Morgunblaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 27
KIA
ÞRJÁTÍU og þrjú Evrópu-, Amer-
íku- og Kyrrahafsríki samþykktu í
gær nýjar ráðstafanir til að stöðva
útbreiðslu efna- og sýklavopna og
hindra að þau komist í hendur
hryðjuverkamanna.
Ráðstafanirnar voru samþykktar
á árlegum fundi óformlegra samtaka
sem kölluð hafa verið Ástralíuhóp-
urinn. Þótt samþykktin sé ekki laga-
lega bindandi sagði embættismaður,
er sat fundinn, að „pólitíska og sið-
ferðilega skuldbindingin“, sem henni
fylgdi, myndi brátt leiða til nýs og
samræmds eftirlits með útflutningi
efna og búnaðar sem hægt er að
nota við framleiðslu efna- og sýkla-
vopna.
Embættismaðurinn, sem var í
sendinefnd Ástralíu á fundinum,
bætti við að mikilvægi Ástralíuhóps-
ins hefði aukist verulega frá hryðju-
verkunum í Bandaríkjunum 11.
september. „Enginn vafi leikur á því
að starfsemi hópsins hefur stórauk-
ist síðustu níu mánuði,“ sagði hann.
Að sögn embættismannsins er eitt
af hlutverkum hópsins að „berjast
gegn hryðjuverkum sem liður í sam-
eiginlegum viðbrögðum við hryðju-
verkastarfsemi“.
Ríkin samþykktu meðal annars
viðmiðunarreglur um veitingu heim-
ilda til að flytja út efni og búnað, sem
hægt er að nota við framleiðslu efna-
og sýklavopna, og hert eftirlit með
slíkum útflutningi. Þau samþykktu
einnig að vara önnur aðildarríki
hópsins við ef grunur vaknaði um að
ríki, fyrirtæki eða einstaklingar
hefðu reynt að kaupa slíkan búnað í
þeim tilgangi að framleiða vopn.
Dæmi um að hópurinn hafi
hindrað útbreiðslu vopnanna
Ástralski embættismaðurinn lagði
áherslu á að nýju hömlurnar hefðu
ekki verið samþykktar vegna upp-
lýsinga um að hættan á efna- eða
sýklavopnaárásum hefði aukist,
heldur væri um „fyrirbyggjandi“
ráðstafanir að ræða. „Menn bíða
ekki eftir því að eitthvað gerist til að
bæta eftirlitið,“ sagði hann.
Embættismaðurinn bætti við að
dæmi væri um að hópnum hefði tek-
ist að hindra framleiðslu efna- og
sýklavopna en vildi ekki veita neinar
upplýsingar um þau. „Við vitum að
hópurinn hefur haft skýr áhrif.“
Ástralíuhópurinn var stofnaður
árið 1984. Aðildarríkin, sem eru flest
vestræn, þeirra á meðal Bandaríkin
og ríki Evrópusambandsins, hafa
undirritað alþjóðlega samninga sem
banna aðstoð við framleiðslu efna-
og sýklavopna. Ísland er á meðal að-
ildarríkja hópsins.
Eiga að stöðva
útbreiðslu efna-
og sýklavopna
París. AFP.
33 ríki samþykkja ráðstafanir
til að hindra hryðjuverk
FYRSTA ganga samkynhneigðra
um miðborg Jerúsalem fór fram í
gær. Aðstandendur göngunnar
vildu í senn vekja athygli á samkyn-
hneigð, sem þeir segja að hafi legið
í þagnargildi í hinni helgu borg,
sem og að ítreka umburðarlyndi
milli allra manna, óháð kynhneigð,
þjóðerni eða trúarbragða. Allt fór
fram með friði og spekt, og mættu
nokkur hundruð manns í gönguna.
Einn göngumannanna heldur hér
á skilti með áletrununni: fría
smokka, fría Palestínu.
AP
Samkynhneigðir
fylkja liði í Jerúsalem
MICHAEL Skakel, frændi Ro-
berts heitins Kennedys, fyrr-
verandi forsetaframbjóðanda í
Bandaríkjun-
um, var í gær
fundinn sekur
um að hafa fyr-
ir rúmlega 25
árum myrt 15
ára gamla
stúlku, Mörthu
Moxley. Það
tók kviðdóm í
Norwalk í
Connecticut
þrjá daga að komast að niður-
stöðu, og á Skakel, sem er 41
árs, yfir höfði sér allt að lífstíð-
arfangelsi. Refsidómurinn
verður kveðinn upp 19. júlí.
Við réttarhöldin báru vitni að
Skakel, sem einnig var 15 ára
er morðið var framið, hefði ver-
ið hrifinn af Moxley og reiður
vegna þess að hún virtist hrifn-
ari af bróður hans en honum.
Málið hefur verið óleyst í
áratugi, en var tekið upp að
nýju fyrir skömmu, þegar lög-
reglumenn ráku augun í að
Skakel hafði orðið tvísaga í
framburði sínum við fyrri rann-
sókn málsins. Ákæran byggðist
nær eingöngu á vitnisburði
fólks sem sagðist hafa heyrt
Skakel játa á sig morðið.
Frændi
Kenned-
ys fund-
inn sekur
New York. AFP.
Skakel