Vísir - 01.10.1980, Blaðsíða 23
VÍSIR
Miövikudagur 1. október 1980.
Axel
Ammendrup
skrifar
Slðkun
gegn
streitu
„Slökun gegn streitu” undir
handleiðslu Geirs Viðars Vil-
hjálmssonar er á dagskrá hljóð-
varpsins i kvöld.
Þetta er fyrsti þátturinn af
þremur með rólegri tónlist og
leiðbeiningum gegn streitu.
Geir Viðar Vilhjálmsson.
Suleyman Demirel. Hann var forsætisráöherra þar til fyrir þremur
vikum aö herinn steypti honum af stóli.
valdaránið
í Tyrklandi
Valdaránið i Tyrklandi er efni
spánýrrar enskrar fréttamyndar,
sem er á dagskrá sjónvarpsins i
kvöld klukkan 22.40.
Herinn hrifsaði völdin i Tyrk-
landi 12. september en segja má
að landið hafi verið stjórnlaust i
lengri tima. öfgahópar börðust
innbyrðis og daglega lét fjöldi
manns lifið i hryðjuverkum.
Myndin, sem sjónvarpið sýnir i
kvöld er stundarfjóöungs löng.
Sjónvarp kl. 22:
HilöOvarp kl. 23:is:
Sjónvarp ki. 2i:05:
Þriðja
Þriðja Hjólið er á dagskrá sjón-
varpsins i kvöld og er þá aðeins
eitt eftir. Þessi framhaldsmynda-
flokkur hefur valdið mörgum
vonbrigðum, sérstaklega þykir
frammistaða leikaranna litt
frambærileg.
Efni annars þáttar var i
stærstum dráttum á þá leiö, að
Erica Trenton slóst i för með
kappaksturshetjunni Peter
Flodenhale, sem var á keppnis-
ferðalagi um Evrópu. 1 lok þátt-
arins lenti Peter i slysi á kapp-
akstursbrautinni og biða áhorf-
Hjólið
endurnú spenntir eftir þvi að vita
hver afdrif hans urðu.
A meðan Erica var i skemmti-
reisu um Evrópu, vann aumingj-
ans kallinn hann Adam hörðum
höndum að nýja bílnum og hon-
um gekk ekkert of vel. Hann
kynnist þó ungri konu, Barböru,
sem starfará auglýsingastofu, og
tókst með þeim náin vinátta, svo
ekki sé meira sagt.
Og það sem mest er um vert,
Greg, sem strauk aö heiman,
gerði vart við sig og sagðist
elska föður sinn.
Rock Hudson þykir ekki hafa sýnt
neina sérstaka snilldartakta i leik
sinum i „Hjólum”.
útvarp
Miðvikudagur
1.október
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar Tón-
leikasyrpa Leikin létt-
klassisk lög, svo og dans- og
dægurlög.
14.30 Miödegissagan: „Hvíti
uxinn” eftir VoltaireGissur
Ö. Erlingsson les eigin
þýðingu fyrsta lestur af
þremur.
15.00 Pop Dóra Jónsdóttir
kynnir.
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veöurfregnir.
16.20 Síödegistónleikar Kornél
Zimpléni leikur á planó meö
Ungversku rikishljómsveit-
inni Tilbrigði um barnalag
fyrir hljómsveit og pianó
eftir Ernö Dohnanyi:
György Lehel stj. /
Sinfóniuhljómsveitin i
Minneapolis leikur „Myndir
á sýningu” eftir Modest
Mussorgský: Antal Dorati
stj.
17.20 Litii barnatiminnStjórn-
andinn Oddfriður Steindórs-
dóttir, talar um útivist og
vetrarleiki og varar við
ýmsui þvi sambandi gagn-
vart umferö i þéttbýli.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Einsöngur i útvarpssal:
Jón Þorsteinsson syngurlög
eftir Emil Thoroddsen, Jór-
unni Viöar og Hugo Wolf.
Jónina Gisladóttir leikur
með á pianó.
20.00 Hvaö er aö frétta?
Bjarni P. Magnússon og
ólafur Jóhannsson stjórna
frétta- og forvitnisþætti
fyrir ungt fólk.
20.30 „Misræmur”, tonlistar-
þáttur i umsjá Astráðs
Haraldssonar og Þorvarðs
Arnasonar.
21.10 „Þegarég var meö Kön-
um”Báröur Jakobsson seg-
ir frá lúöuveiöum Amerik-
ana viö Island.
21.35 „1 svart-hvitu”, einleiks-
verk fyrir flautu eftir
Hjálmar Ragnarsson
Manuela Wiesler leikur.
21.45 Útvarpsagan: „Ryk”
smásaga eftir Karsten Hoy-
dal Þýðandinn, Jón
Bjarman, les seinni hluta
sögunnar.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 Milli himins og jaröar
Sjöundi og siðasti þáttur:
Ari Trausti Guðmundsson
svarar spurningum hlust-
enda um himingeiminn.
23.15 Slökun gegn streitu
Fyrsti þáttur af þremur
með rólegri tónlist og leið-
beiningum gegn streitu i
umsjá Geirs Viðars Vil-
hjálmssonar.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
sjónvarp
18.00 Fyrirmyndarframkoma.
Fljötfærni.Þýöandi Kristin
Mántylá. Sögumaöur Tinna
Gunnlaugsdóttir.
18.05 Óvæntur gestur . Tiundi
þáttur. Þýöandi Jón
Gunnarsson.
18.30 Maöur norðurhjarans
Sjónvarpiö mun á næstunni
sýna nokkra fræðsluþætti
um A1 Oeming, manninn
sem kom á fót griöastað
villtra dýra i Kanada.
Fyrsti þáttur er um hvita-
birni. Þýöandi og þulurBogi
Arnar Finnbogason.
19.00 Hlé
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Nýjasta tækni og visindi
Umsjónarmaður Sigurður
H. Richter.
21.05 Hjól.Bandariskur fram-
haldsmyndaflokkur. Þriðji
þáttur. Efni annars þáttar:
Erica Trenton slæst i för
með kappaksturshetjunni
Peter Flodenhale, sem er á
keppnisferðalagi um
Evrópu. Adam, eiginmaður
hennar, vinnur öllum stund-
um að nýja bilnum, en flest
gengur honum I óhag. Hann
kynnist ungri konu, Bar-
böru, sem starfar á aug-
lýsingastofu, og meö þeim
tekst náin vinátta. Greg,
yngri sonur Trenton-hjón-
anna, er stokkinn aö heim-
an, en gerir vart við sig öðru
hverju. Þýðandi Jón O. Ed-
wald.
22.40 Ný, erlend fréttamynd
22.55 Dagskrárlok
FLOKKAFLUG
Sjónvarpiö efndi i gærkvöldi
til enn eins umræöufundarins
um stööu Flugleiöa og framtiö
islenska flugævintýrisins. Þessi
þáttur var aö visu ekki samá
hörmungin og fyrri tilraun sjón-
varpsins til aö setja á sviö um-
ræöu um islensk flugmál, enda
mun þurfa sérstaka afreksmenn
I sjónvarpsfræöum tilaö komast
á svo lágt plan, en óneitanlega
voru áheyrendur litlu nær um
kjarna málsins, þegar siökkt
var á tækinu aö þættinum lokn-
um. Sömu spurningarnar og
sömu svörin hafa fyllt fjölmiöla
daginn út og daginn inn undan-
farna daga, vikur og jafnvel
mánuöi. En slikt er auðvitaö I
fullu samræmi viö þann frum-
leik, sem einkennir innlenda
þáttagerö sjónvarpsins.
Þó fór ekki hjá þvi aö einstaka
forvitnilegheit hrykkju upp úr
sumum viömælenda. A bak viö
allt snakkiö mátti stundum sjá
„iskaldan raunveruleikann”,
eins og Svavar Gestsson komst
eitt sinn aö oröi. t gegnum þoku
fallegra oröa hans sjálfs um
nauðsyn þess aö tryggja flug-
samgöngur viö landið, og innan
þess, og um vilja rikisstjórnar-
innar til aö koma Flugleiöum til
aöstoðar i þessu yfirlýsta skyni,
glitti einstaka sinnum i raun-
verulega hugsun Alþýöubanda-
lagsmanna i þessu máli, sem er
aö leggja Flugleiöir aö meira
eöa minna leyti undir ríkið og
koma eigin kommisörum i
vaidastóla þar I stað núverandi
stjórnenda. Hann talaöi um
„uppstokkun á forystu” félags-
ins, aö eölilegt væri aö rlkiö
eignaöist verulegan hlut I Flug-
leiöum og aöild aö ákvaröana-
töku I samræmi viö þaö, og
fleira I þeim dúr.
Þaö hefur auövitaö ekki fariö
fram hjá neinum, sem fylgst
hefur meö erfiöleikum Flug-
leiða, aö Alþýöubandalagsfor-
ingjarnir hafa einsett sér aö
nota þá til þess aö leggja fyrir-
tækiö aö verulegu leyti undir
rikisvaldiö og þar meö þau póli-
tisku öfl, sem rikisvaldinu ráöa,
en þar er. Alþýöubandalagiö
sem stendur áhrifamesti aöil-
inn. Þess vegna hafa Alþýðu-
bandalagsmenn lagt alit kapp á
aö rakka forystumenn félagsins
niöur, grafa undan þvi meö
stóryrtum yfirlýsingum og
knýja fram aiis konar skilyrði
fyrirfyrirgreiðslu af hálfu rikis-
ins — skilyröi, sem öll miöa aö
OG TÚMIR STÓLAR
auknum rikisáhrifum innan
Flugleiöa. Siöasta skrefiö i
þessa átt eru yfiriýsingar um,
að ailar eignir féiagsins séu full-
veösettar og því sé ekki hægt að
taka ákvörðun um rikisábyrgð,
sem full þörf er á næstu daga,
fyrr en kjaftaö hafi veriö um
máliö dögum eöa vikum saman
I leikhúsinu viö Austurvöil.
Aögeröir Alþýöubandalags-
manna miöa allar aö þessu eina
markmiöi. Þeir hafa hins vegar
veriö svolltiö óheppnir I manna-
vaii sinu I þessari krossferö
fyrir þjóönýtingu Flugleiöa.
Þaö virkar nefnilega hjákátlega
á fólk almennt að heyra það, að
Baldur óskarsson sé oröinn sér-
fræðingur I flugrekstri. Baldur,
sem er alltaf aö semja þessa
skýrslu sina, en hefur sennilega
of litinn tima til þess vegna allra
viðtalanna við fjölmiðia, er að
visu oröinn sérfræöingur I
flokkafiugi, þar sem hann hefur
fiogið á milli flestra lifandi og
dauðra stjórnmálaflokka lands-
ins ásamt glókolli, foringja sin-
um, en á rekstri flugfélaga
hefur hann ekki hundsvit. Þetta
veit öll þjóðin, og þess vegna
virkar það eins og asnalegt grin,
þegar sjónvarpiö byrjar um-
ræðuþátt um rekstur Flugleiða
með löngu eintali Baldurs um
ailt það, sem stjórnendur Flug-
leiða hafi gert rangt á undan-
förnum árum. En kannski þessi
auglýsingastarfsemi hafi þau á-
hrif, sem aö er stefnt af sumum
forystumönnum Alþýðubanda-
lagsins, þ.e. að gera Baldri
kleift að ryðja Garöari Sigurðs-
syni út af þingi I næstu kosning-
um.
Forstjóri Flugleiða upplýsti I
gærkvöldi, aö félagið þyrfti að
semja við 39 stéttarfélög og
greiða laun eftir 500 mismun-
andi launatöxtum! Sundurlyndi
starfsmanna fyrirtækisins er I
fullu samræmi við þetta, og sú
staðreynd, aö forsvarsmenn
þeirra skyldu á siöustu stundu
neita aö mæta I sjónvarpssal tii
aö varpa fram þeim spurning-
um, sem þeir hafa fullyrt aö
stjórnendur fyrirtækisins hafi
ekki svaraö nægjanlega til
þessa, er i samræmi viö fyrri
aögeröir. Tómir stólar þessara
verkalýösforkólfa i sjónvarps-
salnum voru táknrænir um
framlag þeirra til launsar á
vanda Flugleiöa.
En sá vandi veröur hvorki
leystur meö tómum stólum,
þjóönýtingu né sérfræðiþekk-
ingu i flokkaflugi.
Svarthöföi.