Vísir - 19.06.1980, Blaðsíða 3
3
VtSIR
Fimmtudagur 19. júni 1980
Hækkar bensínverðið enn einu sinni?
ROTTERD AM VE RDID
ER Á NHURLEH
„Nauðsynin er augljós”,
sagði önundur Asgeirsson, for-
stjóri Olis, þegar Visir spurði
hann hverja nauðsyn beri til að
hækka verð á bensini og oliu enn
einu sinni. „Það stórtapast
niður fjármagn i sambandi við
veröjöfnunarreikninginn og
hann stendur orðið öfugt um um
það bil 1 milljarð. Við höfum
sentut tillögur sem eru eins og
venjulega byggðar á innflutn-
ingsverði. Verðlag erlendis er á
fleygiferð og aprilmánuður var
sérstaklega hár. Það er bara
verið að reyna að fylgja verð-
lagsþróuninni”.
Þegar minnst er á verðlags
þróun, vildi Visir kanna þróun-
ina á Rotterdammarkaðnum og
leitaði til Sveins Aðalsteinsson-
ar i viöskiptaráðuneytinu, sem
sagði að töluverðar sveiflur
hefðu orðið á árinu. Hæst var
verðið i janUar, það sem af er
árinu, stóð þá um og jafnvel
heldur yfir ,$360 tonnið. Um
mánaðamót jan/feb fór það
niður i $297 og rokkar i febrUar
i $ 302-313. Svo lækkar verðið i
mars, og er i$ 276,5 i aprilbyrj-
un, hækkar siðan i april i $337,5
um miðjan mánUðinn og kemst
upp i $370 þann 25. en fer þá að
siga aftur og er $345 i maibyrj-
un, 317,5 þann 15. mai og 30. mai
var verðið '$311,5 hvert tonn af
hráoliu á Rotterdammarkaði.
Nýrri tölur hafði Sveinn ekki
handbærar.
„Enginn grundvöllur”
„Það er ekki hægt að sjá að
það sé neinn grundvöllur fyrir
þessari hækkun”, sagði Haf-
steinn Vilhelmsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, þegar Visir
leitaði hans álits, „þá ér alltaf
borið við hækkun erlendis, en
verð þar hefur verið lækkandi
að undanförnu og spár eru
heldur i þá átt að það muni
lækka enn”.
Verðlagsstjóri staðfesti að
beiðni um verðhækkun hef
i borist frá oliufélögunum, en.
villi ekki segja annað um málið.
Hækkanir undanfarið
Ef einhver skyldi hafa gleymt
hvernig verðþróunin hér innan-
lands hefur verið á bensini sið-
ustu rösk tvö ár vill Visir hjálpa
þeim að rifja upp. 2. janúar 1978
var bensinverðið kr. 113,- hver
litri. 4/3hækkar það um 5,31% i
119,-, 28/7 um 21,85% i kr. 145,-,
20/9 um 15,17% i 167,-, 13/12 um
8,38% i 181,-, 23/2 ’79um 13,26% i
205,-, 5/5 um 24,88% i 256,-, 13/7
um 21,88 i 312,-, 21/9 um 13,14% i
353,-, 20/12 um 4,82% i 370,- og
14/4 ’80 um 16,22% i 430,-. Sam-
tals nemur þessi hækkun 317
krónum eða 280,5%. Til saman-
burðar má geta þess, að 3. taxti
Dagsbrúnar hefur hækkað á
sama tima Ur kr. 558,- i 1657,-
eða um 197%.
SV.
3
Eggert Ó. Brynjólfsson við
sveinsstykki sitt. 10 ára starfs-
timi hans við húsgagnasmíðar
gera honum kleift að þreyta
sveinspróf.
(Visismynd ÞG.)
Lýkur sveinsprófl i
húsgagnasmíði
57 ára að aldri
„Ég vissi ekki af þessum mögu-
leika fyrr en fyrir um mánuði sið-
an”, sagði Eggert Ö. Brynjólfs-
son, en hann lýkur nú sveinsprófi
i húsgagnasmiði, 57 ára að aldri.
„Ég byrjaði að starfa i hús-
gagnaverksmiðju fyrir 11 árum
og hef einnig starfað við smiðar
utanhúss”, — en samkvæmt
reglugerð er þeim sem starfað
hafa við ákveðna iðn i 10 ár eða
lengur — unnt að þreyta sveins-
próf i iðninni.
„Ég fékk mikla hvatningu frá
vinnufélögum minum”, sagði
Eggert.
„Ég fór þá upp i Iðnfræösluráö
— fékk þar góðar upplýsingar og
ýmis gögn til þess að útfylla.
Siðan fór ég til sveinafélagsins og
athugaði hvernig þeir tækju i
þetta. Þeir voru mjög jákvæðir og
sumir ýttu á mig að gera þetta.
Nú — þá fékk ég uppáskrift frá
vinnuveitendum um að hafa
starfað við smiðar i 10 ár — og
siðan byrjaði baráttan”.
Visir vildi ekki tefja Eggert
lengur þvi það var tekið að liða á
seinnihluta föstudagsins 13. júni,
siðasta dagsins sem nemar höföu
til þess að ljúka við sveinsstykki
sin. Eggert virtist þó ekki hrædd-
ur við aö verða timaskortur við
vandaðan skáp er hann var að
ljúka verki við, þótt hann væri lit-
aður með mjög viðkvæmum og
erfiðum efnum.
—AS.
Höfum fyrirliggjandi hina viðurkenndu
LYDEX hljóökúta í eftirtaldar bifreiöar:
D
D
D
Skeifunni 2
Púströraverkstæói
Auatin Allogro 11—1300 ..............hljóökútar og púströr.
Austin Mini ....................... hljóókútar og púströr.
Audi 100s—LS ........................hljóökútar og púströr.
Bedford vörubfla ....................hljóókútar og púströr.
Bronco 6 og 8 cyl ...................hljóðkútar og púströr.
Chervrolet fólksbfla og jeppa .......hljóókútar og púströr.
Chrysler franskur ...................hljóökútar og púströr.
Citroen GS ..........................hljóókútar og púströr.
Citroen CX ....................................Hljóókútar.
Daihatsu Charmant 1977—1979 ....hljóókútar fram og aftan.
Datsun diesel
100A—120A—120—1600—140—180 .... hljóókútar og púströr.
Dodge fólksbfla .....................hljóókútar og púströr.
D.K.W. fólksbfla ....................hljóókútar og púströr.
Fíat 1100—1500—124—125—126—127—128—131—132
.................................... hljóókútar og púströr.
Ford, amerfska fólksbfla ............hljóókútar og púströr.
Ford Consul Cortina 1300—1600 .......hljóðkútar og púströr.
Ford Escort og Fiesta ...............hljóókútar og púströr.
Ford Taunus 12M—1SM-17M- 20M.........hljóðkútar og púströr.
Hilman og Commer fólkab. og sendib. .. hljóókútar og púströr.
Honda Civic 1500 og Accord ....................hljóókútar.
Austin Gipsy jeppi .. ...............hljóðkútar og púströr.
International Scout jeppi ...........hljóókútar og púströr.
Rússajeppi GAX 69 hljóðkútar og púströr.
Willys jeppi og Wagoneer ............hljóðkútar og púströr.
jMpiltr V6 ..........................hljóökútar og púströr.
Lada ................................hljóökútar og púströr.
Landrover bensfn og diesel ..........hljóókútar og púströr.
Lancer 1200—1400 ....................hljóókútar og púströr.
Mazda 1300—616—816—929 hljóókútar og púströr.
Mercedea Benz fólksbfla
—190—200—220—250—280 hljóókútar og púströr.
Mercedes Benz vörub. og sendib................hljóókútar og púetrör.
Moskwitch 403—408—412 hljóókútar og púströr.
Morris Marina 1,3 og 1,8 ..........hljóökútar og púströr.
Opel Rekord, Caravan, Kadett og Kapitan
.................................. hljóökútar og púströr.
Passat V< p Hljóókútar.
Peugeot 204—404—504 hljóökútar og púströr.
Rambler American og Classic .......hljóókútar og púströr.
Range Rover ........................hljóókútar og púströr.
Renault R4—R8—R10—R12—R16—R20
.................................. hljóökútar og púströr.
Saab 96 ofl 99 .....................hljóókútar og púströr.
Scania Vabis
L80—L85—LB85—L110—LB110—LB140 ...............hljóókútar.
Simca fólksbfla ...................hljóðkútar og púströr.
Skoda fólksb. og station ..........hljóðkútar og púströr.
Sunbeam 1250—1500—1300—1600— ... hljóókútar og púströr.
Taunus Transit bensín og disel.....hljóókútar og púströr.
Toyota fólksbfla og station .......hljóðkútar Ofl púströr.
Vauxhall og Chevette fólksb........hljóökútar og púströr.
Volga fólksb.......................hljóökútar og púströr.
VW K70, 1300, 1200 og Golf ........hljóókútar og púströr.
VW sendiferöab. 1963—77 hljóókútar og púströr.
Volvo vörubíla F84—85TD—N88—N86—
N88TD—F88—D—F89—D ...........................hljóókútar.
Volvo fúlksbilar.............. hljóðkútar og púströr.
Púströraupphengjusett í flestar geröir bifreiöa.
Pústbarkar, flestar stærðii. Púströr í beinum
lengdum, 1V4“ til 4“
Setjum pústkerfi undir bíla, sími 83466.
Sendum í póstkröfu um land allt.