Morgunblaðið - 06.04.2002, Síða 55

Morgunblaðið - 06.04.2002, Síða 55
MESSUR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 55 ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Ferming og altarisganga kl. 14. Organisti Kári Þormar. Kór Áskirkju syngur. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Líflegar og skemmtilegar samverur með léttum söngvum, fræðslu og bæn. Pálmi Sigurhjartarson annast tónlistar- stjórn. Foreldrar hvattir til þátttöku með börnum sínum. Guðsþjónusta kl. 14. Org- anisti Sigrún Steingrímsdóttir. Pálmi Matt- híasson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Jakob Ág. Hjálmarsson prédikar. Dómkórinn syngur. Organisti Marteinn H. Friðriksson. Barnastund á kirkjuloftinu, í umsjá Þor- valdar Víðissonar, æskulýðsfulltrúa, með- an á messu stendur. Fermingarmessa kl. 14:00. Sr. Jakob Ág. Hjálmarsson og sr. Hjálmar Jónsson. Dómkórinn syngur. Org- anisti Marteinn H. Friðriksson. GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11. Messa kl. 11. Fermingarmessa kl. 13.30. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Ólafur Jóhannsson. GRUND DVALAR- OG HJÚKRUNARHEIM- ILI: Guðsþjónusta kl. 10.15. Sr. Baldur Rafn Sigurðsson. Organisti Kjartan Ólafs- son. HALLGRÍMSKIRKJA: Fermingarmessa kl. 11. Hópur úr Mótettukór syngur. Organisti Hörður Áskelsson. Sr. Sigurður Pálsson og sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. Barnastarf á sama tíma umsjón Magnea Sverr- isdóttir. Kvöldmessa kl. 20. Schola can- torum syngur undir stjórn Harðar Áskels- sonar. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Pétur Björgvin Þorsteinsson og Guð- rún Helga Harðardóttir. Organisti Valdimar Kristjónsson. Ferming kl. 13.30. Organisti Bjarni Jónatansson. Sr. Helga Soffía Kon- ráðsdóttir og sr. Tómas Sveinsson. LANDSPÍTALI HRINGBRAUT: Helgistund kl. 10.30. Rósa Kristjánsdóttir djákni. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Fermingarmessa og barnastarf kl. 11. Prestar kirkjunnar annast þjónustu og Kór Langholtskirkju syngur undir stjórn Jóns Stefánssonar. Barnastarfið verður al- farið í safnaðarheimilinu þennan dag und- ir stjórn Gunnars, Bryndísar og Ágústu. LAUGARNESKIRKJA: Fermingarguðsþjón- usta kl. 11. Kór Laugarneskirkju syngur. Organisti Gunnar Gunnarssonar. Þjónustu annast sr. Bjarni Karlsson, Eygló Bjarna- dóttir, meðhjálpari og Sólveig Halla Krist- jánsdóttir fermingarfræðari. (Sjá síðu 650 í textavarpi.) NESKIRKJA: Messa kl. 11. Drengjakór Neskirkju syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti Reynir Jónasson. Prestur sr. Frank M. Halldórsson. Mola- sopi og djús eftir messu. Sunnudagaskól- inn kl. 11. 8 til 9 ára starf á sama tíma. Fermingarmessa kl. 13.30. Organisti Reynir Jónasson. Kór Neskirkju syngur. Prestar sr. Frank M. Halldórsson og sr. Örn Bárður Jónsson. Kvöldmessa kl. 20. Þorvaldur Halldórsson syngur og leiðir söng. Prestar sr. Frank M. Halldórsson og sr. Örn Bárður Jónsson. Fyrirbænir og handayfirlagning. Molasopi eftir messu. SELTJARNARNESKIRKJA: Ferming- armessur kl. 10.30 og kl. 13:30. Kamm- erkór kirkjunnar syngur. Organisti Viera Manasek. Prestur sr. Sigurður Grétar Helgason. Sunnudagaskólinn kl. 11 á neðri hæð. ÁRBÆJARKIRKJA: Fermingarguðsþjón- usta kl. 11. Organisti Pavel Manásek. Sunnudagaskólinn í safnaðarheimilinu á sama tíma. BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Fermingarguðsþjónusta kl. 13.30. Organisti: Sigrún Þórsteinsdóttir. Gísli Jónasson. DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Organisti: Kjartan Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju B hópur. Sunnudagaskóli í kapellu á sama tíma. Léttur málsverður í safnaðarsal eftir messu. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Barnaguðsþjón- usta kl. 11. Umsjón Elín E. Jóhannsdóttir. Ferming og altarisganga kl. 14. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Kirkjukór Fella- og Hólakirkju syngur. Organisti: Lenka Mátéová. GRAFARVOGSKIRKJA: Ferming kl. 10.30. Sr. Vigfús Þór Árnason, sr. Anna Sigríður Pálsdóttir og sr. Bjarni Þór Bjarnason. Org- anisti: Hörður Bragason. Guðlaug Ásgeirs- dóttir leikur á þverflautu. Barnaguðsþjón- usta kl. 11 í kirkjunni. Umsjón: Ása Björk og Hlín og Bryndís. Undirleikari: Guðlaugur Viktorsson. Ferming kl. 13.30. Sr. Vigfús Þór Árnason, sr. Anna Sigríður Pálsdóttir og sr. Bjarni Þór Bjarnason. Organisti: Hörður Bragason. Guðlaug Ásgeirsdóttir leikur á þverflautu. Barnaguðsþjónusta kl. 13 í Engjaskóla. Umsjón: Ása Björk og Hlín og Bryndís. Undirleikari: Guðlaugur Viktorsson. HJALLAKIRKJA: Fermingarmessur kl. 10.30 og 13.30. Prestar kirkjunnar þjóna. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti Jón Ólafur Sig- urðsson. Barnaguðsþjónusta í Lindaskóla kl. 11 og í Hjallakirkju á neðri hæð kl. 13. Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. Prestarnir. KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í safn- aðarheimilinu Borgum kl. 11. Ferming- armessa kl. 11. Sigríður Stefánsdóttir að- stoðar. Kór Kópavogskirkju syngur og leiðir safnaðarsöng. Svanhvít Árnadóttir leikur á fiðlu. Organisti Julian Hewlett. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson. SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Söngur og gleði. Foreldrar velkomnir með börnum sínum. Fermingarguðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar. Organisti Gróa Hreinsdóttir. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. Heilög kvöldmáltíð. Samkoma kl. 20. Mikil lofgjörð og fyr- irbænir. Friðrik Schram predikar. Allir hjart- anlega velkomnir.0 Sjónvarpsþættir kirkjunnar eru sýndir á Omega, þriðjudaga kl. 11, sunnudaga kl. 13.30 og mánudaga kl. 20. Nýr þáttur vikulega. Heimasíða kirkjunnar: www.kristur.is FRÍKIRKJAN VEGURINN: Fjölskyldu- samkoma kl. 11, allir hjartanlega vel- komnir, skipt í deildir eftir aldri. Bænastund kl. 19.30 Samkoma kl. 20, Högni Valsson predikar, lofgjörð, brauðsbrotning, fyrirbænir og samfélag. Allir hjartanlega velkomnir. „Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mér til hjálpræðis.“ KLETTURINN: Almenn samkoma fyrir alla fjölskylduna. Mikil lofgjörð og tilbeiðsla. Allir velkomnir. FÍLADELFÍA: Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður Ólafur Zóphoníasson. Al- menn samkoma kl. 16.30, lofgjörð- arhópur Fíladelfíu leiðir söng. Ræðumaður Jón Þór Eyjólfsson. Allir hjartanlega velkomnir. KEFAS, Vatnsendabletti 601: Samkoma sunnudag kl. 16.30. Ræðumaður Björg R. Pálsdóttir. Bænastund fyrir samkomu kl. 16. Lofgjörð og fyrirbænir. Tvískipt barna- starf fyrir börn frá eins árs aldri. Þriðjud.: Bænastund kl. 20.30. Miðvikud.: Sam- verustund unga fólksins kl. 20.30. Mikil lofgjörð og Orð Guðs rætt. Allir velkomnir. KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma kl. 17. „Er sjúkdómur refsing?“ Ræðumaður er Þórdís Ágústsdóttir. Helga Kolbeinsdóttir les ljóð. Matsala eftir sam- komuna. Barnasamkoma á sama tíma í kjallarasal. Þar kemur góður gestur í heim- sókn. Allir krakkar 6 ára og eldri velkomnir. Gæsla verður fyrir yngri börn í Maríustofu. Kl. 20.30 verður leikritið Vægðarlaus veruleiki sýnt. Það er leikhópur KSS, Platitude sem flytur. Aðgangseyrir kr. 500. LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: kl. 11 Fermingarmessa kl. 11 Sunnudagaskólinn verður í fullu fjöri á Hraunbúðum, með þátttöku íbúa. Kl. 14 fermingarmessa kl. 20 æskulýðsfundur Landakirkju og KFUM&K í safnaðarheimilinu. Mánudagur 8. apríl kl. 17.30 Æskulýðs- starf fatlaðra, yngri deild VÍÐISTAÐAKIRKJA: Fermingarguðsþjónusta kl. 10. Fermingarguðsþjónusta kl. 14. Kirkjukór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Úlriks Ólasonar. Einsöngur: Sigurður Skagfjörð. Trompetleikur: Eiríkur Örn Pálsson. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Ferming- armessur verða kl. 10.30 og 13.30. Org- anisti Þóra Vigdís Guðmundsdóttir og kór- stjóri Örn Arnarson. Barnasamkoman fellur niður en verður á sínum stað að viku liðinni. Einar Eyjólfsson og Sigríður Kristín Helgadóttir. HAFNARFJARÐARKIRKJA.Ferming- armessur kl.10.30 0g kl.14.00. Flautuleikur. Organisti: Natalía Chow. Prestar: Sr. Þórhildur Ólafs og sr. Þórhallur Heimisson. KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskólinn í dag, laugardaginn 6. apríl kl. 11, í Stóru- Vogaskóla. Mætum vel og fögnum vorinu saman. Prestarnir. VÍDALÍNSKIRKJA: Fermingarmessa sunnudaginn 7. apríl kl. 10.30. Kór kirkj- unnar leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti: Jóhann Baldvinsson. Við athöfnina þjóna sr. Friðrik J. Hjartar og sr. Hans Markús Hafsteinsson. Prestar Garðaprestakalls. BESSASTAÐAKIRKJA: Fermingarmessa verður sunnudaginn 7. apríl, kl. 13.30. Kór kirkjunnar leiðir almennan safn- aðarsöng. Organisti: Hrönn Helgadóttir. Við athöfnina þjóna sr. Friðrik J. Hjartar og sr. Hans Markús Hafsteinsson. Prestar Garðaprestakalls. ÚTSKÁLAKIRKJA: 1. sunnud. e. páska fermingarmessa kl. 13.30. Kór Útskálakirkju syngur. Organisti Pálína Fanney Skúladóttir sóknarprestur Björn Sveinn Björnsson. HVALSNESSÓKN: Safnaðarheimilið í Sandgerði Fermingarmessa kl. 10.30 Kór Hvalsneskirkju syngur. Organisti Pálína Fanney Skúladóttir, sóknarprestur Björn Sveinn Björnsson. SELFOSSKIRKJA: Messa, sunnudaga- skóli og ferming kl. 10.30, ath. breyttur tími, súpa og brauð eftir messu. Ferming- armessa einnig kl. 14. Morguntíð sungin þriðjudag til föstudags kl. 10, kaffisopi að henni lokinni. Foreldrasamvera miðviku- dag kl. 11. Kirkjuskóli miðvikud. kl. 14.30 í Sandvíkurskóla, stofu 6. EYRARBAKKAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sóknarprestur. ÍSAFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11, kór Ísafjarðarkirkju syngur undir stjórn Huldu Bragadóttur. Sr. Stína Gísladóttir. AKUREYRARKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl. 14. Sr Jóna Lísa Þorsteins- dóttir, kór Akureyrarkirkju syngur. Org- anisti Björn Steinar Sólbergsson. Kaffi- tónleikar Kórs Akureyrarkirkju í safnaðarheimilinu eftir messu. ÆFAK- fundur kl. 17 í kapellu. GLERÁRKIRKJA: Fermingarmessa 6. apríl kl. 13.30, fjölskylduguðþjónusta 7. apríl kl. 11. Barnakór Brekkuskóla syngur. Stjórnandi: Arnór B. Vilbergsson. HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Kl. 11 sunnudagaskóli, kl. 19.30 bænastund, kl. 20 almenn samkoma, ræðumaður Niels Jakob Erlingsson, unglingar taka þátt. Mánudag kl. 15 heimilasamband, kl. 17 Örkin fyrir 6 til 7 ára. LAUFÁSPRESTAKALL: Svalbarðskirkja : Kyrrðarstund sunnudagskvöldið 7. apríl kl. 21. Sóknarprestur. KIRKJUBÆJARKLAUSTURSPRESTA- KALL: Prestsbakkakirkja á Síðu. Messa og ferming kl. 14. Kór Prestsbakkakirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti er Kristófer Sigurðsson. Allir hjartanlega velkomnir. Sr. Baldur Gautur Baldursson. MÖÐRUVALLAKLAUSTURSPRESAKALL: Ferming verður í Möðruvallakirkju kl. 11 f.h. Allir velkomnir. Sóknarprestur. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Reykjavík – Kristskirkja í Landakoti: Sunnudaga: Hámessa kl. 10.30. Messa á ensku kl. 18 alla virka daga: Messa kl. 18. Einnig messa kl. 8 suma virka daga (sjá nánar á tilkynningablaði á sunnudögum). Sunnu- daginn 7. apríl, kl. 10.30: Fyrsta altarisganga barna. Reykjavík – Maríukirkja við Raufarsel: Sunnudaga: Messa kl. 11. Laugardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga: Messa kl. 18.30. Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 16. Miðvikudaga: Messa kl. 20. Hafnarfjörður – Jósefskirkja: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Miðvikudaga: Skriftir kl. 17.30. Messa kl. 18.30. Sunnudaginn 7. apríl, kl. 10.30: Fyrsta altarisganga barna. Karmelklaustur: Sunnudaginn 17. mars: Messa kl. 8.30. Virka daga: Messa kl. 8. Keflavík – Barbörukapella: Skólavegi 38: Sunnudaga: Messa kl. 14. Fimmtudaga: skriftir kl. 19.30. Bæna- stund kl. 20. Stykkishólmur, Austurgötu 7: Laug- ardaga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga: Messa kl. 10. Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11. Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18. Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16. Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19. Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja, Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa kl. 18. Sunnudaga: Messa kl. 11. Guðspjall dagsins: Jesús kom að luktum dyrum. (Jóh. 20.). Morgunblaðið/Ómar Miklabæjarkirkja í Skagafirði. Á MÁNUDÖGUM er foreldra- stund kl. 10–12 í Fella- og Hóla- kirkju. Þegar viðrar er lagt af stað frá kirkjunni kl. 10.15 í klukkustundar göngutúr og boðið er upp á kaffisopa eða djús í safn- aðarheimilinu að honum loknum. Útivera, samvera og notalegheit í umsjón Lilju G. Hallgrímsdóttur djákna. Allir – á öllum aldri – eru velkomnir. Kyrrðar- og bæna- stundirnar sem verið hafa í há- deginu á þriðjudögum leggjast af en í staðinn verður „opið hús“ á mánudögum kl. 13.30–16 í safn- aðarheimilinu fyrir fullorðna í umsjón Lilju djákna. Þar verður tekið í spil, spjallað og fræðst. Af og til koma gestir til að fræða og skemmta. Kaffiveitingar verða í boði og helgistund og fyrirbænir í lokin. Þeir sem vilja fá akstur til og frá kirkjunni láti vita fyir há- degi á mánudögum í síma 557 3280 eða 862 0574. Bænaefnum má koma til presta og djákna. Helgistund er alltaf á fimmtudög- um kl. 10.30–12 í Félagsmiðstöð- inni Gerðubergi í umsjón Fella- og Hólakirkju. Þar er lögð áhersla á biblíulestur og rýnt í texta næsta sunnudags. Kaffiveit- ingar eru í boði í lok stund- arinnar. Á uppstigningardag, 9. maí, verður guðsþjónusta í kirkj- unni kl. 14 eins og venjulega á kirkjudegi aldraðra. Þá koma gestir úr kirkjustarfi aldraðra í Keflavíkursókn. Guðsþjónustan verður auglýst nánar síðar. Sú hefð hefur myndast að farið er í dagsferð um mánaðamót maí og júní með eldri borgara í Fella- og Hólabrekkusóknum. Ferðin í vor verður auglýst nánar þegar nær dregur. Fella- og Hólakirkja. Barnastund í Dómkirkjunni BARNASTUND verður í Dóm- kirkjunni á sunnudaginn kl. 11. Þetta er fyrsta stundin eftir páska. Hún mun hefjast með messunni en fer svo fram á kirkjuloftinu. Það verður létt og skemmtilegt andrúmsloft fyrir alla fjölskylduna í Dómkirkjunni á sunnudaginn. Allir velkomnir. Kvöldmessa í Hallgrímskirkju SUNNUDAGINN 7. apríl verður messa og barnastarf kl. 11 með fermingu. Báðir prestar kirkj- unnar þjóna að þeirri messu. Hópur úr Mótettukór Hallgríms- kirkju syngur og Hörður Áskels- son stýrir kór og verður org- elleikari. Magnea Sverrisdóttir stýrir barnastarfinu. Um kvöldið verður kvöldmessa kl. 20. Kamm- erkór Hallgrímskirkju Schola cantorum syngur nokkur kórverk undir stjórn Harðar Áskelssonar, kantors, sem einnig leikur á orgel kirkjunnar. Sr. Jón Dalbú Hró- bjartsson hefur hugvekju og stýr- ir messunni. Form kvöldmess- unnar er einfalt í sniðum, en söfnuðinum er gefinn kostur á að nýta rými kirkjunnar til bæna- gjörðar, þ.e. á meðan á alt- arisgöngu stendur getur fólk far- ið og tendrað bænaljós, gert bæn sína við altarið og/eða skrifað niður bænir og sett í bænakörfu. Ljóst er að margir kunna að meta kvöldmessurnar og form þeirra en þetta er kærkomin viðbót við hefðbundið helgihald kirkjunnar. Þrenna í Neskirkju og Þorvaldur að auki Á MORGUN, sunnudag, mun Nes- kirkja væntanlega iða af lífi. Drengjakór Neskirkju syngur við messu kl 11 og kl. 14 er ferming- armessa. Reynir Jónasson org- anisti leikur á orgelið við báðar messurnar og Inga J. Backman syngur einsöng í fermingarmess- unni. Stjórnandi drengjakórsins er Friðrik S. Kristinsson. Um kvöldið er svo þriðja messa dags- ins og mun Þorvaldur Hall- dórsson annast söng og tónlist- arflutning en prestarnir sr. Frank M. Halldórsson og sr. Örn Bárður Jónsson leiða helgihaldið. Þetta er messa þar sem lögð er sérstök áhersla á bænina og fólki gefst kostur á að þiggja fyrirbæn með handayfirlagningu. Auk þessa verður barnastarf kl. 11. Börnin hefja starf sitt í messunni ásamt fullorðnum en fara síðan í safn- aðarheimilið og fá þar fræðslu og helgihald við sitt hæfi undir stjórn Guðmundu Ingu Gunn- arsdóttur, Auðar Olgu Skúladótt- ur og Elsu Bjarnadóttur. Boðið verður upp á hressingu að lokn- um morgun- og kvöldmessunum. Á mánudögum er bænastund í kapellu kirkjunnar kl. 18 og á miðvikudögum fyrirbænamessa á sama tíma. Opið hús aldraðra hefst að nýju eftir föstuhlé kl. 16 nk. miðvikudag. Kaffiveitingar og trúfræðsla. Lokaferð sunnu- dagaskólans í Vídalínskirkju LOKAFERÐ sunnudagaskólans í Vídalínskirkju í dag, laugardag- inn 6. apríl. Farið verður í Hús- dýragarðinn og þar munum við grilla og skemmta okkur saman. Lagt verður af stað frá Vídal- ínskirkju kl. 11 og komið til baka kl. 13, á sama stað. Það sem við þurfum að hafa meðferðis er góða skapið og góður hlífðarfatn- aður, svona til öryggis. Mætum vel og eigum góða stund í Hús- dýragarðinum og fögnum vori. Leiðbeinendur sunnudagaskólans og prestar Garðaprestakalls. Æðruleysisguðs- þjónusta í Ytri-Njarð- víkurkirkju ÆÐRULEYSISGUÐSÞJÓNUSTA sunnudaginn 7. apríl kl. 20.30. Sóknarprestur þjónar fyrir altari og prédikar. AA-félagar verða með reynslusögur. Organisti er Natalía Chow og mun hún leiða almennan söng. Eru allir vel- komnir en sérstaklega hvetjum við alla AA-félaga sem og að- standendur þeirra að mæta. Að- alsafnaðarfundur Ytri-Njarðvík- ursóknar verður haldinn í Ytri-Njarðvíkurkirkju 7. apríl kl. 19. Dagskrá; Venjuleg aðalfund- arstörf. Sóknarnefnd. Safnaðarstarf að vori í Fella- og Hólakirkju Fella- og Hólakirkja. Neskirkja. Félagsstarf aldraðra kl. 14. Pét- ur Ingólfsson, verkefnastjóri hjá Landsvirkj- un, segir frá Kárahnjúkavirkjun og staðar- háttum. Þorvaldur Halldórsson skemmtir með tónlist og söng. Borinn verður fram léttur málsverður. Allir velkomnir. Sr. Frank M. Halldórsson. Hvammstangakirkja. Barnamessa kl. 11. Boðunarkirkjan, Hlíðasmára 9, Kópavogi. Samkoma í dag kl. 11–12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédikun og biblíufræðsla þar sem ákveðið efni er tekið fyrir, spurt og svarað. Á laugardögum starfa barna- og unglingadeildir. Létt hressing eftir sam- komuna. Allir hjartanlega velkomnir. Biblíu- fræðsla alla virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM 105,5. Þorlákskirkja. Lokahátíð í sunnudagaskól- anum. Stopp leikhópurinn sýnir nýtt ís- lenskt barnaleikrit sem heitir „Ævintýri Kuggs og Málfríðar“. Leikarar Egger Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir. Búningar Súsanna Magnúsdóttir. Tónlist og leikstjórn Valgeir Skagfjörð. Leikgerðin er byggð á hinum vin- sælu barnabókum Sigrúnar Eldjárn. Hum- arvinnslan í Þorlákshöfn styrkir sýninguna. Þá kemur TTT leikhópur Þorlákskirkju fram. Mætum öll. Sissa, Baldur og Robert. Safnaðarstarf KIRKJUSTARF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.