Morgunblaðið - 06.04.2002, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 06.04.2002, Qupperneq 58
DAGBÓK 58 LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Hafnarfjarðarhöfn: Wolthausen fór í gær. Mannamót Bólstaðarhlíð 43. Harm- ónikkuball verður fimmtudagin 11. apríl kl. 16. Ragnar Leví spilar á nikkuna. Kaffi og með- læti. Skáning í síma 568 5052. Allir velkomn- ir. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudögum kl. 13–16.30, spil og föndur. Lesklúbbur kl. 15.30 á fimmtudögum. Jóga á föstudögum kl. 11. Kóræfingar hjá Vor- boðum, kór eldri borg- ara í Mosfellsbæ á Hlað- hömrum fimmtudaga kl. 17–19. Púttkennsla í íþróttahúsinu kl. 11 á sunnudögum. Uppl. um fót-, hand- og andlits- snyrtingu, hárgreiðslu og fótanudd, s. 566 8060 kl. 8–16. Kennsla í Línu- dansi byrjar í Damos mánud. 15. apríl kl. 20. Ferð verður á Sæ- dýrasafnið í Höfnum og til Keflavíkur 16. apríl, lagt af stað kl. 13 frá Damos. Skráning í s. 586 8014 e.h. Félag eldri borgara, Kópavogi. Opið hús í Gullsmára 13 kl. 14. Dagskrá: upplestur, hljóðfæraleikur o.fl. Kaffi og meðlæti. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Á mánu- dag púttað í Bæj- arútgerð kl. 10–11.30, fé- lagsvist kl. 13.30. Leikhúsferð miðviku- daginn 10. apríl kl. 14 að sjá leikritin „Í lífsins ólgusjó“ og „Fugl í búri“ sem Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir í Ás- garði, Glæsibæ. Skrán- ing og upplýsingar í Hraunseli, sími 555 0142. Fimmtudag- inn 11. apríl verður kvöldvaka Lions kl. 20. Skemmtiatriði, kaffi- hlaðborð og dans. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10–13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Sunnud.: Félagsvist kl. 13.30. Dansleikur kl. 20 Caprí- tríó leikur fyrir dansi. Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir í Ásgarði í Glæsibæ söng- og gam- anleikinn „Í lífsins ólgu- sjó“ og „Fugl í búri“. Næstu sýningar: sun- nud. 7. apríl kl. 16 og miðvikud. 10. apríl kl. 14. Sýningum fer fækk- andi. Miðapantanir í s. 588-2111 og 568-9082. Mánud. Brids kl. 13. Danskennsla framhald kl. 19 og byrjendur kl. 20.30. Þriðjud. Skák kl. 13 og alkort kl. 13.30. Miðvikudag Göngu- Hrólfar fara í göngu frá Ásgarði, Glæsibæ kl. 10. Heilsa og hamingja laugardaginn 13. apríl kl. 13.30 í Ásgarði, Glæsibæ. Sparidagar á Örkinni 14.–19. apríl, skráning á skrifstofu FEB. Silfurlínan er op- in á mánu- og mið- vikudögum frá kl. 10–12 í s. 588 2111. Skrifstofa félagsins er flutt að Faxafeni 12, sama síma- númer og áður. Fé- lagsstarfið er áfram í Ásgarði, Glæsibæ. Upp- lýsingar á skrifstofu FEB. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Vorfagnaður í Kirkjuhvoli 11. apríl kl. 19.30 á vegum Odd- fellow. Mán. 8. apr. kl. 9 gler, kl. 9.45 boccia, kl. 11.15 og 12.15 leikfimi, kl. 13.05 róleg stóla- leikfimi, kl. 13 gler- skurður/glerbræðsla, þrið. 9. apríl kl. 9 vinnu- stofa gler, kl. 13 málun, kl. 13.30 spilað í Kirkju- hvoli og tréskurður, mið. 10. apríl kl. 11.15 og 12.15 leikfimi, kl. 13.05 róleg stóla- leikfimi, kl. 13.30 handa- vinnuhornið, kl. 16 tré- smíði, fimmtud. 11. apríl kl. 9 vinnustofa, kl. 9.45 boccia, kl. 13. postulíns- málun, málun og ker- amik, kl. 19.30 vorfagn- aður í Kirkjuhvoli á vegum Oddfellow. Gerðuberg, félagsstarf. Sund- og leikfimiæf- ingar í Breiðholtslaug á vegum ÍTR á mánu- og fimmtudögum kl. 9.30, umsjón Edda Bald- ursdóttir íþróttakenn- ari. Myndlistarsýning Braga Þórs Guðjóns- sonar opin í dag frá kl. 13–16. Boccia á þriðju- dögum kl. 13 og á föstu- dögum kl. 9.30. Veit- ingar í veitingabúð. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 frá Gjábakka í Kópavogi alla laugardagsmorgna. Krummakaffi kl. 9. Allir velkomnir. Hláturklúbbur Hana- nú Munið stefnumótið við Smáraskóla við Kópavogslæk kl. 10.15 árdegis í dag, laug- ardag. Kynslóðirnar mætast og hlæja og syngja saman. Allir vel- komnir. Kirkjustarf aldraðra, Digraneskirkju. Opið hús á þriðjudag kl. 11. Leikfimi, matur, helgi- stund. Þorsteinn H. Þorsteinsson tollvörður kemur í heimsókn á samverustund ásamt hundinum Bassa. Félag fráskilinna og einstæðra. Fundur í kvöld kl. 21 í Konnakoti, Hverfisgötu 105. Nýir félagar velkomnir. Munið gönguna mánu- og fimmtudaga. Gigtarfélagið. Hóp- þjálfun Gigtarfélagsins fer af stað aftur eftir páskafrí mánud. 8. apríl. Hádegsileikfimi, létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Leik- fimi fyrir gigtarfólk og aðra fullorðna sem vilja góða, styrkjandi og liðk- andi leikfimi í notalegu umhverfi. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Skráning uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. GA-fundir spilafíkla, kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðslu- deild SÁA, Síðumúla 3–5, og í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigs- veg á laugardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 á Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA- samtakanna. (H)eldri félagar Sam- fylkingar í Hafnarfirði verða með samveru milli kl. 14 og 16 á morgun, sunnudaginn 7. apríl, í Alþýðuhúsinu, Hafn- arfirði. Dagskrá: Þórður Marteinsson á nikkuna og Stígur Herlufsen á saxófóninn, söngur, ljóðalestur Sigurður Þorsteinsson, Hafrún Dóra og Guðmundur Rúnar segja kosn- ingafréttir, Ásgeir Guðnason með nýjar fréttir af bygging- arframkvæmdum á Hrafnistu, Hafnarfirði, kaffi og meðlæti. Minningarkort Minningarkort Kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði. Minning- arsjóður í vörslu kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði. Minning- arkortin fást nú í Lyfj- um og heilsu, versl- unarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði. Kortið kost- ar 500 kr. Minningarkort Kven- félagsins Seltjarnar eru afgreidd á bæjarskrif- stofu Seltjarnarness hjá Ingibjörgu. Minningarkort Kven- félags Háteigssóknar. Kvenfélagskonur selja minningarkort, þeir sem hafa áhuga á að kaupa minningarkort vinsam- legast hringi í síma 552- 4994 eða síma 553-6697, minningarkortin fást líka í Háteigskirkju við Háteigsveg. Lífeyrisdeild Lands- sambands lögreglu- manna. Hefðbundinn sunnudagsfundur deild- arinnar verður á morg- un sunnudag 7. apríl. Fundurinn hefst að venju kl. 10 og athugið að þessu sinni verður hann haldinn í mötu- neyti Lögreglustöðv- arinnar við Hverfisgötu. Félagar fjölmennið. Minningarkort Kven- félags Langholtssóknar fást í Langholtskirkju s. 520-1300 og í blómabúð- inni Holtablómið, Lang- holtsvegi 126. Gíróþjón- usta er í kirkjunni. Í dag er laugardagur 6. apríl, 96. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Sælir eruð þér, þá er menn hata yður, þá er þeir útskúfa yður og smána og bera út óhróður um yður vegna Mannssonarins. (Lúk. 6, 22.) LÁRÉTT: 1 óhreint vatn, 4 fín klæði, 7 spil, 8 auðugum, 9 skýra frá, 11 ólykt, 13 kvenmannsnafn, 14 fram á leið, 15 lögun, 17 kássa, 20 hryggur, 22 krumla, 23 snagar, 24 kvars- steinn, 25 sonur. LÓÐRÉTT: : 1 rithöfundur, 2 skel- dýrs, 3 garður að húsa- baki, 4 dreifa, 5 ávinning- ur, 6 lengdareining, 10 blóma, 12 lærdómur, 13 bókstafur, 15 drukkið, 16 niðurgangurinn, 18 fisk- að, 19 hímir, 20 vísa, 21 þekkt. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 hljómfall, 8 þróum, 9 ótukt, 10 áum, 11 læsir, 13 teikn, 15 stund, 18 snæða, 21 átt, 22 fumið, 23 aular, 24 hlunnfara. Lórétt: 2 ljóns, 3 ósmár, 4 frómt, 5 laufi, 6 óþol, 7 étin, 12 iðn, 14 ern, 15 saft, 16 urmul, 17 dáðin, 18 starf, 19 ætlar, 20 akra. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 K r o s s g á t a Víkverji skrifar... DAGSKRÁ Listahátíðar íReykjavík 2002 var kunn- gjörð á dögunum og sýnist Vík- verja margt áhugaverðra og menn- ingarauðgandi listviðburða vera í boði. Wagner-óperan Hollendingurinn fljúgandi er vissulega hvalreki á fjörur íslenskra óperuunnenda, Kronos-kvartettinn og rússneski fiðluleikarinn Maxim Vengerov himnasending fyrir unnendur sí- gildrar tónlistar og argentínski danshópurinn El Escote kærkomin sending til dansunnenda sem einn- ig fá að berja í fyrsta sinn augum frumsamda íslenska dansupp- færslu á Sölku Völku Laxness. Ljósmyndasýning Mary Ellen Mark ætti að opna augu ljós- myndaáhugamanna, unnendur myndlistar láta sýningu Ólafs Elí- assonar vart framhjá sér fara, djassáhugamenn sperra væntan- lega eyrun þegar danski fiðluleik- arinn Kristian Jörgensen og fé- lagar leika í Listasafni Reykjavíkur á kosningakvöldið og einnig er Pétur Grétarsson og Sig- urður Flosason flytja spunaverk sitt og víðsýnir fylgismenn heims- tónlistar eiga vafalítið eftir að hreyfa leggi og limi í takt við sí- gaunasveitina Taraf De Haïdouks frá Rúmeníu og Vocal Sampling frá Kúbu. Sem sagt eitthvað fyrir alla...eða ekki. x x x HVAR eru viðburðirnir fyrirunnendur kvikmynda-dægur- tónlistar? Eða er ef til vill end- anlega búið að strika þau menn- ingarfyrirbrigði út af heilögu listasakramentinu? Aðstandendur hátíðarinnar standa vafalítið í þeirri meiningu að tveir viðburðir séu ætlaðir fylgjendum þessa list- greina; tónleikar Sigur Rósar og Hilmars Arnar Hilmarssonar og sýning á myndum Lofts Guð- mundssonar. Með fullri virðingu fyrir þessum viðburðum sem vissu- lega eru allrar athygli verðir svala þeir engan veginn þörfum unnenda hinna útlægu listgreina. Það yrði afar langsótt að ætla að flokka tón- leika Sigur Rósar og Hilmars Arn- ar, þar sem viðfangsefnið verður túlkun á glötuðum Eddukvæðum, Hrafnagöldrum Óðins, með stuðn- ingi strengjasveitar og kórs, sem dægur- eða rokktónlist og sýning á verkum Lofts Guðmundssonar höfðar ekki síður og kannski miklu frekar til ljósmyndara en kvik- myndaunnenda. Hér áður fyrr voru rokktón- leikar fastur liður á dagskrá Listahátíðar og oft á tíðum há- punktur hennar og Kvikmyndahá- tíð Listahátíðar fékk ætíð mikla athygli og aðsókn. Reyndar má segja að Kvikmyndahátíð í Reykja- vík hafi sumpart leyst þann hluta Listahátíðarinnar af hólmi en það breytir því ekki að aðstandendur hennar gætu vel séð sóma sinn í að sinna hinum fjölmörgu unnendum þessarar miklu alþýðulistar. Það væri líka auma afsökunin að ætla að skýra áhugaleysið á kvik- mynda- og rokktónlist með því að halda fram að einkaaðilar full- nægðu þörfinni fyrir slíka viðburði. Öðrum listgreinum sem verða í há- vegum á Listahátíð er nefnilega lítið síður sinnt utan hennar og það oftar en ekki með vænni að- stoð almannafjár, t.d. með rekstri Sinfóníuhljómsveitarinnar, at- vinnuleikhúsanna og listasafna rík- is og bæja. Víkverji telur enga gjaldgenga afsökun fyrir því að tvær af vin- sælustu listgreinum þjóðarinnar verði sniðgengnar enn einu sinni á Listahátíð. Þetta er einfaldlega enn eitt dæmið um að þeir sem með valdið fara eru oftar en ekki haldnir þeirri ranghugsun að sum list sé æðri en önnur. Gísla Martein aftur í Kastljósið GUÐRÚN hringdi í Velvak- anda fyrir hönd samstarfs- félaga og vildi koma eftirf. á framfæri. Við erum stór samstarfshópur sem höfum verið að tala um það und- anfarið að Kastljósið stóð og féll frá upphafi með Gísla Marteini. Hann gaf okkur svo mikið sem á hann horfðu með sinni frábæru útgeislun og skemmtilegheitum. Við erum þverpólitískur hópur, en segjum – hættu í pólitík og komdu aftur í Kastljósið. Þeir sem stýra Kastljósinu núna eru örugglega að gera sitt besta, en bara því mið- ur, þá sýnist okkur að nú- verandi stjórnendum finnist líka að það vanti svo mikið. Tapað/fundið Gucci-gleraugu í óskilum GUCCI-sólgleraugu fund- ust á bílastæðinu við Naut- hólsvík, föstud. 4. apríl. Upplýsingar hjá Ester eða Karli í síma 892-0160 eða 862-0160. Dýrahald Þetta er hann Monsi MONSI er þriggja ára og ógeldur. Hann er svartur og með hvítan blett á hálsinum, einnig hvíta sokka á öllum fótum og hvítt á maganum. Monsi er með rauða endur- skinsól en að öðru leyti ómerktur. Hann hvarf frá Miðvangi 111 í Hafnarfirði föstudaginn 22. mars sl. og er hans sárt saknað. Þeir sem vita eitthvað um hann eru vinsamlegast beðnir að hringja í síma 565-3993 eða 659-3993. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is ÞRÖNGSÝNI og alhæf- ingar eiga ekki að við- gangast í umræðu um við- kvæm málefni líkt og fóstureyðingar. Ég held að engin kona óski sér þess að þurfa að ganga í gegnum fóstureyðingu og það sem henni fylgir. Algengt er að konur finni fyrir lík- amlegum og andlegum kvillum eftir að hafa farið í fóstureyðingu. En af hverju fóstureyðing? Ástæðurnar geta verið margar, t.d. líkamlegar, félagslegar, fjárhagslegar eða jafnvel andlegar og er þetta yfirleitt neyð- arúrræði. Það er ekki hægt að ala barn upp við allar aðstæður, þú þarft fyrst að geta séð fyrir sjálfri þér áður en þú stofnar fjölskyldu. Það er ekkert voðaverk að koma í veg fyrir harm- leik. Ég er klár á því að þær sem geta eignast börn, gera það. En þær sem ekki geta það gera það ekki. Það er ekki sport hjá ungum stelpum að kíkja aðeins inn á Lansann og láta eyða fóstri. Fóstur er ekki manneskja, það er lítil frumuþyrping sem getur orðið að mennskri veru. Það er ekki vitsmunavera með skynfæri eða hugsun. Það er hrein fáfræði og heimska að líkja fóstureyð- ingum við morð á börnum. Ekkert vinnst með því að strá salti í sár þeirra sem nú þegar hafa farið í fóstureyðingu. Ef einhver ætlar sér að fækka fóstur- eyðingum, þá mundi ég telja málið í góðum farveg ef hlutlaus aðili kynnti fóstureyðingar og afleið- ingar þeirra í gagn- fræðaskólum, í líf- fræðitímum tileinkuðum kynfræðslu. Hlutlausar forvarnir þar sem fóstur- eyðingu er lýst á fræði- legan hátt fyrir nemendum ásamt hvernig hægt sé að koma í veg fyrir getnað er betri aðferð en hræðslu- áróður í sjónvarpi upp- runninn af einhverju trúarlegu ofstæki. K.K.K. Fóstureyðingar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.