Vísir - 01.10.1980, Blaðsíða 1
'o
***9t
a
- ~ .• ~ y , í'
Miövikudagur 1. október 1980, 229. tbi. 70. árg.
1 Nokkrir Fríhafnarmenn játa hjðfnað og smygi:1
Slarfsmenn logreglu
og tolls í vitorði?
Fimm starfsmenn Frihafnar-
innar eru viöriönir þjófnað á
vörum af lager verslunarinnar,
sem þeir siöan smygluöu út af
vallarsvæðinu. Þrir þeirra
munu þegar hafa játaö, en
málið er enn til rannsóknar. Er
þetta samkvæmt heimildum
sem Visir telur áreiöanlegar.
Þjófnaðurinn hefur farið
þannig fram, að tolllás á lager-
dyr hefur verið opnaður með
lykli, sem aðrir en tollverðir
eiga ekki að hafa til umráða, og
vörur teknar af lagernum sem
er að baki verslunarinnar. Ekki
er ljóst um hversu mikið magn
hefur verið að ræða, en menn
telja að hér sé komin skýringin
á því, með hvaða hætti sú rýrn-
un hefur orðið i Frihöfninni,
sem Visir hefur áður greint frá.
Rannsókn málsins hefur stað-
ið yfir lengi, en það var fyrst
i fyrrakvöld og gærmorgun sem
starfsmenn Fríhafnarinnar voru
kallaðir til yfirheyrslu og nafa
tveir þeirra verið úrskurðaðir i
gæsluvarðhald og er búist við,
að minnsta kosti einn til við-
bótar verði settur i gæsluvarð-
hald i dag.
Talið er útilokað annað en að
lögreglu- og/eða tollþjónar hafi
verið i vitorði með afbrota-
mönnunum og beinist rannsókn-
in nú einkum að þvi atriði.
Kristján Pétursson, deildar-
stjóri i tollgæslunni á Kefla-
vikurflugvelli, vildi i morgun
ekkert um málið segja annað en
það, að það væri mjög alvarlegt
og rannsóknin á viðkvæmu stigi.
—P.M.
Sex auöir stólar blöstu viö sjónvarpsáhorfendum I gærkvöldi i umræöuþætti Sigrúnar Stefánsdóttur fréttamanns um málefni Fiugleiöa. Þetta
voru stóiar fuiltrúa starfsmannafélaga Fiugleiöa, sem höföu þegiö boö um aö koma og spyrja Sigurö Helgason um málefni félagsins, en hættu
siöan viö þátttöku. Eins og fram kom i Visi I gær, gáfu þessir fulltrúar starfsmanna engar marktækar skýringar á þessum þversnúningi. Rald-
ur Oddsson, formaöur félags Loftleiöaflugmanna, vildi engar skýringar gefa i morgun en sagöi aö fulltrúar starfsmanna kæmu til meö aö gefa út
yfirlýsingu i dag. — SG (Visism.GVA)
„Svona KeOiuöréfa-
starfseml élögleg”
Lang kemur til Reykjavikur.
Vantar tæki í
flugvél Langs
Vestur-þýski skrifvélavirkinn,
Lang, sem hingað kom á mánu-
dag, reyrður niður á þaki flugvél-
ar, er enn hér á landi. 1 samtali
við kappann, við komuna hingað,
ráðgerði hann að halda til Græn-
landsstrax i gærmorgun. Nú hef-
ur hins vegar komið i ljós, að i
vélina vantar fjarskipta-og tiðni-
tæki, sem verða að vera um borð
til að vélin fái leyfi til að fljúga
yfir hafið.
Lang mun nú vera að reyna að
útvega sér þessi tæki hérlendis,
en fyrr getur hann ekki haldið
héðan.
—KÞ
Engln Vfösjá:
Sigmar með
kvöldpóst
„Það var ákveðið á útvarps-
ráösfundi á föstudag aö ég tæki
við „magasinþætti” fjórum sinn-
um i viku, og á hann að vera á
sama tima og Viösjár-þátturinn
var i fyrra vetur”, sagöi Sigmar
B. Hauksson i samtali viö Visi i
morgun.
„Ég er að hugsa út grindina að
þættinum og enn vantar mig nafn.
Likast til fæ ég nokkra menn til að
koma með efni og stutta þætti og
ég býst við aö fá aðstoðarmann”,
sagði Sigmar.
Fréttamenn hljóðvarpsins
höfnuðu á föstudaginn að halda
Viðsjá úti i vetur, að óbreyttum
ytri aðstæðum, en þeir fóru fram
á að fréttamönnum yrði fjölgað
og aðstaðan bætt.
—ATA
Áskrlftar-
verð Vísis
„Ég held, aö þaö sé alveg
ljóst, að svona keðjubréfastarf-
semi er ólögleg og mál, sem
rekin hafa veriö fyrir nokkrum
árum af svipuöu tilefni, hafa
stutt þaö”, — sagði Bragi
Steinarsson, vararikissaksókn-
ari, er Vísir spuröi hann um lög-
mæti keöjubréfa, sem borið
hefur á hér á landi aö undan-
förnu.
Bragi sagðist að visu ekki
hafa kynnt sér þetta tiltekna
mál, en ljóst væri, að tilgangur-
inn leyndi sér ekki, þótt reynt
væri að breiða yfir hann
með breyttum aöferðum við
útbreiðslu bréfanna. Tilgangur-
inn væri að ná peningum út úr
fólki með keðjuverkandi aðferð-
um, en eins og dæmin hefðu
sannað, væri slikt ólöglegt.
Fyrir nokkrum árum var
starfsemi keðjubréfahrings
stöðvuð af yfirvöldum og rann-
sókn hafin af þvi tilefni, sem
leiddi til málaferla. I hinum
nýju bréfum er mönnum heitið
allt aö 20 milljón króna hagnaði
ef beir gerast þátttakendur, en
þau eru að þvi leyti frábrugöin
þeim, sem áður hafa verið i um-
ferð, að kaup og sala á upplýs-
ingum um nöfn fara fram per-
sónulega en ekki með aðstoð
póstþjónustunnar.
Er Visir hafði. samband við
Þóri Oddsson, vararannsóknar-
lögreglustjóra rikisins, i morg-
un, sagði hann, aðenn hefði ekki
verið tekin ákvörðun um rann-
sókn þessa máls.
—Sv.G.
Vegna verkíallsdagana i sept-
ember verður áskriftarverð
blaðsins þann mánuð kr. 5.000 i
stað kr. 5.500. Þvi miöur reyndist
þó ekki hægt að gera þessa leið-
réttingu við innheimtu áskriftar-
gjaldsins nú / þar sem útskrift
allra reikninga var lokið fyrir
verkfall. Verður þvi áskriftar-
gjaldið fyrir október i þess staö
lækkað um kr. 500.