Morgunblaðið - 06.04.2002, Síða 35

Morgunblaðið - 06.04.2002, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 35 Hún var farin að kveða áð- ur en hún gat talað og sex ára gömul kunni hún nóg af vísum til að kveða með bróður sínum inn á heil- an vals án þess að vera nokkurn tíman minnt á. Sjötíu og sjö árum síðar segir hún mér, að hún hafi enga tölu á þeim kveðskap, sem hún kann, en skýtur á að hún kunni eitthvað á fimmta hundrað rímnalög. Margrét Hjálmarsdóttir horfir til mín í gegn um sígarettureykinn. „Það er litlu logið, þótt ég sé kölluð kvæða- manneskja,“ segir hún og það er stutt í brosið. Faðir hennar, Hjálmar Lárusson, var dóttur- sonur Bólu-Hjálmars. Hann var listaskurðmaður, skar út í fílabein og fleiri efni, kvað og orti. Móðir hennar, Anna Halldóra Bjarnadóttir, var líka fyr- ir kveðskap og gat sett saman vísur. Og bæði héldu þau kveðskapnum að börnum sínum; „Við vorum alltaf að kveða,“ segir Margrét og andlit hennar lýsist upp við minninguna frá bernsku- heimilinu í Grímsstaðaholtinu. „Kveðskapurinn var svo ríkur í okkur öllum.“ Réð hann miklu á hennar eigin heimili? „Já, já. Ég hef verið síkveðandi allt mitt líf. Ég er tvígift og seinni maðurinn minn var mik- ill kvæðamaður; alveg á sömu línu og ég, safnaði kveðskap og tók upp. Ein dóttir mín kveð- ur ekki, en hinar tvær geta það og önnur þeirra er sérstaklega áhugasöm. Svo er ein dótturdóttir, sem hefur gaman af kveðskap.“ En strákarnir? „Ég á þrjá stráka. Þeir hafa ekkert haldið í kveðskapinn. Þó getur nú einn þeirra kveðið, þegar vel liggur á hon- um!“ Margrét á mikið safn af kveðskap á spólum. Margt hefur hún sjálf kveðið, en þó meiru safnað, þar á meðal því, sem faðir hennar kvað við annan mann inn á vaxhólka 1923, en hefur síðan verið fært yfir á segulbönd og kass- ettur. Í þetta safn sækir Margrét sér stöðuga gleði og því meiri nú, sem sjónin er farin að baga hana. Hún gaf því sjónvarpið sitt á dögun- um. „Ég lá nú aldrei mikið yfir sjónvarpinu. Hef alltaf hlustað þeim mun meir á útvarpið. Það var því lítið mál fyrir mig að missa sjón- varpið. En það er verra, hvað ég get orðið lítið lesið á bókina. Má ég annars bjóða þér bjór?!“ – Nei, takk. Ekki núna. Ég yrði bara fullur og færi þá kannski að syngja! „Það væri nú ekkert að því að þú tækir þá eins og eina stemmu!“ Það verður ekkert af því. Ég þigg bara soðið vatn. Aftur á móti tekur Margrét stemmu fyrir mig og kveður lýsinguna á Andra í Andrarímum: Kjaftinn þandi kolsvartan, kampurinn tók á bringu. Enginn brandur bíta kann, berserk Andra hamramann. En Margrét sýnir mér líka ljúfari strengi í kvæðahörpunni, þegar hún kveður þessar vísu eftir Þorstein Erlingsson úr Litla skáldi á grænni grein: Litla skáld á grænni grein, gott er þig að finna; söm eru lögin, sæt og hrein, sumarkvæða þinna. Og úr Lágnætti Þorsteins: Margoft þángað mörk og grund mig að fángi draga, sem þær ánga út’við sund eftir lánga daga. Hvað var það við kveðskapinn, sem heillaði hana barn? „Þessum gamla íslenzka kveðskap var haldið svo að okkur, að hann síaðist ósjálfrátt inn. Efnið voru riddarasögur settar í rímur. Það gerðu Sig- urður Breiðfjörð og fleiri. Og svo voru líka vís- urnar. Við kváðum margar vísur og vísnaflokka. Sjálfar stemmurnar, sem valdar voru við rím- urnar, skiptu höfuðmáli. Það getur nefnilega ver- ið nokkur kúnst að velja rétta lagið. Það þarf að falla að efninu. Þess vegna velur maður annað lag við rímur en vísur eða vísnaflokka. Það segir sig eiginlega sjálft, að það gengur ekki að nota sama lagið við ástina og bardagann! Ég tók ung ástfóstri við Andrarímur og Jóns- víkingsrímur og svo held ég alltaf upp á Núm- arímur og Hjálmarskviðu eftir Sigurð Bjarnason. Af vísunum hefur mér alltaf þótt vænzt um vísur Þorsteins Erlingssonar. Við hjónin kváðum einu sinni inn á spólur allar vísur eftir Þorstein Erl- ingsson, sem við kunnum og vissum um.“ Nærri má geta, að skáldskapur Bólu-Hjálmars hafi mikið verið hafður um hönd á æskuheimili Margrétar. „Við vissum vel af því að við vorum afkomendur hans. En við vorum ekki í neinum sérstökum stellingum þess vegna. Við kváðum auðvitað mik- ið eftir hann; sérstaklega Göngu-Hrólfsrímur.“ – Með allan þennan kveðskap í þér og í kring- um þig. Hefur þú ekki ort eitthvað sjálf? „Ekki rímur.“ – En... „Ég hef stundum gert eina og eina vísu.“ Eftir nokkra eftirgagnsmuni, þar sem Margrét ber fyrir sig minnisleysi og sjónleysi, fer hún með þessa vísu: Úti er svalt, þig inni halt, orku valt er gengið. Mér er kalt og meinað allt, meira galt en fengið. – Þessi er nú ekki beint í takt við glaðlegt yf- irbragð þitt. „Nei. Ég er létt í lund sem betur fer. En það getur nú líka komið yfir mann svona samt.“ Hvað finnst Margréti Hjálmarsdóttur um stöðu stemmunnar í dag? „Ég er stundum að gera mér upp áhyggjur af því að þetta hverfi allt með okkur gamlingjunum. En svo tek ég gleði mína aftur, þegar ég sé unga fólkinu fjölga hjá Iðunni. Það koma alltaf nýir hópar í skörðin. Og þá veit ég, að það verður ekki þaggað niður í kveðskapnum. Reyndar er ekkert ort af rímum lengur. En það kemur ekki að sök. Þær duga okkur alveg þessar gömlu. Svo er mikið til af vísum og vísnaflokkum og enn eru margir að setja saman vísur, sem eru kvæðahæfar. En það verð ég að segja eins og er, að ég felli mig ekki við að spilað sé undir kveðskapinn. Það var aldrei gert og nú er ég orðin nógu gömul og íhaldssöm til að mega vera á þessari skoðun, þótt ég vilji ekki taka fyrir það, að þetta haldi kveð- skapnum við og komi honum út til unga fólksins.“ Margrét Hjálmarsdóttir kveður mig með stemmu, sem hún segir Guðrúnu, dóttur Bólu- Hjálmars, hafa kveðið oft. Sjálf tók Margrét ást- fóstri við hana barn og grét jafnan, þegar hún kvað hana. Stemman er úr Hjálmarskviðu Sig- urðar Bjarnasonar og Guðrún fór þannig með hana, að hún endurtók síðustu línuna þrisvar sinnum. „Það gerði enginn nema hún“: Samfunda um sælufrið, sætan bar hugsmíði, ennþá var á aðra hlið, ólánsfararkvíði. Ólánsfararkvíði. Ólánsfararkvíði. Ólánsfararkvíði. Síkveðandi allt sitt líf Eftir Freystein Jóhannsson Morgunblaðið/Ásdís SIGURÐUR BREIÐFJÖRÐ. Margrét kann að vonum marga rím- una eftir hann. ÞORSTEINN ERLINGSSON. Vísur hans þykir Margréti vænzt um og hefur kveð- ið þær allar inn á spólu. BÓLU HJÁLMAR var langafi Margétar Hjálmarsdóttur og kveðskapur hans að vonum mikið hafður við höndina á heimili hennar. freysteinn@mbl.is MARGRÉT HJÁLMARSDÓTTIR. Hún kann ósköpin öll af kveðskap og er með á fimmta hundrað rímnalög á hraðbergi. rs veitu- æmt að um svið- nlega að við hlið gja fleiri ert hús. greina. érleyfis- gsfyrir- erði háð hún eigi þess að ir þjón- hinum g fram- r á móti al um ár ð frá og llir raf- nt stórir yrirtæki geti íbúi upa raf- kjavíkur elji það rirtækið a verða því raf- á heim- pandinn nn. Eft- md verð- keppnis- öðrum arkaði. Frumvarp til nýrra raforkulaga var fyrst lagt fram á Alþingi í fyrravor og vísað til iðnaðarnefnd- ar eftir að hagsmunaaðilar höfðu fengið að gera sínar athugasemdir við frumvarpið. Af hálfu Lands- virkjunar var lögð rík áhersla á það að frumvarpið myndi ekki skerða lánshæfi fyrirtækisins og þar með möguleika Íslendinga á að bjóða hagstætt raforkuverð til stóriðju. Bókhaldslegur aðskilnaður í stað fyrirtækjaaðskilnaðar Frumvarpið var fyrir skemmstu lagt fram á Alþingi á nýjan leik. Helsta breytingin sem gerð var á frumvarpinu felst í því að ekki er lengur gerð krafa um fyrirtækja- aðskilnað milli vinnslu og sölu ann- ars vegar og dreifingar og flutn- ings hins vegar. Á hinn bóginn er kveðið skýrt á um bókhaldslegan aðskilnað milli þessara þátta í rekstri orkufyrirtækja en með kröfunni um fyrirtækjaaðskilnað var í reynd gengið lengra en þurfti til þess að uppfylla ákvæði samn- ingsins um Evrópska efnahags- svæðið. Hefðu þessar breytingar ekki verið gerðar á frumvarpinu hefði t.d. Orkuveita Reykjavíkur þurft að stofna sérstakt fyrirtæki um rekstur Nesjavallavirkjunar, ann- að fyrirtæki um dreifingu raforku á veitusvæðinu og þriðja fyrirtæk- ið um dreifingu á heitu vatni. Þorkell segir að þetta hafi þótt óþarflega langt gengið og því hafi verið ákveðið að krefjast þess ein- göngu að fyrirtækin hafi skýran aðskilnað í bókhaldi fyrir þennan rekstur. Landsvirkjun vel undirbúin fyrir breyttan markað Þorsteinn Hilmarsson, upplýs- ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir fyrirtækið vera vel búið undir þær breytingar sem stefnt sé að á raf- orkumarkaði. Fyrir tveimur árum hafi verið stofnað sérstakt flutn- ingssvið Landsvirkjunar en rekst- ur þess sé skýrt aðgreindur frá öðrum rekstri. Náist samkomulag á meðal orkufyrirtækja um að þau leggi flutningsvirki sín inn í hið nýja flutningsfyrirtæki sem eignir telur Þorsteinn að Landsvirkjun myndi eiga um 75% hlut í fyrirtækinu. Það sem mestu máli skipti sé þó það að flutningsvirkin yrðu þá áfram bókfærð sem eign og því mundu breytingarnar ekki hafa áhrif á lánshæfi Landsvirkjunar á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Góð lánshæfiseinkunn sé ein meg- inforsenda þess að Landsvirkjun verði samkeppnisfær á alþjóða- markaði, þ.e. hún geti áfram boðið hagstætt raforkuverð til fyrir- tækja í stóriðju. „Okkar staða á al- þjóðlegum fjármálamörkuðum verður óskert þrátt fyrir þessar skipulagsbreytingar,“ segir Þor- steinn. !  "#"$ % & ' ( %  ") *    (                     !    !    !    !    !      $%   #   $ &  '(   "  !"! )*            !$ & $   )   !    $ &  %"         !$ & $   )   $ &     !     #    !  ) &!'# * $ & !  #"!%  +,-  !&  !   $    !$ &  valið um raforkusala árið 2004 arðfræð- kk við- nar fyrir ðsfundi kur lætur ndir og við fnun fyr- mið með myndir i um- í virkj- rautryðj- mælingar á vatns- hann t.d. á di og á g sjáv- r S. on ð- ur Morgunblaðið/Kristinn Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, af- henti Hauki viðurkenninguna og sagði að samstarf Hauks og Lands- virkjunar hafi alla tíð verið árangursríkt og borið góðan ávöxt. ning Landsvirkjunar fyrir jarðfræðistörf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.