Morgunblaðið - 09.06.2002, Qupperneq 30
LISTIR
30 SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Kynning þriðjudaginn 11. júní, kl. 13.00-17.00
Þingsal 1-4 Hótel Loftleiðum
Dagskrá
Setning:
Guðbjörg Sigurðardóttir
aðstoðarmaður menntamálaráðherra
Val hugbúnaðarumhverfis
Bjarni Júlíusson
tölvunarfræðingur
Þróunarverkefnið Sarpur 2.0
Markmið og nýjungar
Frosti F. Jóhannsson
verkefnisstjóri Þjms.
Kerfisgerðin – Fyrirkomulag gagnavinnslu
Guðjón S. Steindórsson
kerfisfræðingur Hugviti
Hagnýting Sarps
Anna Guðný Ásgeirsdóttir
fjármálastjóri Þjms.
Gagnasöfn í Sarpi
Umfang og ástand
Margrét Hallgrímsdóttir
þjóðminjavörður
Munir
Lilja Árnadóttir
deildarstjóri munadeildar Þjms.
Myndir
Þorvaldur Böðvarsson
menningarfræðingur myndadeild Þjms.
Þjóðhættir
Sigrún Kristjánsdóttir
þjóðfræðingur þjóðháttadeild Þjms.
Hús
Haraldur Helgason
arkitekt húsadeild Þjms.
Fornleifar
Agnes Stefánsdóttir
fornleifafræðingur Fornleifavernd ríkisins
Jarðfundir
Guðmundur Ólafsson
deildarstjóri fornleifadeildar Þjms.
Örnefni
Svavar Sigmundsson
forstöðumaður Örnefnastofnunar Íslands
Kirkjuminjar og hliðarskrár
Frosti Jóhannsson
verkefnisstjóri Þjms.
Um höfundarrétt gagna Sarps
Erla S. Árnadóttir hrl.
hjá Lex ehf lögmannsstofu
Framtíðaráform - Kerfisgerð
Bjarni Júlíusson
tölvunarfræðingur
Pallborðsumræður
Fyrirspurnir
Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og er aðgangur ókeypis.
Nánari upplýsingar á www.sarpur.is
aðarteikna í þessari annars athygl-
isverðu sýningu. Fluxus-þrunginn
andi sjöunda og áttunda áratugarins
svífur yfir vötnum, einkum í aðal-
salnum niðri. Hinar ýmsu vélknúnu
hreyfihöggmyndir minna óneitan-
lega á þá Tinguely og Paik.
Broken Music-andinn og við-er-
um-öll-á-sama-plani-listskóla-og-ól-
istskólagengin valda því að andlist
og fagurlist blandast saman í næsta
jöfnum en eilítið duttlungafullum
skömmtum. Þeir sem háðir eru
hreinni og skipulegri framsetningu
listsýninga geta sparað bensínið.
Fyrir hina er þetta frábær og eft-
irminnileg skemmtun.
Það er ekki síst sá hluti sýning-
arinnar sem lýtur að nýliðun, sem
hljómar fram á við, tiltölulega laus
við afturhvarfseinkenni. Eflaust er
skammsýnt að tala svona því kúnstin
er ekki bara fyrir unga listamenn og
nýliða. En það er enn óleystur vandi
nútímahyggjunnar hvernig fara skal
með þroska. Áhugi á hægfara
listþróun er orðinn of takmarkaður
til að menn almennt nenni að fylgja
henni eftir. Öll nýjung verður að
vera afgerandi til að eftir henni sé
tekið. Þau boð voru óhjákvæmilega
skráð í Avignon-ungfrúr Picasso,
þegar árið 1907, og rækilega staðfest
ÁLAFOSSVEGURINN er
merkilegur reitur í Mosfellsbæ og
minnir einna helst á þyrpingu í villta
vestrinu, úr mynd eftir Sergio
Leone. Þar er nú að finna eina
merkilegustu sýninguna á höfuð-
borgarsvæðinu, sem þó hefur farið
svo hljóðlega að hún hefur nánast
siglt framhjá þorra listunnenda.
Ef til vill er það skiljanlegt því
sýningin lætur lítið yfir sér þótt hún
sé raunar mjög yfirgripsmikil og
margbrotin eftir því.
Stóran hluta af aðalsalnum hjá Ís-
hamri ehf. tekur bókasýning Boekie
Woekie-bókabúðarinnar í Amster-
dam. Búðin, sem þau Henriëtte van
Egten, Jan Voss og Rúna Þorkels-
dóttir hafa starfrækt frá 1986, sér-
hæfir sig í verslun með listbækur,
bóklist og fágætar sýningaskrár. Á
sýningunni eru að minnsta kosti
hundrað titlar frá forlaginu, af um
þrjú þúsund sem finna má í bókabúð-
inni, handprentaðir í litlu upplagi,
eða lagðir fram í umboðssölu. Fyrir
unnendur fagurra og sjaldgæfra
bóka er hér um einstæða veislu að
ræða sem vert er að njóta í ró og
næði. Þeir hljóta að fá fiðring þegar
þeir fletta öllum þessum aragrúa
óviðjafnanlegra sérrita.
Sem umgjörð utan um bókasýn-
ingu Boekie Woekie liggur svo sýn-
ing Dieter Roth akademíunnar,
haldin í tilefni af þriðju ráðstefnu
stofnunarinnar, dagana 10. til 15.
maí. Akademían var stofnuð fyrir
tveim árum í Basel, en þá voru tvö ár
liðin frá andláti Dieter Roth. Stofn-
félagarnir voru fjórtán talsins, helm-
ingurinn íslenskir listamenn, enda
má segja að Dieter hafi verið hálf-
íslenskur, svo bein og víðtæk voru
áhrif hans hér.
Til marks um tengsl hans við land-
ið þá var hann hér með annan fótinn
allt frá sjötta áratugnum og hér er
hann jarðsettur.
Vissulega kennir ákveðinna sakn-
með Hlandskál Duchamp, tíu árum
síðar.
– Who wants yesterday’s paper?
söng Mick Jagger, sem nú heldur í
enn eina hljómleikaferðina, í trássi
við sín fyrri rök. Hann hefði betur
leyst upp grúppuna um svipað leyti
og Bítlarnir, og fundið einhvern til
að skjóta sig til að öðlast eilíft líf eins
og sumir þeirra. Í staðinn eru Roll-
ing Stones upp á náð og miskunn
skammtímaminnisins komnir, sem
man varla hvað þeir heita, enda voru
núverandi gúbbí-fiskar ekki einu
sinni seiði þegar Jagger og félagar
slógu í gegn.
Og hvað er þá til ráða annað en
halda áfram eins og ekkert hefði í
skorist. Þeir sem eru of ungir muna
hvort sem er ekkert, meðan hinir
eldri fyllast ljúfsárum söknuði. Þetta
gerir Dieter Roth akademían hiksta-
laust og uppsker andrúmsloft und-
arlegs tímaleysis, um leið og nem-
endunum á loftinu er leyft að spreyta
sig á kröfum líðandi stundar.
Úr verður marglitað hanastél,
fjörugt, áhugavert og afslappað í
senn.
Öðruvísi akademía
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá hinni fjölbreytilegu sýningu Dieter Roth-akademíunnar í húsnæði
Íshamars ehf. við Álafossveg í Mosfellsbæ.
MYNDLIST
Íshamar & Álafossföt Bezt,
Álafossvegi
Til 9. júní. Opið frá kl. 18–20 virka daga,
en kl. 14–20 um helgar.
BLÖNDUÐ TÆKNI 28 MEÐLIMIR DIETER
ROTH AKADEMÍUNNAR ÁSAMT 22 NEM-
ENDUM HENNAR & DIETER ROTH
Halldór Björn Runólfsson
Út er kominn bæklingurinn Útilistaverk
í Hafnarfirði en í Firðinum eru mörg úti-
listaverk sem eiga ríkan þátt í að
mynda hinn vinalega bæjarbrag. Það
er menningarmálanefnd sem stendur
að útgáfunni en ritstjóri er Kolbrún M.
Hrafnsdóttir. Í bæklingnum eru vegleg-
ar myndir af listaverkum og upplýs-
ingar um höfunda auk þess sem
nokkrir bæjarbúar segja frá sínu uppá-
haldsverki.
Í bæklingnum eru upplýsingar um
nær öll útilistaverk í eigu Hafnarfjarð-
arbæjar, stofnana og fyrirtækja og
reyndust þau vera 36 talsins eftir 28
listamenn. Þar af eru í Alþjóðlega högg-
myndagarðinum á Víðistaðatúni 16
verk eftir listamenn frá Mexíkó, Sviss,
Frakklandi, Finnlandi, Japan, Þýska-
landi og Íslandi. Þau verk eiga það
sameiginlegt að vera sköpuð í Lista-
miðstöðinni Straumi í tengslum við
Listahátíð Hafnarfjarðar sem haldin
var árin 1991 og 1993. Eftir fyrri hátíð-
ina gáfu 12 listamenn verk sín til bæj-
arins en á þeirri hátíð var dagskráin að
stórum hluta helguð höggmynda-
listinni. Hópurinn sem til Hafnarfjarðar
kom gaf verkin sem stofnframlag svo
byggja mætti upp alþjóðlegan högg-
myndagarð. Trú þeirra var sú sama og
þeirra sem tóku við gjöfinni, að úti-
listaverkin myndu gleðja og fræða al-
menning um list og fegra umhverfið.
Bæklingurinn, sem er á íslensku og
ensku, er til sölu í Upplýsingamiðstöð
ferðamanna, Vesturgötu 8, og kostar
kr. 300.
Útilistaverk
VIÐSKIPTI mbl.is