Vísir - 18.08.1980, Qupperneq 23
VÍSIR
r...
Mánudagur 18. ágúst
„Tiitðlulega ánægðlr með niðurstððuna" segja tarðegar (fyrstu ftímini-ferðlnni:
1
Samvinnuferðlr endurgreiða far-
begum alit að 50% ferðakostnaðar
Feröaskrifstofan Samvinnu-
feröir-Landsýn hefur greitt bæt-
ur til islenska feröamannahóps-
ins, er fór á vegum fyrirtækisins
i fyrstu ferö sumarsins til Rim-
ini. Eins og Visir skýröi frá á
sinum tima, var megn óánægja
meö förina, þar sem staöurinn
bar öll einkenni þess, aö feröa-
mannatiminn væri ekki byrjaö-
ur. >á reyndust ýmsar aörar
upplýsingar um staöinn rangar.
Fyrirtækiö hefur nú greitt
feröamönnum allt aö 50% feröa-
kostnaöar, aö þvi er Visir kemst
næst, en engar tölur fengust
uppgefnar um bótagreiöslur i
samtali Visis viö Eystein Helga-
son, framkvæmdastjóra Sam-
vinnuferöa-Landsýnar.
Haft var samband viö nokkra
af Rimini-fórunum, er dvöldust
á Porto Verde, sem áöur höföu
lýst óánægju sinni i samtali viö
Visi og upplýstu þeir, aö fyrir-
tækiö hafi greitt 50% feröa-
kostnaöar hvers einstaklings til
baka, utan gjaldeyris. Sögöust
viömælendur Visis „ekki vera
óánægöir” meö þá niöurstööu.
Þeir, sem dvöldust á Riccone,
fengu 35% feröakostnaöa r
endurgreiddar.
Ferðamannatimanum
seinkaði
Visir leitaöi til Eysteins
Helgasonar framkvæmdastjóra
um upplýsingar og ástæður fyr-
ir umræddri bótagreiöslu fyrir-
tækisins, tilhögun greiöslunnar
og öörum þáttum, er varöa
islenska Rimini-feröalanga.
,,Þaö sköpuöust verulegir
byrjunarörðugleikar vegna
óvenju slæmrar veöráttu i mai-
mánuöi og þvi hófst feröa-
mannatiminn á italiu siöar en
áætlaö haföi veriö”, sagöi
Eysteinn „A ýmsum stööum
hefst ferðamannatimabiliö á
ákveðnum tima, hvernig sem |
viðrar, en á Italiu og t.d. Rim- .
ini, er mjög stór hluti feröa- H
manna úr nærliggjandi borgum n
og Miö-Evrópu, sem kemur I
hreinlega ekki, nema gott sé
veður. Þvi dróst hinn formlegi
undirbúningur og opnun ferða-
mannatimabilsins.
Skandinaviubúar og þar á meö-
al Islendingar koma hins vegar
ásvona staöi, hvort sem gott er
veöur eöa ekki vegna fjarlægö-
arinnar og itölsk feröamanna-
yfirvöld hafa reyndar veriö
mjög gagnrýnd i skandinavfsk-
um blööum, vegna þess að þeir
hefji ekki ferðamannatimann á
tilsettum tima”.
— Er þá ekki ljóst, aö þiö
byrjuöuö of snemma?
„1 fyrra reyndist þessi timi
vera mjög góöur, þannig aö
þetta er mjög mismunandi eftir
veöráttu, en aö þessu sinni
brugöust veöurguöirnir”.
„Málinu lokið með
fullu samkomulagi”
— Hve margir fóru I þessa
fyrstu ferö?
„Þaö voru um 100 manns”
— Og fengu þeir allir bætur?
„Þegar viö uröum þess
áskynja, að þetta haföi komiö
fyrir, þá höföum viö samband
viö alla aöila að fyrra bragöi,
ræddum persónulega viö hvern
og einn. Þeir.sem voru óánægb-
ir, fengu bætur”.
— Hve margir?
„Þaö vil ég ekki gefa upp. Við
viðurkenndum aö hlutirnir
heföu farið aflaga og greiddum
fólkinu bætur. öllum þessum
málum var lokiðmeöfullu sam-
komulagi viö viðkomandi aöila.
„I hvaða formi voru þessar
bætur? |
„Fyrst og fremst i formi pen- ■
ingagreiöslna, en sumir not- .
færöu sér þær I ferðir”.
— Hvaö voru þessar peninga- ■
greiöslur miklar”?
„Ég vil ekki gefa upp neina
tíilii I hp«<:ii samhandi. aðal-
atriöið er, aö fólki var þetta
bætt”.
— Hvaö hafa margir farið frá
ykkur til Rimini i ár?
„Þegar hafa fariö um 1500
farþegar og nú eru úti 330
manns. Viö ráögerum aö þeir
verði um 2000 á þessu ári, en 3
ferðir eru eftir”.
— NU hafa enn heyrst
óánægjuraddir i sambandi viö
aöbúnaö. Hvaö viltu segja um
þaö?
„Viö höfum ekki fengiö neinar
alvarlegar kvartanir og enda
þótt alltaf séu einhverjir
óánægðir, eruþeir sem betur fer
fleiri, sem hrósaö hafa Rimini
sem frábærum feröamannastaö
og fagnað velheppnuöu sumar-
leyfi . Fólk gerir sér hins vegar
grein fyrir þvi, að þaö er mis-
jafnt verö á ibúöum þarna eins
og annars staöar og mismunur-
inn liggur fyrst og fremst i' gæð-
unum. Hins vegar er ekki ólfk-
legt aö óhappiö i byrjun hafi
magnað upp óánægju hjá ein-
hverjum, sem á eftir komu.
„Riminiferöir munu þá halda
áfram?
„Já, tvimælalaust. Viö höfum
fengiö hvatningu frá farþegum
um aö halda áfram á Rimini,
þvi aö þetta er sambland af
góöri feröamannaaöstööu og
itölsku andrúmslofti.
— Hver mun endanlega bera
tjóniö, sem þiöhafiö væntanlega
orðið fyrir vegna þessa hóps
sem fór frá ykkur til Rimini?
„Hingað til höfum viö ein-
göngu staöiö undir þessum
kostnaöi, en viö reiknum frekar
meö að Italskir samstarfsaöilar
okkar, sem aö mörgu leyti
brugöust, muni gerast ábyrgir
geröa sinna”, sagöi Eysteinn
Helgason aö lokum.
„Þakklát fyrir þessar
sárabætur”
„Viö hjónin erum þakklát fyr-
ir þessar sárabætur. Ég fékk
50% feröarinnar endurgreidd,
eöa um 180þúsund og þeir sögö-
ust mundu gera það sama viö
alla aöra. Þessar aöstæður, sem
fyrsti hópurinn bjó viö voru
mjög sérstakar og Samvinnu-
feröir hafa auk endurgreiöslna,
sent okkur afsökunarbeiöni
vegna þessa. I þessum hópi voru
um 50 farþegar, og hafi einhver
fengiö meira en ég, þá er ég
bara ánægöur meö þaö. Þetta
voru misdýrar feröir”. Þetta
voru orö Þorsteins Aöalsteins-
sonar, framkvæmdastjóra á
Dalvik.um bætur þær, er Sam-
vinnuferðir-Landsýn greiddu
Riminiförunum erkomu þangaö
áður en ferðamannatiminn var i
raun genginn I garö nú i sumar.
,,Hvorki ánægður eða
óánægður”.
„Ég er hvorki ánægöur eöa
óánægöur meö þessar bætur”,
sagöi Arni Garöar Kristinsson,
einn Riminifaranna, en vildi
ekki aö öðru leyti tjá sig um
bótaupphæöina, er hann hlaut,
en Arni haföi látið stór orö falla
um aöbúnaöinn f samtali viö
VIsi, stuttu eftir að hann kom
frá Rimini.
„ Alltaf fæst eitthvað úr
svona ferð”
„Mér likaði einna best, hvaö
þetta gekkfljótt. Þeir hjá Sam-
vinnuferöum voru ákaflega
liprir viö okkur eftir aö þetta
kom upp”, sagöi Svavar
Haraldsson, forstjóri i Hafnar-
firöi. öll upphæöin var tekin og
deilt I hana meö 2, þannig aö all-
ir áttu aö fá helming endur-
greiddan”.
„Auövitaö fær maöur aldrei
sumarfriiö sitt endurgreitt eöa
gjaldeyri sem eytt er, en á móti
má segja aö alltaf fæst eitthvað
út úr svona ferö, þótt hún sé aö
stórum hluta misheppnuö”,
sagöi Svavar Haraldsson.
„Búnir að gera meira
en margir hafa gert”
„Ég var i þeim hópnum sem
fór ekki eins illa út úr feröinni
og þeir á Porto Verde. Okkur
var boöiö aö fá 35% endurgreidd
strax eöa hluta af verögildi ann-
arar feröar. Viö þáöum seinni
kostinn”, sagöi Guöbjörn Jens-
son, fyrrverandi skipstjóri, i
samtali við VIsi.
„Ég held, aö fyrirtækiö sé bú-
iöaögera meira en margir hafa
gert. Viö litum svo á aö helm-
ingur ferðarinnar heföi veriö
algjörlega mislukkaður og viö
erum þvi ánægö meö bessar
bætur”. —AS
A baöströndinni.
-
Þarft ÞÚ
að
Þaö má vel vera aö þér finnist
ekki taka þvi aö auglýsa drasliö
sem safnast hefur i kringum
Þig-
LOSA GEYMSLUNA eða
Þetta er ekkert mál!
SMÁA UGLÝSING í VÍSI
LEYSIR VANDANN
Opið til ki. 22 öll kvöldnema laugardaga
En þaö getur Ifka vel veriö aö
einhver annar sé aö leita aö þvi,
sem þú hefur faliö I geymsiunni
eöa bflskúrnum.
N sími 8-66-11