Morgunblaðið - 06.04.2002, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 06.04.2002, Qupperneq 62
FÓLK Í FRÉTTUM 62 LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÉG GEF þér samband viðBilly Bob Thorton.Gjörðu svo vel,“ segir vél-ræn kvenrödd á hinum enda línunnar. Enginn Billy Bob. Bið. Hann heyr- ist tala við einhvern annan. Það er víst nóg að gera hjá náunganum, sem við þekkjum flest sem afkastamikinn leikara, leikstjóra og handritshöfund, en sem er þessa dagana á tónleika- ferðalagi um Evrópu. Skyndilega: „Is everything okay over there?“ [er í lagi þarna hinum megin] og ég þekki suðurríkjahreim- inn hans Billy Bob. Blm: Ha? Já. Hvað segiðu gott? BBT: Fínt, þakka þér. Blm: Ég heiti Hildur og hringi frá Ís- landi. BBT: Já, ég hlakkaði einmitt til að tala við þið því mig langar mikið að koma til Íslands. Blm: Já, ég ætlaði einmitt að spyrja hvort þú ætlaðir ekki að heimsækja okkur. BBT: Jú, ég hitti kvikmyndafarðara frá Íslandi sem sagði að það væri svo fallegt þar. Blm: Sagði frúin þér ekki hversu dásamlegt landið er? BBT: Jú reyndar, en hún vann þar svo stutt og sá ekki mikið, en sagði að þar væri mjög fallegt. Blm: Jæja, eigum við að snúa okkur að samtalsefninu kvikmyndinni Monster’s Ball ? BBT: Ókei. Ég þekki svona fólk „Ég hef alltaf áhuga á persónum sem á yfirborðinu líta út á einn veg- inn, en síðan kemst maður að því að þær eru í raun mun flóknari persónu- leikar,“ segir Billy Bob til að útskýra hvað í persónu Hank hafi heillað hann. Í Skrímslaballinu er Hank kynþáttahatari. Hann verður ást- fanginn af svartri konu, Leticiu, sem Halle Berry leikur og fékk Óskarinn fyrir. En Hank hafði einmitt að- stoðað við aftöku mannsins hennar. „Mig langaði líka til að rannsaka allt sambandið sem hann á í við föður sinn. Það gerist oft að við hlýðum for- eldrum okkar og lifum sama lífsstíl og þau, þótt það sé alls ekki það sem við viljum. Þannig er því komið fyrir Hank, en hann uppgötvar vegna harmleiks í eigin lífi að hann hefur verið vondur faðir og hatað son sinn, þegar hann í rauninni hatar föður sinn. Þetta er mjög þungt hlutverk, en sérlega vel skrifað. Auk þess kem ég frá Suðurríkjunum þar sem þessi mynd gerist, og hef þekkt svona fólk.“ – Finnst þér myndin gefa rétta mynd af Suðurríkjunum? „Af þessum hluta Suðurríkjanna, já. Þetta er mjög raunsæ mynd, en hún einskorðast ekki við suðrið held- ur er kynþáttahatur mjög víða. En það sem snýr að tóni, stemmningu og útliti myndarinnar er mjög raun- sætt.“ – Vakti það einnig áhuga þinn að Hank starfar við aftökur? „Já, það er áhugavert rannsókn- arefni, því hvers konar manneskju þarf til þess að geta gert slíkt? Jafn- vel þótt fólk sé hræðilegir glæpa- menn, hlýtur að vera mjög skrítið að drepa það.“ Á einhver skilið Óskar? – Þekktirðu leikstjórann Mark Forster fyrir samstarfið? „Nei, en þegar við hittumst vissi ég strax að þetta væri rétti gæinn. Hann hefur frábæra sýn og reyndist síðan frábær leikstjóri. Ég er sann- færður um að það muni koma meira forvitnilegt frá honum í framtíðinni.“ – Vissirðu að Halle Berry myndi leika Leticiu þegar þú tókst að þér hlutvekið? „Nei, ég var fyrstur til að tengjast myndinni, síðan kom hún inn.“ – Hvað fannst þér um það? „Mér fannst það fín hugmynd og vissi að hún gæti túlkað hlutverkið vel. Ég sá hana í Introducing Dor- othy Dandridge og fleiri myndum og finnst hún frábær leikkona. Síðan reyndist hún standa sig stórkostlega. Eins og reyndar hinir leikararnir líka. Mér fannst Peter Boyle einnig frábær.“ – Fannst þér hún eiga Óskarinn skilið fyrir frammistöðuna? „Ég veit ekki hvort nokkur á yf- irleitt skilið verðlaun og finnst þau skrítin. Ef maður fær verðlaun í kapphlaupi, þá var maður fyrstur í mark og vann. Hvernig er hægt að segja um eitthvað jafn ósnertanlegt og leik, að einhver hafi unnið? Mér fannst allir í myndinni standa sig svo vel, en ég samgleðst henni og óska henni innilega til hamingju, því hún stóð sig frábærlega. Á hverju ári um allan heim, eru leikarar að standa sig frábærlega og það er ekkert tekið eftir stærstum hluta þeirra.“ Sanngjarnt gagnvart áhorfendum – Þú ert þekktur fyrir að túlka skrítna náunga. Finnst þér það meiri áskorun sem leikari? „Ég leik þá karaktera sem mér finnst ég geta sagt eitthvað með. Ég leik ólíka karaktera í hverri mynd því mér finnst það sanngjart gagnvart áhorfendum. Ef maður leikur sjálfan sig í hverri mynd, þá sjá áhorfendur þig ekki lengur sem persónuna í sög- unni heldur sem leikara. Ég vil vera karakterinn í sögunni, því áhorf- endur eiga það skilið að fá að gleyma sér í sögunni, án þess að frægt andlit leikarans komi í veg fyrir það.“ – Einhver sagði mér að þú værir skrítin skrúfa sjálfur. Er það satt? „Ó, nei. Það er bara bull sem er verið að skrifa í blöðin. Ég er ósköp venjulegur náungi. Við höfum hvorki dýflissu né rafmagnsstól heima hjá okkur, auk þess sem ég borða ekki bara appelsínugulan mat. En það er ekki skrifað illa um okkur, bara hversu sérvitur við erum og ást- fangin. Það er í þessu fína, en ef ein- hver skrifar illa um konuna mína eða ræðst á börnin mín, þá verð ég brjál- aður.“ – Að hvaða mynd ertu að vinna? „Eins og er er ég á hljómleika- ferðalagi í Evrópu, en ég var tónlist- armaður áður en ég gerðist leikari. Ég fer víða og kynni plötuna mína Private Radio. Þegar við ljúkum því, ætlum ég og konan mín að fara heim til Los Angeles og fara í algert frí í tvo mánuði. Líklega leik ég í mynd í ágúst og þá verður hún með mér. Síðan leikur hún í mynd og þá verð ég með henni. Þannig getum við skipst á að vinna og verið saman um leið. Annars var ég að klára að leika í myndinni Levity eftir Ed Solomon með Morgan Freeman. Það er svona yfirnáttúrulegt drama, sem mér fannst frábær mynd.“ Reddum því á Íslandi! – Hvað með þínar myndir? Hefur „Daddy and Them“ verið frumsýnd í Bandaríkjunum? „Nei, Daddy and Them er mjög lít- il karaktermynd sem verður aðeins sýnd á takmörkuðu svæði í suð- urríkjunum. Framleiðslufyrirtækið er það sama og gerði All The Pretty Horses, og okkur samdi ekki sérlega vel, þar sem þeir tóku myndina og klipptu að eigin vild. Þetta er þeirra ákvörðun, en ég mér þykir vænt um hana og vona að fólk geti seinna nálg- ast hana á myndbandi. Þetta er gam- anmynd um vanheila fjölskyldu.“ – Þegar þú kemur til Íslands, þá kemurðu bara með hana með þér! „Já, auðvitað, frábær hugmynd! Við reddum þessu þannig! Heyrðu, þegar ég kem til Íslands viltu þá kenna mér nokkur orð í ís- lensku?“ – Já, nokkur dónaleg orð. Þögn. Úpps! Ekki tókst mér að ganga fram af eiginmanni Angelinu Jolie? „He, he. Já, það er einmitt það sem allir læra fyrst,“ segir Billy Bob vandræðalegur. Hjúkk. Ekkert, nema eigin lífsreynslu – Já, já, hvað finnst þér annars skemmtilegast í kvikmyndum? „Mér finnst skemmtilegast að leika, því ég var leikari upphaflega. Það er hjarta mínu næst og ég fæ mest út úr því. Ég veit að það erf- iðasta er að skrifa. Maður byrjar með ekkert í höndunum. Nema eigin lífsreynslu.“ – Og samtölin eru ávallt mjög sannfærandi. „Já, fyrir mér skipta persónurnar og samtölin mestu. Mér finnst líka gaman að finna rétta leikara til að segja setningarnar á réttan hátt. Oft er það ekki gert. Í suðurríkjamynd- um koma oft leikarar frá New York eða Kaliforníu til að leika hlutverkin. Mér finnst það alltaf mjög leiðilegt, enda myndi það aldrei vera öfugt. Að mínu leyti eru handritaskrifin mikilvægust í greininni, því ef fólk er ekki með góða sögu, persónur og samtöl, þá verður myndin ekki góð. Og mér finnst handritshöfundar alls ekki fá þá virðingu sem þeir eiga skil- ið. Ég vel alltaf hlutverk eftir hand- ritinu.“ – Ertu að skrifa annað handrit? „Já, það er handrit sem ég hef ver- ið að skrifa í nokkur ár og er um reynslu mínu sem sálarsöngvari þeg- ar ég var unglingur. Það heitir East End. Ég vonast til að geta klárað það því það er eitt af mínum uppáhalds- handritum.“ – Er þér í mun að koma suðurríkj- unum á tjaldið? „Já, og það í réttri mynd. En svo þekki ég þau líka best. Bestu verk manns verða alltaf byggð á því sem maður þekkir best og þá á maður auðvitað að gera það. Ég held t.d að ég gæti aldrei skrifað vísindaskáld- sögu,“ segir Billy Bob og hlær við til- hugsunina. Svona til að enda samtalið, gef ég honum tækifæri til að spyrja um gengi Monster’s Ball á Íslandi. –Er eitthvað sem þú vilt spyrja um að lokum? „Já, endilega. Bíddu nú við... ertu ljóshærð?“ – Já! Ha, ha... og bláeygð líka! „Í alvöru? En fyndið!“ Billy Bob Thornton leikur á móti Óskarshafanum Halle Berry í Skrímslaballinu sem sýnd er hér landi Ósköp venju- legur náungi Billy Bob Thornton er ekkert meðalmenni, heldur marghæfur listamaður. Hildi Loftsdóttur finnst hann sérstakur af stjörnu að vera. Jafnvel svolítið venjulegur, en sérstaklega vinalegur. hilo@mbl.is Sálufélagar í sorginni. Leticia og Hank eru sérstakir elskhugar. Svona lítur hinn ósköp venjulegi Billy Bob Thornton út. KL. 12.00 - 15.00 KL. 17.00 - 19.00 KL. 12.00 - 22.00
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.