Morgunblaðið - 08.06.2002, Side 61
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 61
Forðafjör Líf og fjör
Nýtt fjölvítamín sem gefur þér
góðan forða af öllum vítamínum
og steinefnum í 12 klst.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum
"Panic Room er ein best heppnaða spennumynd í
langan tíma. Meistari spennumyndanna hefur náð
að smíða enn eitt meistaraverkið."
- Sigþrúður ÁrmannKvikmyndir.com
2 vikur á toppnum í Bandaríkjunum
LILLIAN Staf, leiðbeinandi í Fal-
un Gong, segir að hún sé hingað
kominn til að halda námskeið í iðk-
un Falun Gong og tengist koma
hennar ekki fyrirætlunum nokkur
hundruð félaga í Falun Gong, sem
lögregluyfirvöld hafa fengið upp-
lýsingar um að hyggist koma hing-
að til að mótmæla stefnu kín-
verskra stjórnvalda gagnvart
hreyfingunni þegar Jiang Zemin,
forseti Kína, kemur hingað til
lands í næstu viku. Til stendur að
meina félögum Falun Gong land-
göngu á Íslandi. Staf hyggst dvelja
hér á landi fram yfir heimsókn
Zemins og óttast ekki að verða vís-
að úr landi.
„Í grundvallaratriðum er hug-
myndafræði Falun Gong mjög ein-
föld. Hún gengur út á samhæfingu
líkama og sálar,“ segir Lillian þeg-
ar hún er spurð um fyrirbærið.
„Líkamlegi hlutinn er fimm æfing-
ar, fjórar þeirra fara fram stand-
andi og ein sitjandi. Sú sitjandi er
hugleiðsla en hinar fjórar fela í sér
hægar og mildar hreyfingar. Æf-
ingin sem snýr að huganum er til
að rækta nokkuð sem við köllum
xim ximg sem er kínverska og
þýðir eiginleikar „hjarta og huga“.
Þetta er til þess að tileinka sér
samúð og umburðarlyndi. Mark-
miðið er að hugsa aldrei illa um
annað fólk, reyna að fjarlægja alla
neikvæða eiginleika sem mann-
inum eru gefnir, afbrýðisemi,
hræðslu, reiði og alla þá hluti sem
við þurfum ekki til að lifa lífinu.“
Í dag og á morgun ætlar Lillian
að halda námskeið um Falun Gong
í Hljómskálagarðinum í Reykjavík.
Námskeiðin hefjast klukkan 18 og
aðgangur er ókeypis.
Lillian var spurð hvernig henni
hefði hugkvæmst að koma til Ís-
lands að kenna:
„Ég hef komið hingað þrisvar
áður og líkar alltaf betur og betur
að vera hér. Ég varð strax alveg
yfir mig hrifin þegar ég kom hing-
að fyrst og líður vel hér.“
– Hvernig komst þú í kynni við
Falun Gong?
„Gegnum vin minn í Svíþjóð fyr-
ir rúmum fimm árum. Ég varð frá
fyrstu stund hugfangin. Ég fann
strax mjög sterk áhrif innra með
mér og hef því iðkað Falun Gong
daglega síðan.“
– Stunda fjölskyldan þín og vinir
Falun Gong?
„Nei, enginn af mínum nánustu
vinum og ættingjum, fyrir utan vin
minn sem kynnti mig fyrir iðk-
uninni. En ég hef vitaskuld eignast
marga vini í gegnum þetta.“
Iðkun Falun Gong er hægt að
rekja aftur til ársins 1971. Algeng-
asta iðkunin eru ýmsar æfingar í
anda fornu kínversku bardaga-
listarinnar, qigong, sem felur að-
allega í sér öndunarhugleiðslu.
Áhangendur Falun Gong segjast
vera friðsamir og löghlýðnir borg-
arar sem fylgja ákveðnum heim-
spekihugmyndum og iðka strangar
æfingar til að auðga hugann og
stuðla að góðri heilsu.
Yfirvöld í Kína hafa hins vegar
haft horn í síðu Falun Gong, bann-
að starfsemi hreyfingarinnar og
fangelsað iðkendur hennar. Í rík-
issjónvarpinu í Kína hefur Falun
Gong verið sakað um að breiða út
rökvillu, pretta fólk og stefna sam-
félagslegum stöðugleika í hættu.
Lillian þekkir þessar ofsóknir að
einhverju leyti af eigin reynslu frá
ferðalagi sínu til Kína í fyrra.
„Ég var stödd í Kína, sat á göt-
unni og var að hugleiða. Eftir að
ég hafði setið í stutta stund í lót-
usstellingunni kom lögreglan aðvíf-
andi, reif mig upp á hárinu og dró
mig í burtu á höndunum. Ég
missti mikinn hluta af hárinu og
var öll útsett marblettum á hönd-
unum. Með mér í hugleiðslunni var
ástralskur strákur og lögreglan
braut á honum höndina á nokkrum
stöðum og félagi okkar frá Þýska-
landi var nefbrotinn af lögreglu-
manni. Við vorum bara að hugleiða
saman, á mjög friðsamlegan hátt
og vorum ekki fyrir neinum. En
það verður að sjálfsögðu að taka
það fram að hrottaskapurinn sem
við lentum í er ekkert í sam-
anburði við það sem kínverskir
iðkendur Falun Gong verða fyrir í
heimalandi sínu.“
Markvissar pyntingar
„Nýjustu fréttir af ástandinu í
Kína eru að gefin hefur verið út
fyrirskipun um að það sé leyfilegt
að skjóta alla iðkendur Falun
Gong sem sjást iðka á götum úti.
Yfir 100 þúsund iðkendur, næstum
jafnmargir og íbúar Reykjavíkur,
hafa verið handteknir í Kína fyrir
að stunda Falun Gong. Ef þeir
skrifa ekki undir samning, þar sem
þeir samþykkja að stunda þetta
aldrei framar, er farið með þá í
svokallaðar vinnubúðir sem ég tel
meira í ætt við útrýmingarbúðir.
Þar er fólk markvisst pyntað til
þess eins að fá það til að hætta að
stunda Falun Gong. Hundruð
manna hafa verið pyntuð til dauða.
Ég held að síðustu opinberu töl-
urnar hafi talið um 400 manns.“
Kínversk yfirvöld viðurkenndu
árið 2000 að rúmlega 35 þúsund
fylgismenn Falun Gong hefðu ver-
ið handteknir árið áður. Flestum
þeirra var sleppt en rúmlega 5
þúsund voru sendir í vinnubúðir án
réttarhalda og um 300 hafa verið
dæmdir í allt að 18 ára fangelsi.
„Mér finnst algjör vitfirring
hvernig yfirvöld beita iðkendurna
vægðarlausu ofbeldi og markviss-
um pyntingum. Þetta er saklaust
fólk sem einungis er að reyna að
iðka æfingar í andlegri ræktun.“
Sérfræðingar í kínverskum
stjórnmálum rekja ástæður of-
sóknanna til þess að komm-
únistastjórninni í Kína stafi hætta
af iðkendum Falun Gong þar sem
hún hafi burði til að fylla upp í
andlega tómarúmið, sem orðið hafi
í kínverska þjóðfélagsumrótinu og
geti þannig grafið undan alræð-
isvaldi Kommúnistaflokksins.
Maó Tse-tung hafi boðað Kín-
verjum byltingu og Deng Xiaoping
hagsæld en leiðtogar Kína nú-
tímans virðist hins vegar enga
skýra hugsýn hafa sem hrífi kín-
verskan almenning, og afleiðingin
sé andlegt tómarúm sem fjölda-
hreyfing á borð við Falun Gong
eigi auðvelt með að fylla og ógni
þar með valdi kínverska komm-
únistaflokksins. Þetta er talin
meginástæða þess að kínversk
stjórnvöld hafa haldið uppi harð-
neskjulegri herferð gegn þessari
andlegu hreyfingu, sem hefur lað-
að að sér milljónir Kínverja. Hvað
finnst Lillian um þessa kenningu?
„Sjálf er ég enginn sérfræðingur
í málinu svo ég ætla ekki að tjá
mig mikið um það. Þetta virðist þó
mjög sennileg skýring.
Falun Gong hefur breiðst mjög
hratt út í Kína og það einungis af
orðspori. Fólk hrífst auðveldlega
með hugsuninni á bakvið þetta,
áhersla á það góða í manninum og
umhyggja fyrir náunganum. Ég tel
þessar góðu viðtökur ýta við yf-
irvöldum og jafnvel að þau telji
Falun Gong vera ógn við sig.“
Ekki velkomin til Kína
– En telur þú Falun Gong vera
ógn við yfirvöld?
„Nei, alls ekki, af og frá! Falung
Gong tekur enga pólitíska afstöðu.
Ef maður les í gegnum handbók
um iðkun Falun Gong er skýrt
tekið fram að við skyldum aldrei
rugla iðkuninni saman við stjórn-
mál og að við ættum ekki að vera
viðriðin neina pólitíska hreyfingu.
Falun Gong eru heldur ekki trúar-
brögð. Þetta er einungis andleg
iðkun fyir líkama og sál.“
– Heldur þú að leið þín eigi eftir
að liggja aftur til Kína?
„Ég er ofsalega hrifin af Kína,
þú mátt skrifa það. Ég elska kín-
verka menningu, matargerð, tón-
list, og fólkið þar. Ég elska allt við
landið nema að sjálfsögðu það að
vinir mínir eru þar beittir gíf-
urlegu óréttlæti. Ég hefði mikinn
áhuga á að búa í Kína og langar
mikið að koma þangað aftur en
held þó að það verði aldrei. Þegar
ég var handtekin var ég sam-
stundis send heim með flugvél. Áð-
ur en ég fór um borð í vélina var
mér sagt að ég væri ekki velkomin
til Kína næstu fimm árin. Ég held
því að það væri ekki mjög raun-
sætt af mér að fara þangað aftur.“
Andleg iðk-
un í skugga
ofsókna
Morgunblaðið/Arnaldur
„Fólk hrífst auðveldlega með hugsuninni á bakvið þetta, áherslunni á það góða í manninum og umhyggju fyrir
náunganum.“ Lillian Staf við iðkun Falun Gong.
Hér á landi er stödd sænsk kona að nafni Lillian
Staf. Hún er hingað komin til að halda námskeið í
undirstöðuatriðum iðkunar Falun Gong.
Birta Björnsdóttir hitti Lillian og fékk að fræðast
um æfingar fyrir sál og líkama, örlög meðiðkenda
hennar og brottreksturinn frá Kína.
birta@mbl.is
’ Eftir að ég hafði setið stutta stund í lótusstellingunni kom lögreglan
aðvífandi, reif mig upp á hárinu og
dró mig í burtu á höndunum. ‘