Morgunblaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 31 • Jákvæða sjálfsmynd • Líf í kærleika og gleði • Að finna drauminn sinn og leiðir til að láta hann rætast • Heilun, hómópatía, hugleiðsla, slökun, hreyfing o.fl. • Gestafyrirlesari verður Edda Björgvins HAMINGJUHELGI 3 daga námskeið fyrir konur helgina 21.–23. júní í Sólheimum í Grímsnesi þar sem m.a. verður unnið með: fyrir konur Nánari upplýsingar: Sólbjört Guðmundsdóttir, reikimeistari og kristallaheilari, s. 862 4545 Martha Ernstdóttir, hómópati, sjúkraþjálfari, s. 863 8125 Guðrún Óladóttir, reikimeistari, ráðgjafi, s. 897 7747 STUNDUM situr aðeins ein spurning eftir þegar maður gengur út að aflokinni nýrri bíómynd, þ.e. Hvers vegna í ósköpunum voru menn að hafa fyrir því að búa til þessa kvikmynd? Í tilfelli Dragonfly hljómar spurningin kannski á þessa leið: Var það virkilega fagmanneskja sem las þetta handrit og hugsaði: „Hmmmm…best að eyða nokkrum milljónum í að búa til kvikmynd upp úr þessu handriti.“ En jæja, umrædd kvikmynd, sem er sumsé orðin að veruleika, og skartar stórstjörnunni Kevin Cost- ner í aðalhutverki, fjallar um lækn- inn Joe Darrow, sem tekst á við þá sorg að hafa misst barnshafandi eiginkonu sína í bílslysi. Sagan fer þannig af stað sem nokkuð forvitni- legt tilfinningadrama, þar sem spurningar um viðbrögð við ást- vinamissi eru í forgrunni, sem og hugleiðingar um mörk þessa heims og annarra. Smám saman fer þó að bera á ýmsum lúalegum brögðum til að hræða áhorfandann með alls konar draugagangi og nær sú lág- kúra botninum þegar óheppinn, lát- inn mótorhjólakappi fer að tala mjög gróteskum tungum. Verri er þó eiginlega notkunin á „krabba- meinssjúkum börnum“ í þessum sama tilgangi. En upp úr miðbikinu tekur myndin síðan mjög einfeldn- ingslega stefnu, og fylgist áhorf- andinn allt að því hvumsa með hvernig sagan heldur lengra og lengra út fyrir öll skynsamleg mörk, þvert á það sem upphafið gaf til kynna. Umfjöllunin um sorgina breytist þar smám saman í ein- feldningslega hollywoodíska ósk- hyggju. Greinilegt er að handritshöfund- ar, leikstjóri og framleiðendur hafa átt mjög erfitt með að ákveða sig í hvað skyldi verja peningunum, að búa til sálrænt drama, hrollvekju eða firrt ævintýri. Úr drama í firringu KVIKMYNDIR Háskólabíó Leikstjóri: Tom Shadyac. Handrit: David Seltzer, Brandom Camp og Mike Thomp- son. Kvikmyndataka: Dean Semler. Aðal- hlutverk: Kevin Costner, Susanna Thompson og Kathy Bates. Sýningartími: 103 mín. Bandaríkin. Universal Pictures, 2002. DRAGONFLY (DREKAFLUGA)  Heiða Jóhannsdóttir JÓN Reykdal opnar sýningu í List- húsi Ófeigs í dag kl. 16. Á sýning- unni verða rúmlega 30 verk, að- allega vatnslitamyndir og nokkur olíumálverk. Sýningin er í tilefni 30 ára starfs- afmælis Jóns, en hann stundaði framhaldsnám í Amsterdam og Stokkhólmi. Ásamt myndlist kenndi Jón um langt árabil við Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands, og nú síðast við Kennaraháskóla Íslands. Einnig hefur Jón gert fjölda bókaskreytinga og bókakápur. Jón hefur haldið margar einka- sýningar og tekið þátt í tugum sam- sýninga. Síðasta einkasýning Jóns var í Listasafni ASÍ á síðasta ári. Sýningin er opin virka daga klukkan 10–18 og laugardaga hlukkan 11–16. Lokað á sunnudög- um, sýningunni lýkur 26.júni. Afmælis- sýning Jóns Reykdal Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson MENNINGARMÁLANEFND Hafnarfjarðar efndi á dögunum til listaverkasamkeppni vegna flutn- ings Bóksasafns Hafnarfjarðar í nýtt húsnæði á Strandgötu 1. Dóm- nefnd valdi verk Sólveigar Baldurs- dóttur, fimm sexstrendar blágrýtis- súlur með áristum myndum, sem gjöf bæjarstjórnar. Verkið var valið úr um 100 tillögum sem bárust frá 41 listamanni. Verkinu verður komið fyrir fyrir framan Bókasafnið þegar endanleg útfærsla á torginu liggur fyrir en ein súlan prýðir nú anddyri safns- ins. Sólveig Baldursdóttir nam mynd- list við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk námi í skúlptúr árið 1987 frá Akademíunni í Odense í Danmörku. Hún var valin bæjar- listamaður Akureyrar 1999 og hlaut starfslaun árið 2000. Sólveig býr nú og starfar í Hafnarfirði. Sigraði í listaverkasam- keppni í Hafnarfirði LOKATÓNLEIKAR Salarins á þessu starfsári verða haldnir annað kvöld kl. 20. Þar koma fram hjónin Randi Gíslason sópran og Magnús Gíslason tenór, ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur píanóleikara. Randi og Magnús eru búsett í Kaup- mannahöfn þar sem þau starfa bæði sem söngvarar og halda nú í fyrsta sinn sameiginlega tónleika á Íslandi. „Okkur hefur lengi langað að koma til Íslands og halda tónleika, en ekki gefist tími til þess að skipu- leggja það fyrr en nú,“ segja hjónin í samtali við Morgunblaðið. „Þegar okkur gafst tækifæri til að syngja í þessum frábæra tónleikasal slógum við að sjálfsögðu til. Við höfum hlakkað mikið til að syngja hér. Einnig er frábært að vinna með Önnu Guðnýju, sem er mjög fær pí- anóleikari.“ Nielsen og Kaldalóns Fyrri hluti tónleikanna er tileink- aður norrænni tónlist. Íslenskar perlur á borð við Draumalandið og Hamraborgina í flutningi Magnúsar eru fyrstar á efnisskránni. Þá syngur Randi þrjú lög á sænsku eftir Sibel- ius og loks munu þau bæði flytja nokkur verk eftir Carl Nielsen. „Við vildum flytja að hluta norræna tón- list á þessum tónleikum og óperutón- list að hluta. Magnús vildi syngja ís- lensk lög og mig langaði til að við flyttum danska tónlist. Við völdum því lög eftir Carl Nielsen, sem er góður fulltrúi hennar. Verkin sem við flytjum eru mjög dæmigerð fyrir tónlist hans,“ segir Randi. „Við mun- um enda tónleikana fyrir hlé á aríu úr óperunni Saul og David eftir Niel- sen sem er ekki eins þekkt og önnur ópera hans, Maskerade. En tónlistin í henni er ekki síður falleg,“ bætir Magnús við, en segist ekki vita hvort arían hafi verið flutt á Íslandi áður. Seinni hluti tónleikanna er tileink- aður aríum og dúettum úr óperum eftir Tsjaíkovskíj og Verdi, en Randi og Magnús tóku í vetur þátt upp- færslu á Macbeth eftir Verdi á veg- um Det Nordjyske Operakompagni. Hlutu þau bæði lofsamlega dóma í fjölmiðlum fyrir frammistöðu sína í hlutverkum Lady Macbeth og Mac- duff og munu hlustendur hlýða á tvær aríur úr því verki. „Við munum auk þess syngja aríur úr Jevgení Ónegin eftir Tsjaíkovskíj, sem eru á rússnessku. Á tónleikunum ætlum við því að útskýra fyrir áheyrendum um hvað þær fjalla,“ segir Randi. „Við munum svo enda tónleikana á mjög fallegum ástardúett úr Ótelló eftir Verdi.“ Tónleikarnir annað kvöld hefjast kl. 20. Flytja norræn verk og óperutónlist Morgunblaðið/Golli Randi Gíslason sópran, Magnús Gíslason tenór, og Anna Guðný Guð- mundsdóttir píanóleikari koma fram á tónleikum í Salnum. MÁLVERKASÝNINGIN „Augnablik …“ verður opnuð í Húsi málaranna í dag, laugardag, kl. 14. Þar sýnir Ari Svavarsson 26 málverk sem unnin eru í akrýl á tré. Um er að ræða fyrstu einkasýningu Ara en í verkunum leitast hann við að lýsa tilfinn- ingalegum tíma, því augnabliki þegar allt virðist vera að ganga upp. Hús málaranna, Eiðistorgi 11, er opið frá fimmtudegi til sunnu- dags milli kl. 14 og 18. Augnablik í Húsi málaranna Í EDEN í Hveragerði stendur nú yfir sýning Hannesar Scheving á 38 akrýlmyndum, að mestu unnum á þessu og síðasta ári. Þetta er áttunda myndlist- arsýning Hannesar Scheving og mun hún standa yfir til 16. júní. Hannes sýnir í Eden
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.