Vísir - 08.08.1980, Page 3
VÍSIR Föstudagur 8. ágúst 1980
Veruleg fjðlgun skráðra atvlnnuleysingja í júlí:
FJÖLDI ATVINNULAUSRA
KVENNA TVÖFALDAÐIST
>***%*. , , i
Atvinnuleysingjum fjölgaði um 257 i siðasta mánuði frá þvf i júnf.
Mest var aukning meðaikvenna, en atvinnulausar konur voru 220 fleiri
í júlflok en i júni.
Um sfðustu mánaðamót voru 544 skráðir atvinnulausir á landinu,
eða 0.5% af mannafla. Þar af voru 158karlar og 386konur.
Fjötdi atvinnulausra kvenna var um siðustu mánaðamót rúmlega
tvöfalt meiri en mánuði áður.
t tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu segir, að ástæöurnar til
þessarar aukningar á skráðu atvinnuleysi megi eingöngu rekja til
rekstrarstöðvunar frystihúsa viösvegar um land, en þau voru viða lok-
uö vegna sumarleyfa.
„Það starfsfólk frystihúsanna,
sem áður haföi lokið sumarleyfi
sinu og ekki fékk vinnu við önnur
störf, hefur af eðlilegum ástæðum
látiðskrá sig atvinnulaust. Sama
gildir um lausráðið fólk svo og þá,
sem áformuðu að taka orlof á öðr-
um tima”.
Einnig er bent á, að sölur tog-
ara á afla erlendis voru með
meira móti i siðasta mánuði, eða
56 sölur.
Þeim, sem skráðir eru atvinnu-
lausir 31. júli, fjölgaði i öllum
landshlutum nema á höfuð-
borgarsvæðinu. Þar er um
nokkra fækkun aö ræða, fyrst og
fremst i Reykjavik, þar sem
skráðum atvinnulausum fækkaði
úr 134 i 87. Hins vegar fjölgaði um
20 á atvinnuleysisskrá i Hafnar-
firði. 1 öörum landshlutum er
dreifing atvinnuleysis misjöfn
milli staða. Þannig eru nánast
allir, sem skráðir eru atvinnu-
lausir á Vesturlandi á Akranesi,
(64) á Vestf jörðum á Isafirði (12),
á Norðurlandi vestra eru flestir
skráðir á Siglufirði (51), á
Norðurlandi eystra á Ólafsfirði
(59), á Suðurlandi i Vestmanna-
eyjum (26) og á Reykjanesi I
Keflavik (46). A þessum stöðum
var um 71% af skráöu atvinnu-
leysi i þessum landshlutum. 1
sambandi við Vestmannaeyjar er
þess að geta, aö þar munu ekki
hafa veriö komnar til fram-
kvæmda aðrar uppsagnir en á
lausráðnu starfsfólki.
Skráðir atvinnuleysisdagar I
júlimánuði voru 7.239 á móti 3.610
i næsta' mánuði á undan. Þetta er
aukning um 3.629 daga á landinu
öllu. Fjöldi atvinnuleysisdaga i
júlimánuði 1980svarar til þess að
334 hafi verið atvinnulausir i
mánuðinum á móti 167 i júni.
Fóðurgjaldið lækkar úr 50% í 40%:
Ekki frekari lækkun
99
P9
Úr húsakynnum hinnar nýju verslunarþjónustu Páls Þorbjarnarsonar.
Þorbjörn Pálsson, einn af stofnendum fyrirtækisins er til hægri á
myndinni. (Visismynd: Guöm. S. Vm.)
NV VERSLUNAR-
ÞJðNUSTA I EVJUM
,,A föstudaginn var
ákveðið að lækka gjald-
töku á svina- og ali-
fuglafóðri úr 50% niður i
40%, en það kom til
framkvæmda nú á
þriðjudaginn”, sagði
Gunnar Guðbjartsson,
formaður samstarfs-
nefndar, sem sett var á
laggirnar fyrir um hálf-
um mánuði.
Starfssviö nefndarinnar, sem
skipuð er af fulltrúum eggja-
kjúklinga-og svinabænda, annars
vegar og þremur fulltrúum
Framleiðsluráðs landbúnaðarins
hins vegar, er að skila álitsgerð
til landbúnaðarráðuneytisins, eft-
ir að hafa kynnt sér viðhorf fóður-
sölufyrirtækja, niðurgreiðslur
Efnahagsbandalagsins og fram-
kvæmd álagningar og innheimtu
kjarnfóðurgjalds á eggja- kjúkl-
inga- og svinabændur.
Gunnar sagði, að nefndin hefði
haldið fjóra fundi með hinum
ýmsu hagsmunaaðilum. Niður-
greiðslur á fóðurblöndum til
landsins frá Efnahagsbandalags-
löndunum nema allt upp i 40% af
heildarveröi, að sögn Gunnars.
„Nei, ég á ekki von á þvi aö fóð-
urgjaldið lækki á næstunni”,
svaraði Gunnar Guðbjartsson
þeirri spurningu Visis, hvort bú-
ast mætti við frekari lækkunum á
gjaldinu.
Nefndin mun halda áfram
störfum og verður næsti fundur
væntanlega haldinn i næstu viku.
—AS
ESS
EFF
klúbburinn
oplnn ivö
kvöld í vlku
Nú hefur verið ákveðið að
hinn vinsæli skemmtistaður
Klúbbur eff ess i Félagsstofn-
un stúdenta viö Hringbraut
verði framvegis opinn tvö
kvöld i viku. Klúbburinn verð-
ur næst opinn sunnudaginn 10.
ágúst og þá leikur hljómsveit-
in Mezzoforte, sem er Klúbb-
gestum að góöu kunn. Þá mun
jazz-hljómsveit Reynis
Sigurðssonar leika listir sinar
fimmtudaginn 15. ágúst.
Segja má að Klúbbur eff ess
hafi sýnt i sumar að full þörf
var á skemmtistað sem þessum
þar sem hægt er aö hlýöa á lif-
andi tónlist i notalegu um-
hverfi. Þar eru ennfremur á
boðstólum ljúffengar pizzur
og sjávarréttir.
—AS
Ný verslunarþjónusta hefur
verið opnuö i Vestmannaeyjum.
Stofnandi er Þorbjörn Pálsson en
meðeigandi er Geir ólafsson og
Seifur hf. Verslunin ber nafnið
Verslunarþjónusta Páls Þor-
björnssonar. Hér er I raun um aö
ræöa uppstokkun á eigendum að
fyrirtækinuPáll Þorbjörnsson hf.
sem um margra ára skeið var
rekið að Bárustig 1. Húsakynni
hafa nií öll fengiö nýjan og stærri
búning.
Verslunarþjónustan mun sér-
hæfa sig i sölu á útgerðar- og
sportvörum, bilavarahlutum,
vinnufatnaði og málningarvör-
um, svo eitthvað sé nefnt.
Verslunarpláss verður um 350
fermetrar þegar það hefur allt
verið tekið I notkun en nú sem
stendur veröur verslunin aöeins á
jarðhæð en möguleikar eru einnig
á nýtingu verslunarrýmis á ann-
arri hæð.
—AS
M
Þvert ofan f állt
llskifræðinga
segir Steingrímur Hermannsson
M
„Ég hef fengiö bréf Bolle og er
þvi ósammála aö þessi sildar-
stofn sé ekki til umræðu i sam-
bandi viö Jan-Mayen” sagöi
Steingrimur Hermannsson,
sjávarútvegsráöherra i samtali
viö VIsi, sfödegis I gær, vegna
ummæla Eyvind Bolle, sjávarút-
vegsráðherra Noregs aö Jan
Mayen samningurinn nái ekki til
norsk-islenska sildarstofnsins.
„Það er að visu rétt aö þau eru
æðimörg árin sem hann hefur
ekki gengiö á Jan Mayen svæðiö
og 'Norðmenn munu hafa breytt
nafninu til þess aö undirstrika
það, þeir kalla hann nú „norska
Atlantshafsstofninn”. Það var
minnst á þetta á siðasta fundi
fiskveiöinefndarinnar og þar mun
ekkert hafa komiö fram sem
benti til þess að þeir ætluðu að
fara að veiða hann, svo að þetta
kemur okkur alveg á óvart” sagði
Steingrimur.
Um áhrif á samstarf Noregs og
Islands i fiskveiðimálum vegna
þessarar hegöunar Norömanna,
sagði Steingrimur:
„Ég held að þetta hafi mjög
skaðleg áhrif á samstarfið.
Reyndar höfum við Islendingar
ekki farið bókstaflega eftir fiski-
fræðingunum, en viö höfum ekki
veitt þá stofna sem þeir hafa lagst
gegn aö yrði hreyft viö. Þetta
hefur þvi áreiðanlega ill áhrif á
fiskifræöinga beggja landanna.
Það er þvi ákaflega óskynsam-
legtaðfara að leyfa þessar veiðar
nú, þvert ofan i tillögur allra
fiskifræðinga”. —AS.
20% 30% S0%
ÚTSjltAN
5°%m m JL wMámwm
So
HOFST
❖
O O
SQ°y
/ir%
30%
C?\°
moraun
J. _o\o o/
.p?l° ,-o 30/‘
*0
$0% & 20%
jcfl° TÍZKUVERZLUNIN
W
urður
HAMRABORG 6 - KÓPAVOGI - SÍMI 43711