Morgunblaðið - 09.06.2002, Síða 2

Morgunblaðið - 09.06.2002, Síða 2
FRÉTTIR 2 SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðinu í dag fylgir auglýsingablaðið „Vertu með allt á hreinu“ frá Íslandsbanka. Blaðinu verður dreift um allt land. MIKILL árangur náðist á alþjóðleg- um undirbúningsfundi fyrir leiðtoga- fund um sjálfbæra þróun, sem hald- inn verður í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í lok ágúst, þegar sam- staða náðist um stofnun alþjóðlegs vettvangs Sameinuðu þjóðanna, en honum er ætlað að gera reglulegar úttektir á ástandi hafsins. Siv Frið- leifsdóttir umhverfisráðherra er stödd á þessum síðasta ráðherra- fundi sem haldinn er á Balí í Indó- nesíu, en þar hafa umhverfisráðherr- ar heimsins unnið að gerð aðgerðar- áætlunar, sem lögð verður fyrir fundinn í Jóhannesarborg til sam- þykktar. Hún segir það gleðilegt og afar góðan árangur fyrir Íslendinga að samstaða hafi náðst milli þjóða heims um mál sem Íslendingar hafi unnið að núna í næstum tvö ár. Að hennar sögn verður árið 2004 settur upp vettvangur, sem vinnur reglu- legar úttektir á ástandi hafsins og áhrifum þess á félagslega og efna- hagslega þróun. „Það er mjög mik- ilvægt því að þess er að vænta að þegar slíkar upplýsingar liggja fyrir muni áherslur þjóða á varnir gegn mengun sjávar aukast, en það er eitt helsta hagsmunamál Íslands á um- hverfissviðinu. Ríkisstjórnin stóð fyrir undirbún- ingsfundi á Íslandi í september síð- astliðnum til að vinna þessu máli brautargengi og núna hefur náðst samstaða um þetta framfaramál,“ segir Siv og bendir á að enginn fyr- irvari hafi verið gerður við sam- komulagið. Þar af leiðandi fari þessi hluti aðgerðaáætlunarinnar til Jó- hannesarborgar og verði samþykkt- ur þar. Siv telur fordæmi fyrir því að svona alþjóðlegur samráðsvettvang- ur hafi skilað árangri og nefnir sem dæmi alþjóðlegan vettvang fyrir loftslagsbreytingar á vegum Sam- einuðu þjóðanna, sem hafi verið einn mesti drifkrafturinn á bak við Kyotobókunina. Siv segir ennfremur að það blasi við að þjóðir heims þurfi sífellt meiri orku og það sé því mikilvægt að orkubúskapurinn verði vistvænni. Úttektir á ástandi hafs- ins gerðar reglulega Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra segir ákvörðun um stofnun alþjóðlegs vettvangs Sameinuðu þjóðanna góðan árangur fyrir Íslendinga UNDANFARIÐ hefur verið unnið við að steypusprauta veggi við nýtt stöðvarhús sem reisa á við Búðar- hálsvirkjun. Undirbúningsfram- kvæmdir við veggjagerð og stöðv- arhús hófust síðastliðið haust en að sögn Þorsteins Hilmarssonar, upp- lýsingafulltrúa Landsvirkjunar, er ráðgert að gera göng í gegnum Búðarháls og verður vatnið leitt í göngum frá Hrauneyjafossi og að nýja stöðvarhúsinu. Engin ákvörð- un liggur fyrir um frekari fram- kvæmdir að svo stöddu og á und- irbúningsframkvæmdum að ljúka um mitt sumar. Að sögn Þorsteins eru framkvæmdir miðaðar við að hægt verði að reisa 100 MW stöð á sem skemmstum tíma, t.d. í tengslum við Norðurál. Áætlað að verkinu ljúki í sumar Undirbúningsframkvæmdir Landsvirkjunar halda áfram við Búðarháls Morgunblaðið/RAX Unnið við að steypusprauta veggi þar sem reisa á nýtt stövarhús við Búðarhálsvirkjun. MEÐALBIÐ eftir aðgerð á Land- spítala – háskólasjúkrahúsi er allt að tvö ár, en Jónas Magnússon, sviðsstjóri lækninga á skurðlækn- ingasviði, sagði í Morgunblaðinu í vikunni að getan væri fyrir hendi til að láta listana hverfa, væri til þess pólitískur vilji og spítalanum útveg- að nægilegt rekstrarfé. Að sögn Ólafs Arnar Haraldsson- ar, formanns fjárlaganefndar Al- þingis, hefur stöðugt meira fé verið látið í heilbrigðiskerfið og sömuleið- is hefur mikið fé farið til samein- ingar spítalanna og er þetta liður í bættri þjónustu. Hann segir að með því sé markvisst unnið að því að ná meðal annars biðlistunum niður og á mörgum sviðum hafi það tekist. Einar Oddur Kristjánsson, varafor- maður nefndarinnar, segir að við fjárlagagerð undanfarin ár hafi ver- ið gengið út frá því að sameining stóru spítalanna myndi skila mikilli hagræðingu en það hafi ekki gengið eftir. „Því miður hefur Landspítali – háskólasjúkrahús og ýmsar aðrar heilbrigðisstofnanir ekki verið innan ramma fjárlaga og mér sýnist á öllu að það verði þar fjárþörf umfram það sem fjárlög gerðu ráð fyrir á þessu ári. Því er nú úr vöndu að ráða og ekki er það eingöngu vegna þess að það sé ekki pólitískur vilji fyrir því heldur er þarna um viðvar- andi kostnaðaraukningu og rekstr- arviðfangsefni að ræða,“ segir Ólaf- ur Örn Haraldsson. Pólitískur vilji til að eyða biðlistunum Í blaðinu í vikunni kom jafnframt fram að lyfjakostnaður í tvö ár gæti í vissum tilvikum slagað upp í að- gerðarkostnaðinn og má þar af leið- andi velta því upp hvort ekki sé hag- kvæmara að ráðstafa fé til að eyða biðlistunum og spara lyfjakostnað á móti. Ólafur telur pólitískan vilja vera til að eyða biðlistunum og segir að þegar ábendingar komi fram um að til lengri tíma megi spara með breyttu fyrirkomulagi, eins og bent sé á, eigi auðvitað að taka mark á því og skoða þær tillögur. Hann bendir þó á að til að slíkt sé hægt þurfi fjármagn að vera fyrir hendi til að leysa biðlistavandann, jafnvel þótt horft sé til lengri tíma um end- anlegan ávinning. „Mér finnst þetta áhugaverðar ábendingar og vil mjög gjarnan skoða þær og nýta þær góðu tillögur sem þarna koma fram,“ bætir hann við. Að hans sögn verður rekstrar- staða heilbrigðiskerfisins og Land- spítala – háskólasjúkrahúss skoðuð á þessu ári, en eins og staðan er núna snýr þetta að heilbrigðisráðu- neytinu. Alþingi kemur ekki að mál- inu fyrr en í haust þegar fjárlaga- frumvarpið kemur fram. Ólafur undirstrikar að fjármagnið til þess- ara mála hafi verið aukið með ýms- um hætti og segir að sjúkrahúsin hafi unnið mjög ötullega að bættum rekstri, en þarna nái endar einfald- lega ekki saman. Skipulagi ábótavant Einar Oddur Kristjánsson, vara- formaður fjárlaganefndar, segir að við fjárlagagerð undanfarin ár hafi verið gengið út frá því að sameining stóru spítalanna myndi skila mikilli hagræðingu en þetta hafi ekki geng- ið eftir. Allur samanburður á heil- brigðiskostnaði milli Íslands og ann- arra OECD-ríkja, þegar tekið er tillit til allra aðstæðna og þeirra peninga sem varið er til heilbrigð- ismála, sýni að ekki sé hægt að ætla annað en að vandamál heilbrigðis- þjónustunnar sé skipulagið, sem hljóti að vera mjög ábótavant. Ís- land leggi gríðarlegt fé til heilbrigð- ismála, sérstaklega með tilliti til þess hversu ung þjóðin sé í sam- setningu. „Það liggur alveg fyrir að þróunin hér á Íslandi, eins og víða í Evrópu, hefur verið sú að við höfum verið að færa heilbrigðisþjónustuna upp á hærra tæknistig. Þetta er greinilega vandamálið, við verðum að endur- skipuleggja heilbrigðismálin með tilliti til þess að efla grunnþjónustu og forvarnir, en þær þjóðir sem náð hafa bestum árangri hafa einmitt farið þá leið,“ segir Einar Oddur. Ólafur Örn Haraldsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis Markvisst unnið að því að ná biðlistum niður VARÐSKIPIÐ Ægir kom færeysk- um línubáti til aðstoðar úti fyrir Suð- austurlandi í gærmorgun þar sem slys hafði orðið um borð. Hafði einn skipverjinn misst framan af fingri. Samkvæmt tilkynningu frá Land- helgisgæslunni var það tilviljun að Ægir var staddur svo nálægt bátn- um en fyrirhugað var að senda menn um borð til eftirlits. Þegar haft var samband við skip- stjórann upplýsti hann þá um að slys hefði átt sér stað. Í áhöfn Ægis eru lærðir sjúkraflutningamenn og sóttu þeir hinn slasaða. Var hann kominn um borð í varðskipið um klukkan tíu og klukkustund síðar var skipverjinn kominn undir læknishendur á Hornafirði. Landhelgisgæslumenn höfðu meðferðis þann hluta fingursins sem skipverjinn missti, kældan í ís, en ekki var hægt að sauma hann á. Að sögn læknis var hinn slasaði sendur með flugi til Reykjavíkur til frekari skoðunar á Landspítalanum. Missti framan af fingri SJÓSTANGAVEIÐIMENN veiða um 130–150 tonn af fiski á ári samkvæmt mati Fiskistofu og hefur aflinn vaxið nokkuð á síðustu fimm árum eða úr 70– 80 tonnum. Birkir Þór Gunnarsson, frá- farandi formaður Stangaveiði- félags Reykjavíkur, segir tölur Fiskistofu réttar enda byggist þær á skýrslum sem stanga- veiðimenn taki saman að lokn- um mótum í sjóstangaveiði. Sjóstangaveiðifélög á land- inu eru átta talsins og sækja þau um leyfi til sjávarútvegs- ráðuneytisins vegna veiðanna. Að loknum sjóstangaveiðimót- um senda félögin Fiskistofu skýrslur um veiddan afla. „Þeir hafa tölur frá okkur upp á gramm. Ef við veiðum einn kola upp á 40 grömm hafa þeir þær tölur,“ segir Birkir. Í skýrslunum kemur fram hvað veitt er af hverri fisktegund en Birkir nefnir að á keppnismót- um séu veitt verðlaun fyrir stærsta fiskinn. Ekki sé óal- gengt að stjóstangaveiðimaður á keppnismóti veiði hálft tonn af fiski á dag en landsmótin standa hvert í tvo daga og vina- félagsmót í einn dag. Að sögn Birkis er veiddur afli eign félaganna. „Við borðum sumt af því sjálfir. En þetta er eign félaganna,“ segir Birkir. Sjóstangaveiðimenn á landinu Veiða um 130–150 tonn af fiski á ári

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.