Vísir - 18.08.1980, Side 9
VÍSLR
Mánudagur 18. ágúst
Ósköp er launþegahreyfingin
oröin lltillát. BSRB er aö ræöa I
fullri alvöru aö semja um fjör-
tán þúsund krúna fasta hækkun á
laun upp i fimmtánda flokk.
Taki aörir viösem jendur miö af
þeirri hækkun, má búast viö, aö
launaþvargiö, sem staöiöhefur f
ótalda mánuöi endi meö 4%
kauphækkun. Rikisstjórnin get-
ur vel viö unaö, og ekki fellur
hún vegna svona smávægi-
legrar hækkunar. Þaö er jafnvel
hægt aö svara meö jöfnu og
þéttu gengissigi i staö gengis-
fellingar. Eftir stendur síöan
fulivissan um, aö launþega-
hreyfingin i landinu lítur á nú-
verandi rikisstjórn sem sina
stjórn, og sé reiöubúin aö fórna
venjulegum kröfum fyrir hana.
Þegar horfter til liöinna ára, er
næstum ekki veriö aögera neina
samninga niina, og mun þó svo
komiö, aö launþegar hafa aö lfk-
indum aldrei veriö verr á vegi
staddir. Einhvers staöarstóö aö
nitján prósent vantaöi upp á
kaupmáttinn væri miöaö viö
1976. Þá sat rikisstjörn Geirs
Hallgrimssonar aö völdum og
þá gekk svo mikiö á hjá laun-
þegahreyfingunni, aöhún samdi
sig langt út af landabréfinu og
setti jafnframt á útflutnings-
bann til aö andmæia nauösyn-
legum hömlunaraögeröum.
Engin af þessum vinnubrögöum
eru I gildi núna. Launþegar meö
minnkandi kaupmátt standa
upp frá samningaboröi og
hneigja sig. Þeir hika ekki viö
aösemja af sér sunnudagssteik-
ina, af þvi þaö þjónar undir póli-
tlskt vald f landinu, sem iaun-
þegar viröast álita aö sé þeirra
einkavinur.
Hringekja fáránleikans
Áhinn bóginn gengur llfiö síö-
ur en svo hdvaöalaust fyrir sig á
stjdrnarheimilinu. Ólafur
Ragnar Grfmsson heldur uppi
stanslausu andófi, sem maöur
skyldi halda aö heföi átt aö
heyrast frá launþegahreyfing-
unni á þessum dögum. Hann ti-
undar kjarnorkuvopn á Kefla-
vikurflugvelli, og vitnar tilfyrri
boöa Alþýöubandalagsins um
mengunarhættur á sama tima
og hann stendur í broddi fylk-
ingar viö aö knýja Suöurnesja
menn til aö drekka oliumengaö
vatn í framtiöinni, af þvi aö 45
milljaröa oliuhöfn i Helguvik er
ekki annaö en véiabrögö fjand-
ans. Hringekja fáránleikans er
oröin fullkomin f málflutningi
Ólafs Ragnars, en aö líkindum
hefur hann ekki veriö kominn i
Alþýöubandalagiö, þegar þaö
benti á mengunarhættuna á
Miönesheiöi.
„Custers last stand”
Kjarnorkumáliö er fyrst og
fremst eitt af þessum vanda-
málum Alþýöubandalagsins,
sem upp koma meö árvissu
millibili, þegar heims-
kommúnismanum gengur illa i
áróöri, eöa þegar félagar og
vinir eru aö drepa bændur og
hjarömenn einhvers staöar I út-
löndum. Þá þýöir ekki fyrir
hægri menn aö fá vottorö á vott-
orö ofan um, aö engin kjarn-
orkuvopn séu á Miönesheiöi,
nema þá aö islenskar rikis-
stjórnir hafí pantaö þau sér-
staklega. Aö mati þeirra i
Alþýöubandalaginu eru kjam-
orkuvopn á Vellinum, og þeirri
skoöun fær enginn haggaö.
Jafnvel þótt Carter kæmi með
alla rikisstjórnina til tslands til
aö lýsa þvi yfir, aö frá Banda-
Irikjunum hafi aldrei komiö
kjarnorkuvopn á Völlinn, myndi
Ólafur Ragnar finna einhvern
flöt á þvi, aö þau væru þar.
Þetta „Custers last stand” hæf-
ir aðeins ljóshærðum hetjum,
eins og þær geröust bestar i
Villta vestrinu. Og enn situr
maöur i rúmi fyrir, sem i þessu
tilfelli er ólafur Jóhannesson,
utanrikisráöherra. Þeir ætla
seint aö hætta að eigast viö
Ólafarnir. Einkastriö Ólafs
Ragnars viö nafna sinn, utan-
rikisráöherrannn, hefur enn
ekki tekið á sig svipmót viöur-
eignar Custers herforingja og
Sitting Bull, en ljósa háriö er
þaö sama, skapferliö, hávaöinn
og afneitun staöreynda sú
sama, og þrek og staðfesta and-
stæöingsins sú sama. Sagan
endurtekur sig, og liklega verö-
■ ur Miönesheiöin á endanum
AD semla af sér
sunnudagssteikina
iieöarmióds
Indriði G. Þorsteins-
son, rithöfundur, fjall-
ar i neðanmálsgrein
sinni um hávaðamál
dagsins: kjarnorku-
vopn, oliugeyma,
skatta og kjara-
samninga.
einskonar Little Big Horn Ólafs
Ragnars. Hann ætti aö þekkja
þessar samlikingar, svo kunn-
ugur viröist hann athöfnum
Bandarikjamanna fyrr og síöar,
og nýfarinn aö trúa tveimur
herforingjum i USA eftir aö
hann byrjaöi aö rótast i
Oryggismálanefndinni.
Allt fyrir „launavini”
Hávaöinn út af Helguvik og
kjarnorkuvopnunum er tilkom-
inn m.a. til aö sýna, aö Alþýöu-
bandalagiö séenná lifi, þóttþaö
geri engan ágreining út af vist
varnarliðsins á Miðnesheiöi. Há
vaða er þörf, hugsa þeir Alþýöu-
bandalagsmenn, einnig vegna
þess, aö á sama tlma og laun-
þegahreyfingin í landinu ætlar
aö láta vinstri stjörnina
skammta sér laun einhvers
staöar í mínus miöaö við kaup-
mátt á stjórnarti'ma Geirs Hall-
grlmssonar, veröur hún aö
finna aö „launavinir” hennar
berjast hart I rikisstjórninni
gegn öflum, sem hafa engan
skilning á þörfum þjóöarinnar.
Hafa veröur þaö, þótt ekki sé
annaö tiltækt, til aö sýna þetta
en Helguvlk og kjamorkan.
Þannig á launþegahreyfingin aö
una viö hávaöann I ólafi
Ragnari I haustmánuöum á
meðan laun hrökkva ekki fyrir
nauöþurftum vegna sósi'al-
skatta og aö llkindum minnstu
kauphækkunar, sem samiö
hefur veriö um í samanlagðri
sögu verkalý ðshreyfingarin na r
i þvi áratugastriöi, sem hún
hefur háö fyrir launabótum. A
sama tlma og launþegahreyf-
ingunni er ætlaö aö semja af sér
sunnudagssteikina ætlar Ólafur
Ragnar aö færa henni stóra
vinstri sigra i Helguvíkurmáli
og kjarnorku. Þau mál er hvorki
hægt aö steikja á sunnudögum
eða kyngja. En þaö má reyna.
Litil fundvisi á hávaða-
mál
I hverri rikisstjórninni á fætur
annarri, þar sem ráöherrar
Alþýöubandalagsins hafa setið,
hefur þess veriö vandlega gætt
að hrófla ekki í alvöru viö
varnarliöinu. Jafnvel Kefla-
vikurgöngur viröast aflagöar,
enda er heimurinn svo fallvait-
ur, aö einn dag gæti varnarliöiö
veriö fariö. Þá yröi nú minna
um málefnin, bæöi til aö tala
um og kjósa um. Ekkert væri
eins pólitiskt hættulegt fyrir
Alþýöubandalagiö og einmitt aö
varnarliöiöfæri. Þá væriaö vlsu
vonandi bújö aö leysa ollu-
geymslumál fyrir millilanda-
flugiö, án þess aö Suöurnesja-
menn ættu á hættu aö fá ollu úr
vatnskrönunum. En þaö væri
ekki hægt aö gripa til kjarnork-
unnar. Fundvisi Alþýöubanda-
lagsins á hávaöamál, sem
þeir halda aö sé pólitik, er
nefnilega ekki mikil. Ekkert
óttast þeir bandalagsmenn
meira nú i augnablikinu
en þurfa aö ræöa launamálin.
Þá býöur kenning þeirra um
0.7% hækkun skatta ekki upp á
miklar umræöur. Alþýöubanda-
lagið stæöi bara uppi ráöalaust,
ef Ólafur Ragnar heföi ekki lent
i slagtogi viö tvo bandariska
herforingja, sem björguöu fyrir
hann umræöuefni um kjarn-
orku. Þaöskiptir engu, þóttum-
ræöan sé orðin fimm ára gömul
ogenginn viti lengur hvort þess-
ir tveir herforingjar eru lifandi
eða dauðir. Og vildu þeir banda-
lagsmenn fara aö tala um
varnarliöiö, þá er þaö einfald-
lega ekki oröiö á dagskrá nema i
kosningum. Þannig er staö-
reynd, aö vegna málaþurröar
hafa bandalagsmenn gripiö til
Helguvlkur og kjarnorkunnar,
enbæöi málin eruþannig vaxin,
aö þau hafa ekkert áróöurs-
gildi, og eru jafn-ónýt nú og
þegar ólafur Ragnar byrjaöi
með glæpinn. Þaögetur veriö ó-
heppilegt aö týna slikum verk-
um mitt i ofurmannlegum til-
raunum viö aö draga þjóöina til
vitundar um þá lifshættu, sem
yfir henni vofir.
Þrjá menn má ekki
styggja
Launþegahreyfingin er I
aumkvunarveröri aöstööu. Hún
má illa viö aö móöga „launa-
vini” sina I rikisstjórninni, enda
eiga væntanlega eftir aö koma
kosningar í landinu, þegar gott
getur veriö aö eiga menn aö,
sem yfirbjóöa hina flokkana og
lofa samningum i gildi og stór-
felldum kjarabótum. Engum
þarf aö detta I hug, aö núver-
andi forusta launþega-
hreyfingarinnar, sem stjórnaö
hefur pólitiskri aöför aö hverri
rlkisstjórninni á fætur annarri,
hafi i raun skipt um skoöun og
tekiö upp afstööu sem heyrir til
þjóöfélagslegri ábyrgö. En hún
ætlar aö skipa meölimum
hreyfingarinnar aö sleppa
sunnudagssteikinni 1 bili. Þaö
gerir hún vegna þriggja ráö-
herrastóla, sem hún teluraö séu
setnir af mönnum, sem ekki má
styggja. Nú er tlmi til aö sann-
færa menn meö dæmum um
efnahag þjóöarinnar. Þeir sömu
dæmum og aldrei hefur veriö
tekiö mark á fyrr. Nitján pró-
sent rýrnun kaupmáttar talar
svo sínu máli um stööuna. Þaö
mun koma tlmi til aö leiörétta
þetta meö sterkum aögeröum,
þegar næsta rikisstjóm er sezt
aö völdum, vilji á annaö borö
svo til, aö þar sitji ekki Alþýöu-
bandalagsmenn I ráðherrastói-
um.
IGÞ
„Ólafur Ragnar stendur I broddi fylkingar viö aö knýja Suðurnesjamenn til aö drekka ollumengað vatn f framtiöinni, af þvl aö 45
milljaröa olfuhöfn f Helguvlk er ekki annaö en vélabrögö fjandans”. Myndin er af oliugeymunum umdeildu.
Visismynd: HB Keflavlk.