Morgunblaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 57
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 57
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Fararstjóri:
Lilja Hilmarsdóttir.
Stórglæsileg ferð um hjarta Evrópu þar sem þú getur notið
fegurstu staða Mið-Evrópu og siglt hina frægu leið frá Passau til
Vínar á ótrúlegum kjörum og upplifað fegurð Ítalíu, Austurríkis
og Ungverjalands í sömu ferðinni.
Aðeins 30 sæti í boði
Sigling á
Dóná
29. ágúst - 12. september
frá kr. 139.950
29. ágúst. Flug til Bologna. Brottför kl. 12.30. Lending í Bologna kl. 19.00. Ekið til
Riva sem er staðsett við norðanvert Gardavatnið. Gist þar í eina nótt.
30. ágúst. Ekið frá Riva yfir til Austurríkis til hins fallega bæjar Kitzbuhel. Skíðabær
sem umvafin er fegurð Austurrísku Alpanna. Dvalið þar í eina nótt.
31. ágúst. Ekið til Passau, þaðan sem siglt er.
Sigling á Dóná með MS Bonaventura Pearl 31. ágúst – 7. september.
31. ágúst Passau
1. september Melk
2. september Esztergom
2. september Budapest
3. september Budapest
4. september Bratislava
5. september Vín
6. september Vín
6. september Dürnstein
7. september Passau
7.–10. september. Ekið frá Passau til Tegernsee. Tegernsee er lítið stöðuvatn skammt
sunnan við Munchen. Einstök náttúrufegurð prýðir staðinn. Tegernvatnið kúrir í faðmi
hárra fjalla og litlir bæir standa allt í kring um vatnið. Dvalið þar í 3 nætur.
10.–12. september. Ekið frá Tegernsee til Mantova. Fallegur miðaldarbær í hjarta
Lombardi héraðsins. Skammt sunnan við Verona. Dvalið í Mantova síðustu tvær næturnar
12. september. Dagurinn tekinn snemma og ekið til Bologna þaðan sem flogið er til
Íslands kl. 9.00. Lent í Keflavík kl. 11.30.
Fullt fæði um borð.
Skoðunarferðir um helstu
bæi og borgir.
Verð kr. 139.950
Innifalið: Flug, gisting með morgunverði,
hálft fæði við Tegernsee og vikusigling á
Dóná með fullu fæði. Akstur á milli
áfangastaða og fararstjórn. M.v. neðra
þilfar, flugvallarskattar.
Ekki innifalið: Kynnisferðir og
aðgangseyrir á söfn og tónleika.
Raðhús - Víkurhverfi
Vönduð og vel skipulögð 190 fm raðhús á einni
í Víkurhverfi, Grafarvogi. 4 svefnherb. Bílskúr.
Tvö af raðhúsunum eru með tvöfaldan bílskúr.
Upplýsingar í símum 896 1606 og 557 7060.
Skógræktarfélag
Hafnarfjarðar
Fuglaskoðun í
Höfðaskógi
Á MORGUN, sunnudaginn 9. júní,
mun Skógræktarfélag Hafnarfjarð-
ar standa fyrir fuglaskoðunarferð
um Höfðaskóg og nágrenni Hvaleyr-
arvatns. Fuglaskoðararnir Hannes
Þór Hafsteinsson, Þorkell Þorkels-
son og Steinar Björgvinsson munu
leiðbeina og segja frá því, sem fyrir
augu ber í ferðinni.
Lagt verður af stað frá starfs-
mannahúsi félagsins, Höfða í Höfða-
skógi við Kaldárselsveginn, klukkan
10.00 árdegis.
Eru þátttakendur hvattir til að
hafa með sér sjónauka. Áætlað er, að
gangan muni taka um tvær klukku-
stundir.
Fuglaskoðun í
friðlandinu í Flóa
FUGLA- og náttúruskoðun verður í
friðlandinu í Flóa sunnudaginn 9.
júní kl. 16. Lagt verður upp í göngu
eftir fræðslustíg um friðlandið frá
Stakkholti kl. 16.
Friðlandið er við austurbakka Ölf-
usár. Ekið er þangað frá afleggjara
að bænum Sólvangi og er vegvísir
við Eyrarbakkaveg, sem á stendur:
Nesengjar, friðland fugla. Um 4 km
eru frá þjóðveginum að Stakkholti.
Sérfróðir leiðbeinendur verða til
staðar, segir í fréttatilkynningu.
Nánari upplýsingar um friðlandið
eru á heimasíðu Fuglaverndar-
félagsins www.fuglavernd.is
Húmanistaflokkurinn
kærir til sýslumanns
Vill ógilda
kosningar í
Reykjavík
HÚMANISTAFLOKKURINN
hefur kært aðdraganda og niður-
stöður sveitarstjórnarkosninga í
Reykjavík til sýslumanns. Í til-
kynningu frá Húmanistaflokknum
segir að kæran sé lögð fram vegna
brota á jafnræðisreglu stjórnar-
skrár Íslands, brota á útvarpslög-
um og brota á lögum um sveit-
arstjórnarkosningar frá 1998.
Farið er fram á að sýslumaður
ógildi sveitarstjórnarkosningar í
Reykjavík og að boðað verði til
nýrra kosninga jafnframt því sem
framgangur fjölmiðla í að mis-
muna framboðum í aðdraganda
kosninganna verði fordæmdur.
Krafist er þess að sýslumaður gefi
út yfirlýsingu um nauðsyn þess að
löggjafarvaldið endurskoði kosn-
ingalöggjöfina með tilliti til þess
að tryggja jafnræði allra framboða
í aðdraganda kosninga skv. 65. gr.
stjórnarskrárinnar og 9. gr. út-
varpslaga.
Þá er þess krafist að sýslumaður
gefi út yfirlýsingu um nauðsyn
þess að prentmiðlar, sem ekki eru
sérblöð um einstök málefni, verði
settir undir svipuð lög og útvarps-
lög til að tryggja grundvöll lýð-
ræðis í landinu. Farið er fram á að
viðurlögum verði beitt til að taka á
brotum ljósvakamiðla á útvarps-
lögum og ljósvakamiðla og annarra
miðla á kosningalögum.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
LEIÐRÉTT
Rangur myndatexti
Rangt var farið með nöfn í mynda-
texta með frétt um úthlutun Poka-
sjóðs í blaðinu gær. Réttur mynda-
texti er svona: Höskuldur Jónsson,
stjórnarmaður í Pokasjóði, veitir
Haraldi Erni Ólafssyni styrk úr
Pokasjóði verslunarinnar í Lista-
safni Sigurjóns Ólafssonar.
Piltur handleggsbrotnaði
Missagt var í frétt í Morgun-
blaðinu á miðvikudag að ekið hafi
verið á unga stúlku á Bústaðavegi
við Grímsbæ. Hið rétta er að ekið var
á pilt og mun hann hafa handleggs-
brotnað illa. Er beðist velvirðingar á
þessum mistökum.
Ráðstefnuaðstaða
2.000 fermetrar
Ónákvæmni gætti í fyrirsögn við
frétt af stækkun Esju í blaðinu í gær.
Sagði þar að ráðstefnusalur, sem
fyrirhugaður er í húsinu, yrði 2000
fermetrar að stærð en hið rétta er að
það er stærð allrar ráðstefnuaðstöð-
unnar sem verður í hótelinu. Salur-
inn verður 520 fermetrar en verður
engu að síður stærsti ráðstefnusalur
landsins.
ÍSLENSKA ríkið hefur á undan-
förnum árum stutt kennslu í nútíma-
íslensku við fjórtán háskóla í Evr-
ópulöndum. Árlegur fundur
íslenskulektora, sem starfa við þessa
erlendu háskóla, var haldinn í Kaup-
mannahöfn dagana 24. og 25. maí sl.
Stofnun Sigurðar Nordals hefur um-
sjón með kennslu í íslensku við er-
lenda háskóla af hálfu íslenskra
stjórnvalda. Að þessu sinni skipu-
lagði Margrét Eggertsdóttir, kenn-
ari í íslensku við Hafnarháskóla,
fundinn í samráði við aðra íslensku-
lektora erlendis og stofnunina.
Á fundinum var rætt um kennslu í
íslensku fyrir erlenda námsmenn,
kennslufræði tungumála, kennslu-
efni í íslensku fyrir útlendinga og ís-
lenska menningarkynningu erlend-
is. Þá var sérstaklega fjallað um
þýðingar á íslenskum bókmenntum
á dönsku og kennsluefni í íslensku á
Netinu sem verið er að vinna í sam-
starfi milli íslenskuskorar heim-
spekideildar Háskóla Íslands, Hug-
vísindastofnunar, Stofnunar Sigurð-
ar Nordals og Wisconsinháskóla í
Madison í Bandaríkjunum. Meðal
fyrirlesara á fundinum voru Erik
Skyum-Nielsen, þýðandi, og Þóra
Björk Hjartardóttir, dósent við Há-
skóla Íslands.
Á fundinum komu fram áhyggjur
vegna þess samdráttar sem er að
verða á kennsluframboði í skandin-
avískum málum, íslensku og finnsku
við háskóla á Norðurlöndum, sem
meðal annars hefur birst í því að
ekki hefur verið ráðið í stöðu
íslenskulektors við Óslóarháskóla,
sem hefur verið laus á annað ár.
Hins vegar var lýst ánægju með
að íslensk stjórnvöld hafa nú gert
samninga við Humboldtháskóla í
Berlín og Manitobaháskóla í Winni-
peg um stuðning við íslensku-
kennslu og bætast þeir skólar við þá
fjórtán þar sem íslenskukennsla var
þegar styrkt,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Fundurinn samþykkti eftirfarandi
ályktun: „Fundur sendikennara í ís-
lensku, haldinn í Kaupmannahöfn
dagana 24. og 25. maí 2002, fagnar
auknum stuðningi yfirvalda við ís-
lenskukennslu í Winnepeg og Berlín
og hvetur yfirvöld til frekari að-
gerða á þessum vettvangi, t.d. í
Austurríki og Frakklandi, þar sem
kjör sendikennara eru lökust.
Heimspekideild Háskóla Íslands
hefur hætt fjárstuðningi við sumar-
námskeið á vegum Stofnunar Sig-
urðar Nordals. Fundurinn skorar
því á yfirvöld að þau tryggi fjárhags-
legan grundvöll námskeiðanna og
veiti áfram erlendum nemum styrki
til að sækja þau.
Fundurinn lýsir enn fremur eftir
viðbrögum menntamálaráðuneytis-
ins við þeirri úttekt, sem ráðuneytið
lét gera árið 2000 um stöðu íslensku-
kennslu erlendis. Fundurinn ítrekar
þá ályktun sendikennarafundarins í
maí 2001 að nauðsyn beri til þess að
ráðuneytið móti skýra stefnu um ís-
lenskukennslu við erlenda háskóla.“
Fundur íslenskulektora sem starfa við erlenda háskóla
Stuðningi við kennslu í
Berlín og Winnipeg fagnað
Esjudagur
fjölskyldunnar
ÁRLEGUR Esjudagur fjölskyld-
unnar verður haldinn sunnudaginn
9. júní kl. 9–16, í boði SPRON.
Samstarfsaðilar SPRON á Esju-
deginum eru Ferðafélags Íslands,
Flugbjörgunarsveitin og Nanoq.
Að þessu sinni stendur SPRON
fyrir kapphlaupi upp Esjuna og
verða veitt verðlaun fyrir efstu
þrjú sætin.
Boðið er upp á göngu yfir Esj-
una og hefðbundna göngu á Þver-
fellshorn undir leiðsögn félaga í
Skógræktarfélagi Reykjavíkur og
Ferðafélagi Íslands. Fyrir yngstu
þátttakendurna verður boðið upp
á skógarferð sem kallast skóg-
urinn og blómin. Allir þátttak-
endur á Esjudeginum taka þátt í
happdrætti og dregið verður úr
ferðavinningum frá Ferðafélagi Ís-
lands og útivistavörum frá Nanoq.
Leppin, Emmessís og Nói-Síríus
sjá til þess að allir þátttakendur
hafi næga orku fyrir gönguleið-
irnar.
Kl. 9 verður gengið yfir Esjuna
frá Mógilsá – rúta til baka, kl. 10
er skráning í Esjukapphlaupið á
bílastæðinu við Mógilsá og kl. 16
verður dregið í happdrætti Esju-
dagsins. Allir þátttakendur í Esju-
deginum eru með í útdrættinum,
segir í frétt frá SPRON.
Kennaranámskeið
í Kramhúsinu
KENNARANÁMSKEIÐ verður
haldið í Kramhúsinu dagana 13.–16.
júní. Gestakennari námskeiðsins,
Francis Firebrace frá Ástralíu, leiðir
þátttakendur inn í heim frumbyggja
í formi sagnalistar, myndlistar, tón-
lsitar og dans. Tónlistarmaðurinn
Brian Birchall mun kenna þátttak-
endum að spila á ástralska hljóðfær-
ið didgeridoo.
Aðrir kennarar eru: Orville Penn-
ant, Hafdís Árnadóttir, Elfa Lilja
Gísladóttir og fyrirlesari er Jóhann
Breiðfjörð, segir í frétttilkynningu
frá Kramhúsinu.
Nánari upplýsingar veitir Kram-
húsið, netfang: kramhusid@island-
ia.is
Hugleiðslunám-
skeið á Akureyri
BÚDDANUNNAN Gen Nyingpo
kennir á hugleiðslunámskeiði 12., 13.
og 14. júní á Glerárgötu 32, 4. hæð.
Gjald er kr. 1.000 fyrir hvert skipti
(kr. 2.400 fyrir öll þrjú skiptin) en kr.
500 fyrir nema, öryrkja og atvinnu-
lausa (1.200 fyrir öll þrjú skiptin).
Kennt er á ensku og eru allir vel-
komnir.
Nánari upplýsingar www.karuna.-
is, segir í fréttatilkynningu.