Morgunblaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 53
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 53
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
17
66
7
05
.
20
02
blómapotta-Ertu
barn?
Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30
Laugardaga kl. 10:00 - 17:00
Sunnudaga kl. 12:00 - 17:00
OPIÐ
MYNTA H67cm
O34 cm
MYNTA
blómapottur 32 cm
KIK hengipottur
AMAGER blómapottar
1.890kr.
790kr.
1.590kr.
890kr.
690kr.
2.900kr.
5.900kr..
15 cm
23 cm
33 cm
31cm
24cm
meistar inn. is
HÖNNUN LIST
ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda Ís-
landsmót í silungsveiði á flugu í
Brúará fyrir landi Sels og Spóastaða
sunnudaginn 28. júlí næst komandi.
Það eru Landssamband stangaveiði-
félaga og Sportvörugerðin hf. sem
standa að mótinu.
Fyrirkomulagið er þannig, að
veidd verða þrjú svæði í tvær
klukkustundir í senn. Þátttakendur
mæti að Gömlu-Borg klukkan átta að
morgni. Þar verður dregið um svæði
og klukkan hálftíu hefst fyrsta veiði-
lotan. Eftir hana er hádegisverður,
þá tvær veiðilotur og loks kvöldverð-
ur og verðlaunaafhendingar. Skrán-
ingargjald er 10 þúsund krónur, en
fyrstu verðlaun hins vegar vöruút-
tekt upp á 100 þúsund krónur. Veitt
eru verðlaun fyrir þrjú efstu sæti.
Íslandsmótið í silungsveiði á flugu
hófst á sama stað í fyrra. Fáir vissu
af, en allt fór þó vel fram.
Fréttir úr ýmsum áttum
Áhugamenn um stangaveiði sem
staddir voru við ós Úlfarsár á
fimmtudagskvöldið sáu sporðaköst í
hálfsalta vatninu og einn sem lá ein-
beittur undir löðrinu í Sjávarfossi.
Veiðimenn hafa af og til verið að
skreppa í Galtalæk þar sem vænn
urriði er veiddur á flugu og sleppt
aftur. Lækurinn þykir krefjandi og
urriðinn í honum dyntóttur, en sumir
hafa þó haft lag á honum. Einn fékk
t.d. nýverið 15 fiska á bilinu 2 til 4
pund. Annar fékk sex fiska sem voru
allt að 8 pund. Sá veiddi flesta með
andstreymisköstum og Pheasant tail
púpu með kúluhaus.
Heimsþekktur kastkennari og
gestur á Íslandi til margra ára, Dan-
inn Henrik Mortensen, er kominn
hingað til lands til að halda kastnám-
skeið á vegum Útivistar og veiði.
Morgunblaðið/Guðmundur Guðjónsson
Það eru fleiri veiðimenn en laxar þessa dagana.
Íslandsmót í
silungsveiði
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi tilkynning frá stjórn
Þroskaþjálfafélags Íslands:
„Þroskaþjálfafélag Íslands vek-
ur athygli á og tekur undir þær
niðurstöður í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar að skortur á starfsfólki
með menntun á sviði þroskahöml-
unar komi niður á gæðum þeirrar
þjónustu sem fötluðum íbúum Sól-
heima í Grímsnesi er veitt.
Þroskaþjálfar eru eina stéttin sem
frá grunni menntar sig sérstaklega
í að veita fólki með þroskahömlun
þjónustu. Þroskaþjálfafélag Ís-
lands telur að íslenskt lagaum-
hverfi og almenn þjónustuviðmið
tryggi ekki nægjanlega ráðningu
þroskaþjálfa í þjónustu við fólk
með þroskahömlun. Í ljósi upplýs-
inga um starfshætti Sólheima í
Grímsnesi leggur Þroskaþjálfa-
félag Íslands áherslu á að fólki
með þroskahömlun verði tryggð
þjónusta þroskaþjálfa í hvívetna.“
Fólki með þroskahömlun
verði tryggð þjónusta