Morgunblaðið - 06.04.2002, Blaðsíða 61
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 61
Optical Studio
– hagstæð gleraugnakaup –
OPTICAL STUDIO
DUTY FREE STORE
LEIFSSTÖÐ - KEFLAVÍKURFLUGVELLI
SÍMI 425 0500 - FAX 425 0501
Þjónustu- og ábyrgðaraðilar:
OPTICAL STUDIO RX / OPTICAL STUDIO SÓL, SMÁRALIND - GLERAUGNAVERSLUNIN Í MJÓDD - GLERAUGNAVERSLUN KEFLAVÍKUR - GLERAUGNAVERSLUN SUÐURLANDS
OPTICAL STUDIO
LEIFSSTÖÐ
(TAX & DUTY FREE)
OPTICAL STUDIO RX
SMÁRALIND
HARMONIKUBALL
Dans fyrir alla aldurshópa - Harmonikufélag Reykjavíkur
Dúndrandi Harmonikudansleikur
í ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima,
laugardag 6. apríl kl. 22.00.
ÞÆR systur Jónína Erna og Unn-
ur Hafdís Arnardætur ásamt
Birnu og Theodóru Þorsteins-
dætrum hafa stofnað systrakvart-
ett. Hugmyndin kviknaði í haust,
nánar tiltekið hjá Birnu þar sem
hún var stödd við sláturgerð
heima hjá Theodóru. Hún hringdi
í Jónínu og Unni sem voru strax
til í að vera með. Vegna anna varð
kvartettinn ekki að veruleika fyrr
en í febrúar þegar þær fóru að
æfa saman. Tónlistin skipar stór-
an sess hjá þeim öllum; Jónína er
píanókennari við Tónlistarskóla
Borgarfjarðar og kórstjórnandi,
Unnur hefur lært söng í nokkur ár
og sungið einsöng og með kórum,
Birna er tónlistarkennari og hefur
bæði sungið og stýrt kórum ásamt
því að hafa samið lög, og Theo-
dóra er skólastjóri Tónlistarskól-
ans en hún er menntaður söng-
kennari og syngur bæði einsöng
og með Kór Íslensku óperunnar.
Systrakvartettinn æfir einu
sinni í viku og að sögn þeirra er
markmiðið að skemmta sjálfum
sér og öðrum. Mikið er hlegið á
æfingum og á dagskránni eru
frekar lög í léttari kantinum, en
þær segjast vera alætur á tónlist
og yfirleitt sammála um val á lög-
um. Þær eru þegar farnar að
koma fram opinberlega, og syngja
við öll tækifæri. Morgunblaðið/Guðrún Vala
Systra-
kvartett í
Borgarnesi
Borgarnesi. Morgunblaðið.
Systrakvartettinn í léttri
sveiflu. Frá vinstri: Jónína
Erna Arnardóttir, Theo-
dóra Þorsteinsdóttir,
Unnur Hafdís Arnardóttir
og Birna Þorsteinsdóttir.
Embættismaðurinn
(The Commissioner)
Spennumynd
Belgía/Þýskaland/Bretland/
Bandaríkin, 1998. Myndform VHS. (110
mín.) Bönnuð innan 12 ára. Leikstjórn:
George Sluizer. Aðalhlutverk: John Hurt,
Rosana Pastor og Alice Krige.
HOLLENSKI leikstjórinn
George Sluizer kvaddi sér hljóðs
um miðjan níunda áratuginn með
hinum magnaða sálarhryllingi The
Vanishing en hefur átt erfitt með
að fóta sig upp frá því. Gerði t.d.
mislukkaða endurgerð í Hollywood
á áðurnefndri
mynd og hefur lít-
ið heyrst frá hon-
um síðan. Í The
Commissioner
ræðst hann ekki á
garðinn þar sem
hann er lægstur
heldur fjallar um
skæða spillingu
innan Evrópusambandsins í Bruss-
el sem snertir bæði æðstu stjórn-
málamenn og valdamestu stórfyr-
irtæki samtímans, lyfjafyrirtækin.
Efnið er forvitnilegt og heldur
áhorfanda áhugasömum framan af
en aðstandendum myndarinnar
fatast dálítið flugið í úrlausninni
sem er dregin óþarflega á langinn
og reynist heldur langsótt. John
Hurt er sterkur í hlutverki breska
ráðherrans Mortons sem kemst á
slóð spillingarmálsins og aðrir
minna þekktir leikarar standa sig
sömuleiðis með prýði. Sérstaklega
áhugaverð fyrir áhugamenn um
samsæriskenningar. Myndbönd
Spilling
á æðstu
stöðum
Heiða Jóhannsdóttir
Hjátrú
(Superstition)
Yfirnáttúrudrama
Lúxemborg/Holland/Bretland 2001. Há-
skólabíó VHS. (93 mín.) Bönnuð innan
12 ára. Leikstjórn Kenneth Hope. Aðal-
hlutverk Mark Strong, David Warner.
ELDSVOÐI verður ungum
ítölskum dreng að bana á heimili
hans. Eldsupptök eru ókunn og
kemur brátt á daginn að málið er
allt hið dularfyllsta. Fljótlega bein-
ist grunurinn að ungri breskri barn-
fóstru drengsins og þegar farið er
að rannsaka bak-
grunn hennar nán-
ar opinberast ým-
islegt sem ekki
kemur heim og
saman.
Þetta drunga-
lega og yfirnátt-
úrulega drama er
sagt byggja á
sönnum atburðum
– nokkuð sem eitt og sér hlýtur að
skipta áhorfendum rækilega í tvo
hópa. Stærsti gallinn er þó sá að hér
tekst ekki að sannfæra efasemda-
menn sem sitja örugglega flestir
eftir að lokinni myndinni og klóra
sér í hausnum. Var í alvöru verið að
gefa í skyn að yfirnáttúrlegar skýr-
ingar liggi að baki hinum vofeng-
legu atburðum eða er orsökin sál-
ræns eðlis? Ekki veit ég það. Hitt
veit ég að mér leiddist töluvert yfir
þessari mynd. Hún er síður en svo
spennandi og framvindan er ómark-
viss. Trúlega verður myndarinnar
því fyrst og fremst minnst vegna
Siennu Guillory, sem þykir með
efnilegri leikkonum Breta um þess-
ar mundir. Skarphéðinn Guðmundsson
Eldfim
sannindi
♦ ♦ ♦