Morgunblaðið - 06.04.2002, Síða 14

Morgunblaðið - 06.04.2002, Síða 14
SUÐURNES 14 LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ VERIÐ er að flytja olíumengaðan jarðveg frá svokölluðu Nikkelsvæði við Reykjanesbæ til hreinsunar inn- an varnarsvæðisins og þaðan til urð- unarstaðar varnarliðsins í Stafnesi, sem einnig er innan varnarsvæðis- ins. Landeigendur sem eiga landa- mörk að varnarsvæðinu, en urðunar- staðurinn er í útjaðri þess, eru ósáttir við framkvæmdirnar og vilja að urðunarstaðnum, sem er án starfsleyfis, verði lokað. Bæjaryfir- völd í Sandgerðisbæ hafa einnig lýst óánægju með framkvæmdirnar og bæjarbúar hafa safnað fjölda undir- skrifta vegna málsins. Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja seg- ir að samkvæmt úrskurði Skipulags- stofnunar krefjist framkvæmdin ekki umhverfismats og samþykkti því stofnunin framkvæmdirnar fyrir sitt leyti. Á Nikkelsvæðinu var áður olíu- brigðastöð Varnarliðsins en nú stendur hreinsun svæðisins yfir. Ol- íu- og blýmengaður jarðvegur er fluttur til hreinsunar á svokallað Dye-5 svæði innan vallar, en PCB- mengaður jarðvegur verður fluttur til Danmerkur til förgunar. Nýr urðunarstaður fyrir ösku og tregrotnandi úrgang er fyrirhugað- ur um hálfan kílómetra sunnan við núverandi urðunarstað. Landið sem nýi urðunarstaðurinn verður á er innan varnarsvæðis en verður á næstunni fært út fyrir, að sögn Guð- jóns Guðmundssonar, framkvæmda- stjóra Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og Sorpeyðingarstöðv- ar Suðurnesja. Varnarliðið á gamla urðunarstaðinn en Sorpeyðingar- stöðin mun sjá um rekstur nýja stað- arins. Landeigendur segja samninga brotna Margrét Guðjónsdóttir er einn landeigenda Stafnestorfunnar sem tilheyrir Sandgerðisbæ og á landa- mörk að varnarsvæðinu. Stór hluti lands Stafness var tekinn eignar- námi undir flugrekstur á sínum tíma en að sögn Margrétar var aldrei til umræðu að á því yrði önnur starf- semi, en urðunarstaðurinn er við landamörkin. „Í samningi sem var gerður við landeigendur var kveðið á um að ekkert mætti byggja eða gera á svæðinu án samráðs við þá,“segir Margrét. „Við það hefur ekki verið staðið.“ Margrét segir landeigendur oft hafa kvartað til Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, en án árangurs. Þá hafi þeir sent kæru til umhverfisráð- herra þar sem farið var fram á að urðunarstaðnum yrði lokað og að annar kæmi ekki í staðinn eins og fyrirhugað er. Umhverfisráðuneytið vísaði kærunni frá, á þeim forsend- um að málefni varnarsvæðisins féllu undir utanríkisráðuneytið. „Haug- arnir liggja að landamörkum okkar og efni frá þeim hefur farið inn á okkar land,“ segir Margrét. „Það er ekki starfsleyfi fyrir haugunum. Þarna hefur verið urðað heimilis- sorp, járn, timbur, asbest og annað. Það var ekki haft samráð við okkur við ákvörðun um nýja hauga, við heyrðum það í útvarpsfréttum.“ Margrét segir að mikið sé um að fólk gangi um svæðið þar sem sögu- fræga staði er að finna. „Frá haug- unum er stutt niður á vatnsból okkar og niður að sjó. Þetta mengar allt svæðið, bæði á sjó og landi. Þarna var mikið kríuvarp en nú sést varla fugl á svæðinu. Við landeigendur er- um mjög óánægðir með hvernig staðið hefur verið að þessu máli. Það er alveg ótrúlegt að verið sé að flytja mengaðan jarðveg úr einu bæjar- félagi í annað og höfða svo til þess að þetta sé innan varnarsvæðis.“ Sveitarfélögin hafa lítið með ákvörðun um flutning að gera „Við hefðum viljað að efnið yrði sett fullhreinsað á svæði þar sem lokaður jarðvegur væri undir eða malbik,“ segir Óskar Gunnarsson, forseti bæjarstjórnar Sandgerðis- bæjar. „Við stóðum í þeirri trú að verið væri að athuga þann mögu- leika að hreinsa efnið á Pattisons- flugvelli, af því hefur greinilega ekki orðið.“ Óskar segir að urðunarstaðurinn í Stafnesi sé innan bæjarmarka Sand- gerðis þó að hann sé innan varnar- svæðis. „Nikkelsvæðið er einnig inn- an varnarsvæðis og því er verið að flytja efni milli staða innan varnar- svæðisins. Sveitarfélögin geta ekki haft mikið um það að segja annað en að lýsa yfir óánægju og fullri ábyrgð á hendur þeim sem að þessu standa.“ Í bréfi bæjarstjórnar Sandgerðis til Varnarmálaskrifstofu utanríkis- ráðuneytisins og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja (HES) segir að bæjar- stjórnin lýsir því yfir að leiði flutn- ingur á jarðvegi af Nikkelsvæðinu til tjóns eða skemmda á umhverfinu sé það á ábyrgð HES og varnarmála- skrifstofunnar. Bæjarstjórn ítrekaði í bréfinu athugasemdir sínar vegna málsins og lagði áherslu á að meng- aður jarðvegur yrði meðhöndlaður utan sveitarfélagsmarka Sandgerð- isbæjar. Skipulagsstofnun samþykk framkvæmdum Utanríkisráðuneytið bar með- höndlun á jarðveginum af Nikkel- svæðinu undir Skipulagsstofnun sem hafði samráð við Heilbrigðiseft- irlit Suðurnesja, Náttúruvernd og Hollustuvernd ríkisins. „Að höfðu samráði við þessa aðila komst Skipu- lagsstofnun að þeirri niðurstöðu að þessi framkvæmd væri ekki líkleg til þess að valda umtalsverðum um- hverfisáhrifum og því ekki háð mati á umhverfisáhrifum,“ segir Bergur Sigurðsson, umhverfisfulltrúi Heil- brigðiseftirlits Suðurnesja. „Núna er verið að flytja jarðveginn af Nikk- elsvæðinu til hreinsunar í samræmi við leiðbeiningar Hollustuverndar ríkisins á svæði sem kallast Dye-5 og er innan varnarsvæðisins. Með- höndlunarsvæðið á Dye-5 er nokkur hundruð metra frá urðunarstaðnum á Stafnesi. Að meðhöndlun lokinni verður jarðvegurinn notaður sem huluefni á urðunarstaðnum á Staf- nesi.“ Á Nikkelsvæðinu var staðbundin PCB-mengun við tvær spennistöðv- ar. Fram kemur í úrskurði Skipu- lagsstofnunar að PCB-mengaði jarð- vegurinn verði fluttur til eyðingar erlendis en ekki urðaður á Stafnesi. Niðurstöðu Skipulagsstofnunar er að finna á heimasíðu Heilbrigðiseft- irlits Suðurnesja, hes.is. Bergur segir það rétt að urðunar- staðurinn á Stafnesi hafi ekki starfs- leyfi en starfsleyfi sé í vinnslu hjá Heilbrigðiseftirlitinu. „Þó svo að starfsleyfi sé ekki fyrir hendi hefur verið virkt eftirlit með starfseminni undanfarin ár.“ Mengun í grunnvatni innan viðmiðunarmarka Á urðunarstaðnum á Stafnesi er urðuð aska frá Sorpbrennslustöð Suðurnesja þar sem brennsla á sorpi allra sveitarfélaga auk varnarliðsins fer fram. „Það er eðlismunur á þeim úrgangi sem þarna er urðaður og þeim sem urðaður er á öðrum urð- unarstöðum. Þess má geta að blý- styrkur í öskunni er sex sinnum hærri en hæsta gildi í jarðveginum á Nikkelsvæðinu og ekki ástæða til að ætla að jarðvegurinn valdi mengun umfram þá sem rekja má til öskunn- ar sem þar hefur verið urðuð í 20 ár,“ segir Bergur. Hann segir að grunn- vatnssýni hafi verið tekin við rætur hauganna og niðurstöður þeirra mælinga sýni að styrkur þungmálma sé undir viðmiðunarmörkum fyrir neysluvatn. „Vatnið undan haugun- um rennur ekki í áttina að vatns- bólum landeigenda í Stafnesi.“ Bergur segir það rétt að fuglalíf hafi minnkað víða í nágrenni flug- vallarins enda sé markvisst unnið að því að útrýma fugli á svæðinu til þess að stuðla að bættu flugöryggi. Berg- ur nefnir í því sambandi lúpínurækt, skotveiði, gervifálka við flugstöðina auk þess sem refir séu velkomnir landnemar á svæðinu ólíkt því sem gerist víða um land, þar sem fugl þrífst ekki í nágrenni við refagreni. Bæjarráð Sandgerðisbæjar hefur boðað landeigendur við Stafnes á fund næstkomandi fimmtudag þar sem farið verður yfir stöðu mála. Landeigendur ósáttir við framkvæmdir       !   "!# "!# !     % #              Sandgerði Mengaður jarðvegur af Nikkelsvæði hreinsaður og síðar urðaður í Stafnesi Morgunblaðið/Hilmar Bragi Olíumengaður jarðvegur er fluttur af Nikkelsvæðinu til hreinsunar á Dye-5-svæðinu innan vallar og þaðan í urðunarstaðinn í Stafnesi. SUÐURNESJAMENN stóðu sig vel á Íslandsmótinu í kappakstri með fjarstýrða bíla sem Smábílaklúbbur Íslands stóð fyrir í Mosfellsbæ fyrir skömmu. Suðurnesjamenn hafa reyndar alltaf verið áberandi á Ís- landsmótinu og jafnframt staðið fyrir því, enda eru stofnendur klúbbsins tveir bræður úr Innri- Njarðvík. Morgunblaðið hitti þá bræður að máli, Emil Örn Víðisson, sem vann mótið og Andra Örn Víð- isson, sem hafnaði í 3. sæti, en þeir hafa verið forfallnir mótorsport- áhugamenn frá 1993 og ætla í til- efni 10 ára afmælisins á næsta ári að berjast fyrir því að fá aðstöðu fyrir íþróttina í Reykjanesbæ. Andri og Emil kynntust íþrótt- inni í Danmörku ungir að árum og fóru árið 1993 í sérstaka ferð þangað til að kaupa fjarstýrða bíla og taka þátt í sinni fyrstu keppni. Þeir höfðu þá komist í samband við klúbb þar í landi í gegnum verslun sem þeir ætluðu að panta bílana hjá. Þeir kepptu í Danmörku næstu tvö árin en árið 1995 ákváðu þeir að kanna áhugann fyrir íþróttinni hér heima og komust að því að hann var mikill. Í kjölfarið stofn- uðu þeir Smábílaklúbb Íslands, sem hefur vaxið jafnt og þétt í gegnum árin og telur nú rúmlega 100 fé- lagsmenn. Andri og Emil segja að áhuginn á íþróttinni sé þeim í blóð borinn. Enginn barnaleikur „Pabbi okkar, Víðir Tómasson, er mikill áhugamaður um mót- orsport og keppti m.a. í hefð- bundnum kappakstri á sérútbúnum bílum á malbikuðum brautum þeg- ar við bjuggum í Danmörku. Hann var búinn að lofa því að ég fengi Gokart bíl þegar ég yrði nógu gamall, en þá var þessi íþrótt ekki byrjuð hér og því urðu fjarstýrðir bílar fyrir valinu. Þetta er bara ein tegund mótorsports og ef maður á eftir að breyta til færir maður sig sjálfsagt yfir í Gokart eða Rally Cross, “ segir Emil. Andri bætir við að faðir þeirra hafi hvatt þá alveg frá upphafi og stutt við bakið á þeim m.a með því að fylgja þeim á mót erlendis. „Þannig er byrjunin oft, þ.e. pabbarnir draga strák- ana.“ Kappakstur með fjarstýrða bíla krefst mikilla æfinga, rétt eins og annað mótorsport, og þeir bræður segja það stundum erfitt að koma því við. „Auðvitað hafði maður miklu meiri tíma hér áður fyrr þegar maður var yngri. Ég er kom- inn með fjölskyldu og get því ekki eytt eins miklum tíma í þetta, auk þess sem engin aðstaða er hér til æfinga sem gerir þetta enn erf- iðara. Maður finnur það þegar maður fer á mót erlendis að maður þyrfti að gera betur og ekki batnar það þegar atvinnumönnum í grein- inni fer sífellt fjölgandi,“ segir Em- il. – En hvað er það sem fær full- orðna menn til að leika sér með fjarstýrða bíla? „Ég fær gríðarlegt „kikk“ út úr þessu. Þetta svalar þörfinni fyrir að keyra hratt og má því segja að íþróttin hafi forvarnargildi. Auk þess er gaman að spekúlera í bíl- unum, setja þá saman og breyta þeim. Rally Coss mennirnir öfunda okkur nú stundum af því hversu auðvelt er fyrir okkur að breyta bílunum, bara skella þeim upp á stofuborð og taka þá í sundur. Það er mesti misskilningur að þetta sé barnaleikur sem gangi út á það að fara út og keyra fjarstýrðan bíl. Það var kannski þannig í upphafi, en ekki lengur, auk þess sem akst- ur fjarstýrðra bíla er ekki ætlaður börnum yngri en 14 ára og þetta er mjög dýr íþrótt. Nú gengur þetta út á að keyra í brautum og æfa aksturslag. Við þurfum að vita á hvaða hraða við getum keyrt í beygjunum og við þurfum að stilla bílana eftir því hvernig brautin er hverju sinni,“ segir Andri. – En hvar getið þið æft ykkur? „ Á sumrin höfum við fengið afnot af skólalóðum til æfinga og á vet- urna hafa forráðamenn íþrótta- hússins í Mosfellsbæ verið mjög hjálplegir og boðið okkur afnot af hluta hússins á laugardögum. Við þurfum hins vegar að fá úr þessu bætt og það er það sem við stefnum að núna. Þá eigum við einnig meiri möguleika á Norð- urlandamótinu og Evrópumótinu sem við stefnum að á næsta ári, svona til að fagna árunum 10. Draumurinn er að fá aðstöðu ofan við Gokart brautina í Innri- Njarðvík, svo akstursíþróttirnar séu á einum stað,“ segja bræðurnir að lokum. Kappakstursáhugi í blóð borinn Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Bræðurnir með bílana. Andri t.v. heldur á bíl úr jeppaflokki en Emil t.h. heldur á bíl úr götubílaflokki, en keppt er í þessum tveimur flokkum í kappakstri með fjarstýrða bíla. Reykjanesbær

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.