Vísir - 19.06.1980, Blaðsíða 9

Vísir - 19.06.1980, Blaðsíða 9
Arngrimur Ingimundarson og Bergþóra Jdelsdóttir ásamt forseta bæjarstjórnar, Jóhanni G. Möller. | Visismyndir: Agúst Björnsson. am „Getum ekki stillt okkur • um að kaupa mynflir": sagðiArngrímurlngimundarson.en pau hjóninj afhentu Siglufjarðarbæ 120 málverk að gjöf j Fyrir röskum 60 árum þurftu þau hjónin Ingimundur Sigurðs- son og Jóhanna Arngrimsdóttir á Illugastöðum i Fljótum að bregða búi. Ingimundur var illa haldinn af liðagigt og átti erfitt með að stunda vinnu. Þau flutt- ust til Siglufjarðar með átta börn, og eignuðust þar tvö i við- bót. Þetta voru erfiðleikatimar, en Siglfirðingar reyndust fjöl- skyldunni vel. Sfðastliðinn mánudag á 100 ára afmæli Jóhönnuafhentuson- ur hennar og tengdadóttir Siglu- fjarðarbæ 120 málverk. Safnið mun verða uppistaðan i stærra safni sem bærinn hefur i hyggju að setja á stofn. Gefendurnir Arngrimur Ingi- mundarson og Bergþóra Jóels- dóttir gefa safnið i minningu foreldra sinna, og um leið þakka þau Siglfirðingum þann stuðn- ing sem þeir sýndu foreldrum Arngrims á erfiðum timum. Móðir Arngrims mun oft hafa haft á orði að þennan stuðning hefðu þau hjón aldrei getað launað Siglfirðingum. Gjöfinni var veitt móttaka i ráðhúsi bæjarins þar sem kirkjukórinn söng og ávörp voru flutt. Safnið er menningarlifi staðarins ómetanleg lyftistöng og Siglfirðingum mikið gleði- efni. Safnið verður til húsa fyrst um sinn i ráðhúsinu. -S.Þ. „Jú, þvi er ekki að neita, að húsið var heldur tómlegt nú, eft- ir að öll listaverkin fóru en við hjónin eigum svo marga vini i myndlistarstétt, sem lána okkur verk sin, þangað til við sjálf bætum úr þvi”, sagði Arngrim- ur Ingimundarson, en sl. mánu- dag afhenti hann og kona hans Bergþóra Jóelsdóttir Siglu- fjarðarbæ að gjöf 120 málverk eftir 70 listamenn. Þar með verður safnið á Siglufirði eitt stærsta listasafn utan Reykja- vikur. „Við hófum þessa söfnun fyrir um það bil 15-20 árum”, sagði Arngrimur, ,,og ástæðan er ein- göngu ánægjan, sem við hjónin höfum af þvi að vera innan um myndlist”. Myndirnar, sem hér um ræðir eru flestar verk innlendra lista- manna, að sögn Arngrims, s.s. Kjarvals, Jóns Engilberts, Ninu Sveinsdóttur, Þorbjargar Höskuldsdóttur, Sigriðar Björnsdóttur og svo mætti lengi telja. Aðspurður um ástæðuna fyrir þvi, að Siglufjarðarbær varð fyrir valinu sagði Arngrimur: „Ég átti heima á Siglufirði i 15 ár, ég er að visu ekki fæddur þar, heldur i Fljótunum, en fluttist þangað með foreldrum minum, sem siðan bjuggu þar til æviloka”. Að siðustu var Arngrimur spurður að þvi, hvort þau hjónin væru hér með hætt málverka- söfnun og svaraði hann: „Viö getum sjálfsagt ekki stillt okkur um að kaupa myndir, meðan við eigum einhverja aura”. -k.Þ. jflrDlngarven að muna efllr æskustððvunum á bennan nán” Ingimundur Einarsson bæjarstjóri flytur ávarp. Kirkjukór Siglufjaröar syngur innan um listaverkin. „Þetta er mjög merkilegt safn, ekki sist fyrir það, að Arn- grimur byrjar ekki að safna fyrr en fyrir rúmum 15 árum og hann kaupir frekar verk yngri manna, bæði málara og grafik- era, en gömlu meistaranna”, sagöi Aðalsteinn Ingólfsson um safn Arngrims Ingimundarson- ar og Bergþóru Jóelsdóttur, sem frá og með deginum i dag er i eigu Siglufjarðarbæjar. Aðalsteinn, sem skrásetti safnið, sagði, að þar væru m.a. mjög sterkar myndir eftir Septem bermennina, s.s. Kristján Daviðsson, Karl Kvar- an, Svavar Guðmundsson. Sömuleiðis væri nokkuð af grafik, bæði innlendri og erlendri, í safninu. Mætti þar nefna ivær grafikmyndir eftir Dali og mynd eftir franskan listamann Yvarall. „Það er virðingarvert, að fólk skuli gera þetta, að hugsa um sinar gömlu æskuslóðir einmitt á þennan hátt”, sagði Aðal- steinn Ingólfsson að lokum. K.Þ. Gestur við athöfnina. sagðl Aðalsteinn ingólfsson. en hann skrásetli safn Arngrlms og Bergpðru, sem nú er í eigu Siglufjarðarbæjar VISIR Fimmtudagur 19. júni r 1980 Siglfirðingum launaður stuðningurinn

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.