Morgunblaðið - 06.04.2002, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.04.2002, Blaðsíða 21
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 21 Úrvalsbændaferðir 2002 (Bændaferðir = ódýrar rútuferðir, opnar fyrir alla) Úrval Útsýn býður að þessu sinni eftirfarandi ferðir, sem eru mjög vel skipulagðar af Friðriki fararstjóra. Gist verður á góðum hótelum með morgunverðarhlaðborði og kvöldmáltíðir verða snæddar á út- völdum veitingastöðum. Reynt verður að hafa akstur í lágmarki, þannig að farþegar eiga að koma úthvíldir heim úr fjölbreytilegum ferðum, þar sem margt verður skoðað. Verð ferðanna er mjög hag- stætt, sérlega þegar tekið er mið af hve margt er innifalið. Fararstjórinn Friðrik G. Friðriksson (Frissi) hefur undanfarin 23 ár áunnið sér vinsæld- ir sem leiðsögumaður víða um heim. Bílstjórinn Þórir Jens Ástvaldsson hinn síkáti bóndasonur mun sitja undir stýri á nýju rútunni sinni og skemmta farþegum. 1. ferð: Ítalía með viðkomu í Þýskalandi og Austurríki. 20. maí - 1. júní. (Örfá sæti laus). Komið verðu við m.a. í þýsku og austurrísku Ölpunum, ítölsku Dólómítölpunum, Feneyjum, Róm, Pompei, Flórens, Pisa og flogið heim frá Mílanó að kvöldi síðasta dags. Verð kr. 119 þúsund (innifaldir allir skattar, 9 kvöldverðir og 1 hádegisverður) • 2. ferð: Þýskaland með viðkomu í Frakklandi 19. - 29. júní. Í þessari ferð gefst mönnum kostur á að kynnast menningu vínhéraða í Þýska- landi og Frakklandi, Mósel, Svartiskógur og Elsass. Sérfróður fararstjórinn mun leiða farþega í allan sannleika um vínyrkju og því þægilega og friðsama and- rúmslofti sem henni fylgir. Margir áhugaverðir staðir verða heimsóttir, svo sem blómaeyjan Mainau í Bodenvatni. Verð kr. 115 þúsund (innifaldir allir skattar og 9 kvöldverðir) • 3. ferð: Ítalía/Þýskaland/Austurríki 2. - 13. júlí Nánast sama ferð og ferð númer 1. • 4. ferð: Þýskaland/Frakkland 16. - 26. júlí Sama ferð og ferð númer 2. Nánari upplýsingar veita Silja Rún og Helena í Hlíðasmára 15, Kópavogi, eða í síma 585 4140 og taka þær einnig við pöntunum. Ferðaávísun Mastercard gi ldir 5.000 ÚRVAL•ÚTSÝN á 10 ára afmælisári klúbbsins 17. september - 8. október Kr. 350 þús. á mann, ALLT innifalið, þ.e. lúxushótel, fullt fæði, allar kynnisferðir, allir skattar og gjöld Upplýsingar gefur Unnur Guðjónsdóttir í símum 551 2596 og 868 2726 Til Kína með KÍNAKLÚBBI UNNAR ÓÖLDIN sem nú geisar fyrir botni Miðjarðarhafs er enn ein ógnunin við stöðu Yassers Arafats sem leiðtoga Palestínumanna, og vekur upp þá spurningu, hver kunni að taka við leiðtogahlutverkinu af honum. Svar við þeirri spurningu er þó vandfund- ið, ekki síst vegna þess að þeir sem þykja koma helst til greina láta nú fara lítið fyrir sér. Tveir yfirmenn öryggslögreglu Palestínumanna, einn helsti höfund- ur Óslóar-samkomulagsins, palest- ínskur þingmaður og vinsæll upp- reisnarleiðtogi eru á meðal þeirra sem nefndir hafa verið sem hugsan- legir arftakar Arafats. Ísraelar halda Arafat í herkví í að- alstöðvum heimastjórnar Palestínu- manna í Ramallah, og Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur ekki farið dult með, að hann vill losna við Arafat. Leiðtogar Palestínumanna telja, að hið raunverulega markmið Sharons sé að uppræta heimastjórn- ina, þ.á m. arftaka Arafats, segir Ed Abington, helsti málsvari Palestínu- manna í Washington. Meðal þeirra sem nefndir hafa verið sem hugsanlegir arftakar er Mahmoud Abbas, einn þeirra sem tóku þátt í gerð Óslóarsamkomu- lagsins 1993, er leiddi til friðarum- leitana er stóðu í sjö ár, uns uppreisn Palestínumanna, intifada, er nú stendur, braust út í september 2000. Abbas fór ótroðna slóð um miðjan síðasta áratug, er hann varð fyrsti frammámaður Palestínumanna er veitti samþykki við kröfum Ísraela um yfirráð yfir hverfum í Jerúsalem er Ísraelar hertóku 1967. Nýverið tilnefndi Arafat Abbas annan af tveimur yfirmönnum bráðabirgða- stjórnar, skyldi hann sjálfur láta af embætti. Hinn bráðabirgðaleiðtoginn, sem Arafat tilnefndi, er Ahmed Qureia, forseti palestínska þingsins, sem einnig tók þátt í gerð Óslóarsam- komulagsins. Hann þykir þægilegur í viðmóti, sem hefur á undanförnum árum áunnið honum vináttu ísr- aelskra starfsbræðra hans. Qureia er staðráðinn í að aftur skuli sest að samningaborðinu og fyrir skömmu fundaði hann með Shi- mon Peres, utanríkisráðherra Ísr- aels. Lögreglustjórarnir tveir, sem þykja koma til greina sem arftakar Arafats, eru Mohammed Dahlan, á Gaza, og Jibril Rajoub, á Vestur- bakkanum. Það sem helst gefur þeim forskot á Qureia og Abbas er að þeir eru yngri og „heimamenn“. Margir Palestínumenn eru argir út í úrvalshópana sem tóku völdin eftir að hafa snúið heim úr útlegð 1994. Bæði Dahlan og Rajoub fóru fremst- ir í flokki í uppreisn Palestínumanna 1987–1993, og sátu í fangelsum í Ísr- ael, þar sem þeir lærðu hebresku. Báðir eru þeir hófsamir, en nú, þegar þeir fara fyrir andspyrnu gegn atlögum Ísraela, láta þeir lítið fyrir sér fara. Ísraelski herinn jafn- aði höfuðstöðvar Rajoubs í Ramallah við jörðu sl. þriðjudag. Af fregnum ísraelskra fjölmiðla mátti ráða að skotmark Ísraela þá hefði ekki verið Rajoub, heldur Marwan Barghouti, leiðtogi upp- reisnarinnar sem nú stendur, en hann hefur einnig verið nefndur sem hugsanlegur arftaki Arafats. Bargh- outi hefur verið talinn hófsamur og hefur enn ekki tekið undir þær af- dráttarlausu yfirlýsingar gegn Ísr- aelum sem nú heyrast sífellt oftar. Hugsanlegir arftakar láta lítið á sér bera Veik staða Ara- fats vekur spurn- ingar um hver gæti tekið við hlutverki hans Washington. AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.