Morgunblaðið - 09.06.2002, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 09.06.2002, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 59 betra en nýtt Sýnd kl. 4. Ísl. tal. „Fylgist með á www.borgarbio.is“ Sýnd kl. 10.10. B. i. 10. Sýnd kl. 8. B. i. 16. 1/2 kvikmyndir.is 1/2 kvikmyndir.com  Sánd  SV Mbl 1/2kvikmyndir.is kvikmyndir.com DV Sýnd kl. 5.50. B. i. 10. J O D I E F O S T E R FRUMSÝNING 2 vikur á toppnum í USA! Einn magnaðasti spennutryllir síð- ustu ára!Jodie Foster, tvöfaldur Óskarsverð- launahafi, hefur aldrei verið betri. Frá David Fincher, leikstjóra Seven & Fight Club „Meistari spennu- myndanna hefur náð að smíða enn eitt meistaraverkið“ 1/2kvikmyndir.com Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i 16 ára Sjá um st í b íó Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. Sýnd kl. 2 og 4. Vit 379. 150 kr. í boði VISA ef greitt er með VISA kreditkorti Sýnd kl. 2. Ísl tal. Vit 370. Sýnd kl. 4, 6 og 8.Sýnd Kl. 10. B.i. 16 ára Vit 385. STUART TOWNSEND AALIYAH Skilin milli heima hinna lifenda og dauðra er um það bil að bresta. Tryllingsleg og yfirnáttúruleg spenna. FRUMSÝNING Sýnd Kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára Vit 388. Frá framleiðendum I Know What You Did Last Summer og Urban Legend. Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. 421 -1170 Sýnd kl. 2. Ísl tal. Vit 370. 1/2 kvikmyndir.is 1/2 kvikmyndir.com  Sánd  SV Mbl Sýnd kl. 2 og 4.40. Sýnd kl. 4, 6 og 8. Sýnd kl. 8. Sýnd kl.10. 1/2 Kvikmyndir.is  Sánd  RadioX / i i i i Sýnd kl. 10. SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is. i .i Miðasala opnar kl. 13.30 5 hágæða bíósalir Stærsta bíóupplifun ársins er hafin Yfir 30.000 áhorfendur Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.50. Mán kl. 5, 8 og 10.50. B. i. 10. kl. 8 og 10.30. 1/2 kvikmyndir.is 1/2 kvikmyndir.com  Tímaritið Sánd  SV Mbl  Rás 2 / i i i / i i í i i l Hversu vel þekkir þú maka þinn? Allt sem þú treystir á Allt sem þú veist Gæti verið lygi kvikmyndir.com 1/2 RadioX DV 1/2 kvikmyndir.is Sánd Yfir 45.000 áhorfendur! FRUMSÝNING kl. 4.30. 2 vikur á toppnum í USA! Einn magnað- asti spennu- tryllir síðustu ára! Jodie Fos- ter, tvöfaldur Óskarsverð- launahafi, hef- ur aldrei verið betri. Frá David Fincher, leikstjóra Seven & Fight Club „Meistari spennu- myndanna hefur náð að smíða enn eitt meistaraverk- ið“ 1/2 kvikmyndir.com J O D I E F O S T E R Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.30. Mán 5, 8 og 10.30. kl. B. i. 10. Sýnd sunnudag kl. 2 og 3.50. Íslenskt tal. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i 16 ára. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. Mán kl. 5.30, 8 og 10.30.B.i 16 ára. www.laugarasbio.is Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. B.i. 16 áraSýnd kl. 4, 6, 8 og 10. FRUMSÝNING 2 vikur á toppnum í USA! Einn magnaðasti spennutryllir síðustu ára! Jodie Foster, tvöfaldur Óskarsverðl aunahafi, hefur aldrei verið betri. Frá David Fincher, leikstjóra Seven & Fight Club „Meistari spennumyndanna hefur náð að smíða enn eitt meistaraverkið“ 1/2 kvikmyndir.com J O D I E F O S T E R Hann ætlar að reyna hið óhugsandi. Alls ekkert kynlíf í 40 daga og 40 nætur. Drepfyndin grínmynd með hinum ómótstæðilega Josh Hartnett. FRUMSÝNINGI ICE CUBE MIKE EPPS BRJÁLAÐUR HASAR OG GEGGJAÐ GRÍN Þeir eru á höttunum eftir 60 milljón dala lottómiða og helling af demöntum!! Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. „NEI, VEISTU, ég held bara ekki,“ væri svar mitt við spurning- unni hér að ofan ef spyrjandinn væri Garth Ennis. Ennis hefur nefnilega unnið að því statt og stöðugt síðustu árin að fullkomna sína eigin gerð af húmor og felst hún í megindráttum í ofbeldi, kaldhæðni, ofbeldi, kynlífi, ofbeldi og saur ásamt öðrum viðlíka viðfangsefnum. Sem sagt ekki birt- ingarhæft í fermingarveislum, nema þá kannski hjá hinum írska Ennis og fjölskyldu hans. Ennis hefur síðastliðinn áratug verið í fararbroddi myndasöguhöf- unda hvað vinsældir varðar og er einn af forystusauðum bresku inn- rásarinnar á bandarískan mynda- sögumarkað. Honum til fulltingis í þessari byltingu (slík hafa áhrif þess- ara manna verið að vart er hægt að kalla það annað) voru meðal annarra Warren Ellis, Grant Morrison og sjálfur myrkrahöfðinginn Alan Moore. En það er með þennan bransa eins og aðra að þrátt fyrir fögur fyrirheit fer það svo á endan- um að byltingin étur börnin sín (alla- vega sum þeirra). Ennis hlaut fyrst einróma lof fyrir sögurnar um breska kuklarann John Constantine í Hellblazer sem voru myrkar og kvikindislega fyndnar. Svo tók Preacher við og lyfti honum á stjörnuhimininn. Það besta sem hann hefur gefið út að mínu mati er þó lítil saga um ástir og ör- lög fólks í Belfast sem kom út fyrir ein- um fimm árum og kallaðist Heartland. Yndislega raunsæ og angurvær og ein af mínum uppáhalds- myndasögum. Samhliða þessum góðu verkum hefur hann svo verið að skrifa myndasögur þar sem klósettskopið er haft í fyrirrúmi og hefur hlutur þeirra sagna í skrifum hans farið sí- fellt vaxandi. Preacher missti sig í lokin, Just a Pilgrim var ein löng rop- og viðreksturssinfónía og tök hans á einni vinsælustu ofurhetju síðasta áratugar, Punisher, ein- kenndust af leiða og ,,splatter“-beldi. Þrátt fyrir magran afrakstur síð- ustu árin hefur Ennis nú loks tekist að toppa sig eða kannski væri rétt- ara að segja að hann hafi botnað sig. Fury er saga um fyrrverandi yfir- mann SHIELD sem er stofnun á vegum Bandaríkjastjórnar sem sér um að berjast við allra handa kvik- indi þessa heims og annars. Nick Fury er hermaður af gamla skólan- um sem lætur verkin/vopnin tala en þolir ekki kjaftagang og vælukjóa- hátt. Þrátt fyrir öll þau dusilmenni sem hann hefur stútað um ævina er honum þó allra verst við pólitík og pólitíkusa sem vilja stanslaust vera að hnýsast í hans mál og gera ein- földustu hluti að einhverjum bévuð- um, diplómatískum úrlausnarefnum sem eru svo að sjálfsögðu handónýt þegar á hólminn er komið. Þegar hér er komið sögu er Fury orðinn gamall og fólkið sem hann hræðist mest, fólkið með bindin, búið að taka yfir SHIELD. Þá kemur til sögunnar gamall óvinur sem býður honum upp í dans, sannkallaðan stríðsdans. Hann startar bara einu stríði si svona á lítilli Kyrrahafseyju og hálf- partinn neyðir Fury til að taka áskoruninni. Fury bregst hinn versti við en er um leið hálffeginn að kom- ast í gamla góða hasarinn. Svo sem ágætis viðfangsefni en innihaldið er ekki upp á marga fiska. Eins og áður sagði er ofbeldið í fyr- irrúmi en það er vatnsþynnt með téðri klósettkímni Ennis. Spennan er engin þar sem flestir þræðir sög- unnar virðast spunnir til að koma spauginu til leiðar. Hann gerir allt sem í hans valdi stendur til að koma við kaunin á lesandanum og jafnvel útsjónarsamar bardagasenur breyt- ast í leiðinleg tómatsósupartí sem engu skila. Kaldhæðin gagnrýni á stríðsrekstur ríkjandi afla á að gefa verkinu aukna vigt en verður bara hjákátleg eins og nöldur í manni sem hefur ekkert að segja. Fury er karl í krapinu en í með- förum Ennis má skipta k-inu í krap út fyrir c og fáum við þá ensku lýs- inguna á þessari bók. MYNDASAGA VIKUNNAR Bara alveg sammála. ,,Á ég að segja þér brandara?" Heimir Snorrason Myndasaga vikunnar er Fury eftir Garth Ennis (saga) og Darick Robertson (teikn- ingar). Max Comics gefur út, 2002. Bók- in fæst í myndasöguversluninni Nexus.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.