Vísir - 19.06.1980, Blaðsíða 4

Vísir - 19.06.1980, Blaðsíða 4
4 VlSIR Fimmtudagur 19. júni 1980 Atvinnuhúsnæði óskast Tvö-þrjú þúsund fermetra húsnæði óskast til leigu eða kaups fyrir verslunar- og iðnrekstur. Tilboðum sé skilað til blaðsins fyrir 20. þ.m. merkt G-680 Veiðiieyfi___________________ Til sölu veiðileyfi í Laxá í Aðaldal fyrir landi Fiðrafjalls. Upplýsingar í símum 96-43593 og 96-43594 K FREEPORTKLÚBBURINN Hópferö veröur farin aö Gullfoss og Geysi/ sunnudaginn 26. júni meö Joseph Pirro og frú. Fariö verður frá Bústaðakirkju kl. 10. f.h. Þátttaka tilkynnist til stjórnar í siðasta lagi föstudaginn 20. júní. Freeportmenn fjölmenn- iö og takið fjölskylduna með. Stjórnin. HEILSUVERN DARSTÖÐ REYKJAVÍKUR óskar að ráða deildarstjóra við ÁFENGISVARNADEILD til eins árs/ vegna f jarveru aðaldeildarstjóra. Æskileg er háskólamenntun helst á félagsvís- inda- eða hjúkrunarsviði. Upplýsingar veitir deildarstjóri í skrifstofu áfengisvarnadeildar, Lágmúla 9, og í síma 81515, kl. 10-12 virka daga. Umsóknir skal senda á þar til gerðum eyðu- blöðum fyrir 30. júní n.k. til framkvæmda- stjóra Heilsuverndarstöðvarinnar, Barónsstíg 47, Heilbrigðisráð Reykjavíkur NJÓTIÐ ÚT/VERU Bregðið ykkur á hestbak Kjörið fyrir alla fjölskylduna HESTALE/GAN Laxnesi Mosfellssveit Sími 66179 HÓTEL VARÐDORG AKUREYRI SÍMI (96)22600 Góð gistiherbergi. Verð frá kr. 10.55—17.500. Morgunverður Kvöldverður Næg bílastæði Er í hjarta bæjarins. •ms Þaö eru ekki allir jafnir I Kina og margir þeir, sem völd hafa, misbeita þeim. Gegn þessari spillingu berst stjórnin i Peking nú af fulium krafti. (Vlsismynd: B.G.) MútuDægír fulltrúar „Lögreglan i Shenyang upplýsir stórþjófnað". „Gullþjófur dæmdur til dauða og tekinn af Iffi". Slikar fyrirsagnir voru til skamms tima sjaldséöar á siöum Dagblaös alþýöunnar, málgagni kinverska kommunistaflokksins, en nú má svo til daglega sjá aö minnsta kosti eina slika frétt i blaöinu. Sýnir þetta vaxandi áhyggjur kinverskra stjórnvalda af glæpum og spillingu, sem þrifst i þjóöfélaginu. Þaö sem vekur meiri athygli er aö þeir menn, sem kinversku blööin úthrópa sem glæpamenn, eru gjarnan háttsettir flokks- menn og ráðamenn. Fréttaritari TIME i Peking, Richard Bern- stein, setgir: ,,Sú staöreynd, aö þessir menn eru nú úthrópapir á forsiöum kinverskra blaöa, sýnir aö kinverskir ráöamenn ætla aö heröa barattuna gegn mútuþægni og annarri spillingu innan stjórn- kerfisins, vandamáli sem vakið hefur óánægju kinverskrar alþýbu”. Margir þeirra glæpa, sem hátt- settir flokksmenn eru ásakaöir fyrir, sýna hversu auövelt þaö hefur veriö fyrir þá, ekki einungis aö brjóta lögin, heldur einnig aö komast hjá refsingu. Sem dæmi má nefna yfirmann áætlunargerðar f verksmiðju i Shenyang, Guan Qing—chong. Fyrir 19 árum tókst Guan aö stinga undan 806 únsum af gulli sem nota átti til iönaðar- framleiöslu. Enginn grunaði Guan am glæpinn og hann hækk- aöi smátt og smátt i tign. Þaö komst fyrst upp um þjófnaðinn i apríl i ár, þegar hann seldi 100 unsur af gullinu i banka sinum Gjaldkeri lét iögregluna vita, leit- aö var á heimili Guans og þaö sem eftir var af gullinu fannst. Guan var dæmdur til dauöa. Yfi*leitt eru menn, sem fundnir eru sekir um slika glæpi, aöeins settir i fangelsi og sviptir stöðum sinum, en Guan var dæmdur til dauöa vegna þess aö hann reyndi aö kenna undirmönnum sinum um glæpinn.. Annað dæmi um þyngingu dóma af þessari ástæöu, er hér- aösstjóri i Zheijian-fylki, Ji Xinquan aö nafni. Ji var dæmdur i fimm ára fangelsi fyrir aö falsa kærur á tvo héraðsfulltrua, sem komið höföu upp um timbur- þjófnað Ji. Sérhlunnindi flokksfulltrúa eru meiri I Kina en ætla mætti, sam- kvæmt þvi sem fréttaritari Time i Peking segir. Meira aö segja hin- ar ströngu reglur um takmörkun barneigna viröast ekki gilda fyrir valdamenninga. Eiginkona flokksritarans i einu héraöi Guandong fylkis eignaöist fimmta barniö, sem er þremur börnum meira en gert er ráö fyrir aö hjón eignist. Skömmu eftir barnsburðinn var ritarinn hækk- aöur i tign. Þorpsbúum mislikaöi þetta og mótmæltu harölega mis- réttinu. t siðustu viku skýrðu kinversk blöö frá flokksfulltrúa, Hou Li, sem notaði fölsuö skilriki til aö leigja samkomuhús i nafni hers- ins. Svo seldi hann miöa á skemmtunina á uppsprengdu veröi. Þegar misferliö komst upp var Hou dæmdur f tveggja ára fangelsi. Þá hafa blööin skýrt frá alls kyns misferli og spillingu ann- arri, svo sem mútuþægni fyrir aö út vega fólki leyfi til aö komast úr landi, fyrir aö falsa einkunnir i háskólum, og margt fleira. Þá hafa margir veriö sakaöir um að koma börnum sinum I „góöar” stööur, eða eins og kinverkur málsháttur segir: Tiu þúsund hlutir eru góöir, en ekki eins góðir og faöir i góöum samböndum. Stjórnin i Peking hefur miklar áhyggjur af þessari misbeitingu valds, enda hefur hún slæm siö- feröisleg áhrif á alþýöuna. Kinverskuur blaðamaöur sagöi um þetta: ,,Þaö hefur tekiö okkur langan tima aö skilja hversu al- varlegt þetta vandamál er”. Kínverjar smíða fyrir Banda- ríkjamenn McDonnell Douglas flugvéla- verksmiðjurnar bandarisku hafa gcrt samning viö Kinverja um aö þeir smiöi hurðir á iendingarbún- að farþegaflugvéla fyrirtækisins. Kinverjar eiga aö framleiöa um tvö hundruö huröir, sem lokast yfir lendingarbúnaöinn þegar flugvélin er á lofti. Huröir þessar veröa notaöar á nýju DC-9 sup- er flugvélina. Samningurinn er aö jafnvirði um tvær milljónir dollara. McDonnelI Douglas er fyrsta handariska flugvélaverksmiöjan sem pantar flugvélahluti frá Kina. Tll hamlnglul Eineggja tviburasystur héldu nýlega upp á afmæliö sitt saman. ,,Og hvaö meö þaö”? kann einhver að spyrja. Jú, afmæli systranna Naimi Bomanson og Elin Hagmark, sem eru finnskar, var dálítiö sögulegt, alla vega tölfræöilega séö. Þaö er nefnilega ekki talið henda ein- eggja tvibura i fleiri tilfellum en einu af hverjum sjö hundruö milljónum, aö geta haldið upp á hundrað ára afmæliö sitt saman. Gallabuxur handa Rússum Sovétmenn munu framleiöa sjö og hálfa milljón gallabuxna aö verðmæti um 50 milljarða króna á næstu fimm árum. Þaö er italska gallabuxnafyrir- tækiö ,, Jesus Jeans” sem mun sjá Sovétmönnum fyrir tækjum, sniöum og þekkingu, en Rússarn- ir munu sjá um hráefni og vinnu- afl. Jesus verksmiöjan var fyrsta evrópska gallabuxnafyrirtækiö, sem komst aö ráöi inn á banda- riska markaðinn. Fyrirtækiö varð fyrst frægt fyrir nokkrum árum þegar Valtikaníö bannfæröi fyrirtækið, þar sem þaö taldi aö f auglýsingum fyrirtækisins væri guölastaö. Auglýsingin var mynd af ungri stúlku, klæddri eingöngu i galla- buxur. Nafn fyrirtækisins var fyrir ofan stúlkuna, en hún var látin segja: „Ef þú elskar mig — fylgdu mér”. Lést ai súr- efnisskortl Sænskur fjallgöngumaöur lést af súrefnisskorti á fjallinu Finst- eraarhorn i Sviss um helgina. Hans Lienard Ericsson, 29 ára gamall, var ásamt félaga sinum kominn upp i 3500 metra hæö, en lagðist þá niöur úrvinda af þreytu og súrefnisskorti. Þeirkomustþvf ekki lengra og ákváöu aö halda þarna fyrir um nóttina. Ericsson lést um nóttina en félaga hans var bjargaö. Hæsti tindur Finsteraarhorn er 4275 metra yfir sjávarmáli.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.