, þau Ögmundur Jónasson, þing- flokksformaður, Jón Bjarnason, fulltrúi VG í samgöngunefnd, og Þuríður Backman, varaformaður þingflokksins. Þau sögðu niðurstöðuna vera at- hyglisverða og mjög afgerandi. Könnunin sýndi að málflutningur þingflokksins hefði talsvert fylgi meðal þjóðarinnar en um leið væru þetta skýr skilaboð almennings til stjórnvalda um að hætta alfarið við öll áform um að einkavæða Lands- símann. Jón Bjarnason sagði nið- urstöðuna sýna að þjóðin væri skynsöm. 44% sjálfstæðismanna vilja Símann áfram í eigu ríkisins Þingmennirnir vöktu athygli á þeim niðurstöðum að í öllum grein- ingarflokkum nema tveimur hefði hlutfall þeirra sem vildu Símann áfram í opinberri eigu verið hærra en hinna sem vildu selja. Þegar litið væri til fylgis við stjórnmálaflokka væru 56% kjósenda Sjálfstæðis- flokksins hlynnt sölu Símans en 44% vildu hann áfram í eigu rík- isins. Það hlyti að vera nokkurt um- hugsunarefni fyrir flokk sem fylgdi einkavæðingarstefnu á Alþingi. Þá svöruðu 52% fólks á aldrinum 25–34 ára því játandi að það vildi selja Landssímann. Í öðrum grein- ingarflokkum, hvort sem litið var til búsetu, menntunar, starfs, tekna eða stuðnings við stjórnmálaflokka, vildu fleiri hafa Símann áfram í eigu ríkisins. Ákveðnust var niðurstaðan meðal fylgismanna VG, 80% þeirra vilja Símann í ríkiseigu en 20% vilja sölu. Meðal stuðningsmanna Fram- sóknarflokksins vildu 64% að Sím- inn yrði ekki seldur og sama hlut- fall var hjá Samfylkingarmönnum. Könnunin leiddi einnig í ljós að 56% þeirra svarenda sem tóku afstöðu töldu málefni Símans skipta sig miklu máli. Þingmenn VG minntu einnig á að þeir hefðu lagt fram þingsályktun- artillögu á Alþingi um breiðbands- væðingu landsins. Í tillögunni felst að ljúka skuli á næstu þremur árum uppbyggingu fjarskipta- og gagna- flutningsnets landsins um breið- bandið. Símanum verði, einum sér eða eftir atvikum í samstarfi við aðra, falið að ráðast í nauðsynlegar fjárfestingar og endurbætur á grunnfjarskiptanetinu. Og Síminn verði undanþeginn arðgreiðslum til eigenda meðan á átakinu standi. Könnun Gallup fyrir þingflokk VG 61% vill Símann áfram í eigu ríkisins VERZLUNARSKÓLI Íslands kynnir sig fyrir væntanlegum framhaldsskólanemendum með nýstárlegum hætti þetta árið með því að senda öllum 10. bekk- ingum í grunnskólum landsins margmiðlunardisk þar sem farið er í svokallað ferðalag um Verzl- unarskólann og skólastarfið í heild sinni kynnt. Mun Verzl- unarskólinn vera fyrstur fram- haldsskóla til að kynna sig með þessum hætti. Farið er yfir uppbyggingu námsins, félagslífinu gerð ræki- leg skil og gerð er grein fyrir deildum skólans. Þá eru fyrrver- andi verzlingar teknir tali, m.a. popppíanistinn Jón Ólafsson og Gísli Marteinn Baldursson sjón- varpsmaður og frambjóðandi. Að gerð disksins stóðu starfsmenn skólans og fyrirtækið Prax ehf., en í því eru einungis fyrrverandi Verzlunarskólanemar. Að sögn Klöru Hjálmtýsdóttur námsráðgjafa Verzlunarskólans er farið inn í skólastofurnar, bókasafnið, samkomusal nemenda og fleira. „Ferðalagið“ um skólann tekur um hálfa klukkustund og er m.a. hægt að líta við á æfingu skóla- leikrits og horfa á myndskeið frá söngkeppninni Verzlunarskólans svo fátt eitt sé nefnt. „Það eru fjórir strákar sem kláruðu Verzló í fyrra sem gerðu þennan disk og hann er ótrúlega flottur,“ sagði Klara. Höfund- arnir eru Davíð Már Bjarnason, Hörður Már Jónsson, Hjörtur Hjartarson og Samúel Krist- jánsson. Til stendur að stækka skólann á næstunni um 2000 fermetra og fjölga nemendum í kjölfarið. Þá verður ný braut tekin í gagnið á næsta ári, tölvu- og upplýs- ingabraut, bókasafnið stækkað og námsaðstaða bætt. 10. bekkingum boðið í ferðalag um Verzlunarskólann
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.