Morgunblaðið - 06.04.2002, Page 20
ERLENT
20 LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
TVÖ ár eru nú liðin frá því að Vlad-
ímír Pútin, þá um flest með öllu
óþekktur maður á leiksviði rúss-
neskra stjórnmála, tók við embætti
forseta. Pútin þykir hafa vaxið mjög
í embætti og framganga hans nú
einkennast af yfirvegun og sjálfs-
öryggi. En margt er það sem for-
setanum hefur ekki tekist að leiða
til lykta.
Hæst ber trúlega stríðið í Tsjets-
níju sem Pútín lofaði að binda enda
á. Nú vorar senn þar eystra og þá
má búast við að bardagar hefjist á
ný. Það verður þriðja vorið í röð
sem blóði er úthellt þar í valdatíð
Pútíns. Stærsta pólitíska verkefni
forsetans er að koma á friði í
Tsjetsjníju, sem verið hefur sem
fleinn í holdi Rússa í hartnær tíu ár
og hefur stórlega skaðað ímynd og
stöðu þeirra erlendis.
Pútín varð forseti Rússlands
31.12 árið 1999 þegar Bortís Jeltsín
sagði óvænt af sér. Þremur mán-
uðum síðar var hann svo kjörinn
forseti í almennum kosningum.
Athyglin á Vesturlöndum hefur
mjög beinst að utanríkisstefnu for-
setans. Hún hefur almennt mælst
vel fyrir á erlendum vettvangi en á
heimavelli kann staða forsetans
ekki að vera jafn sterk. Frekari
stækkun Atlantshafsbandalagsins
(NATO), sem kann að reynast mun
umfangsmeiri en talið var fyrir að-
eins örfáum mánuðum, er á næsta
leiti. Í Rússlandi telja margir að
forsetinn hafi sýnt óþolandi linkind
í viðskiptum sínum við vesturlönd.
Ólík viðbrögð
Rúmir sex mánuðir eru liðnir frá
árásum hryðjuverkamanna á
Bandaríkin og ljóst er að ráða-
mönnum í Moskvu hefur enn ekki
tekist að samræma viðbrögð sín við
næstu skrefum í því hnattræna
stríði gegn hryðjuverkavánni sem
Bandaríkjamenn hafa boðað. Ýmsir
spyrja hvort verið geti að Pútín
Rússlandsforseti sé að einangrast í
Moskvu og sú skoðun hefur heyrst
að staða forsetans minni um margt
á valdatíð Míkhaíls S. Gorbatsjovs,
síðasta leiðtoga Sovétríkjanna.
Eitt skýrasta dæmi þess að rúss-
neskir ráðamenn tali ekki einni
röddu barst á dögunum frá Moskvu
þegar stjórnvöld í Georgíu skýrðu
frá því að þau hefðu beðið Banda-
ríkjamenn að senda hernaðarráð-
gjafa til landsins. Það var gert í því
skyni að gera stjórnarhernum kleift
að leita uppi og uppræta liðsmenn
al-Qaeda-hryðjuverkasamtakanna,
sem sagt er að hafi tekið sér ból-
festu í fjallendi í Georgíu.
Pútín Rússlandsforseti sagði
þegar tíðindi þessi voru borin undir
hann að Rússar teldu það „ekki
harmleik“ þótt bandarískir ráðgjaf-
ar yrðu sendir til landsins. Ígor Ív-
anov utanríkisráðherra og nokkrir
aðrir undirsátar forsetans lýstu sig
hins vegar andvíga þessum áform-
um og kváðu þau fallin til að „flækja
enn frekar“ stöðu mála á Kákasus-
svæðinu.
Svipuð ósamkvæmni hefur einnig
komið fram varðandi væntanlega
afvopnunarsáttmála Rússlands og
Bandaríkjanna. Ívanov sagði á dög-
unum að ólíklegt væri að formlegur
sáttmáli yrði tilbúinn til undirritun-
ar þegar George W. Bush Banda-
ríkjaforseti kæmi til leiðtogafundar
með Pútín í Moskvu í lok maí.
Nokkrum klukkustundum síðar
skýrði skrifstofa forsetans frá því
að fundurinn færi fram 23. til 26.
maí. Þykir víst að samkomulag um
fækkun langdrægra kjarnorku-
vopna verði þá undirritað.
Ágreiningur um Mið-Asíu
Þremur dögum eftir árásina á
Bandaríkin 11. september var haft
eftir varnarmálaráðherra Rúss-
lands að hann teldi „óverjandi“ að
hermenn NATO fengju aðstöðu í
fyrrum lýðveldum Sovétríkjanna í
Mið-Asíu til að styðja við aðgerðir
gegn talibanastjórninni í Afganist-
an en herför gegn henni og al-
Qaeda-hryðjuverkasamtökunum
hafði þá enn ekki verið ákveðin. Tíu
dögum síðar gekk Pútín forseti
þvert gegn þessari yfirlýsingu og
sagði efnislega að Rússar hefðu
ekkert við það að athuga að stjórn-
völd í ríkjum þessum aðstoðuðu
Bandaríkjamenn í stríðinu gegn
hryðjuverkaógninni.
Halda fast við hugmyndir
Prímakovs
Þessi afstaða Pútíns kom mjög á
óvart.
„Pútín er kominn langt fram úr
almenningsálitinu og embættis-
mannastéttinni yfirleitt,“ segir
Víktor Kremenjúk, sérfræðingur
við Rannsóknarstofnun vegna
Bandaríkjanna og Kanada. „Utan-
ríkisráðuneytið var ekki undir þessi
umskipti búið og ráðuneytismenn
halda enn í hugmyndina um marg-
póla heim, sem Jevgeníj Prímakov
hélt svo mjög á lofti,“ bætir hann
við. Prímakov var utanríkisráð-
herra Rússlands fram í september
1998 er Ívanov tók við því starfi.
Einangrunin, sem mörgum þykir
einkenna stöðu Pútíns, hefur verið
borin saman við stöðu Míkhaíls S.
Gorbatsjovs, síðasta leiðtoga
Kommúnistaflokks Sovétríkjanna.
Almennt er litið svo á að Gorbatsjov
hafi einangrast í umbótaviðleitni
sinni frá félögum sínum í kommún-
istaflokknum og það hlutskipti hafi
átt þátt í falli hans. „Í tíð Gorbat-
sjovs var utanríkisstefnan líka mót-
uð í félagi við fámennan hóp ráð-
gjafa. Þetta er mjög hættuleg staða
fyrir Pútín,“ segir Andrej Ríbakov,
sem starfar við Ríusslandsskrif-
stofu Carnegie Endowment-mið-
stöðvarinnar.
Einangrun Pútíns þykir til marks
um að pólitískt bakland hans sé við-
kvæmt. Pútín, sem er fyrrum for-
ingi í sovésku öryggislögreglunni,
KGB, hafi hlotið svo skjótan frama
að honum hafi ekki gefist tími til að
byggja upp net traustra stuðnings-
manna sem hæfir séu til að koma að
ákvarðanatöku á æðstu stigum.
Þaulhugsað og skipulagt?
Ekki eru þó allir sammála þess-
ari greiningu. Til eru þeir sem telja
að misvísandi yfirlýsingar rúss-
neskra ráðamanna séu í senn þaul-
hugsaðar og skipulagðar.
„Ég get ekki ímyndað mér að ut-
anríkisráðherrann láti frá sér fara
mikilvægar yfirlýsingar án þess að
leita fyrst samþykkis skrifstofu for-
setans,“ segir Vjastjeslav Bakhmín,
fyrrum andófsmaður sem starfaði í
útanríkisráðuneytinu í tíð Andreis
Kozyrevs sem var hæstráðandi þar
á undan Jevgeníj Prímakov. Að
mati Bakhmíns er Pútín forseti að
gefa til kynna að andstaða sé við þá
vinsamlegu stefnu sem hann rekur
gagnvart Vesturlöndum. Með því
móti vonist hann til að þess að ráða-
menn á Vesturlöndum fallist á viss-
ar tilslakanir á ýmsum sviðum.
Bakhmín telur og að Pútín sé með
þessu að stíga ákveðinn línudans á
heimavelli; honum sé í mun að sýna
að almenningi fram á að rússnesk
stjórnvöld fari ekki án skilyrða að
vilja vestrænna ríkisstjórna.
Þetta er ekki síður mikilvægt
þegar horft er til ástandsins á
heimavelli forsetans. Efnahags-
ástandið hefur að vísu batnað nokk-
uð en er í meira lagi óstöðugt.
Glæpatíðnin eykst ef eitthvað er og
stór hluti landsmanna dregur nú
sem áður fram lífið í sárri fátækt.
Einangrun frá þessum veruleika
kann að reynast Pútín erfið.
Án baklands
í Kreml?
Tvö ár eru liðin frá
því að Vladímír Pút-
ín var kjörinn for-
seti Rússlands.
Staða hans er talin
sterk en ýmsir telja
að erfiðleikar kunni
að bíða hans.
’ Þetta er mjöghættuleg staða fyrir
Pútín ‘
Reuters
Vladímír Pútín Rússlandsforseti ásamt starfsbróður sínum frá
Georgíu, Edúard Shevardnadze. Aðstoð Bandaríkjamanna við stjórn-
völd í Georgíu í nafni stríðsins gegn hryðjuverkaógninni hefur mælst
misjafnlega fyrir í Rússlandi og athygli hefur vakið hversu misvísandi
yfirlýsingar Pútíns og undirsáta hans hafa verið í því efni.
ÍRSK stjórnvöld hafa ákveðið að
efna til formlegrar rannsóknar á
ásökunum þess efnis að kaþólskur
prestur, sem svipti sig lífi fyrir
þremur árum, hafi um langt árabil
misnotað unga drengi kynferðislega.
Láta stjórnvöld þar með undan
þrýstingi sem jókst til muna í vik-
unni þegar Brendan Comiskey,
biskup í Ferns-umdæmi, sagði af sér
embætti sökum gagnrýni á hvernig
hann tók á málefnum prestsins á
sínum tíma.
Mál prestsins, Sean Fortune,
komust í hámæli fyrir skömmu þeg-
ar breska ríkissjónvarpið, BBC,
fjallaði um þau í heimildarþætti en
m.a. var þar rætt við nokkur fórn-
arlamba Fortune. Hann framdi
sjálfsmorð fyrir þremur árum,
stuttu áður en réttarhöld áttu að
hefjast yfir honum vegna ásakana
um að hann hefði misnotað unga
drengi kynferðislega.
Micheal Martin, ráðherra heil-
brigðismála í írsku stjórninni, sagði
í gær að nauðsynlegt væri að kom-
ast til botns í málinu. Græða þyrfti
sárin sem þessi mál hefðu óumdeil-
anlega valdið, ekki aðeins hjá meint-
um fórnarlömb-
um heldur í
samfélaginu sem
heild en kaþólska
kirkjan hefur
lengi verið ein af
grundvallarstofn-
unum í írsku
þjóðlífi.
Vissi um ásak-
anirnar 1984
Comiskey biskup viðurkenndi,
þegar hann tilkynnti afsögn sína í
vikunni, að hann hefði ekki gætt
nógu vel að því að vernda börn í um-
dæmi sínu. Kom fram í The Irish
Times að Comiskey hefði verið
kunnugt um ásakanir á hendur For-
tune allt frá árinu 1984 en lítið að-
hafst. Sagði jafnframt í blaðinu að
tengja mætti sjálfsvíg fjögurra
ungra manna þeirri staðreynd að
þeir hefðu verið misnotaðir af For-
tune. Þau málaferli sem í undirbún-
ingi voru þegar Fortune svipti sig
lífi tengdust einungis ásökunum átta
pilta en síðan þá hafa hins vegar
margir til viðbótar greint frá því, að
þeir hafi verið áreittir af prestinum.
Stjórnvöld á Írlandi láta rannsaka
framferði kaþólsks prests
Misnotaði unga
drengi um árabil
Dublin. AP.
Brendan Com-
iskey biskup.
KISTA Elísabetar drottning-
armóður í Bretlandi var borin um
götur Lundúna í gær. Lá leiðin frá
Buckinghamhöll til Westminster
Hall. Áætlað er að um 250 þúsund
manns hafi fylgst með fylkingunni
og vottað drottningarmóðurinni,
sem naut mestra vinsælda af með-
limum konungsfjölskyldunnar,
hinstu virðingu. Að sögn BBC er
þetta umfangsmesta minning-
arathöfn sem haldin hefur verið í
Bretlandi frá því Winston Churchill
var borinn til grafar 1965. Elísabet
lést 30. mars sl., 101 árs. Kistan
stendur í Westminster Hall þar til
jarðarförin fer fram frá Westminst-
er Abbey á þriðjudaginn. Elísabet
verður greftruð í St. George-
kapellu í Windsor við hlið manns
síns, Georgs konungs sjötta.
AP
Drottningarmóður minnst