Morgunblaðið - 06.04.2002, Page 57

Morgunblaðið - 06.04.2002, Page 57
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 57 undirfataverslun Á nýjum stað Síðumúla 3-5 - Sími 553 7355 Opið mánudaga-föstudaga kl. 11-18, laugardag kl. 11-15. FLÓAHLAUP UMF Samhygðar, sem er hluti af götu og víðavangs- hlaupi Íslands verður haldið í dag, laugardaginn 6. apríl kl. 14 við Fé- lagslund, Gaulverjarbæjarhreppi. Vegalengdir: 3 km, 5 km og 10 km með tímatöku. Flokkaskipting bæði kyn: 14 ára og yngri (3 km), konur 39 ára og yngri, 40 ára og eldri (5 km), opinn flokkur kvenna (10 km), karlar 39 ára og yngri, 40– 49 ára, 50–59 ára, 60 ára og eldri (10 km), opinn flokkur karla (5 km). Verðlaun fyrir þrjá fyrstu í hverjum flokki. Upplýsingar á netfangi: markusiv@binet.is. Flóahlaup UMF Samhygðar SAMBAND ungra sjálfstæðis- manna heldur forystumannaráð- stefnu fyrir unga sjálfstæðismenn vegna sveitarstjórnarkosninganna 2002 í dag, laugardaginn 6. apríl, kl. 15–17.30 í Valhöll, Háaleitis- braut 1. Ingvi Hrafn Óskarsson – for- maður SUS setir þingið. Erindi halda: Gísli Marteinn Baldursson, fréttamaður og frambjóðandi, Skapti Örn Ólafsson, varastjórn- armaður SUS, Hanna Birna Krist- jánsdóttir, aðstoðarframkvæmda- stjóri Sjálfstæðisflokksins og frambjóðandi, Birgir Tjörvi Pét- ursson lögmaður, Pétur Árni Jóns- son laganemi, Björn Bjarnason, borgarstjóraefni sjálfstæðismanna í Reykjavík, og Helga Árnadóttir, kosningastjóri ungra sjálfstæðis- manna í Reykjavík, segir í frétta- tilkynningu. Forystumanna- ráðstefna SUS VINSTRIHREYFINGIN – grænt framboð í Kópavogi boðar til fé- lagsfundar í dag, laugardag 6. apr- íl, kl. 11.15 í Þinghóli, Hamraborg 11. Á fundinum verður lögð fram og borin upp til samþykktar tillaga uppstillingarnefndar að framboðs- lista VG í Kópavogi í sveitarstjórn- arkosningunum 25. maí nk., segir í fréttatilkynningu. Félagsfundur VG í Kópavogi NÆSTA haust verða fjórar náms- brautir í boði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands fyrir fólk sem vill endurmennta sig á háskólastigi samhliða vinnu. Þar af er ný eins misseris námsbraut í Tengslanet- um í félagsþjónustu (socialt nät- verksarbete) ætlað fyrir þá sem starfa í félags- og geðheilbrigð- isþjónustu og vilja sérhæfa sig á þessu sviði. Kennarar eru sálfræð- ingar og félagsráðgjafar frá Sví- þjóð. Einnig verður boðið upp á nám í starfsmannastjórnun, en sú náms- braut fór af stað í fyrsta sinn á liðnu hausti. Þetta er þriggja miss- era nám og er það einkum ætlað háskólamenntuðu fólki. Rekstrar- og viðskiptanám verður einnig kennt og samsvarar 18 háskólaein- ingum. Markaðs- og útflutnings- fræði er tveggja missera nám. Það hentar öllum sem vinna að mark- aðs- og útflutningsmálum eða hafa áhuga á að hasla sér völl á því sviði. Ekki eru gerðar kröfur um að nemendur hafi lokið háskóla- prófi. Umsóknarfrestur um rekstrar- og viðskiptanám og markaðs- og útflutningsfræði er 15. apríl en 1. maí fyrir tengslanet í félagsþjón- ustu og starfsmannastjórnun. Frekari upplýsingar um lengri námsbrautir sem kenndar verða í haust hjá EHÍ eru á vefsíðunni www. endurmenntun.is, segir í fréttatilkynningu. Lengra nám hjá Endurmenntun HÍ TÖLVUDREIFING stendur fyrir árlegri Microsoft TechNet-nám- stefnu á Radisson SAS hótel Sögu, Sunnusal, fimmtudaginn 11. apríl, kl. 9–17. Fyrirlesarar kynna m.a. nýjungar hjá Microsoft, íslenska stafsetning- arorðabók, nýjungar og viðbætur við Office XP, Project 2002 og Visual Studio NET. Í tengslum við Tec- hNet-námstefnuna verður lokuð námstefna fyrir samstarfsaðila Microsoft þar sem nýjungar verða kynntar. Fyrirlesarar eru Morten Grundtvig og Torben Marcussen frá Microsoft í Danmörku og Gísli Ólafs- son frá IT Mobile.NET. Nánari upplýsingar og skráning er á www.td.is, eða hjá Jóhanni Áka Björnssyni í síma eða í tölvupósti jab@td.is. Aðgangur að námstefn- unni er ókeypis, segir í fréttatilkynn- ingu. Nýjungar hjá Microsoft kynntar FÉLAG heilbrigðis- og umhverfis- fulltrúa stendur fyrir fundi í Nor- ræna húsinu mánudaginn 8. apríl kl. 13– 17. Yfirskrift fundarins er „Heil- næmi matvæla – heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga“. Framsögumenn á fundinum eru úr röðum heilbrigðis- fulltrúa og heilbrigðisnefndarmanna og er markmið fundarins að auka þekkingu almennings á matvælaeft- irliti sveitarfélaga. Á fundinum verður m.a. greint frá þeim lagagrunni sem matvælaeftirlit heilbrigðisnefnda stendur á. Fjallað um faraldsfræði matarsýkinga og aðkomu heilbrigðiseftirlits að hóp- sýkingum. Boðið verður uppá kaffi og með- læti og í kaffitímanum mun Pharma- co kynna ýmsar nýjungar í mæli- tækni. Dagskrá fundarins er að finna á slóðinni www.hes.is/matvaelafundur. Ræða matvælaeft- irlit sveitarfélaga MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Hjálparstarfi kirkjunnar: „Vegna stóraukinna átaka í Ísrael og Palestínu að undanförnu eiga læknar sífellt erfiðara með að ná til særðra og sjúkra á hernumdu svæð- unum. Mikil þörf er á lyfjum og mat. Um það vitna samstarfsaðilar Hjálp- arstarfs kirkjunnar og sjálfboðaliðar frá Íslandi og Danmörku á mann- réttindavakt þar í landi. Síðustu daga hefur Ísraelsher ráð- ist á heilsugæslustöðvar og skrif- stofur aðila á sviði heilsugæslu og tekið heilsugæslustöðina í Qalquiliya undir starfsemi hersins. Fulltrúar á norrænni mannréttindavakt hjálpar- stofnana kirkna sem starfað hafa með læknaliði Lútherska heimssam- bandsins, sem Hjálparstarf kirkj- unnar er aðili að, bera að ísraelskir hermenn neiti fólki um að komast á sjúkrahús, fólki blæði út og skotið hafi verið á palestínska lækna. Fulltrúar á mannréttindavaktinni segja að meðaltali átta og hálfa klst. á dag fara í bið við varðstöðvar, að ganga með lyf og búnað gegnum slík hlið og bíða eftir að verða sótt hinum megin eða að aka um krókóttar hjá- leiðir. Þetta tefur og dregur úr gæð- um læknisþjónustunnar sem hægt er að veita. Erfitt er um aðföng á hernumdu svæðunum og mikil þörf er á mat. ACT Alþjóðaneyðarhjálp kirkna hyggst dreifa matarpökkum á Gaza- svæðinu og Vesturbakkanum. Mark- hópurinn eru fjölskyldur án nokk- urra tekna, fólk sem þolað hefur skemmdir á ræktarlandi og upp- skeru, flóttafólk og fleiri. Öll framlög á reikning nr 27 í SPRON á Skólavörðustíg munu renna til þessara mála. Tekið er við framlögum til að kaupa hjúkrunargögn, matvæli og til mannréttindavaktar Hjálparstarfs kirkjunnar í Palestínu, á reikning nr. 27 í SPRON, Skólavörðustíg.“ Hjálparbeiðni frá Palestínu TÖLVUMYNDIR hf. og dóttur- fyrirtæki halda ráðstefnu á Grand Hótel í Reykjavík fimmtudaginn 11. apríl, klukkan 13.10 – 17.05. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Hver er ávinningur upplýsingatækni- nnar?“ Ráðstefnan hefst með sameig- inlegri dagskrá. Ari Edwald, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins setur ráðstefnuna. Erindi halda: Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður TölvuMynda hf., Friðrik Sigurðsson, forstjóri TölvuMynda hf., Hákon Guð- bjartsson, framkvæmdastjóri upp- lýsingatæknisviðs Íslenskrar erfðagreiningar hf., Svavar G. Svavarsson, framkvæmdastjóri Skyggnis hf. Að sameiginlegri dagskrá lokinni munu ráðstefnu- gestir velja sér eina af fimm dag- skrám dótturfyrirtækja Tölvu- Mynda hf. þar sem innlendir sem erlendir sérfræðingar munu flytja erindi. Ráðstefnan er öllum opin og er ráðstefnugjald kr. 7.900. Sæta- fjöldi er takmarkaður. Skráning er til 9. apríl, á heimasíðu Tölvu- Mynda www.t.is eða í síma, segir í fréttatilkynningu. Ráðstefna um upplýsingatækni SKÓLASKÁKMÓT Reykjavíkur 2002 – einstaklingskeppni hefst í félagsheimili Taflfélags Reykjavík- ur, Faxafeni 12, þriðjudaginn 9. apríl kl. 18–20.40, einnig verður keppt miðvikudaginn 10. apríl kl. 18–21.20. Tefldar verða níu umferðir eftir Monrad-kerfi, ef næg þátttaka fæst. Umhugsunartími verður 20 mín. á skák fyrir hvern keppanda. Keppnin skiptist í tvo flokka, eldri flokk fyrir nemendur 8.–10. bekkj- ar og yngri flokk fyrir 1.–7. bekk. Rétt til þátttöku eiga tveir efstu menn í skákmóti hvers grunn- skóla, í hvorum flokki fyrir sig, alls fjórir. Þrír efstu menn í báðum flokk- um fá rétt til þátttöku í Landsmóti skólaskákar, sem fer væntanlega fram á Ísafirði 9.–12. maí nk. Þátttaka tilkynnist til Ólafs H. Ólafssonar æskulýðsfulltrúa, Rauðarárstíg 38, Reykjavík, segir í fréttatilkynningu. Skólaskákmót Reykjavíkur SJÁLFBÆR þróun á Íslandi verður umræðuefni málstofu sem Land- vernd og Umhverfisstofnun Háskóla Íslands boða til mánudaginn 8. apríl kl. 17 í Hátíðarsal Háskóla Íslands í aðalbyggingu. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra, Hjörleifur Gutt- ormsson, náttúrufræðingur og fyrr- verandi alþingismaður, Stefán Gísla- son, verkefnisstjóri Staðardagskrár 21, og Hafdís Ragnarsdóttir grunn- skólakennari munu flytja stutt inn- legg og taka þátt í pallborðsumræð- um. Aðgangur er ókeypis og öllum op- inn, segir í fréttatilkynningu. Málstofa um sjálfbæra þróun Leikaranöfn vantaði Í upptalningu leikara í Stromp- leiknum í blaðinu í gær vantaði nöfn Þórunnar Lárusdóttur og Alberto Sánchez Castellón. LEIÐRÉTT FÉLAG hjartasjúklinga á Reykja- víkursvæðinu heldur aðalfund í dag, laugardaginn 6. apríl, kl. 14–16 í Ár- sal Hótel Sögu. Erindi heldur Guð- mundur Þorgeirsson læknir. Jónas Þórir og Jónas Dagbjartsson leika á píanó og fiðlu. Jóhannes Kristjáns- son flytur gamanmál, segir í frétta- tilkynningu. Fundur hjarta- sjúklinga á Reykja- víkursvæðinu FERÐAFÉLAG Íslands gengst fyr- ir gönguferð á Keili á Reykjanes- skaga, sunnudaginn 7 apríl. Gönguleiðin upp og niður er 8 – 9 km og áætlað að hún taki um 4 klst. Fararstjóri verður Sigurður Krist- jánsson. Þátttökugjald er kr. 1.500/1.800. Brottför er frá BSÍ og Mörkinni 6 kl. 10.30, segir í fréttatilkynningu. Gönguferð á Keili

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.