Vísir - 05.07.1980, Blaðsíða 13
VÍSIR Laugardagur 5. jlill 1980.
WSi
13
9,Glasabarnid” ad verda tveggja ára:
„Hún er krafta-
verkið okkar...”
Louise Brown er í engu
frábrugöin öðrum
tveggja ára börnum. Hún
er kátt og ánægt barn sem
getur verið þrjóskt þegar
svo ber undir. Hún er nú
önnum kafin við að reyna
að læra að tala og lærði
nýtt orð um daginn:
„Afsakið". Nú segir hún
afsakið í tfma og ótíma.
Hver er þessi Louise
Brown? Jú, sennilega er
hún eitthvert frægasta
barn sem um getur. Hún
er fyrsta „glasabarnið".
Fyrir tveimur árum eða
svo, 25. júli 1978, fæddist
hún í þennan heim eftir
að hafa verið getin í til-
raunaglasi. Sem eðlilegt
var mátti hún, og foreldr-
ar hennar, þola geysilegt
umtal og athygli en nú er
aðeins farið að hægjast
um. Foreldrarnir leggja
mikla áherslu á að Louise
sé aðeins venjulegt barn
og í engu frábrugðin
jafnöldrum sínum. Nema
hvað hún er sennilega já-
kvæðari og glaðari en
f lest börn önnur. Kannski
glasið hafi þar eitthvað
að segja.
Móðir hennar segir:
„Stundum þegar við er-
um úti að ganga þekkir
fólk hana og fer að stara.
En svo sér það að hún er
bara yndisleg, eðlileg
stúlka". Svo bætir hún
við: „En hún er krafta-
verkið okkar..."
,Hva, setti ég þennan blett I fötin?”
,Fáöu þér nú te, bangsi minn...’
■
Louise þvkir fjarskalega gaman aö heimilishundinum Sheltie. „Hundurinn fær aldrei frib”, segir móöir
hennar.
„Glasabarniö” úti i náttúrunni.