Vísir - 19.06.1980, Side 2
Fimmtudagur 19. júni 1980
2
Hvort vildirðu frekar fá
laun þín greidd vikulega
eða mánaðarlega?
Magnús Þorvaldsson — sima-
maður:
,,Ég segi mánaðarlega. Ég hef
reynt hvort tveggja og finnst mik-
ið minna verða úr laununum með
vikugreiðslu”.
Sigurþór Stefánsson — verka-
maður:
,,Ég vil frekar fá launin vikulega
— þvi það nýtist mun betur hjá
mér”.
Magnús Tómasson — „yfirjárna-
sérfræðingur”:
„Vikulega — menn þurfa peninga
i dýrtiöinni og þola ekki mánað-
arbið”.
Sigurjón Guðmundsson — verka-
maður:
„Það er nauðsynlegt aö fá þetta
jafnóðum — helst daglega”.
Brynjar Stefánsson — sumar-
handlangari:
,,Mér finnst þægilegra að fá þau
vikuiega — og held að það sé i alla
staði betra”.
Er STIGA mótorsláttuvélin SÆNSK GÆÐAVARA?
\
\
Nafn
\
| | Nei
□ Já
\
\
/
I Heimilisfang________Sími: 9
I Vinningur dagsins:
j STIGA mótorsláttuvél gerð DYNO Verð: 199.500.-
I Svör berist skrifstofu Vísis, Síðumúla 8, Rvík, i siðasta lagi 27 júní, i umslagi merkt: SUMARGETRAUN.
I ^ Dregið verður 28, júní, og nöfn vinningshafa birt daginn eftir.
SUMARGÉTRÁUN
I
Setjið X í þann reit sem við á
/TIGEk
HVIRFIKERFIÐ MEÐ ÖRYGG/SHNÍFUNUM SLÆR BETUR
Póst-
sendum
um
allt land
öryggis-
hnifarnir,
sem
auðvelter
að skipta
um, vikja
til hliðar
ef t.d.
grjót lendir á þeim. Engin hætta
á aðsveifaráseða vél eyðileggist.
unnai Sfyzeimo-n k.f.
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200 - 105 REYKJAVlK
Hvirfils-disk-
urinn sem
myndar
kröftugt
sog.
Hvirfil-sogið reisir
grasið upp áður en
það er slegið.
Útblásturs-
rauf og fest-
ing fyrir hey-
poka.
Skerptir
hnifar sem
auðvelt er að
skipta um.
Þörungavinnsian lær 240 núsund pund I skaðabætur:
Ný verksmiðja að Reykhólum?
A aðalfundi Þörungavinnsl-
unnar hf. sem haldinn var sl.
laugardag á Reykhólum kom
fram að skoska fyrirtækið
Alginate Industries Ltd. hefur
samþykkt að greiða Þörunga-
vinnslunni 240.000 pund i skaða-
bætur fyrir vanefndir á þessu
ári. Eins og kunnugt er gat
fyrirtækið ekki staðið við samn-
ing sinn um kaup á 5000 tonnum
af þangmjöli i ár.
„Við höfum ákveðið að slá
ekki nema um 7000 tonn af þangi
i ár, sem er u.þ.b. heldmingi
minna en i fyrra,” sagði Ómar
Haraldsson íramkvæmdastjóri i
samtali i morgun. „Við reiknum
með að geta rekið þetta á núll-
punktinum fram að hausti, en
þá fer allt eftir hvort við fáum
fisk til þurrkunar. Annars þurfa
að koma til uppsagnir.”
Astæðan fyrir samningsbroti
Skotanna er að ný þörungamið
hafa fundist við S-Ameriku og ■
Astraliu. Þörungar þar eru eins ®
og stendur mjög ödýrir. „Horf- ■
ur eru á að þessar birgðir endist ™
i eitt til tvö ár”, sagði ómar, I
,,og að það verði erfitt hjá okkur *
á meðan.”
t samkomulagi Alginate I
Industries Ltd. og Þörunga- _
vinnslunnar er gert ráð fyrir að §j
bandariskt fyrirtæki Merck & g
Co. Inc. muni gera áætlun um m
framleiðslu á kalsiumalginati, |
sem er framleitt úr þangmjöli, m
og yrði slik verksmiðja ef til I
kæmi staðsett á Reykhólum.
„Við teljum að slik fram- I
leiðsla yrði raunhæf hér vegna ■
heita vatnsins, frekar en að ■
Skotarnir framleiði þetta með ■
oliu", sagði ómar. Verkfræð- B
ingar frá fyrirtækinu munu ■
koma i sumar til að rannsaka ■
aðstæður.