Vísir - 19.06.1980, Blaðsíða 14

Vísir - 19.06.1980, Blaðsíða 14
VISIR Fimmtudagur 19. júni 1980 14 Hlutdræg ípróttaiýslng Valtýr Guðmundsson skrifar: Ýmislegt hefur knattspyrnu- unnendum veriö boöiö upp áhin siöari ár af dagblöðunum i skrifum þeirra um iþróttina, og ottast er það svo, að fréttaritar- arnir eru sjaldnast sammðla um gang leiksins, leikaðferðir eða framkomu leikmanna, og ber oft mikið á milli. Er kannske ástæðan sú, að allir eða flestir knattspyrnufréttamenn, þar með taldir fréttaritarar Rikisútvarpsins, séu meira og minna hlutdrægir i lréttaflutn- ingi sinum? Þvi miður bendir margt til að svo sé, þvi að mikið ber þeim á milli i fréttaflutningi sinum. Hinsvegar verður þetta ekki sagt um iþróttaíréttaritara Rikisútvarpsins. Þeir ota sinum tota með allt öðrum hætti. Þeir nota hvert tækifæri til þess aö birta eða sýna itarlegar fréttir af sigrum sinnaliða.en láta þess hinsvegar sem allra minnst getið, þegar þau tapa. I þessu sambandi ber að hafa það i huga, að fréttaritarar Rikisút- varpsins hljóta að tilheyra opin- berum starfsmönnum með rétt- indum sinum og skyldum. Þá er það spurningin, hvað kunni að valda þessum vinnubrögðum? Eru iþróttafréttaritararnir kannske einráðir um frétta- flutning sinn? Hitt dylst engum, að þaö hlýtur að vera i þágu rikisijölmiðlanna sjálfra, að vel sé staðið að þessum málum. Sama er að segja um dagblöð- in að þvi leyti til, að það hlýtur að vera þeim verulegt hags- munamál, að það sé skrifað af þekkingu og óhlutdrægni um leiki 1. deildarinnar a.m.k. þar sem hver maður veit að mikil sala dagblaða byggist á skrifum um iþróttir, einkanlega þó að sumrinu til. Það er þvi ætið ömurlegt að lesa æsingar- og hlutdrægnis- skrif á siðum dagblaðanna um þessa fögru iþrótt, og i þessu sambandi er eitt siðasta dæmið afleitast, þar sem Sigurður nokkur Steindórsson frá Kefla- vík skrifar i Visi hinn 10. þ.m. um leik Fram og ÍBK. sem fram fór i Keflavik greindan dag. Fyrirsögn greinarinnar „Með takkaförin langt upp á bak” sýnir kannske best, að greinin er skrifuö af yfir sig æstum áhorfanda og hlutdrægum, svo ekki verði nú meira sagt. Það væri ekki rétt að fara að elta ólar hér við illyrði og rangfærsl- ur Sigurðar, heldur vildi ég mega ráðleggja honum að sofa úr sér æsinginn al' veliinum, áður en hann stingur næst niður penna um knattspyrnuleiki þeirra Keflvikinga. Á slikum skrifum græðir enginn, auk þess sem þau hljóta að vera höfund- inum til minnkunar og viðkom- andi dagblaði til vanvirðu. Að siðuslu skal nelndum Sig- urði bent á, að ef hann vildi reyna að finna æsingaskrifum sinum stað, þá er leikur þessi til á mynd, sem sjálfsagt væri að sýna honum, ef hann vildi fá að sjá leikin ótruflaður. Bréfritari segir að greinin ,, Með takkaförin langt upp á bak" sé skrifuð af yfir sig æstum áhorfanda. Sigrún mun vera fimmta konan sem kemst alla leið upp f Súlnasker Iskalda mjólk með eggjunum Eyjamaður hringdi: „Alveg fannst mér það fara með, annars ágætan þátt — að eftir frækilega ferö hennar Sigrúnar upp I Súlnasker — skuli hun hafa snætt svartfugls- egg án þess að drekka fskalda mjdlk meö. Mér sýndist gestim- ir vera með eitthvaö glært i glösunum I sjónvarpssal. Þegar slik egg eru etin, þá þýðir ekki annaö en að fylgja hefðinni fram — en vera ekki aö gutla þetta i bikarglösum og sparifatnaði. Svo óska ég Sigrúnu til ham- ingju með þáttinn. ÚLÖGLEG AFENGISAUGLÝSING Bileigandi skrifar: Um daginn þurfti ég aö kaupa varahluti niöri i Bifreiðum og landbúnaöarvélum. Þetta var ýmislegt smá- dót — en safnaö- ist þegar saman kom — og fékk ég þá poka utan um draslið. Ekki væri það i frásögur fær- andi nema af þvi að utan á poka þessum var auglýsing, sem var algjörlega andstæð lagasetn- ingu þess lands. A pokanum var veriöaö auglýsa áfengistegund. Fleiri menn fengu svona poka og hváðu viöer þeir sáu auglýs- inguna. Hvað á það að þýða að brjóta svona landslög?Eru ekki lög i þessu landi sem banna auglýs- ingar á áfengi? Er þetta ekki mál fyrir lög- reglu að athuga eða á að láta svona viögangast beint fyrir framan nefiö á mönnum án þess að nokkuð sé aö gert. Ég vil hvetja ykkur á Vlsi til þess að kanna þetta fyrir mig og alla þá sem annt er um lög þessa lands. B & L hljóta að geta útvegað sér skárri poka og hætt þessari lymskulegu áfengisauglýsingu. ■f.m . » • % * r<j^f :'íí i Viöskiptavinir hjá Bifreiðum- og landbúnaöarvélum meö pokana, sem um er fjallað i bréfinu. Visis- mynd: ÞG. 1 hverra þágu er þessi aug- lýsing'’ Vísir hcfur kannað mál þetta. Ljósmyndari blaösins tók myndir af mönnum er gengu út I ■ ■■ H Hi ■■ ■■ Hl M úr versluninni með slíka poka, sem nefndir eru i greininni að ofan. Hjá Signý Sen, fulltrúa hjá lögreglustjóra fengust þær upplýsingar að slikar auglýs- ingar vöröuðu vissulega við landslög — og gengju slik mál til saksóknara eins og önnur brot á áfengislögum .Hins vegar er al- gengt aö menn séu varaðir við og beðnir um að stöðva slikar athafnir, áöur en farið er i hart, — aö sögn Signýjar. sandkorn Þriller um Gunnar og Geir Flogið hefur fyrir, að tveir ungir blaöamenn, þeir Anders Hansen og Hreinn Loftsson, séu þessa dagana að vinna að bók um stjórnarmyndun Gunnars Thorddsen, sem mönnum er enn f fersku minni. Þeir félagar hafa varist allra frétta, en eftir þvf sem Sandkorn hefur fregnað, verð- ur hér um aö ræða hlutlausa frásögn af þeim atburðum er leiddu til stjórnarmyndunar- innar, og einnig er reynt að grafast fyrir um hugsanlegar orsakir lengra aftur f timann. Ef að likum lætur munu höf- undar bókarinnar viöa leita fanga, og meðal annars ræöa við þá Gunnar og Geir um efni hcnnar. Bókaútgáfan örn og örlyg- ur mun gefa bókina út, en þeg- ar hafa heyrst spádómar um að hér verði á ferðinni met- sölubók ársins cins og einhver orðaði það, enda mun bókin vafalaust hafa að geyma margvislegar upplýsingar sem ekki hafa komið fram áð- ur. Hræsni Enn ein nafngiftin i þing- mannalaunamálinu hefur nú séð dagsins ljós og er höfundur hennar Eiöur Guðnason, alingismaður.,,Heimsmet f hræsni” segfr Eiður og á þar við upphlaup Alþýðubanda- lagsins vegna þingfarar- kaupsins, sem Eiður sjálfur átti þátt í að ákveða. Það er vissulega rétt hjá Eiði, að þeir Ragnar Arnalds og Ólafur Ragnar standa með allt niður um sig i máli þessu enda hefur Garðar Sigurðsson sagt þjóðinni sannleikann um þróun þessara mála I þing- flokki Alþýðubandalagsins. Mörgum finnst þó, að Eiður mætti sér að skaðlausu gæta betur eigin mittisgjarðar þvi þótt hann hafi einhverju sinni flutt framvarp um aö kjara- dómur ákvæði laun þing- manna stendur sú staðreynd óhögguð, aö hann hefur nú sjálfur átt þátt f að skammta sér 120 þús. króna launahækk- un á mánuði og samþykkt, ásamt hinum að þegja yfir þvi... Viskí og sófi Það var i gleðiskröltinu um siðustu helgi. að Siggi sjarmör vék sér að glæsipíunni á barn- um og sagði: — „Heyrðu. hvað segirðu um Viski og SÓFA heima hjá mér á eftir..?”

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.