Vísir - 26.09.1980, Page 21
VÍSIR
•1 ‘ '21
sandkasslnn
Gisli Sigur-
geirsson,
blaðamaður
Visis á Akur-
eyri, skrifar.
Ævinlega sæl og blessuð.
• „Eftirlitsflugfreyjur
völdu til ráðningar“, segir
Mogginn á sunnudaginn.
Með leyfi að spyrja. hverjir
höfðu gert eitthvað það af
sér, að ástæða væri til að
veita þeim ráðningu?
• Ég las það líka í Mogg-
anum; „Á dagskrá hljóð-
varps í dag kl. 10.25 er er-
indi. Markús Á. Einarsson
talar um veðurspár. Þetta er
fyrsta erindið af sjö ...“.
Þetta á ég erfitt með að
skilja. Ég man ekki betur en
ég læsi í Dagblaðinu í dag-
skrárumsögn kollega míns,
að erindið hafi verið flutt á
sunnudaginn var — og verið
bæði fróðlegt og skemmti-
legt. Það hefur kannski verið
með það eins og svo margt
annað í Dagblaðinu?!
• Það eru tvö íþróttafélög
hér á Akureyri, Þór og KEA,
nei fyrirgefiði, KA, og er
stundum heitt í kolunum.
Þórsarar voru að þekja
íþróttavöllinn sinn í sumar.
Sögðum við þá frá því, að
þeir hefðu haft einn KA
mann sér til aðstoðar. Hann
hefði hrópað í sífellu yfir
mannskapnum á meðan
verið var að þekja, „þetta
græna upp, drengir, þetta
græna upp ...“ Þórsarar
voru heldur seinir til svars,
en þeir hafa loks gefið skýr-
ingu á þessu. Þeir segja að
KA hafi nefnilega haft
reynsluna. Þeir hafi snúið
þessu brúna upp. Þess vegna
sé ekki stingandi strá á þeirra
velli.
• Þegar ráðherrar og ráða-
menn Flugleiða voru að
stússast úti í Luxemburg á
dögunum, vildu ráðamenn
þar sýna gestrisni. Þeir gáfu
því öllum gestunum nýja og
fína harðkúluhatta. En vitiði
hver þurfti stærsta númerið?
Sá höfuðstærsti.
% „Tvö þúsund krónur
nægja fyrir daglegri máltíð í
heilan mánuð,“
segir Mogginn. Ég hef alltaf
þessa áráttu. að trúa Mogg-
anum, en þarna fór ég flatt á
því. Tvö þúsund kallinn
dugði ekki einu sinni fyrir
einni ýsu.
• „Hvernig myndast vöru-
verð“?
spyr Mogginn. Bara vel held
ég, en á þessum síðustu og
verstu tímum held ég það sé
réttara að vera með breið-
linsu.
L
• „Innviðir flokksins fún-
ir,“
segir Mogginn og nú hélt ég
að hann ætlaði að taka
Sjálfstæðisflokkinn á beinið
og heimta endurbætur á
þessum fúaskemmdum. Nei.
nei, það var þá bara blað-
auki um Pólland. Hvenær
skyldi Mogginn gefa út
blaðauka um innviði Sjálf-
stæðisflokksins?
• Málshátturinn:
Margur verður svikinn í sæti,
en síður á fæti.
• Prófessorar hafa löngum
verið utan við sig. Ég veit um
einn sem átti Skoda, sem var
stirður í gang. Eitt sinn fékk
hann nokkra nemendur sína
til að ýta Skodanum og
sjálfur ætlaði prófessorinn
að létta undir á meðan bíll-
inn væri að ná ferð. Þegar
Skodinn var kominn á gott
skrið þakkaði prófessorinn
nemendunum innilega fyrir
hjálpina og vatt sér upp í
bílinn, — en því miður í aft-
ursætið. Þegar síðast fréttist
var bíllinn á hraðri leið niður
Bókhlöðustíginn. Og það
sem meira er, þetta er sönn
saga.
• Beinagrind er fatafella
sem hefur gengið of langt.
• „Ekkert um herinn“,
segir Þjóðviljinn á forsíðu.
Það er gott að „Viljinn" læt-
ur mann vita, hvað er ekki í
blaðinu.
• „Þeir græða vel á tipp-
inu“,
segir Vísir á íþróttasíðu á
föstudaginn og á við þrjá
ágæta vinnufélaga mína.
Hummmmmmmmm
• „Skattbyrðin hefur aukist
um sex milljarða“,
segir Dagblaðið og Karl
Steinar Guðnason bætir við:
„Krafan að láglaunafólkið
fái til baka af þessum fjár-
munum“. Sammála, hjart-
anlega sammála. Hvar verð-
ur borgað út?
0 „Sjálfstæðismenn bjóða
samstarf í Flugleiðamálinu“
segir í Vísi. Kom ekki á
óvart. þar sem ekki er alveg
ólíkt á komið með Sjálf-
stæðisflokknum og Tlugleið-
um.
0 Kunningi minn sendi
konuna sína á kvöldnám-
skeið í matreiðslu í fyrravet-
ur. Síðan hefur bara verið
kvöldmatur á því heimili.
Nú hefur kunningi minn lagt
á ráðin til að komast á há-
degisnámskeið í vetur.
# Það
er alltaf gaman af bjartsýn-
ismönnum. Ég veit um einn.
sem stóð fyrir framan af-
tökusveitina. Liðsforinginn
kom til hans og bauð honuni
síðustu sígarettuna, en sá
dæmdi svaraði: „Nei takk.
ég er að reyna að hætta.
Bless. bless.
Líf og íist um helgina
Leiklist
Iðnó.
Laugardagskvöld kl. 20.30: Ofvitinn eftir Kjartan Ragnarsson og
Þórberg.
Sunnudagskvöld kl. 20.30: Að sjá til þín maður eftir Franz Xaver
Koetz.
Þjóðleikhúsið: I kvöld og annað kvöld: Snjór eftir Kjartan Ragn-
arsson kl. 20.00.
Tónlist
Laugardag: Orgeltónleikar á vegum TónliStarfélagsins í Krists-
kirkju kl. 14.30. Almmut Rössler leikur verk eftir Back (þ.á m.
Passacagliuna) Bruhns og Messiaen.
Sunnudag: Almut Rössler leikur í Akureyrarkirkju kl. 20.30.
Köbenhavns Strygekvartet heldur tónleika í Bústaðakirkju kl.
20.30. Á efnisskránni: Mozart, Gade og Beethoven.
Myndlist
Sigurjón og Gylfi sýna teikningar af leikmyndum í
Torfunni.M.a. myndir af leikmynd Óvitanna og Flug-
leiks. (Ljósm. Kristján)
Þegar blaðið fór í prentun var vitað um þessar myndlistarsýningar:
Ástþór Jóhannsson sýnir olíu- og vatnslitamyndir í Gallery
Landlyst, Eyjum.
Jóhanna Bogadóttir grafík og olíumyndir á göngum Landspítalans.
Jóhannes Jónsson sýnir olíu- og vatnslitamyndir í Gallerí Landlyst,
Eyjum.
Jónas Guðvarðarson sýnir lágmyndir og skúlptur úr tré í kjallara
Norræna hússins.
Ketill Larsen sýnir í Eden, Hveragerði.
Kristján Jón Guðnason sýnir vatnslitamyndir í Ásmundarsal við
Freyjugötu.
Sigurður Örlygsson sýnir að Hamraborg 5, Kópavogi.
Örn Ingi.sýnir í FÍM salnum.
í dag að Kjarvalsstöðum:
Haustsýning Félags íslenskra myndlistarmanna opnuð.
Torfan: Sigurjón Jóhannsson og Gylfi Gíslason sýna leikmynda-
tekningar.
Listmunahúsið: Skúlptur og vefnaður frá Danmörku: Margaret
Agger, Anette Höllesen, Kim Inaver og Anders Tinsbo. Opið
19—18 alla virka daga.
Enn fremur er:
Ásgrímssafn opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl.
13.30—16.
Ásmundarsafn opið þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga frá
13.30— 16.
Listasafn Einars Jónssonar opið alla daga nema mánudaga kl.
13.30— 16.00.
Listasafn fslands opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og
sunnudaga frá kl. 13.30—16.00.
Svör
1. Á Sauðárkróki.
2. Livcrpool.
3. Kvikmyndin átti að heita „Leitin
að eldinuin" og það var 20th
Century Fox sem ætlaði að fjár-
magna kvikmyndagerðina.
4. Alberl Guðmundsson, Guð-
laugur Þorvaldsson, Pétur Thor-
steinsson og Vigdís Finnboga-
dóttir.
5. Davíð Seheving Thorsteinsson.
6. Elisabet Traustadóttir.
7. Valsmenn.
8. 17. ágúst.
9. í úrslit.
10. Auglýstir voru 300 japanskir
bílar á afar hagstæðu verði.
11. Jóhann Hjartarson.
12. Valsmenn.
13. Silfursjóður frá víkingaöld.
14. Um 51 prósent.
15. Suleyman Dcmirel.
Jóhanna Bogadóttir sýnir grafíkmyndir
á göngum Landsspitalans.