Vísir


Vísir - 19.06.1980, Qupperneq 22

Vísir - 19.06.1980, Qupperneq 22
22 VÍSIR Fimmtudagur 19. júni 1980 Vöru og braudpenkigar- Vöruávísanir Peningasedlar og mynt Gömul umslög og póstkort FRÍMERKI Alltfyrirsafnarann Hjá Magna Laugavegi 15 Sími 23011 utnia 10 tiuRci Frímerki íslensk og erlend, notuð, ónotuð og umslög Albúm, tangir, stækkunar- gler o.fl. ávallt fyrirliggjandi. Póstsendum. FRÍIIERKIAfllÐtlODIN SKÓLAVOROUSTÍG 21A. PÓSTHÓLF 78. 121 RVK. SÍMI 21170 OSKA EFTIR verslunarhúsnæði til kaups eða leigu, ca. 50-70 ferm. Tilboð sendist augld. Vísis Síðumúla 8, mérkt „verslunarhúsnæði strax" ÞÆ R IWONA HJSUNDUM! smóauglýsingar ®86611 FISKSALABL ^ Höfum afgangspappír til sölu , J Upplýsingar í síma 85233 j i B/aðaprent hf. } Sumarbústaðaeigendur, félagasamtök, >í landeigendur og umráðamenn lands. j Önnumst ýmis konar girðingalagnir. Gerum föst verðtilboð. Vanir menn. Geymið auglýsinguna. GIRÐINGARVERK simi 91-81460 kl. 7-8 á kvöldin. Umsjón: Hálfdán Helgason Nordisk / F ilatelistisk í k 1 idsskrifti Norræn tlmarit fyrir frimerkjasafnara Frimerklablðð Um þessar mundir hafa trú- lega allir félagsbundnir safnar- ar fengiö i hendur nýjasta tölu- blað Grúsksins, málgagns Landssambands islenskra fri- merkjasafnara, en það kom út nú fyrir skömmu. Þetta blað er hið niunda frá upphafi og hafa þrjú siðustu blöðin verið gefin út i samstarfi við Myntsafnarafé- lag tslands. Af efni blaösins ber fyrst að nefna yfirgripsmikla grein Jóhanns Guðmundssonar um frimerkjaútgáfu i tilefni 25 ára rikisstjórnarafmælis Kristjáns konungs hins tiunda 14. og 15. mai 1937. Svo sem söfnurum er kunnugt er þetta sérsvið Jóhanns og kemur hann mikium fróðleik á framfæri i grein sinni á skemmtilegan hátt er hann rekur aðdraganda merkjanna og gerð þeirra. t lok greinarinn- ar segir Jóhann: „Ég bið svo þá, sem geta veitt mér upplys- ingar um þessa útgáfu, að hafa samband við mig, slikt væri af- ar kærkomið. Ótrúlega margt vantarinn i myndina. sem varð- ar þessa útgáfu og minnstu upp- lýsingar geta skipt miklu máli. „Við lestur greinarinnar hefur maður nú ekki á tilfinningunni aö mikið vanti inn i myndina en sjálfsagt er að taka undir þessi tilvitnuðu orð Jóhanns og hvetja menn að hafa samband við hann ef þeir telja að þeir hafi upplýs- ingar um þessa útgáfu, sem geta orðið Jóhanni að gagni. Ekki er meiningin að rekja efni blaðsins hér i þættinum en þó vil ég benda á ágæta grein eftir enskan safnara, David J. Loe að nafni. Grein hans nefnist Sléttuhreppur og póstsaga hans og er þýdd úr frimerkjablaöinu The Philatelic Magazine. Þar koma fram upplýsingar um hinaýmsu stimpla, sem notaðir voru um langt árabil i nyrsta hluta Vestfjaröa, Sléttuhreppi, en þaö mun hafa verið um 1952, sem póstþjónusta lagðist af á þessum slóöum. Og fyrst verið er að segja frá timariti fyrir safnara er ekki úr vegi að skýra litillega frá nokkrum blööum, sem gefin eru út á Noröurlöndum. Málgagn sænska landssambandsins, Svensk Filatelistisk Tidskrift er hið stærsta þeirra og hefur verið gefið út I 80 ár. Er efni blaösins að jafnaði mjög fjölbreytt og við hæfi allra safnara, jafnt byrjenda sem lengra kominna. Blaðið fá allir félagar i sænska landssambandinu og er það einnig opið útlendingum. Heim- ilisfang blaðsins er: Birger Jarlsgatan 18 B, 114, 34 Stockholm. Af norskum blöðum verða hér nefnd tvö: Norsk filatelistisk tidsskrift og Frimerker som hobby. Hið fyrrnefnda er mál- gagn norska landssambandsins og kemur út 10 sinnum á ári (eins og sænska landssam- bandsblaðið). Efni blaðsins að undanförnu hefur verið að lang- mestu leyti tengt alþjóölegu sýningunni NORWEX 80, sem nú stendur yfir og nefnd var hér i siðasta þætti minum. Skemmtilegt innlegg i siðasta tölublað, nr. 5, var viðtal við Sigurþór Ellertsson, forstöðu- mann frimerkjasölunnar islensku en þar kom meðal ann- ars fram sú athyglisverða stað- reynd að árið 1979 seldi fri- merkjasalan frimerki fyrir 360 milljónir króna, þar af voru seld frimerki til útlanda fyrir rúm- lega 250 milljónir króna. Af öðr- um skemmtilegum upplýsing- um, sem fá má úr þessu viötali við Sigurþór má nefna að salan til útlanda skiptist á 47 lönd. Þar eru Sviar fremstir og kaupa fyr- ir tæpar 50 milljónir. Sfðan koma Þjóðverjar, Danir, Bandarikjamenn, Hollendingar og Norðmenn en neðst á listan- um er Nicaragua, en þangað voru seld frimerki fyrir 390 krónur. Fastir áskrifendur út- lendir eru flestir i Sviþjóð, 2473 á siöasta ári, þá Danir, Norö- menn og Þjóðverjar. Frimerker som Hobby hóf göngu sina á siöastliðnu ári og komu þá út fjögur tölublöð eins og ráðgert hafði verið. Nú i ár munu koma út 5 blöð, þvi út kemur aukablaö i tengslum við NORWEX 80. 1 siðasta tölu- blaði, nr. 2/april 1980, er grein eftir Sigurð H. Þorsteinsson, er hann nefnir Islands Port Payé og fjallar hún um fyrirfram- greiðslur burðargjalda, án fri- merkja. Kannast áreiðanlega allir viö umslögin með áletrun- inni Burðargjald greitt en i grein sinni hefur Sigurður tekiö saman lista yfir þá aöila, sem fengið hafa leyfi til þess að nota áðurnefnda áletrun. Bæöi þessi norsku blöð má fá i frimerkja- verslun hér I Reykjavik. TfMAfO I TVRIR SAl'NARA tl'l N' Lhlítuuo .. ... ................. • -1 : .......... ' (vty.j H (Ruxf»>ilij«nux< • ■ i* • 14 ó v««xo AfALbaoko fRtrxh . ...... . t'> iiyjMim IvówOxairrtyt..... *•* V« Jut 8v «íkx>Va................. • •■ 1*. t'oUwl>i:«>.WI>MWI............................. 1 I llWfti 21 ÍS» tftl*t>10UI«f»:*lw h<<t*I'MMÍ*:>1 ** » «uf mt ... ;a 9 Nýjasta hefti tímaritsins Grúsk, — tfmarits fyrir safnara. Af dönskum blöðum vil ég nefna hér tvö. Nordisk Filatelistisk Tidsskrift, sem gefið er út af Kjöbenhavns Philatelist Klub og Dansk Fila- telistisk Tidsskrift, sem gefið er út af danska landssambandinu. Hið fyrrnefnda er að minu mati afar einhæft með löngum sér- fræðilegum greinum um dönsk merki eða einstakar útgáfur en að.sama skapi fróðlegar fyrir alla þá sem áhuga hafa á dönsk- um merkjum eða þá sem hafa áhuga á aö sjá hvernig slikar fræðigreinar eru byggðar upp. Hitt blaðiö, Dansk Filatelistisk Tidsskrift, er alla jafnan fjöl- breytt og við allra hæfi. Þótt þessi tvö dönsku blöð séu engan veginn einu frimerkjablöðin, sem gefin eru út i Danmörku, ætla ég aö láta Niels Gadegard, sem margir islenskir safnarar kannast við, eiga siðasta orðiö en hann skrifar i mai hefti DFT: „Margir danskir frimerkja- safnararláta það vera að kaupa þau rit um frimerkjafræði, sem á markaðinn koma og þvi miður láta þeir hjá liða að lesa það sem aögengilegt er, m.a. i bóka- söfnum félaganna........ Það verður að vera verkefni fyrir stjórnir klúbbanna að kenna fé- lögunum þaö aö án þekkingar nær enginn árangri i þessu tóm- stundastarfi sinu”.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.