Morgunblaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 29
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 29 Viðskipta- og tölvuskólinn A L M E N N T S K R I F S T O F U N Á M Faxafeni 10 (Framtíð) · Sími 588 5810 · framtid@vt.is · www.vt.is Stutt nám – fámennir bekkir – frábær félagsskapur Námsefni: Tölvunotkun, bókhald, skrifstofutækni, tollskýrslur, íslensk og ensk viðskiptabréf, stjórnun og skipulag. Störf að loknu námi: Skrifstofustörf, ritarastörf, stjórnunaraðstoð. VIÐURKENNDUR AF MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU BANDARÍSKA samgönguöryggis- ráðið (NTSB) greindi frá því í vik- unni að 349 manns hefðu sagst hafa orðið vitni að því er þota American Airline hrapaði í Queens-hverfinu í New York skömmu eftir flugtak 12. nóvember sl., en því færi fjarri að sjónarvottarnir væru sammála um hvað gerst hefði. Rannsóknarfulltrúar, lögreglu- menn og aðrir sem tala við vitni hafa lengi vitað að frásagnir vitna eru oft óáreiðanlegar, en samantekt á fram- burði sjónarvottanna að slysinu 12. nóvember, þegar 265 manns fórust, er sláandi vegna ósamræmisins. Til dæmis kváðust 52% vitnanna hafa séð eld í vélinni, Airbus A300- 600, þegar hún var enn á lofti. En þessum vitnum ber aftur á móti ekki saman um hvar í vélinni eldurinn hafi verið, og sögðu 22% hann hafa verið í búknum en aðrir sögðu hann hafa verið í vinstri hreyfli vélarinn- ar, hægri hreyflinum, vinstri vængn- um eða hægri vængnum. 20% sögð- ust engan eld hafa séð og átta prósent sögðu að sprenging hefði orðið. Ennfremur kváðust 22% hafa séð reyk, en 20% sáu engan reyk. 18 af hundraði sögðu vélina hafa beygt til hægri, og jafn hátt hlutfall sagði hana hafa beygt til vinstri; 13% sögðu hana hafa „skoppað“ eða sveigt til hægri og vinstri. 57% sögðu hafa séð eitthvað losna frá vél- inni, en voru ekki sammála um hvað það hefði verið. Níu prósent sögðu ekkert hafa dottið af vélinni. Sum vitnanna hafa sakað NTSB um að hafa haft framburð sinn að engu, en framkvæmdastjóri ráðsins, Marion Blakey, færðist undan því að svara því hvort þessar tölur hefðu verið gerðar opinberar sem viðbrögð við þeim ásökunum. Líkt eftir fluginu Enn liggur ekki fyllilega ljóst fyr- ir hvað olli slysinu, en vitað er að lóð- rétti hluti stéls flugvélarinnar, hlið- arstýrið, brotnaði af henni nokkrum mínútum eftir að hún fór í loftið. Enn hefur ekkert komið fram sem bendir til galla í hliðarstýrinu. Annar möguleiki, sem þykir koma til greina, er að flugmenn vélarinnar hafi af einhverjum ástæðum lagt of mikið á hliðarstýrið með því að beygja til og frá. Hliðarstýrið er m.a. notað til að halda vélinni stöðugri í ókyrrð. Talið er að vélin kunni að hafa lent í flugröst Boeing 747 breið- þotu sem fór í loftið á undan henni. Blakey sagði að í næsta mánuði yrði fullkominn flughermir í bæki- stöðvum bandarísku geimvísinda- stofnunarinnar, NASA, í Kaliforníu notaður til þess að reyna að finna út hvað flugmennirnir kynnu að hafa skynjað sem hefði orðið til þess að þeir hefðu beitt hliðarstýrinu. Mun flughermirinn verða mataður á upp- lýsingum úr flugrita þotunnar svo að hægt verði að líkja eftir hreyfingum hennar. Reyndir flugmenn munu síðan „fljúga“ flugherminum og reyna að átta sig á því hvað flug- menn þotunnar hafi fundið og hvern- ig þeir kunni að hafa brugðist við. Mikið ber í milli í frásögnum sjónarvotta The Washington Post. alltaf á þriðjudögumÍÞRÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.