Vísir - 19.06.1980, Page 5

Vísir - 19.06.1980, Page 5
42 hafa látist í óeirð- unum í S-Afrfku: Umsaiurs- ástand í Höfðaborg Að minnsta kosti 42 hafa nú látist i verstu óeirðunum, sem orðið hafa i S-Afriku frá átök- unum i Soweto fyrir fjórum árum. Og ekkert lát virðist vera á átök- unum nú. Fréttamönnum er meinaður aðgangur að þeim svæðum, þar sem átök uppreisnarmanna og lögreglu hafa orðið hvað mest, en ibúar blökkumannahverfanna segja, að nánast riki umsáturs- ástand i hverfunum. Lögreglan einangri heil hverfi og skjóti að mótmælendum. Mike Geldenhuys, lögreglu- stjóri, sagði i yfirlýsingu i gær, að menn hans myndu skjóta til bana, ef hætta virtist á ferðum, en dró yfirlýsinguna til baka skömmu siðar og sagði að „lögreglan myndiekkisýna neina miskunn”. Dagblað i Höfðaborg sagði i gærkvöldi, að samkvæmt sjúkra- hússkýrslum væri dánartalan komin upp i 42, en slasaðir væru yfir 200, og ætti dánartalan örugglega eftir að hækka. Sam- kvæmt opinberum skýrslum er dánartalan aðeins ellefu. Óeirðirnar hófust á mánudag, en þá voru fjögur ár liðin frá óeirðunum i Soweto. Atökin náðu hins vegar ekki hámarki fyrr en i gær. Myndin er tekin i Mexikóborg á þeim árstima, þegar ekki er enn oröið of heitt tii þess að ástin nái að blossa upp I brjóstum unga fólksins. Það er þóeins og parið vinstra megin á myndinni sé ekkert of hrifið af opinskárri ástarjátningu parsins við hliðina. Þó finnst okkur það þurfi steinhjarta til að komast ekki við... eða hvað? Til að vega aðeins upp á móti öðrum fréttum á siðunni, birtum við smá-sýnishorn af ástinni. Sýrlandsstjórn fordæmir Sadat: HVETUR EGYPTA TIL BYLTIHGAR Sýrlandsstjórn fordæmdi i gær liðsafnað Egypta við libisku landamærin og bauðst til að aðstoða Libiumenn ef til átaka kæmi við Egypta. í yfirlýsingu stjórnarinnar var egypska þjóðin og egypski herinn hvött til að „bind nú endi á stjórn Sadats, sem ekki einungis stefndi öryggi egypsku þjóðarinnar i hættu, heldur og öllum arabiska kyn- stofninum”. Egyptar fluttu lið að libisku | yfir hættuástandi þar á mánudag- landamærunum, eftir að hafa lýsl j inn. Egypska stjórnin ásakar Gaddafi, þjóðhöfðingja Libiu- manna, um að skapa spennu á landamærunum, en Libiumenn segja,að Bandarikjamenn séu aö reyna að telja Sadat á að fara með striði á hendur Libiu- mönnum. 1 yfirlýsingu Sýrlandsstjórnar sagöi ennfremur, að egypski herinn, sem „heföi fært miklar fórnir i þágu araba, mætti ekki veröa verkfæri heimsvaldasinna, sionista og Israela”. Anwar Sadat: Bæði Lfbfustjórn og Sýrlandsstjórn hafa hvatt egypsku þjóðina til að gera bylt- ingu gegn honum. Karmal um niuiverk Sovétmanna í Aiganlstan: „Verkfærl Guðs” „Sovétmenn eru verkfæri guðs i Afganistan”, sagði Babrak Kar- mai, forseti Afganistans i útvarp- inu i Kabúl i gær. Útvarpið lék upptöku, sem gerð var, er Karmai hélt ræðu á fundi með borgarbúum á föstudaginn var. Karmal sagöi, að Sovétrikin hefðu allt það land, oliu, gas og málma, sem þau þyrftu: „Þau þurfa ekki á þvi að halda að leggja undir sig önnur lönd. Þegar Sovétmenn hjálpa okkur nú eru þeir aðeins milliliður guös”. Þegar öryggi Afganistans og sjálfstæði væri tryggt, myndu „allir sovéskir hermenn hverfa frá Afganistan innan viku”, sagði Karmal. Atök vinstri manna og ný- nasísta Um þrjú þúsund vinstrisinnar komu i veg fyrir, að nokkur hundr- uð ný-nasistar gætu haldið hátfð i bænum Bad Hersfeld I V-Þýska- iandi 17. júni. Nasistarnir, flokksmenn i hin- um öfgafuila þjóðernissinnaða demókrataflokki, ætluðu a haida hátíð sina við girðinguna, sem skiptir Vestur- og Austur-Þýska- landi. Atök urðu ekki mikil, en ein- staka sinnum kom til áfloga er ný-nasistarnir reyndu að brjótast i gegnum tálmanir vinstrisinn- anna. Einn maður var sagður hafa meiðst i átökunum og einn hand- tekinn. Strið gegn siriplingum Meira en eitt þúsund manns, undir stjórn Ieortneds biskups. gengu i gær fylktu liði að nektar- nýlendu, sem rekin er á strönd um I5kilómetra frá Kórinþuborg, og kröfðust þess að nýlendan yrði lögð niður. Mótmælendurnjr héidu á kröfu- spjöidum sem á stóð m.a.: „Niður með nekt” og „Burt með allar nektarnýlendur”. Nektarnýiendunni var komið á fót af hóteii og var eingöngu fyrir erlenda ferðamenn. Nokkrar nektarnýlendur hafa verið reknar á grisku eyjunum með þegjandi samþykki stjórnvalda, en nýlega hafa þau iátið til skarar skriða gegn nektinni. Nokkrum nýlend- um hefur verið lokaö og fólk veriö handtekiö fyrir að synda nakið I sjónum. Hafa striplingar fengið fangeisisdóma f allt að tvo mán- uöi. Þeir svæia llka í Rotterdam Maðurinn sem setti svefnlyf I kaffi veitingahússgesta I Amster- dam á mánudaginn, virðist hafa fært sig um set til Rotterdam. Fjórir ultu útaf i kaffihúsi i Rotterdam f gær eftir að hafa drukkið eitrað kaffi, en eins og IVIsir skýrði frá i gær, þá höfðu fimm manns I Amsterdam verið fluttir á sjúkrahús af sömu ástæðu á mánudaginn. Maður nokkur, á aidrinum 30-35 ára, sást við veitingahúsiö i Rott- erdam og var hegðun hans grun- samleg. Maðurinn talaði þýsku. Lögreglan leitar hans nú ákaft. Grunur leikur á að viökomandi sé geðveikur. Vllltust I Sahara Sextán manns sultu I hel er þeir villtust I Sahara eyðimörkinni á leið frá Súdan til Lybiu. Þeir, sem fórust, voru allir Súdanir sem voru I úlfaldalest. Fjórtán var bjargaö. Höfðu þeir þá verið á ferð um eyöimörkina I nokkrar vikur. James Garner f einu hlutverka sinna sem „harður náungi”. „Ég reyndi að bitaann" Leikarinn frægi, James Garner, sagði fyrir rétti I gær, að hann hefði reynt að bita mann, sem réðst á hann. Aubrey Williams, 35 ára gam- all, er fyrir rétti, ákærður fyrir aö hafa ráðist á hinn 51 árs gamla James Garner, barið hann og stolið gullhálskeöju af honum. Átökin hófust, er þeir lentu i smá- vægilegum árekstri. Garner sagði fyrir réttinum, að Williams hefði barið sig að minnsta kosti tiu sinnum, áður en hann náði að komast út úr biln- um. Svo dró hann Garner út úr biinum og sparkaði i hausinn á honum. Eftir að Garner hafði fallið i götuna, hélt Williams áfram að sparka i hann liggjandi. Er saksóknarinn spurði Garn- er, hvort hann hefði ekki reynt aö lemja á móti, svaraði Garner: „Ég kýldi hann ekkert, en ég reyndi að bita hann”. Úrskurðar i málinu er að vænta i dag.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.