Morgunblaðið - 08.06.2002, Side 49

Morgunblaðið - 08.06.2002, Side 49
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 49 ✝ Jóna SigurbjörgGísladóttir fædd- ist á Landspítalanum í Reykjavík 3. mars 1947. Hún lést á líkn- ardeild Landspítal- ans 2. júní síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Gísli Ólafsson frá Vind- heimum í Tálkna- firði, f. 5.7. 1913, d. 5.6. 1993, og Hildur Hjálmarsdóttir frá Hofi á Kjalarnesi f. 5.12. 1921, d. 27.6. 1955. Systur Jónu, sammæðra, eru Lára Bergmann, f. 1938, d. 1992, Hulda Hermanns, f. 1940, d. 2000, og alsystur Berg- ljót Þórunn, f. 1945, d. 1986, og Anna Hjálmdís, f. 1954. Jóna gift- ist 3. mars 1995 eftirlifandi manni sínum, Grétari Jónssyni, f. 19.3. 1945. Jóna sleit barnsskónum á Kirkjubóli í Ketildöl- um. Fimmtán ára fluttist hún þaðan með föður sínum og eldri systur. Hún missti móður sína átta ára gömul. Hún er gagnfræðingur frá Verkmennta- skólanum í Reykja- nesi við Ísafjarðar- djúp, búfræðingur frá Bændaskólanum á Hólum í Hjaltadal og stundaði nám í Kvennaskólanum á Blönduósi. Jóna átti heima í Brimnesi í Skagafirði í 14 ár, hún var nýrnaþegi og átti við heilsuleysi að stríða frá því hún var unglingur. Jóna fór mjög ung að setja saman stökur og gaf út 12 bækur, bæði ljóð og smásögur. Útför Jónu verður gerð frá Lágafellskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan11. Kveðja frá ITC Korpu Jóna Gísladóttir félagi okkar í ITC deildinni Korpu er látin. Jóna var kjarkmikil dugnaðarkona og hafði gott sjálfstraust sem létti henni lífs- baráttuna.Um langt árabil glímdi hún við heilsuleysi en þrátt fyrir það var hún hressileg í framgöngu og sló á létta strengi. Hún talaði alltaf af æðruleysi um heilsufarið og fannst raunir því tengdar vera verkefni til að sigrast á. Jóna var alltaf boðin og búin að hjálpa og lét ekki sitt eftir liggja í starfinu í Korpu, hún átti einkar auðvelt með að setja saman brag, hljóp oft í skarðið með litlum fyrirvara og afgreiddi dagskrárliði annaðhvort í bundnu eða óbundnu máli. Nýliðar í ITC deild flytja ein- hverntíma fyrsta starfsárið dag- skrárlið sem kallast Ísbrjótur, þetta er sjálfskynning sem vinna má úr á marga vegu. Hér á eftir fer stuttur útdráttur úr Ísbrjótnum hennar Jónu sem hún flutti haustið 1992, en þar rakti hún stuttlega æviferil sinn og lífsviðhorf. „Mig langar við þetta tækifæri, sem mér hefur borist upp í hendurn- ar að ræða lítillega um manneskjuna Jónu Gísladóttur, sem þið þekkið ekki mikið, þrátt fyrir það, að við höfum starfað hér saman um nokk- urt skeið og eins og þið vitið hefur lít- illega fengist við ljóðagerð. Og ég ætla að koma frá mér upplýsingum á eftirfarandi hátt. Ég fædd er þriðja þriðja fjörutíu og sjö, við fjörðinn kæra liggja bernsku sporin. Þar liðu saman árin til sextíu og tvö, en sællegast og best fannst mér á vorin. Ég lifði sælu og sorgir við svalan Arnarfjörð. Þar hrundu bernsku borgir þar blésu oft veður hörð. Þar á ég æskuslóðir, þar óx mín draumahugsjón. Þar missti góða móður þar mesta hlaut ég tjón. Ég æsku og gleði átti og allt sem fegurst var. Á meðan pabbi mátti að mörgu hyggja þar. En nú er bærinn brotinn og bú í eyði lagt. Og þessi bragur þrotinn og það sem gerðist sagt. Og að endingu þetta: Vertu viðbú- in því versta, en væntu þess besta, þá verða vandamálin færri og vonbrigð- in smærri. Þannig hef ég reynt að vinsa út úr lífinu það besta sem völ er á hverju sinni og mér hefur tekist það. Ég er nýrnaþegi, og hef þurft á því að halda.“ Jóna naut þess að vera í Korpu, vann af dugnaði og var alltaf boðin og búin að rétta hjálparhönd. Henni hafði verið falið að vera þing- skapaleiðari Korpu fyrir komandi starfsár. Við Korpufélagar þökkum Jónu samfylgdina og vottum að- standendum dýpstu samúð, minn- ingin um góðan félaga lifir. F.h. félaga í ITC Korpu, Mos- fellsbæ. Álfheiður Guðlaugsdóttir og Gunnjóna Una Guðmundsdóttir. Jóna S. Gísladóttir frá Kirkjubóli hefur nú lokið lífshlaupi sínu hvíld- inni fegin. Að kynnast þessari ágætu konu og njóta góðs af geislandi gáf- um hennar og skörungsskap var góð lífsreynsla. Að lesa bækurnar henn- ar og hlusta á hana flytja ljóðin sín á ITC-fundum var alltaf hressilegt og skemmtilegt. Já, hún Jóna okkar lét til sín taka í þeim félagsskap og var hægt að treysta á hana við öll tæki- færi. Hún var góður leiðbeinandi og stjórnandi, gaf góð ráð og styrkti og studdi byrjendur af nærfærni og ljúfmennsku. Hennar verður þar lengi minnst. Eftir heimsókn til hennar á sjúkrahúsið skömmu áður en hún lést gluggaði ég í bókina hennar „Haustblik“, þá sannfærð um að nú væri hún tilbúin að leggja af stað yfir móðuna miklu. Í bókinni rakst ég víða á vísur og ljóð sem studdu þessa sannfæringu. Þakka þér góðar stundir og ljóðin þín, Jóna mín. Ég yrki og skrifa endalaust í albjörtu sólgylltu trafi. Hér hefur skip mitt skriðið í naust í skjól, ég er komin af hafi. Margt hefur reyndar á dagana drifið ég dundað við margt gegnum árin. Þrítuga hamra klárlega klifið í kátlegri glímu við líkama og sárin. Þó felli ég sjaldan trega tár er trauðlega hinu að leyna, að veikindin eltu mig ár eftir ár ýmislegt fékk ég að reyna. Ævin mín er engu lík, eilíft stríð og rosi, þó er lundin létt og rík, ég lauma gríni og brosi. Úr fögrum blómum flétta megum sveig og fögnum því sem ástvinina varðar. Þar losna bönd, þar létt erum og fleyg, og laus erum við þyngsli vorrar jarðar. (Jóna S. Gísladóttir.) Hvíl í friði. Soffía Guðmundsdóttir. Kvennaskólans köllumst ljós kátar ungar meyjar. Óspart senda okkur hrós innanbæjar peyjar. (J.S.G.) Þessi vísa er upphaf á kvæði sem Jóna orti um lífið í Húsmæðraskól- anum á Blönduósi veturinn 1967–’68 og birtist í ljóðabók hennar Muna- blóm. Þennan vetur kynntumst við Jónu þegar við ásamt hópi ungra kvenna stunduðum þar nám. Fæstar okkar þekktumst áður en við mætt- um í skólann um haustið, en per- sónuleiki Jónu var þannig að engum gat dulist að þar var á ferð óvenjuleg kona sem ekki fór troðnar slóðir í líf- inu. Það þótti til dæmis sérstakt að Jóna hafði verið nemandi í Bænda- skólanum á Hólum en það var fátítt á þessum tíma að konur færu í bænda- skóla. Hún talaði oft um veru sína á Hólum og fannst okkur stundum sem viðfangsefnin í þeim skóla hefðu höfðað mun meira til hennar en elda- mennska og hannyrðir. Jóna var af- skaplega hrein og bein í allri fram- göngu, kom til dyranna eins og hún var klædd og vildi að aðrir væru líka þannig. Hún hafði ákaflega gaman af að gefa út bækur, sem voru orðnar þó nokkrar en þær innihéldu ljóð, skáldsögur og frásagnir úr eigin lífi. Samskipti okkar síðustu árin voru aðallega í kringum útgáfu á bókun- um sem hún setti sjálf á tölvu, fjöl- faldaði á ljósritunarvél og batt inn sjálf. Alla tíð sýndi hún mikla sjálfs- bjargarviðleitni og í dag eru bæk- urnar okkur ómetanleg minning. Mörg síðustu árin var Jóna mikill sjúklingur og það var aðdáunarvert af hve miklu æðruleysi hún tókst á við það verkefni sem önnur og var gjarnan viðkvæðið hjá henni þegar veikindi voru rædd „uss, blessuð góða þetta er ekkert.“ Þegar við vin- konurnar drifum okkur loksins að heimsækja hana á líknardeildina var hún búin að kveðja þessa jarðvist. Eftir að hafa þegið kaffi hjá því ynd- islega fólki sem þar vinnur vorum við samfærðar um að nú liði henni vel. Fjölskyldunni sendum við innileg- ar samúðarkveðjur. Í hverju sem að höndum ber, og hvað sem bágt oss mætir, þín hjálp oss nálægt ætíð er og allar raunir bætir. (P. Jónsson.) Hvíl þú í friði, kæra vinkona. Hallfríður Höskuldsdóttir. JÓNA SIGURBJÖRG GÍSLADÓTTIR                        !             ! "#  " " "        $$   $% %& '  (     (               "# $! %$ &"  "##'!  "%$ ()$ "##'! ($#''$%$ ( "!$$ "#%$ $!* + "##'! ($# ($#%$ " ' ,$#'!  +$-!$ %$ %+*+$.                 / 0 -1 10   ,2/ 3# "  ) "   ) " "  "   *   +  "#  ,   $)'( %$ ("  $)#'! %!$$&" %$ %"4! $)#'! 5! 2$ ($#%$ '( $)%$ !(!$"  $ #'! $$ $)#'! / "!5!!$%$ (" 62"! $)%$ %(-!$ #'! ( $)#'! * $ *+$%* $ * $ *+$. - .          1 5 7 18   !9 $#!:;   4   "   *  -"$#-"$#%$ &" -"$##'! 0!$# -"$##'!. /  0  " .  (   <= >    1 2    (  ) 0             ! "# (   ,   " =$##'! 2 $#!#'! ((& ""#'#'! $!?'. /  . -1    &>0   "   *   #     -!"" %$@!%$   "   &"$@!#'!  @! $!!%$ ,2$ $#A%"   ( "!$#'! -!"" $#A%" - #'$$!( #'! !(4 4  $#A%" ,2$ $  $#A%". - . "       "    "               1 2    (  ) 0 (   3   )  (       "   (   "   $%   $% %& =$!'!%$ ()$&" '!#'! '$/!"$# %$ ,2$''!%$ 5! 2$& ,*'!%$ & ,!$$'!%$ B 'A $$#'! %* $ *+$. EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: Í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. Í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Skilafrestur minning- argreina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.