Morgunblaðið - 06.04.2002, Side 64

Morgunblaðið - 06.04.2002, Side 64
64 LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 8. B.i.12. Vit 353 Sýnd kl. 4 og 6. Vit 349. Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. „Splunkunýtt framhald af ævintýri Péturs Pan!“ Sýnd kl. 8. B.i.12. Vit nr. 356 kvikmyndir.is Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. Vit nr. 363 Forsýnd kl. 2 og 4. Eitt magnaðasta ævintýri samtímans eftir sögu H G Wells Forsýnd kl. 10.15. Vit 367 Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl tal. Vit nr. 358. 4 ÓSKARSVERÐLAUN... M.A Besta mynd, besti leikstjóri (Ron Howard), besta aukahlutverk kvenna (Jennifer Connelly)og besta handrit (Akiva Goldman) ½SG DV kvikmyndir.com ½kvikmyndir.is ÓHT Rás 2 ½HJ Mbl Sýnd í Lúxus VIP kl. 2, 5.30, 8 og 10.40. B.i. 16. Vit 335. Sýnd kl. 1.45, 3.45, 5.50, 8 og 10.10. Vit 357 DV 1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 2. Íslenskt. tal. Vit 338 Þú ert boðin í hreint ótrúlega fjölskyldusamkomu! Stórstjörnurnar Danny Glover, Gene Hackman, Anjelica Huston, Bill Murray, Gwyneth Paltrow, Ben Stiller, Luke Wilson og Owen Wilson í magnaðri gamanmynd sem var tilnefnd til tveggja Óskarsverðlauna og vann Gene Hackman Golden Globe verðlaunin fyrir besta leik í aukahlutverki. Golden Globe verðlaun: BESTI LEIKARINN Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15. Vit nr. 337 R íkey s ýn i r v e r k s í n í a nddy r i b í ó s i n s Sýnd kl. 4, 7 og 10. B. i. 16.Sýnd kl. 6, 8 og 10.15. B. i. 16. kvikmyndir.is  kvikmyndir.com ÓHT Rás 2  kvikmyndir.com  DV „Splunkunýtt framhald af ævintýri Péturs Pan!“ tilnefningar til Óskarsverðlauna5 Sýnd kl. 5.45 og 10. Síðustu sýningar. Ó.H.T Rás2 Strik.is SG. DV Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 2 og 4. DV 1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 2 og 4. SIDEWALKS OF NEW YORK Sýnd kl. 4.30, 7 og 9.30. B.i. 12. Frumsýning SG DV Frá framleiðanda Snatch og Lock, Stock And Two Smoking Barrels kemur ný kvikmynd sem hittir beint í mark. Með hinum gallharða Vinnie Jones (Snatch, Swordfish). Sunnudag kl. 2. Lokasýning Sýnd kl. 6 og 8. Miðaverð kr. 800. Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. Sýnd kl. 8.  SV Mbl 1/2 Kvikmyndir.is RÉTT rúmu ári eftir að hann lét eiginkonuna sigla sinn sjó hefur bandaríski kvikmynda- leikarinn Tom Cruise sagt upp spænsku leik- konunni Penelope Cruz, að því er segir í frétt BANG Showbiz. Cruise hafði beðið Cruz um að giftast sér og hafði parið í hyggju að láta verða af því á næstunni. Ekki nóg með að Cruise vilji ekki giftast Cruz heldur hefur hann beð- ið hana að hafa sig og sitt hafurtask á brott úr íbúð hans í Los Angeles. Samband þeirra mun hafa dalað jafnt og þétt frá því um jólin þegar Cruise varði tíma sínum með fyrr- verandi spúsu sinni, Nicole Kid- man. Þessi vinátta þeirra fyrrver- andi hjóna mun hafa verið eilíft þrætuepli í sambandi Cruise og Cruz. Það bætti svo ekki úr skák að Cruise skyldi neita að fara með Cruz á Óskarsverðlaunaafhend- inguna. Kornið sem fyllti mælinn hefur væntanlega verið þegar Cruise lýsti því yfir opinberlega að hann myndi ávallt elska Kidman. Cruise og Cruz kynnt- ust við töku á myndinni Vanilla Sky og herma sögusagnir að ástarævintýri þeirra hafi hafist þá og það hafi verið ástæðan fyrir því að tíu ára hjónaband Cruise og Kidman fór út um þúfur. Hjónabandi Cruise og Mimi Rog- ers lauk árið 1990 og þá var Cruise óðara búinn að biðja Kidman. Þau ættleiddu síðar tvö börn. Lögmaður Cruise, Bert Fields, vísar á bug fregnunum um sam- bandsslit Cruise og Cruz. Cruise lætur Cruz róa Búið spil? ELÍSABET Ólafsdóttir, stundum köll- uð Beta rokk, hefur verið áberandi í afþreyingar- og skemmtiiðnaði land- ans undanfarin ár. Hún hefur svo sem ekki borið neinn sérstakan embættistitil vegna þessa, en kom- ið að ýmsum störfum því tengdum, starfað við ljósmyndun, greinaskrif fyrir prent- og netmiðla og komið að sjónvarpsmennsku svo eitthvað sé nefnt. Mest áberandi um þessar mundir eru þó skelegg innslög henn- ar í þáttinn Sigurjón Kjartansson og Co, morgunþátt Radíó X. Morgun- blaðinu fannst því gráupplagt að leggja nokkrar smellnar spurningar fyrir þessa kátu hnátu. Hvernig hefur þú það í dag? Ég er með smá fiðring í mag- anum og líður ofsalega vel. Hvað ertu með í vösun- um í augnablikinu? Debetkort, bíókort, nafn- spjald einhvers útlendings, lykla og síma. Ef þú værir ekki útvarpskona, hvað vildirðu þá helst vera? Rithöfundur með allavega tvær metsölubækur að baki. Bítlarnir eða Rolling Stones? Bítlarnir. Hverjir voru fyrstu tón- leikarnir sem þú fórst á? Whitesnake og Qui- reboys í Reiðhöll- inni þegar ég var 13 ára. Tapaði mér þegar „I Don’t Love You Anymore“ með Quireboys hljómaði. Vá, hvað mér fannst þeir sætir.....skil það ekki núna. Hvaða hlut myndir þú fyrst bjarga úr elds- voða? Fjölskyldunni. Hver er þinn helsti veikleiki? Kann mér ekki hóf. Hefurðu tárast í bíói? Vá, eiginlega alltaf. Ég er mjög mikil „vægð“ þegar kemur að kvikmyndum. Fór meira að segja næstum að skæla með ekkasogum þegar ég horfði á sjónvarpsmyndina um Önnu Frank um daginn. Finndu fimm orð sem lýsa persónuleika þínum vel. Offors. Kímnigáfa. Læti. Sjálf- miðuð. Heilindi. Hvaða lag kveikir blossann? „Moaner“ með Underworld. Hvaða plötu keyptirðu síðast? Þar sem ég er voðalega dugleg að brenna mína eigin diska hef ég ekki keypt plötu síðan um jólin og þá minnir mig að ég hafi keypt fyrstu Winter Chill plötuna í Hed Kandi safnið. Hvert er þitt mesta prakkarastrik? Morfís ́97. Við í MS töpuðum fyrir ME á Eg- ilsstöðum. Rokkuðum feitast á heima- vistinni. Brutum óvart ryksugu og ramma, brutumst ekki svo óvart inn í sundlaugina. Vorum rekin úr skólanum í viku en fengum alveg þúsund rokkstig í kladdann. Hver er furðulegasti matur sem þú hefur bragðað? Nú sé ég eftir því að hafa ekki fengið mér kálfaheilann í Brussell!! Hvaða leikari fer mest í taugarnar á þér? Britney Spears. Hverju sérðu mest eftir í lífinu? Það var eitthvað...........en ég er búin að gleyma því! Trúir þú á líf eftir dauðann? Auðvitað. Hvar væri Elvis ef maður gerði það ekki? Betu rokk fannst Quireboys sætir SOS SPURT & SVARAÐ Elísabet Ólafsdóttir Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.