Morgunblaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 32
LISTIR
32 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FREYJUKÓRINN heldur sína ár-
legu vortónleika í Reykholtskirkju á
morgun, sunnudag, og hefjast þeir
kl. 15.
Þar flytur kórinn fjölbreytt efni,
bæði innlent og erlent, fram koma
einsöngvarar og nýr kvartett.
Stjórnandi kórsins er Zsuzsanna
Budai og undirleik annast þau Stein-
unn Árnadóttir og Haukur Gíslason.
Einsöngvarar eru Kristín Magda-
lena Ágústsdóttir og Unnur Sigurð-
ardóttir. Aðgangseyrir 1.500 kr.,
frítt fyrir börn yngri en 12 ára.
Vortónleikar
Freyjukórsins
AFRAKSTUR síðasta vetrar hjá
hönnunardeild Listaháskóla Íslands
mun verða til sýnis í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, á sýn-
ingu sem nefnd hefur verið: Hönn-
unaræska. Þarna má sjá ótal dæmi
um hönnun, prótótýpur, líkön, mark-
aðsfræði, tískulínur í fötum og fram-
setningu. Sýningin hefst í dag með
opnun klukkan 17.30 og tískusýning
verður upp úr kl. 18 þar sem sýndar
verða fatalínur nemenda deildarinn-
ar með tónlist sem einnig er gerð
innan veggja hennar.
Tískusýning þessi mun verða
kvikmynduð og síðan sýnd allan sýn-
ingartímann.
Grafísk hönnun mun verða sýnd á
fjölbreyttan máta, til dæmis með
uppsettum álímdum verkum, mynd-
máli, teikningum og á mörgum tölvu-
skjám þar sem áhrifa margmiðlunar-
tækni gætir verulega. Þrívíðar
prótótýpur verða til sýnis ásamt
tækniteikningum og hreyfanlegum
tölvumyndum þar sem rannsakaðar
hafa verið ýmsar útfærslur.
Sýningunni lýkur 18. júní.
Sýning hönnunar-
deildar LÍ
BJÖRG Sveinsdóttir sýnir í Kaffitári
Laugavegi 91 s/h myndir teknar á
hljómleikum hljómsveitarinnar Sig-
ur Rósar í Laugardalshöll, Lista-
safni Reykjavíkur, Montreux í Sviss
og Barbican-listamiðstöðinni í Lund-
únum árin 2001 og 2002.
Björg hefur tekið ljósmyndir af ís-
lenskum hljómsveitum síðan 1987.
Hún hélt sýningu á myndum í Japís á
Laugavegi á síðasta ári. Myndir eftir
hana hafi birst í Morgunblaðinu og
ýmsum öðrum blöðum og tímaritum
innlendum sem erlendum. Hún hef-
ur einnig átt fjölda mynda í bókum
um íslenska rokktónlist og á hljóm-
plötuumslögum. Sýningin er opin á
verslunartíma. Henni lýkur 1. ágúst.
Sýnir myndir
af Sigur Rós
SÝNING á verkum bandaríska lista-
mannsins Marks Normans Brosseaus
verður opnuð í Galleríi Skugga,
Hverfisgötu, í dag kl. 17.
Sýningin ber yfirskriftina „Space
Project“ og vísar til þeirrar rýmis-
hugsunar sem Mark leggur áherslu á
í verkum sínum.
Í kjallara gallerísins mun Mark
vinna málverksinnsetningu en verk
hans á efri hæð gallerísins saman-
stendur af texta og ætingum.
Í Klefanum verður myndskyggn-
um varpað á vegg, þar sem gefur að
líta umhverfisverk sem listamaðurinn
vann utanhúss í Straumi við Vatns-
leysuströnd.
Mark hefur verið við störf hérlend-
is í eitt ár á vegum Fulbright-stofn-
unarinnar. Hann lauk BA-gráðu í
Stúdíólistum frá Dartmouth College
1998, og MFA-gráðu í myndlist frá
University of Pennsylvania 2001. Í
ágústmánuði lýkur dvöl Marks hér-
lendis en í október hefur honum verið
boðið að sýna með myndlistarmann-
inum Frank Stella í Paul Kasmin
Gallery í New York. Um áramót held-
ur Mark til Senegal þar sem hann
hyggst sinna sjálfboðaliðastörfum.
Sýningin stendur til sunnudagsins
23. júní nk. Galleríið er opið frá kl. 13–
17 alla daga nema mánudaga.
Rýmishugsun
í Skugga
Í MENNINGARMIÐSTÖÐ Horna-
fjarðar standa nú yfir tvær sýningar
í húsnæði sem áður hýsti Vöruhús
KASK á Höfn í Hornafirði. Um er að
ræða Jöklasýningu og sýningu á
verkum Svavars Guðnasonar. Sýn-
ingarnar verða opnar daglega frá kl.
13–18 og 20–22 í allt sumar. Jökla-
sýningin er nú opnuð í þriðja sinn en
var fyrst opnuð sumarið 2000 í sam-
starfi við Reykjavík – Menningar-
borg 2000. Sýningin er ætluð sem
undanfari varanlegs jöklaseturs á
Hornafirði. Kjarni sýningarinnar
eru 18 fræðsluspjöld í máli og mynd-
um. Á þeim er fjallað um eðli jökla og
sambúð manns og jökuls.
Á hinni sýningunni er úrval verka
hornfirska listamannsins Svavars
Guðnasonar, en sveitarfélagið
Hornafjörður á tæplega eitthundrað
listaverk eftir Svavar. Flest þeirra
eru gjöf frá Ástu Eiríksdóttir, ekkju
Svavars Guðnasonar, og vinum
þeirra hjóna.
Tvær sýningar
á Höfn
ÚTSKRIFAÐIR verða í dag kenn-
arar frá Kennaraháskóla Íslands. Í
hópi útskriftarnemenda eru þær
Heiða Guðmundsdóttir og Vala Kar-
en Guðmundsdóttir sem hafa valið sér
kjörsvið í textílmennt. Lokaverkefni
þeirra var nokkuð óvenjulegt. Í stað
þess að skrifa ritgerð tóku þær þann
kost, í samráði við leiðbeinanda sinn,
Fríði Ólafsdóttur dósent, að leita
samstarfs við Þjóðminjasafn Íslands
um að gera safnfræðslukistu um ull
og tóvinnu sem Þjóðminjasafnið mun
lána út til skóla. Safnið hefur um ára-
bil haft ýmsar slíkar kistur til útlána
en því er mikill fengur að nýrri tó-
vinnukistu. Í henni er ull á ýmsum
vinnslustigum og tóvinnuáhöld sem
nemendur geta æft sig í að nota:
snældur, kambar, prjónastokkur og
nálhús. Einnig er þar myndband um
íslensku ullina og glærur um tóvinnu
auk fræðsluefnis og verkefna sem
Vala og Heiða hafa safnað og samið.
Kista um ull
og tóvinnu
HAMLET eftir Shakespeare verður
meðal verkefna Leikfélags Ak-
ureyrar á næsta leikári og eru æf-
ingar þegar hafnar. Leikstjóri
verður Sveinn Einarsson, en í hlut-
verkum Hamlets og Ófelíu verða
tveir nýútskrifaðir leikarar, Ívar
Örn Sverrisson og Arnbjörg Vals-
dóttir. Tveir kornungir bresk-
menntaðir leikarar stíga sín fyrstu
spor á íslensku leiksviði í sýning-
unni, en það eru þeir Jón Ingi Há-
konarson og Sigurður Þ. Líndal.
Þráinn Karlsson, Sunna Borg og
Jakob Þór Einarsson verða öll í
veigamiklum hlutverkum, sem og
Sigurður Karlsson, sem kemur sem
gestaleikari frá Leikfélagi Reykja-
víkur. Búninga og leikmynd hannar
Elín Edda Árnadóttir.
Sigurður Hróarsson leikhússtjóri
segir Hamlet með stærri verk-
efnum sem Leikfélagið hefur tekist
á hendur. „Þetta er í stærra lagi
fyrir lítið leikhús og Hamlet í sjálfu
sér alltaf stórt verkefni, fyrir hvern
sem er, hvar sem er. Leikfélagið
hefur beðið lengi eftir rétta tím-
anum og rétta tækifærinu til að
takast á við verkefni af þessu tagi.
Á undanförnum árum höfum við
verið að vinna okkur út úr vissum
vanda sem félagið var í, en í dag
stendur það vel og á fjárhagslega
öruggum fótum. Þá gafst rétta
tækifærið. Við Sveinn Einarsson
sammæltumst reyndar um það fyrir
þónokkrum árum að hann kæmi
hingað til að leikstýra, þótt atvikin
hagi því þannig nú, að þegar sýn-
ingar hefjast hef ég látið af störfum
og nýr leikhússtjóri, Þorsteinn
Bachmann, verður tekinn við.“
Frumsýning á Hamlet hjá Leik-
félagi Akureyrar verður 28. sept-
ember.
Morgunblaðið/Kristján
Samkomuhúsið á Akureyri, heimili Leikfélags Akureyrar.
Hamlet hjá LA
OFARLEGA í vesturbæ Manhatt-
aneyju eru mæðgurnar Meg (Jodie
Foster) og Sara (Kristen Stewart),
dóttir hennar um fermingu, að búa
sig undir svefninn. Framundan
fyrsta nóttin í íbúðinni sem þær voru
að kaupa, glæsilegri eign á þremur
hæðum í virðulegri múrsteinsbygg-
ingu á einum dýrasta stað á jarðríki.
Þeim er heldur ekki aura vant því
Meg er nýskilin við margmilljarða-
mæringinn mann sinn, sem búinn er
að finn nýrri árgang af hjásvæfu.
Á hinn bóginn kemur í ljós að mikið
vantar uppá öryggið í þessari svim-
andi fögru fasteign – jafnvel þótt hún
sé útbúin öryggisklefa, griðastað með
öllum hugsanlegum hátækniútbúnaði
þar sem eigandinn getur leitað skjóls
bak við margfaldar stáldyr og járn-
benta steinsteypu ef utanaðkomandi
hætta steðjar að. Öryggisherbergið,
eða „panic room“, setur hroll að Meg,
engu að síður þarf hún á skjóli þess
að halda strax fyrstu nóttina. Hún
vaknar upp, sér á sjónvarpsskjánum
sem fylgist með öllu í þessari risa-
vöxnu íbúð, að þrír óboðnir gestir
hafa ráðist til inngöngu. Meg vekur
Söru og hraða mæðgurnar sér síðan í
virkið. Það má ekki tæpara standa,
þungar stálhurðirnar smella á nef
bófanna.
Innbrotsþjófarnir eru þrír; auð-
mannssonurinn Junior (Jared Leto),
öryggisskápasmiðurinn Burnham
(Forest Whitaker) og bófinn Raoul
(Dwight Yoakam). Junior er einn af
erfingjum nýlátins, sérviturs auðkýf-
ings, eiganda íbúðarinnar á undan
Meg. Junior hefur komist að því að
karlinn á falið morð fjár í leynihólfi í
öryggisherberginu og veit nú enginn
af því annar en hann. Íbúðin selst
hinsvegar fyrr en talið var og vand-
ræðin byrja hjá Junior og samverka-
mönnum hans um leið og þeir stíga
inn fyrir dyrnar.
Samstundis hefst þráskák bragð-
vísi og blekkinga sem verður æ harð-
svíraðri. Ræningjarnir gera hvað
þeir geta að komast að fjársjóðnum,
mæðgurnar verjast með ráðum og
dáð auk þess sem þær reyna að ná
sambandi við umheiminn, sem er ill-
mögulegt. Þá er Sara litla með syk-
ursýki og þarf fljótlega að fá insúl-
ínskammtinn sinn, sem er utan
klefaveggjanna.
Svo sem ekki margflókinn sögu-
þráður og ekki tiltakanlega frumleg-
ur. Manni skilst að öryggisherbergi
sem þessi séu að verða æ algengari
úti í hinum stóra heimi og sjálfsagt
tímaspurning hvenær auðlegð, of-
sóknaræði og stigmagnaður djöful-
skapur afbrotamanna í okkar eigin
umhverfi verður þess valdandi að þau
verða hluti af íslenskum raunveru-
leika. (Ef þau eru ekki orðin það.)
Kringumstæður sem þessar geta
tæpast skapast nema í skáldskap og
lipur handritshöfundur, David Koepp
(Jurassic Park, Carlito’s Way, Spider
Man), gætir þess að ofbjóða ekki
skynsemismörkum áhorfandans.
Sögufléttan heldur lengst af, uns fer
að reyna á þolrifin undir lokin. End-
urtekningar verða að aðgerðaleysi og
endalokin gömul lumma að hætti The
Treasure of the Sierra Madre.
Leikurinn er upp og ofan. Mest
mæðir á Jodie Foster, sem getur sýnt
ágæta tilburði þegar efnið hentar
hennar kuldalega, nánast fráhrind-
andi persónuleika. Sem hin varnar-
lausa og örvinglaða móðir er hún
ámóta sannfærandi og Roy Keane í
kvenmannsklæðum. Leikararnir sem
túlka hinn ólíka hóp innbrotsmann-
anna eru nokkuð þéttir en lítil per-
sónueinkenni og óspennandi sam-
ræður hjálpa þeim ekki frekar en
Foster.
Þrátt fyrir allt er Panic Room
vönduð og vel gerð afþreying í flesta
staði og ekki við David Fincher að
fást þótt árangurinn í heild sé aðeins í
rösku meðallagi. Myndinni er vel
leikstýrt, hún er vel klippt og tekin
enda úrvalsmannskapur á borð við
Conrad Hall, Darius Khondji og
Howard Shore í ábyrgðarstöðum.
Fincher heldur því áfram að vera
einn þeirra leikstjóra sem hvað mest-
ar vonir eru bundnar við nú um
stundir. Hann kom fyrst á óvart með
fáséðri tónleikamynd með Aeros-
mith, þeim ódrepandi hörkurokkur-
um (prýdd Aliciu Silverstone, Edw-
ard Furlong, Liv Tyler, dóttur
Stevens o.fl.). Í kjölfarið komu þrjár,
einkar athyglisverðar og sterkar
myndir: Alien 3, Seven og The Fight
Club. Vonandi verður handrit Mis-
sion: Impossible 3, næstu myndar
hans, mun bitastæðara en það sem
hann glímir við að þessu sinni.
Ófriður í öryggisklefa
„Þrátt fyrir allt er Panic Room vönduð og vel gerð afþreying.“
KVIKMYNDIR
Smárabíó
Leikstjóri: David Fincher. Handrit: David
Koepp. Kvikmyndatökustjórar: Conrad
W. Hall og Darius Khondji. Tónlist: How-
ard Shore. Aðalleikendur: Jodie Foster,
Forest Whitaker, Dwight Yoakam, Jared
Leto, Kristen Stewart, Ann Magnuson.
Sýningartími 110 mín. Columbia. Banda-
ríkin 2002.
PANIC ROOM/ÖRYGGISHERBERGIÐ
½
Sæbjörn Valdimarsson
SUMARTÓNLEIKARÖÐIN Bláa
kirkjan á Seyðisfirði fer nú af stað í
fimmta sinn. Tónleikar verða tíu að
þessu sinni og sem
fyrr haldnir í Seyðis-
fjarðarkirkju á mið-
vikudagskvöldum kl.
20.30. Fyrstu tónleik-
arnir verða 19. júní og
koma þá fram Borgar-
dætur, Ellen Krist-
jánsdóttir, Andrea
Gylfadóttir og Berg-
lind Björg Jónasdótt-
ir.
Páll Óskar Hjálm-
týsson og Monika
Abendroth hörpuleik-
ari verða á tónleikum
26. júní. Sigurður
Rúnar Jónsson, Diddi
fiðla 3. júlí, en Aðal-
heiður Borgþórsdóttir mun m.a.
syngja með honum. Ásgerður Júní-
usdóttir mezzosópran verður á tón-
leikunum 10. júlí ásamt Hildi
Högnadóttur píanóleikara.
Frá Þýskalandi koma gestir á
tónleikunum 17. júlí. Það er org-
elleikarinn Wolfgang Portugall og
kona hans, Judith Portugall flautu-
leikari. Tónleikarnir 24. júlí eru
gospeltónleikar. Þar koma fram
Patricia Randolph söngvari og
Edward Cohee píanóleikari. Þau
munu halda gospelnámskeið fyrir
söngvara og hljóðfæraleikara dag-
ana 23. og 24. júlí og munu þátttak-
endur væntanlega taka
þátt í tónleikunum um
kvöldið.
Djasssöngkonan
Kristjana Stefánsdótt-
ir kemur á tónleikana
31. júlí, ásamt djass-
píanóleikaranum Agn-
ari Má Magnússyni.
Frá Amsterdam hinn
7. ágúst kemur dúett-
inn Gunnhildur Ein-
arsdóttir, sem spilar á
barokkhörpu, og Paul
Leenhout, sem spilar á
blokkflautur. Norskt
tónlistarfólk verður á
tónleikum 14. ágúst í
tilefni af norskum dög-
um á Seyðisfirði dagana 11.–18.
ágúst.
21. ágúst verða lokatónleikar og
er efnisskráinn tileinkuð þeim
bræðrum Jónasi og Jóni Múla
Árnasonum, sem bjuggu á Seyðis-
firði á æskuárum. Einar Bragi
Bragason, saxófónleikari og tónlist-
arskólastjóri á Seyðisfirði, skipu-
leggur tónleikana ásamt Ágústi Ár-
mann Þórlákssyni frá Neskaupstað
og fleira tónlistarfólki af Austur- og
Suðurlandi.
Breitt efnisval
á tónleikum
Bláu kirkjunnar
Ásgerður
Júníusdóttir
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦