Morgunblaðið - 06.04.2002, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 33
Mikið hættuástand skapaðist
og vegna þess eru margar erf-
iðar baráttur framundan. Hins
vegar eru menn meðvitaðir um
hættuna og búa sig undir hana
varnarlega séð. Það er hins veg-
ar háð peningalegum takmörk-
unum en verð eru mjög há um
þessar mundir. Stefnan er samt
sett á að sigra leikinn.
Líklega hrökkva þeir við, sem
lesa þennan kostulega texta og
eiga jafnvel erfitt með að skilja
hann. Staðreyndin er hins vegar
sú að málnotkun af þessu tagi er
daglegt brauð í fjölmiðlum á Ís-
landi og klausan hér að framan
soðin saman upp úr fréttum síð-
ustu daga. Það er ekki hægt að
segja að máltilfinning þeirra,
sem svona texta skrifa, sé hrein
og tær. Þarna eru hreinlega á
ferðinni slæmar villur og ambög-
ur, sem fólk ætti ekki að láta frá
sér fara.
Sé reynt að koma umræddum
texta á mannamál, sé þess nokk-
ur kostur, gæti útkoman verið á
þessa leið: Mikil hætta skapaðist
og mikil barátta er því fram-
undan. Hins vegar er mönnum
hættan ljós og treysta varnir sín-
ar. Það er dýrt en verðlag er
mjög hátt um þessar mundir.
Stefnan er samt sett á sigur í
leiknum.
Stundum er texti svo illa skrif-
aður að varla er hægt að endur-
skrifa hann svo vel fari, enda
ekki alltaf ljóst hvað textinn á að
þýða. Í títtnefndri klausu eru
margar reglur brotnar. Orðin
barátta og verð eru eintöluorð,
sem taka alls ekki fleirtölu, líkt
og hveiti og kaffi. Til allrar ham-
ingju er ekki farið að panta þrjú
köff í staðinn fyrir kaffi fyrir
þrjá, en kannski kemur að því ef
þróunin verður sú sama og með
verð, sem er í sívaxandi mæli
notað í fleirtölu.
Hvað leikinn varðar þá vinnst
hann eða tapast en sigrast ekki.
Við vinnum leiki eða töpum, sigr-
um þá ekki, en við getum unnið
sigur í leiknum.
– – –
Það virðist færast í vöxt að
orðmyndir eins og varnarlega,
peningalega, uppeldislega og
vinnulega séð, séu notaðar, en
þær eiga illa heima í íslensku og
kannski erfitt að átta sig á upp-
runa þeirra. Það er auðvelt, eins
og sýnt var hér að framan, að
komast hjá þessum ambögum
með því einfaldlega að nota nafn-
orðið. Í stað þess að segja að
eitthvað sé uppeldislega slæmt,
er réttara að segja að eitthvað sé
slæmt fyrir uppeldi eða enn
betra, að eitthvað spilli uppeld-
inu.
Orðinu ástand er í of miklum
mæli bætt við önnur nafnorð eins
og dæmið um hættuástand sýnir.
Hættuástand er einfaldlega bara
hætta og ástandið því algjörlega
óþarft. Svipað á við um orðið að-
gerðir. Við lesum og heyrum í
fréttum um ofbeldisaðgerðir og
hernaðaraðgerðir í Aust-
urlöndum nær og við heyrum um
verkfallsaðgerðir hér heima og
víðar. Þarna er aðgerðunum al-
gjörlega ofaukið. Menn beita ein-
faldlega ofbeldi eða hernaði og í
orðinu verkfall felst allt sem
segja þarf. Verk eða vinna er
felld niður.
Oft verður fólki á, þegar það
notar orðtök og málshætti.
Stundum er um misskilning að
ræða, fólk skilur hreinlega ekki
málsháttinn eins og hann er. Því
breytist hann í meðförum þess.
Það á til dæmis við um karlinn
sem sagði að sjaldan launaði
kálfur ofbeldi. Það skildi hann en
ekki hina réttu mynd að sjaldan
launaði kálfur ofeldi. Mörg svip-
uð dæmi mætti tína til og því
rétt að benda fólki á að nota
hvorki orðtök né málshætti nema
það sé visst um að rétt sé farið
með og skilningurinn á orðtakinu
eða málshættinum sé réttur.
– – –
Hlutverk þessa þáttar er ekki
að vera eins konar dómstóll,
hvorki rann-
sóknarréttur
miðalda né ta-
líbanskur
strang-
trúardómstóll.
Engu að síður
viljum við
benda á það sem miður fer og
eins það sem vel er gert. Mark-
miðið er að hvetja fólk til að
halda vöku sinni, vera á verði og
nota ástkæra ylhýra málið eins
vel og kostur er. Markmiðið er
líka að skapa umræðu um mál-
notkunina og þótt þátturinn sé
enn í reifum, ef svo má að orði
komast, hefur verið nokkuð um
viðbrögð við honum. Sá sem
þetta ritar þakkar þau viðbrögð
og ábendingar sem hann hefur
fengið, bæði um það sem miður
hefur farið og hitt sem vel hefur
verið gert. Það er hluti af lífi
þáttar af þessu tagi að lesendur
bregðist við og láti frá sér heyra.
Eitt er það í fjölmiðlum sem
oft er rætt, þegar málnotkun ber
á góma. Það eru beinar lýsingar
á íþróttakappleikjum. Þar falla
stundum einstök „gullkorn“ í
hita leiksins. Þeim sem íþrótta-
leikjum lýsa er oft nokkur vandi
á höndum og því skiljanlegt að
þeim verði stundum á í mess-
unni. Það er hins vegar ósann-
gjarnt að halda því mikið á lofti,
því lýsingin er oft erfið, leikurinn
getur verið daufur og þá þarf að
fylla í eyðurnar. Sá sem þetta
skrifar vill því bera í bætifláka
fyrir íþróttafréttamennina, því í
flestum tilvikum gera þeir mjög
vel við erfiðar aðstæður.
– – –
Gamanmál. Nú styttist í vor-
próf í skólum landsins og von-
andi gengur öllum vel. Því var þó
ekki að heilsa í eftirfarandi
dæmi, sem er orðið nokkurra
áratuga gamalt. Það er ritgerð í
gagnfræðaskóla og skrifa átti um
Húnavatnssýslu. Ritgerðin var
svona:
„Húnavatnssýsla er hálend-
asta sýsla landsins. Þar er ekk-
ert nema fjöll og firnindi. Þó er
þar einn dalur. Sá heitir Svarf-
aðardalur. Í honum er ein á,
Svarfaðardalsá, og rennur hún í
Svarfaðardalsvatn.“
ÍSLENSKT MÁL
Eftir Hjört Gíslason
Hlutverk
þessa þáttar
er ekki að
vera eins kon-
ar dómstóll
hjgi@mbl.is
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
w
w
w
.t
e
xt
il.
is
INNKÖLLUN VEGNA RAFRÆNNAR
SKRÁNINGAR HLUTABRÉFA
Í ÍSLENSKA JÁRNBLENDIFÉLAGINU HF.
Mánudaginn 6. maí 2002 verða hlutabréf í Íslenska járnblendifélaginu hf. tekin til rafrænnar
skráningar hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. í samræmi við ákvörðun stjórnar Íslenska
járnblendifélagsins hf. þar að lútandi. Þar af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf félagsins
þann dag. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í fyrirtækinu í samræmi við ákvæði
laga og reglugerðar um rafræna eignarskráningu verðbréfa.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í Íslenska járnblendifélaginu hf. tekin til rafrænnar skráningar en
þau eru öll í einum flokki og gefin út á nafn hluthafa. Útgáfudags er getið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa sem telja nokkurn vafa leika á að
eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Íslenska járnblendifélagsins hf. að staðreyna
skráninguna með fyrirspurn til hlutaskrár Íslenska járnblendifélagsins hf., Grundartanga,
301 Akranesi eða í síma 432 0141. Komi í ljós við slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki
verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu fyrir nefndan dag.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s.
veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, þ.e. banka,
verðbréfafyrirtæki eða sparisjóð sem gert hefur aðildarsamning við Verðbréfaskráningu
Íslands hf. fyrir skráningardag.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf félagsins verða ógild sjálfkrafa og því er
ekki þörf á að skila þeim til félagsins. Jafnframt er vakin athygli á að ferli rafrænnar skráningar
hefur engin áhrif á möguleika hluthafa til að eiga viðskipti með hluti sína í félaginu að
undanskildum sjálfum skráningardeginum.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikningsstofnun umsjón með eignarhlut
sínum í félaginu til að geta framselt hluti sína svo sem vegna sölu eða skipta. Reikningsstofnun mun
í þessu skyni stofna VS-reikning í nafni viðkomandi hluthafa. Hluthöfum félagsins hefur verið kynnt
þetta bréfleiðis.
Stjórn Íslenska járnblendifélagsins hf.
Frank Bjørklund, framkvæmdastjóri.
ASKALIND 3 - KÓPAVOGI - SÍMI: 562 1500
Velkomin í Fríform.
Góð aðkoma og
næg bílastæði.
4ra kerfa ofn, hvítur
Verð áður kr. 45.300,-
Nú aðeins kr. 29.990,-
4 kerfa ofn, burstað stál
Verð áður kr. 61.200,-
Nú aðeins kr. 45.900,-
7 eða 8 kerfa ofn
hvítur, svartur, spegill, stál
Verð áður kr. 69.900,-
Nú aðeins kr. 55.900,-
2JA ÁRA ÁBYRGÐ
FULLKOMIN VARAHLUTA-
OG VIÐGERÐARÞJÓNUSTA
Helluborð 25–40% afsláttur
2ja hellu Frá kr. 9.720,-
4ra hellu Frá kr. 18.230,-
Keramikborð – 25% afsláttur
Frá aðeins kr. 39.830,-
2 gas + 2 raf. – 25% afsláttur
Burstað stál kr. 25.730,-
Gasborð – 25% afsláttur
2 blúss: Frá kr. 14.850,-
3 blúss: Aðeins kr. 35.250,-
4 blúss: Frá kr. 28.800,-
Vifta, hvít eða svört/stál
Áður kr. 8.840,-
Nú aðeins kr. 6.900,-
Veggháfur, burstað stál
Breidd 60cm: Áður kr. 35.700,-
Nú aðeins kr. 26.900,-
Breidd 90cm: Áður kr. 43.600,-
Nú aðeins kr. 33.900,-
Veggháfur, burstað stál
Breidd 60cm: Áður kr. 39.500,-
Nú aðeins kr. 29.900,-
Breidd 90cm: Áður kr. 47.400,-
Nú aðeins kr. 36.900,-
Eyjuháfur 90x65cm
Verð áður kr. 95.900,-
Nú aðeins kr. 74.900,-
O
F
N
A
R
KOSTABOÐ
Á HINUM RÓMUÐU OG EFTIRSÓTTU ÍTÖLSKU RAFTÆKJUM
eldavélum, ofnum, helluborðum og viftum.
Hvítir,
svartir,
spegill,
burstað
stál
mánud.–föstud. 9–18
laugardaga 10-16
OPIÐ:
E
kk
e
rt
e
ld
h
ú
s
á
n
E
L
B
A
..
.