Morgunblaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 42
UMRÆÐAN 42 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í UMSÖGN Nátt- úruverndar ríkisins um mat á umhverfis- áhrifum vegna Norð- lingaölduveitu, sem birt var á vefsíðu stofnunarinnar 3. júní, er á nokkrum stöðum vitnað í skrif mín um vatnafar í Þjórsárver- um. Umsögnin er óvandlega unnin al- mennt en út í það fer ég ekki hér að öðru leyti en því sem snýr beint að rannsóknum mínum. Á bls. 11 í umsögn Náttúruverndar er örstutt setning tekin úr skýrslu eftir mig, hún slitin úr samhengi og blásin út. Síðan er eytt tölverðu púðri í að skjóta hana niður. Þar segir: „Sveiflur í grunnvatnsborði að vetri hafa ekki mikil áhrif á vöxt eða vaxtarskilyrði gróðurs (Árni Hjartarson 1999).“ Þessi fullyrðing kemur í kjölfar þess að fullyrt er að grunnvatnsborð verði tiltölulega stöðugt frá miðjum júní og fram í nóvember en miklar sveiflur í því annars að vetri til. Framangreind fullyrðing er án nokkurra röksemda um hvers vegna grunnvatnsbreyt- ingar að vetri til hafi engin áhrif á vaxtarskilyrði gróðurs. Rannsóknir Þóru Ellenar Þórhallsdóttur (1993) sýna þvert á móti [að] miklar grunnvatnsbreytingar að vetri til þegar efsta lag jarðvegsins er fros- ið muni valda töluverðri röskun um- fram frostlyftingu. Klaki í jarðvegi bráðnar, rústir hrynja, gróðurhula og jarðvegur fer á hreyfingu langt umfram frostlyftingu á ákveðnum svæðum og eftir stendur flag með smávöxnu naflagrasi. Viðkomandi gróðursvæði verður viðkvæmara fyrir rofi og þar með uppblæstri. Þjórsárveranefnd telur áhrifin van- metin og engin rök fyrir áliti fram- kvæmdaraðila enda hefur komið í ljós að um ,,hugleiðingar Árna Hjartarsonar er að ræða[“] (RÚV 14.5. 2002). Hér er margt sem kemur und- arlega fyrir sjónir. Í fyrstu setn- ingu er réttilega eftir mér haft að sveiflur í grunnvatnsborði að vetri hafi ekki mikil áhrif á vöxt eða vaxtarskilyrði gróðurs. En í þriðju setningu er umsögn mín allt í einu orðin að fullyrðingu um að sveifl- urnar hafi engin áhrif. Augljós mis- túlkun sem gefur því miður tóninn í því sem á eftir fer. Skoðun minni er síðan vísað á bug sem órökstuddri, enda stangist hún á við rannróknir Þóru Ellenar Þórhallsdóttur frá 1993. Í fyrsta lagi er það rangt að niðurstaða mín sé „án nokkurra röksemda“. Röksemdirnar eru á bls. 13 í skýrslu minni um vatnafar í Þjórsárverum frá 1999 sem allir geta lesið á netsíðunni nordlinga- alda.is (þar er raunar verið að tala um lónhæð 578–9 m y.s. en ekki 575, en rökin gilda líka við lægri töluna). Þar segir m.a. að grunn- vatnssveiflur við Norðlingaöldulón geti orðið allmiklar, einkum við ströndina ofan stíflu. Þessar sveifl- ur fari svo dvínandi upp með lón- inu. Áhrif lóns á grunnvatnsborð í verunum ofan lóns verði lítil. Þar eru það jökulkvíslarnar frá Hofs- jökli sem ráða grunnvatnshæðinni en hún er mjög víða upp undir yf- irborði. Rökstudd nið- urstaða mín varð því sú að vetrarsveiflur í grunnvatnsborði kæmu ekki til með að hafa mikil áhrif á vöxt eða viðgang gróðurs við Norðlingaöldulón. Borgþór Magnússon, plöntuvistfræðingur hjá Náttúrufræðistofn- un Íslands, kemst að svipuðum niðurstöðum og ég um umfang bak- vatnsáhrifa lónsins í skýrslum sínum frá 1999 og 2002 (sjá nor- dlingaalda.is). Nátt- úruvernd ríkisins kýs að hundsa þær og getur þeirra ekki í heim- ildaskrá. Í öðru lagi eiga rannsóknir Þóru Ellenar frá 1993 alls ekki við í þessu sambandi. Af samhenginu í áliti Náttúruverndar kynni maður að halda að um væri að ræða grunnvatnsathuganir við Norðlinga- öldulón en það er blekking, því þeg- ar að er gáð eru þetta rannsóknir á áhrifum vatnavaxta í Kvíslaveitu. Þær fjalla um krapastíflur og af- leiðingar vetrarflóða á gróður. Sem sagt um áhrif yfirborðsvatns en ekki grunnvatns, þær eru um vatnavexti að vetri en við Norð- lingaöldulón á vatn að vera í lág- stöðu að vetri, sem dregur mjög úr áhrifum vetrarflóða á gróður utan lóns. Hin hrollvekjandi upptalning; að röskun verði umfram frostlyft- ingu, að klaki í jarðvegi bráðni, rústir hrynji, gróðurhula og jarð- vegur fari á hreyfingu og verði við- kvæmari fyrir rofi og þar með upp- blæstri, á fyrir vikið engan veginn heima hér. Mér er raunar hulið við hvað er átt þegar talað er um hreyfingar eða röskun umfram frostlyftingu. Kann Náttúruverndin skil á því? Af textanum verður ekki annað séð en þetta sé úr áður- nefndri grein Þóru Ellenar, en það er blekking, því hún nefnir hvergi frostlyftingu. Hér er ranglega farið með heimildir. Rannsóknir Þóru Ellenar á vetr- arflóðum í Kvíslaveitu breyta sem sagt ekki rökstuddum niðurstöðum mínum um áhrif grunnvatnssveiflna í grennd við Norðlingaöldu, enda er hér um óskyld fyrirbrigði að ræða. Þá er komið að síðustu setning- unni í tilvitnuninni hér að ofan og þeirri sérkennilegustu. Í fyrsta lagi er þar, sem og víðar í umsögninni, ekki gerður greinarmunur á mér og svokölluðum framkvæmdaraðila, þ.e. Landsvirkjun. Það er eins og ég persónulega ætli í Norðlinga- ölduframkvæmdir. Þetta er óþarfa ónákvæmni í orðalagi. Í öðru lagi segir að í ljós hafi komið í rík- isútvarpinu þann 14. maí árið 2002 að áhrif grunnvatnssveiflna á gróð- ur séu engin rök heldur hugleið- ingar Árna Hjartarsonar. Í fagur- bókmenntum kallast svona setning „stílfræðileg skrauthvörf“ en í fag- legum texta er þetta einfaldlega klúður og rangfærslur. Ég kom ekki í útvarp þennan dag og sendi ekki frá mér neinar yfirlýsingar. Þar að auki er hér ekki um hugleið- ingar að ræða heldur skrifaða vís- indalega niðurstöðu í opinberri skýrslu sem er margumrædd og ívitnuð. Svona ófagleg vinnubrögð eru ekki boðleg í virðulegu nefnd- aráliti. Nú hef ég bent á sjö atriði í stuttu textabroti úr umsögn Nátt- úruverndar sem ýmist eru mis- færslur, ónákvæmni eða klúður. Ég legg því til að stofnunin felli hina tilvitnuðu klausu úr áliti sínu. Í leið- inni mætti prófarkalesa umsögnina í heild því þar eru allt of margar ritvillur og orðalýjur. Eftir stæði vandaðra plagg og þá mættu allir betur við una. Orð í eyra Náttúruverndar Árni Hjartarson Höfundur er jarðfræðingur sem vinnur að sérverkefnum við Kaupmannahafnarháskóla. Norðlingaalda Nú hef ég bent á sjö atriði í stuttu textabroti úr umsögn Náttúru- verndar, segir Árni Hjartarson, sem ýmist eru misfærslur, ónákvæmni eða klúður. Að ruglast í ríminu þýddiupphaflega að ruglast ítímatali. Í þá daga töldumenn tímann á fingrum sér. Nú er hvert barn með klukku og dagatal. Samt erum við enn rugluð í ríminu, meðal annars vegna þess að tíminn herðir stöð- ugt ferðina. Löngu eftir fyrsta sumardag heyrist sumar ársins enn kallað næsta sumar. Stuttu seinna er far- ið að bollaleggja um næsta haust. Það er kallað svo fram á haust. Ekki er sá tími fyrr kominn en far- ið er að nefna hið fyrrverandi næsta sumar síðasta sumar. Haustið er ekki langt. En það er varla byrjað þegar farið er að kalla það síðasta haust. Þá er þegar orð- ið altalað að næsti vetur sé í aðsigi. Hér líður tíminn á ensku. Á síð- asta föstudag vantar ekkert nema greininn, þá mætti ákvarða dóms- dag með nokkurra daga ná- kvæmni. Um daginn var ég spurð- ur þessarar samviskuspurningar yfir bílvélinni: Hvenær fór hann í síðustu smurningu? Toyotan mín er ekki einu sinni kaþólsk. En við þetta tækifæri er skipt um olíu á manni í hinsta sinn. Víst geta allar árstíðir verið næstar hér á landi, jafnvel allar í einu. En næsti þýðir fyrst og fremst næstur í röð. Sá sem er með mörg haust í takinu getur aðgreint þau eins og girðingarstaura. Eftir hið fyrsta kemur það næsta og svo framvegis. En í dæmunum að ofan er ekki um neitt raðhaust að ræða. Þar er átt við næst-komandi haust. Það er ekki rangt að kalla það næsta haust. Hins vegar er það dá- lítið enskt og alveg ástæðulaust nema menn vilji tala ísensku. Nú er sumar. Næst kemur haust. Það er nefnilega næsta árstíð. Þar næsta árstíð er svo veturinn. En það sem gerist þetta næsta haust gerist í haust. Þá mun mega segja að það hafi verið ráðgert í sumar. Ég átti afmæli í vetur og ef sá lofar sem afmælum ræður mun ég aftur eiga afmæli í vetur. Afmælum fylgir því miður svonefnd öldrun og því er hér um tvö afmæli að ræða þótt bæði eigi sér stað í vet- ur. Veturnir eru tveir og sagnorðin sjá alveg um að halda þeim sundur. Það er engin hætta á því að maður sem segir „Ég átti afmæli í vetur“ verði skilinn eins og hann hefði sagt „Ég átti afmæli eftir hálft ár“. Íslendingar geta minnst alda, ára, árstíða, mánaða, vikna, daga og nátta og sömuleiðis hugsað fram í tímann á ótal vegu. Í fyrra og hitteðfyrra, að vetri, að ári, á sumri komanda, í nótt eða nótt sem leið, á næstliðinni öld, á föstudag- inn var, í fyrra mánuði, á mánu- daginn kemur, síðastliðinn mið- vikudag, í fyrrahaust og svo framvegis. Það rýrir bæði mál og hugsun að nota síðasta og næsta á þetta allt. Þegar sagt verður við okkur á morgun „Þú hraust alveg hrikalega síðustu nótt“ skulum við svara fullum hálsi „Nei, ég hraut alveg hrikalega í nótt og það skal ég líka gera aftur í nótt!“ – – – Enska er hinn mesti fjársjóður. Hún á hins vegar ekki heima í ís- lensku. Hún er ekki á flótta og við þurfum ekki að veita henni hæli. Hún er stórmál, íslenskan smámál. Enskan kemst af án okkar. Það er sjálfsagt að við notfærum okkur hana. En þegar menn ganga á reka hirða þeir ekki allt sem þeir finna. Þeir hirða það sem búið þarf með. Það sést lang- ar leiðir þegar tökuorð festist í málinu. Hitt er ógreinilegra, þegar útlenskan smýgur í það eins og í dæmunum að ofan. Þar eru orðin íslensk, notkunin ensk. Þessi tungumál eru ekki ósvipuð og Davíð og Golíat í vextinum. Það má vel vera að tækist að end- urhæfa Golíat ef nógu margir þroskaþjálfar eltu hann og teygðu. En meðan hann hugsar ekki kristi- legar en hann gerir held ég að við megum ekki líta af honum. Ég vil ekki hvetja til þess að við reynum bókstaflega að dauðrota enska tungu með grjótkasti. En góð meining gerir mikla stoð. Sjálfur er ég svo gamall sem á grönum má sjá og alltaf fer um mig smáhrollur þegar ég er spurður: Hvenær var síðasta afmælið þitt? – – – Brot úr tónlistarsögu: Átti að spila á 17. júní. Ekkert kom. Lúð- urinn tengdur við loftpressu. Þá fannst hamsturinn sem hvarf á 13. febrúar. Settur í hreinsun (lúð- urinn). Fæ hann aftur á 7. júlí. Nú líður að því að menn þurfa að þreifa oní lúðurinn. 17. júní fer í hönd. Hann þarf ekkert á með sér frekar en 1. maí eða dagurinn þeg- ar hamsturinn hvarf, nema hann sé nefndur gælunafni sínu sautjándinn: „Við vorum pikkföst í mannþrönginni upp við ræðupall- inn þegar Bibbi sagði: ‘Mamma, é búna …’ Því gleymi ég aldrei. Það var á sautjándanum.“ Þarna er far- ið með sautjándann eins og viku- dag. Um dagsetningar með tölum eins og hamingjudaginn 7. júlí sem ég fæ lúðurinn aftur gildir svokall- að tímaþolfall. Menn geta sett hvaða dag sem er í þolfalli fyrir framan töluna, þá sjá þeir hvers kyns er: Mánudaginn 17. júní ber að þessu sinni upp á þjóðhátíð- ardaginn. – – – Ísland varð ekki í fyrsta sæti, segir iðulega í íþróttafréttum og alltaf lofa ég Guð. Margt getur sögnin að verða þýtt en eina vitið sem ég sé í henni í þessu sambandi er að drepast. Ég veit að íþróttir eru misþyrmingar. Skemmst er að minnast hinnar hroðalegu fréttar Skalli Guðlaugar fór rétt framhjá markinu. Jafnvel dvergþjóð getur lagt sitt af mörkum til að draga úr ofbeldinu með því að komast í fyrsta sæti, ná því, lenda í því, krækja í það, hlamma sér í það, hreppa það, hljóta það eða vinna það. Þannig má lengi telja en þetta ætti að duga í bili til að orða sigur okkar í heimsmeistarakeppninni næstu árin. Þegar menn ganga á reka hirða þeir ekki allt sem þeir finna asgeir@mbl.is ÍSLENSKT MÁL Eftir Ásgeir Ásgeirsson HLUTVERK for- eldra tekur á sig sí- breytilega mynd frá því augnabliki sem þeir eignast barn og þar til það verður sjálfráða. Þrátt fyrir það er hlutverk for- eldra í lífi barns alltaf jafnmikilvægt. Mikil- vægast af öllu er að foreldrar gefi sér tíma með börnum sínum; kynnist þeim, þekki þau og séu vinir þeirra. Þetta á við allt frá fæðingu. Íslenskar rannsóknir hafa leitt í ljós að samverustundir fjölskyldunnar hafa forvarnagildi þegar neysla barna og unglinga á áfengi og vímuefnum er skoðuð – tengsl eru milli mikilla samveru- stunda og lítillar neyslu. Unglingsárin eru mótunarár í víðum skilningi. Sjóndeildarhring- urinn víkkar og alvara lífsins fer að gera vart við sig. Ef einstaklingur leiðist á annað borð út í neyslu eru unglingsárin líklegasti tíminn. Rannsóknir hafa sýnt að þeim mun yngri sem einstaklingurinn er þeg- ar hann leiðist út í neyslu, þeim mun meiri líkur eru á að það muni hafa neikvæð áhrif á líf hans. Al- þjóðlegar kannanir sem gerðar hafa verið meðal ung- linga á grunnskóla- aldri, þar sem spurt hefur verið um áfeng- is- og vímuefnaneyslu, sýna að staða Íslands hefur batnað á undan- förnum árum. Samt sem áður eru þeir enn of margir sem rata í raunir vegna neyslu. Vegna þessa er mik- ilvægt að foreldrar þekki sín börn og leggi sitt af mörkum til að sporna gegn því að barnið rati á villigötur. Til að undirstrika mikilvægi samveru- stunda fjölskyldunnar og ábyrgð foreldra hefur Saman-hópurinn, sem er samstarfsvettvangur ýmissa stofnana og samtaka sem vinna að velferð barna og ungmenna, látið útbúa auglýsingar þar sem 18 ára ábyrgð foreldra er í brennidepli. Birtar eru myndir af ungbarni ann- ars vegar og unglingi hins vegar, með yfirskriftinni ,,18 ára ábyrgð“, til að minna á að foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum í 18 ár hið minnsta samkvæmt lögum. Einnig eru þrjú lykilatriði í hlutverki for- eldra dregin fram: Nærgætni, virð- ing og handleiðsla. Nærgætni eða umhyggjusemi er mikilvæg hvort sem um ungbarn eða ungling er að ræða; unglingar þurfa ekki síður á faðmlagi að halda en ungbörn. Virðingu ber auðvitað að sýna hverjum einstaklingi, óháð aldri, þroska og getu. Reynslan kennir okkur sitthvað og henni ber okkur foreldrum að miðla til barnanna, setja þeim mörk og leiða þau á rétt- ar brautir. Samhliða auglýsingunum er starfræktur vefur, vimuvarnir.is. Þar er að finna ýmsar haldgóðar upplýsingar sem foreldrar og for- ráðamenn geta stuðst við. Upplýs- ingar um uppeldi, vanda sem upp getur komið og hvernig hægt er að taka á honum er meðal þess sem er að finna á fyrrnefndum vef. Það er von okkar að þetta fram- tak mælist vel fyrir og veki foreldra til umhugsunar um hlutverk sitt og í hverju samband þeirra við barn sitt felst. Höfum það hugfast að þegar kemur að forvörnum er þátt- ur foreldra ómetanlegur. Nærgætni, virðing og handleiðsla foreldra innifalin Ragnheiður Jónsdóttir Foreldrahlutverk Rannsóknir hafa leitt í ljós, segir Ragnheiður Jónsdóttir, tengsl milli samveru fjölskyldunnar og lítillar neyslu barna og unglinga á áfengi og vímuefnum. Höfundur er verkefnisstjóri Áfengis- og vímuvarnaráðs, sem skrifar fyrir hönd Saman-hópsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.