Morgunblaðið - 08.06.2002, Síða 44

Morgunblaðið - 08.06.2002, Síða 44
SKOÐUN 44 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa starfsfólks Áskirkju er bent á guðsþjónustur í ná- grannakirkjunum. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl. 11:00. Dómkórinn syngur. Organisti Marteinn H. Friðriksson. Prestur sr. Hjálmar Jónsson. GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Sr. Guðný Hallgrímsdóttir. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðs- þjónusta kl. 10:15. Organisti Kjartan Ólafsson. Sr. Hreinn S. Hákonarson. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11:00. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni Bjarman. Félagar úr Mótettukór syngja. Organisti Hörður Ás- kelsson. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11:00. Org- anisti Douglas A. Brotchie. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. LANDSPÍTALI Hringbraut: Guðsþjónusta kl. 10:30. Sr. Ingileif Malmberg. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Messa kl. 11:00. Prestur sr. Petr- ína Mjöll Jóhannesdóttir. Organisti Jón Stefánsson. Félagar úr Kór Langholtskirkju syngja. Kaffisopi eftir messu. LAUGARNESKIRKJA: Fullorðinsfræðsla kl. 19:00. Samvinna um prédikun, þar sem sr. Bjarni Karlsson leiðir umræður um pré- dikunarefni dagsins úr Lúkasarguðspjalli 14.16–24. Sumarmessa kl. 20:00, þar sem gert er ráð fyrir öllum aldri. Geirlaugur Sigurbjörnsson annast barnagæslu með- an á prédikun og altarisgöngu stendur. Kór Laugarneskirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Gunnars Gunnarssonar. Sr. Bjarni Karlsson þjónar og nýr meðhjálpari, Sig- urbjörn Þorkelsson, tekur við störfum. Messukaffi Sigríðar Finnbogadóttur kirkju- varðar bíður svo allra í safnaðarheimilinu. NESKIRKJA: Messa kl. 11:00. Kór Nes- kirkju syngur. Organisti Reynir Jónasson. Prestur sr. Frank M. Halldórsson. SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11:00. Altarisganga. Kvartett Seltjarnar- neskirkju syngur. Organisti Viera Mana- sek. Prestur sr. Sigurður Grétar Helgason. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Gönguguðsþjón- usta kl. 9:00. Athugið breyttan messu- tíma. Farið með langreiðum vestur að Híta- rvatni að lokinni guðsþjónustu og gengið í kringum vatnið og bændablessun í Lind- artungu að lokinni göngu. Hafa meðferðis vaðskó. Mæting til guðsþjónustu á göngu- skóm og galla. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Kvöldmessa í kirkunni kl. 20:30. Athugið breyttan messutíma. Heilög kvöldmáltíð. Tónlist í umsjón Carls Möller og Önnu Sigríðar Helgadóttur. Allir hjartanlega velkomnir. Safnaðarstarf Fríkirkjunnar. ÁRBÆJARKIRKJA: Útvarpsguðsþjónusta kl. 11:00. Prestur sr. Sigrún Óskarsdóttir. Sigrún Eðvaldsdóttir leikur á fiðlu. Kirkju- kórinn syngur undir stjórn Pavels Manásek organista. BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson mess- ar. Organisti: Hrönn Helgadóttir. DIGRANESKIRKJA: Kvöldmessa kl. 20.30. Prestur sr. Magnús B. Björnsson. Organisti: Kjartan Sigurjónsson. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 20:00. Prestur: Sr. Hreinn Hjartarson. Organisti: Lenka Mátéová. Kór Fella- og Hólakirkju syngur. GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Vigfús Þór Árnason prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur . Organisti: Hörður Bragason. HJALLAKIRKJA: Guðsþjónustur falla niður í júnímánuði vegna sumarleyfa starfsfólks safnaðarins. Við bendum á guðsþjónustur í öðrum kirkjum í Kópavogi. Sr. Íris Krist- jánsdóttir. KÓPAVOGSKIRKJA: Helgistund kl. 11:00 í umsjón Þorvaldar Halldórssonar söngvara og tónlistarmanns. Ólöf S. Jónsdóttir les ritningarlestra dagsins og Julian Hewlett leikur á orgel kirkjunnar við upphaf og lok stundarinnar. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson. SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 20.00 (ath. breyttan tíma). Sr. Ágúst Einarsson prédikar. Organisti er Gróa Hreinsdóttir. Altarisganga. Ellimálaráð Reykjavíkurprófastsdæma: Eins og undanfarin ár eru sumarguðsþjón- ustur eldri borgara í Reykjavíkurprófasts- dæmum. Þær eru samstarfsverkefni Elli- málaráðs Reykjavíkurprófastsdæma og safnaðanna sem taka á móti okkur hverju sinni. Að þessu sinni verður guðsþjón- ustan í Seltjarnarneskirkju miðvikudaginn 12. júní kl. 14:00. Sr. Sigurður Grétar Helgason predikar og þjónar fyrir altari. Litli kór Neskirkju syngur undir stjórn Ingu J. Backman. Organisti er Viera Manasek. Á eftir verða veitingar í boði Seltjarn- arnessóknar. Allir eru velkomnir. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Almenn lof- gjörðar- og fyrirbænasamkoma sunnu- dagskvöld kl. 20:00. Ræðumaður Friðrik Schram. Við fáum einnig að heyra í ungum mönnum sem nýkomnir eru úr trúboðsferð til Albaníu. Guðsþjónustur á sunnudags- morgnum falla niður í sumar. Sjónvarps- þátturinn „Um trúna og tilveruna“ er sýnd- Guðspjall dagsins: Hin mikla kvöldmáltíð. (Lúk. 14 ). MESSUR HÉR fylgir yfirlit um mótbárur gegn aðild Ís- lendinga að Evrópu- sambandinu (ESB) og rakin alkunn andsvör við þeim. – En lesend- um er eftirlátið að vega og meta. EES-samningurinn tryggir hagsmuni Ís- lendinga og við þurfum ekki aðild að ESB. EES-samningurinn dregst aftur úr þróun ESB án þess að skuld- bindingar okkar minnki. Með þessari þróun skerðast fullveldi og hagsmunir Íslendinga. ESB hefur ekki áhuga á endurskoðun samnings- ins. Full aðild að ESB mun bæta úr þessu. Með EES-samningnum erum við nú þegar þátttakendur í Evrópuþró- uninni. Með EES-samningnum er þátttaka okkar takmörkuð. Full aðild að ESB mun efla þessa þátttöku og veita okkur aðild að ákvörðunum sem snerta hagsmuni okkar. Með inngöngu í ESB ofurselja Ís- lendingar sig erlendu valdi og afsala sér fullveldi og sjálfstæði. EES- samningurinn og ESB eru þættir í al- mennri þróun. Samþætting fullveldis margra þjóða á sér stað samhliða alls- herjar-samþættingu viðskiptalífs, hagkerfa, samskipta og samfélaga. Hefðbundið fullveldi skerðist, óháð aðild að ESB, en sameiginlegt full- veldi í nýrri merkingu tekur við. Full aðild styrkir fullveldið frá því sem nú er orðið. Innan ESB verðum við algerlega komin upp á náð og miskunn meiri- hlutans. Aðildarríkjum ESB eru tryggð réttindi og áhrif. Með aðild að ESB fæst réttur til afskipta af ákvörðunum. En aðildarkjör verða aðeins ákvörðuð í aðildarviðræðum, og fyrst að þeim loknum er unnt að meta hvort niðurstaða er ásættanleg eða ekki. Íslendingar munu ekki fá sérstöðu viðurkennda innan ESB. Aðildar- samningur hefur varanlegt gildi, jafngilt meginsamning- um og lagaheimildum ESB. Undanþágur verða ekki veittar frá reglum ESB en svig- rúm er varðandi „túlk- anir“ vegna hagsmuna og landsaðstæðna. Inn- an ESB er að ýmsu leyti svigrúm og hafa t.d. Danir og Lúxem- borgarar nýtt sér það. Með auknu lýðræði í ESB aukast völd stærstu þjóðanna á kostnað smáþjóða. Reynsla hefur fengist af samstarfi og gagn- kvæmri aðstoð smáríkja innan ESB. Innan ESB hafa smáríki og héruð með sérstöðu eflst. Skiptar skoðanir eru innan ESB um nánari stjórnun- arsamruna og m.a. talsverð andstaða gegn hugmyndum um „sam- bandsríki“. ESB er ormagryfja með samninga- makki, málaflækjum, skriffinnsku- bákni og spillingu. Gamla Evrópa lætur ekki að sér hæða. Hefðir henn- ar eru miklu eldri en ESB. Brüssel-valdið er fjarlægt, óþjóð- legt og ólýðræðislegt. Innan ESB á sér stað þróun í átt til meira lýðræðis og opnari stjórnarhátta. Þar gætir einnig viðleitni aðildarríkjanna til að halda í eigin sjálfstæð völd. Svonefnd- ur „lýðræðishalli“ ESB stafar m.a. af þessu. Nálægðarreglan styrkist og hún staðfestir svæðisbundið vald og stöðu aðildarríkja. Sem aðildarland verða Íslendingar að greiða marga milljarða króna á ári til ESB. Fyrir nokkru var metið að Íslendingar yrðu sem aðildarþjóð að greiða um 8 ma.kr. á ári til ESB en um 5 ma.kr. kæmu aftur í framlögum. Einnig ber að meta áætlaðar lækk- anir á almennum viðskipta- og fjár- magnskostnaði sem nema miklu hærri fjárhæðum þegar frá líður, miðað við nýjar upplýsingar Hnatt- væðingarnefndar. Er þar um að ræða þjóðhagsleg áhrif vaxtalækkana, kostnaðarlækkun við brottfall gjald- miðlaskipta og aðrar breytingar í við- skiptum innan stærri efnahagsheild- ar. Sameiginlegur gjaldmiðill mun aldrei taka tillit til ástands efnahags- mála hérlendis. Íslenska hagkerfið er að þróast í átt til þjónustu- og upplýs- ingasamfélags og aðild að stærri heild mun ýta undir þá þróun. Hags- tjórnarárangri má ná með ríkisfjár- málum og hagstjórnartækjum. Til greina kæmi og að Íslendingar stofn- uðu sveiflujöfnunarsjóð við inngöngu í ESB. Með sameiginlegum gjaldmiðli getum við ekki varist skyndisveiflum og atvinnuleysi. Ný athugun Sam- taka atvinnulífsins sýnir að íslenskur launamarkaður er sveigjanlegur og stuðlar það að öryggi í atvinnumálum og lífskjörum. Innan stærra gjaldeyr- iskerfis og hagkerfis verður Ísland einnig að njóta svigrúms í skattamál- um og ríkisfjármálum, og samstarf Seðlabanka Evrópu gerir ráð fyrir svæðisbundnu svigrúmi í peninga- málum. Sjávarútvegsstefna ESB er og verður óþolandi. Sjávarútvegsstefna ESB byggist á því að fiskimönnum sé ekki mismunað eftir þjóðerni á þeim miðum sem tilheyra aðildarríkjum, einkum varðandi sameiginlega veiði- stofna á samliggjandi fiskimiðum. Stefnt er að því að skipuleggja nýt- ingu, byggða á hlutfallslegum stöðug- leika, þ.e. veiðireynslu aðildarþjóða, og á nálægðarreglu við fiskveiði- stjórnun og eftirlit. ESB hefur haft reglur til að halda Spánverjum í skefjum, og hafa þeir t.d. hingað til ekki mátt veiða í Norðursjó eða við Orkneyjar og Hjaltland. Samkvæmt reglu veiðireynslu og nálægðarreglu o.fl. þarf þessi stefna ekki að vera óþolandi fyrir Íslendinga. Ákvarðanir um hámarksafla á Ís- landsmiðum verða teknar í Brüssel. Allt bendir til að þessar ákvarðanir verði teknar um tillögur íslenska sjávarútvegsráðherrans og að þær verði byggðar á ráðgjöf íslenskra vís- indamanna. Aðeins Íslendingar hafa veiðireynslu á Íslandsmiðum og sam- kvæmt reglunni um hlutfallslegan stöðugleika munu Íslendingar einir sitja að veiðum á þessum miðum. Ís- landsmið liggja ekki að strandmiðum Vestur-Evrópu heldur eru sérstakt svæði og má ætla að samkvæmt sjáv- arútvegsstefnu ESB ætti sérstök stjórnun að vera á þessu hafsvæði. Hver aðildarþjóð hefur eigið fisk- veiðistjórnunarkerfi samkvæmt ná- lægðarreglu. Íslendingar munu innan ESB glata hlutdeild í deilistofnum og úthafs- veiðum. Samkvæmt reglu um veiði- reynslu ætti slíkt ekki að verða. En ævinlega verður hart sótt í fiskveiði- málum óháð ESB og við megum í engu slaka til. Við aðild verðum við að opna fyrir fjárfestingar útlendinga í sjávarút- vegsfyrirtækjum. Skiptar skoðanir eru um erlendar fjárfestingar innan sjávarútvegarins hér. Aðildarþjóðir ESB geta haft varnarreglur vegna brýnna hagsmuna. Má nefna fyrir- tækjarekstur og landareignir á Álandseyjum og sumarbústaði í Dan- mörku, og Bretar hafa reglur um staðartengsl útgerðarfyrirtækja í rekstri og viðskiptum hvað sem eign- arhaldi líður. Reglan um hlutfallslegan stöðug- leika er ekki eins sterk og reglan um jafnt aðgengi. Þessar reglur rekast ekki á þegar kemur að hagsmunum þjóða eða héraða. Við endurskoðun fiskveiðistefnu ESB hefur regla hlut- fallslegs stöðugleika verið staðfest ásamt nálægðarreglunni. Fiskveiðistjórnun ESB er í molum. Þeim mun brýnna er að Íslendingar taki til hendinni á þessu mikilvæga sviði. Garðyrkja, grænmetisrækt, svína- og alifuglarækt munu leggjast af hér við aðild að ESB. Unnt er að semja um aðlögunartíma til atvinnuþróunar og það er farsælla en að halda í fyrri störf óbreytt. Aðildin að EFTA fór t.d. illa með ýmsar iðngreinar en greiddi jafnframt fyrir nýrri atvinnu- sköpun. Aðild að ESB mun valda röskun í mjólkuriðnaði og leggja sláturiðnað- inn í rúst. Líklega munu bændur ekki verða fyrir kjaraskerðingu, m.a. vegna styrkjakerfis ESB. En breyt- ingar verða í afurðastöðvum og erf- iðleikar í sláturhúsum. Þetta er þó frekar til marks um skipulags- og rekstrarvanda sem nú þegar er fyrir hendi. Í ESB gilda sérstakar reglur um landbúnað á norðurslóðum sem Finnar og Svíar hafa notið. Reglur ESB gera ráð fyrir stirðum vinnumarkaði með skriffinnskubákni. Þetta á við um flestar meginlands- þjóðirnar. En Íslendingar kannast vel við einkenni vinnumarkaðarins á hinum Norðurlöndunum og í Bret- landi. Við höfum nú þegar tekið upp flestar reglur ESB á þessu sviði. Íslendingum liggur ekkert á í Evr- ópumálunum. Samningskostir Ís- lendinga skerðast eftir því sem ESB mótast og fleiri þjóðir sameinast því. Íslendingar geta vel þrifist og dafnað utan ESB. Mestu máli skiptir hvað Íslendingar sjálfir vilja sem sjálfstæð þjóð. Málið snertir vilja okkar til að taka sjálfstæðan þátt í því að móta framtíð sem verður sameig- inleg. Málið snertir þjóðarmetnað okkar til að sækja áfram í stað þess að sitja í vörn. EVRÓPUMÁLIN – MÓTBÁRUR OG ANDSVÖR Jón Sigurðsson Aðildarríkjum ESB eru tryggð réttindi og áhrif, segir Jón Sigurðsson. Með aðild að ESB fæst réttur til afskipta af ákvörðunum. Höfundur er rekstrarhagfræðingur. Vandaðar heimilis- og gjafavörur Kringlunni 4-12 - sími 533 1322 Sænskt listgler Falleg gjafavara á góðu verði Sérblað alla sunnudag

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.