Vísir - 19.09.1980, Side 23

Vísir - 19.09.1980, Side 23
y/yjB Föstudagur 19. september 1980. 27 'WMURHpPÁRi húsavik: ALDREI í HÆTTU i Helgarskákmót Tímaritsins Skákar og Skáksambands Is- lands, hið 4. i röðinni, var haldið á Húsavik um siðustu helgi. Teflt var að Hótel Húsavik og voru aðstæður allar eins og best verður á kosið. Alls tefldu 40 manns á mótinu og i 20 efstu sætum urðu þessir: 1. Helgi Ólafsson 5 1/2 v. af 6 mörgulegum. 2. Guðmundur Sigurjónsson 5 v. 3. Elvar Guðmundsson 5 4. Jóhann Hjartarson 5 5. Sævar Bjarnason 4 1/2 6. Gylfi Þórhallsson 4 1/2 7. Dan Hansson 4 8. Jóhannes G. Jónsson 4 9. Guðmundur Agústsson 4 10. Askell 0. Kárason 4 11. Stefán Þ. Guðmundsson 4 12. Björn Þorsteinsson 3 1/2 13. Jón Á. Jónsson 3 1/2 14. Asgeir Þ. Árnason 3 1/2 15. Þór Valtýsson 3 1/2 16. Lárus Jóhannesson 3 1/2 17. Gunnar Gunnarsson 3 18. Viðar Jónsson 3 19. Guðmundur Gislason 3 20. Sigurður Danielsson 3. Til frekari glöggvunar má sjá hvar vinningar efstu manna eru fengnir: Helgi vann fjórar fyrstu skákirnar, gegn Sigur- laugu Friðþjófsdóttur, Róbert Harðarsyni, Elvari Guðmunds- syni og Dan Hansen. Jafntefli við Guðmund Sigurjónsson i 5. umferð og vinningur gegn Sævari Bjarnasyni i þeirri 6. Guðmundur vann Hjálmar Theodórsson i 1. umferð, Hauk Sveinsson i 2. umferð, Gunnar Gunnarsson i 3. umferð og gerði jafntefli við Sævar Bjarnason i 4. umferð og jafntefli við Helga i þeirri 5. Vinningur gegn Dan Hansen i 6. umferð tryggði siðan 2. sætið. Elvar vann Guðlaug og Hilm- ar Bessasyni i fyrstu tveim um- Helgi Ólafsson. ferðunum,tapaðifyrirHelgai 3. umferð, en vann siðan Lárus Jó- hannesson, Asgeir Þ. Árnason og Björn Þorsteinsson. Jóhann Hjartarson vann As- laugu Kristinsdóttur og Hjálm- ar Theodórsson i fyrstu tveim umferðunum, gerði siðan jafn- tefli við Gylfa Þórhallsson og Jón A. Jónsson og klykkti út með vinningum gegn Gunnari Gunnarssyni og Jóhannesi Gisla Jónssyni. Með sigri sinum tryggði Helgi sór milljónina sem veitt verður fyrir bestu útkomuna úr 5 fyrstu mótunum, þvi enginn megnar að nálgast Helga, jafnvel þó hann mæti ekki á næsta mót. Helgi hefur nú teflt 24 skákir á helgarmótunum án taps, og er sá eini sem sloppið hefur tap- laus gegnum hreinsunareldinn. Sigur Helga á mótinu var aldrei i hættu. Jafnteflið gegn Guð- mundi var átakalitið, samið eftir fáeina leiki. Elvar nýtti sér fjarveru titil- beranna Friðriks, Jóns L. og Margeirs, og hreppti kr. 100 þúsund. Þessi góði árangur Elvars kemur i kjölfar sigursins á „kinverska hraðmótinu” og sýnir að piltur siglir hraðbyr fram i raðir okkar fremstu skákmeistara. Nitján ára Akureyringur, Jón A. Jónsson kom mjög á óvart, og eftir 4 fyrstu umferðirnar var hann kominn með 3 1/2 vinning. Hann vann m.a. Jóhannes Gisla, og gerði jafntefli við Is- landsmeistarann Jóhann Hjart- arson. Tvö töp i lokaumferðun- um gegn Dan Hansson og Gylfa Þórhallssyni bundu enda á sigurgönguna en augsýnilega er hér gott skákmannsefni á ferð. Sviinn Dan Hansson, sem stund- ar nám við Háskóla tslands, setti skemmtilegan svip á mót- iö, enda er hér á ferð eitilharður skákmaður. T.d. slapp Guð- mundur Sigurjónsson fyrir horn gegn honum eftir mikla svipt- ingaskák. Svosem væntamátti áttu menn sina góðu og slæmu daga á mót- inu, og við skulum lita á tvö sýnirhorn. Fyrstur á ferð er Helgi Ölafsson sem spilar á strengi Sikileyjartaflsins eins og hörpusnillingur á hljóðfæri sitt. Hvitur: Róbert Harðarson Svartur: Helgi Ólafsson. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be2 e5 7. Rb3 Be7 8. 0-0 9. Be3 Be6 (i einvigi þeirra Karpov/ Polugaevsky 1974, lék Karpov 9. f4 og 10. a4 i fjórum skákanna og hafði 3 krafsinu.) 1/2 cinning upp úr 9 0-0 10. f4 11. Rd5? Dc7 (Betra var 11. a4 og halda niðri b5.) 11 Bxd5 12. exd5 b5 13. Dd2 (Hér var 13. fxe5 betra.) 13. Rb-d7 14. Ha-dl Hf-e8 15. fxe5 Rxe5 26. Bd4 Bd8 17. Bd3 Db7 18. Bxe5 Hxe5 19. Hf5 Bb6+ 20. Khl Rg4 21. Hd-fl Re3 22. Hxf7 llxfl 23. 11x1)7 1 • S tt tx t t 11 JL &&&•» && 4 & ABCDEFC3H 23.... Rg3 ■ Gefið. Svartur hafnar drottningunni, en hrepþir kónginn i staðinn. Björn Þorsteinsson náði sér engan veginn á strik i þessu móti, ef frá er talin eftirfarandi skák. Hvitur: Björn Þorsteinsson Svartur: Gylfi Þórhallsson Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. Rf3 d 6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be2 e6 7. 0-0 Be7 8. f4 0-0 9. Khl Rc6 10. Be3 Bd7 11. a4 Rxd4 skák ’ Umsjón: Jóhann < Sigurjóns son 12. Bxd4 Bc6 13. Bd3 Dc7 (Nú hótar svartur e5, og hvitur verður þvi að verða fyrri til.) 14. e5 Rd7 15. Dh5 g6 16. Dh6 dxe5 17. fxe5 Ha-d8 (Trúlega var best að þiggja peðsfórnina með 17... .. Rxe5 18. Ha-el Bd6 19. Hf4 f6. Eftir texta- leikinn magnast sókn hvits með hverjum leik.) 18. Ha-el Rc5 19. Hf4 Rxd3 20. cxd3 Hd7 21. He3 f5 22. exf6e.p. Bd6 ttkE t t xxt i# t & S öiS t 11 A B C D E 23. Hxe6! F G H Gefið Eftir 23...Bxf4 kemur 24. f7+ Hdxf7 25. Hxg6+ hxg6 26. Dh8 mát. Jóhann örn Sigurjónsson. Haustvertíð peningamála að hefjast Tveir helstu atvinnuvegir þjóðarinnar virðast komnir á rikið. Ekki er hægt að ákveða verð á landbúnaðarvörum nú á haustdögum fyrr en ákveðin svör hafa fengist hjá rikisstjórn um niðurgreiðslur. Hið sama er uppi á teningnum varðandi fisk- veröið. Nýtt fiskverð á að taka gildi 1. október, eins og um nátt- úrulögmái sé að ræða, en útilok- að er talið að hækka verðiö án þess að til komi verulegar að- gerðir af hálfu rikisstjórnarinn- ar, eins og það heitlr i fréttum. Þannig halda náttúrulögmálin áfram jafnt og þétt að mala okkur hækkanir á öllum sviðum, aöeins að þvf tilskyldu, að rikis- stjórnin hiaupi til og skrifi undir ávisanir brúðuleikhússins Verðlag á landbúnaöarvörum miðast við fábrotna fram- leiðslu, lftil bú og dýr og litla fjölbreytni. Hægt er aö fá kinda- læri, ýmist I heilu eöa niðursög- uö, súpukjöt, lambahrygg eða kótilettur. Þetta er nú kúfurinn af fjölbreytninni. Kindakjöt þyrfti að borða I hvert mál ætti að nota alla framleiðsluna hér innanlands og mundi varla duga til. Verðlagning er ekki háð neinni teljandi samkeppni, heldur miðast hún við að eitt- hvert meðaltalsbú, sem smiðað er af bændasamtökunum, hafi viðunandi tekjur. Vegna dreif- býlissjónarmiða er lagt kapp á að hafa búin mörg og litil og mjög dreifö, til að nægur kostn- aður falli á framleiösluna. Ekk- ert skipulag er I gildi um búskap miðað við framleiðsluþarfir, þannig að I dag getur Reykvlk- ingur alveg eins verið að drekka mjólk sem sótt hefur veriö austur á Siöu eins og mjólk úr ölfusinu. Um þetta allt gildir hið ákjósanlegasta og rikisskip- aða jöfnunarverð. Dytti bænda- samtökunum I hug að reisa visi- tölubú á Vatnajökli myndi kostnaður við heyflutninga þangað og flutninga afuröa það- an aðeins verða til að efla jöfn- unarveröið. Að öðru leyti kæmi það engum við. Um fiskinn hefur verið sagt, að á honum stæði undirstöðuat- vinnuvegur þjóðarinnar. Það var og. Liklega hefur ekkert valdið eins mikilli verðbólgu I landinu og fiskvinnslan og fisk- salan. Þær eru orönar ófáar gengisfellingar, sem samþykkt- ar hafa verið einungis til að bjarga fiskmörkuðum. Við framleiðum dýran fisk, sem seldur er meira og minna óunn- inn úr landi. Efnahagskerfi við- skiptaþjóða þolir illa verðið á honum, og af þvi þar ráða ekki islenskar rikisstjórnir hefur ekki verið um annaö að gera en iagfæra verðiö með gengisfell- ingum. Þannig höfum við fram- leitt fisk og selt til útlanda sið- ustu áratugi alveg eins og önnur efnahagskerfi en það islenska væru ekki til. Og til að efla yfir- burði islenska efnahagsundurs- ins og flýta fyrir og fjölga geng- isfellingum er orðið að venju aö hækka fiskverö tvisvar á ári. Það verður sem sagt að halda vcrðmynduninni við löngu eftir að allur botn er dottinn úr fisk- sölunni. Nú lýsa útvegsmenn þvi einu sinni enn yfir, að ekki sé hægt að hækka fiskverð nema gengis- felling fylgi i kjölfarið. Oliufé- lögin skulda t.d. Landsbankan- um þrettán milljarða, vegna þess að þau fá ekki uppgert við útveginn. Engu að siður hefur fiskverðsákvörðun gengið sinn vanagang til „Yfirnef ndar verðlagsráðs sjávarútvegsins”. Þar mun rikisstjórnin láta sinn mann ákveða vegna oddaaö- stöðu, að fiskverö skuli hækka. Samtimis skammar sama rfkis- stjórn Landsbankann fyrir ó- heyrilegan yfirdrátt hjá Seöla- banka, samkvæmt þeirri full- vissu, aö eftir þvi sem fiskverð- ið hækki dragi úr yfirdrætti vegna oliuskulda. Hringekja fáránleikans er á fullu, og alls staðar þar sem fæti verður niður komið i þeirri hringekju er það rikisstjórnin sem stigur til jaröar. Hefðu þessir menn ein- hvern kjark ættu þeir að skipa oddamönnum sinum i landbún- aði og yfirnefndum að boöa lækkun á verði. Enda er betra að bera skarðan hlut um sinn en missa fólk úr landi vegna óða- dýrtiðar. Svarthöfði.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.