Morgunblaðið - 09.06.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 2/6 – 8/6
ERLENT
INNLENT
NÁTTÚRUVERND
ríkisins hafnar
Norðlingaölduveitu
Landsvirkjunar í umsögn
sinni til Skipulagsstofn-
unar og telur að frekari
skerðing Þjórsárvera sé
óviðunandi.
ÞRÍR keppendur af sex
á Íslandsmótinu í hreysti,
sem fram fór í mars sl.,
hafa verið dæmdir í
keppnisbann eftir að þeir
féllu á lyfjaprófi.
FIMM albanskir karl-
menn komu sem laumu-
farþegar með Norrænu
og sóttu um pólitískt hæli
hér á landi. Þeim var snú-
ið við og á leið út Seyð-
isfjörð stökk einn þeirra
frá borði en var bjargað.
TOLLGÆSLAN í
Reykjavík fann við leit í
vörusendingu frá Banda-
ríkjunum á þriðjudag 102
þúsund efedrín- og koff-
íntöflur. Maður sem var
handtekinn játaði að hafa
átt töflurnar.
ÍSLENDINGI sem
handtekinn var af Ísraels-
her við sjálfboðaliðastörf
í flóttamannabúðum Pal-
estínumanna í Nablus um
síðustu helgi var vísað úr
landi af dómara og kom
hann til Íslands á föstu-
dag.
AÐALMEÐFERÐ í
máli Árna Johnsen lauk í
Héraðsdómi Reykjavíkur
í vikunni og er dóms að
vænta innan þriggja
vikna.
ALLIANZ í Þýskalandi
hóf að bjóða viðbótarlíf-
eyrissparnað hér á landi,
fyrst erlendra trygging-
arfélaga.
Falun Gong félögum
synjað um áritanir
ÍSLENSK stjórnvöld hafa ákveðið að
neita félögum Falun Gong hreyfingar-
innar um vegabréfsáritanir til landsins
eða afturkalla þær. Eiga yfirvöld von á
fjölda mótmælenda, líklega 300– 400
manns, þegar forseti Kína, Jian Zem-
in, kemur hingað til lands í næstu viku.
Talsmenn hópsins vildu ekki hlíta því
að hafa mótmælin á tilteknum stöðum.
Ákvörðunin var tekin vegna áhyggna
af því að boðuð mótmæli gætu farið úr
böndunum og ógnað öryggi almenn-
ings, mótmælenda og lögreglumanna.
Bréfaskipti um
Byggðastofnun
VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, hefur í bréfi til
Theodórs A. Bjarnasonar, forstjóra
Byggðastofnunar, gert alvarlegar at-
hugasemdir við störf hans. Telur ráð-
herra að forstjórinn hafi sýnt af sér
háttsemi sem geti varðað áminningu í
sjö atriðum af níu sem rakin voru í
bréfinu. Theodór hafði áður svarað
ráðherra um þessi atriði og segist
hann í ljósi þess hafa orðið mjög undr-
andi á svarbréfi Valgerðar. Telur hann
umrædd atriði ekki gefa tilefni til
áminningar.
Kostnaður við ESB-
aðild til umræðu
HAGFRÆÐISTOFNUN Háskóla Ís-
lands skilaði af sér skýrslu í vikunni
þar sem talið var að hreint framlag Ís-
lands til Evrópusambandsins myndi
með aðild tvöfaldast við stækkun sam-
bandsins og nema 8–10 milljörðum kr.
á ári. Skýrslan var unnin að beiðni for-
sætisráðuneytisins og sagði Davíð
Oddsson forsætisráðherra hana hafa
verið vel unna. Halldór Ásgrímsson ut-
anríkisráðherra gagnrýndi skýrsluna
og vinnubrögð stofnunarinnar.
Sextán féllu í Ísrael
MIKIL skothríð heyrðist við höfuð-
stöðvar Yassers Arafats, leiðtoga Pal-
estínumanna, í Ramallah á miðviku-
dagskvöldið, eftir að um fimmtíu
ísraelskir skriðdrekar réðust inn í
borgina á nýjan leik. Fyrr um daginn
höfðu íslömsku öfgasamtökin Heilagt
stríð staðið fyrir sprengjutilræði í Ísr-
ael þar sem a.m.k. sextán manns biðu
bana. Eftir árásina höfðu fulltrúar
Bandaríkjastjórnar lýst efasemdum
sínum um heilindi Yassers Arafats,
leiðtoga Palestínumanna, og sögðust
þeir ætla að auka samskipti sín við þá
forystumenn Palestínumanna sem lík-
legri væru til að ráða niðurlögum pal-
estínskra öfgamanna. Ísraelar hefndu
síðan tilræðisins á fimmtudaginn með
því að leggja höfuðstöðvar Arafats í
Ramallah í rúst, en sögðu það ekki
markmið sitt að skaða Arafat sjálfan.
Útilokar ekki notkun
kjarnorkuvopna
PERVEZ Musharraf, forseti Pakist-
ans, neitaði á þriðjudaginn að útiloka
þann möguleika að Pakistanar beittu
kjarnavopnum að fyrra bragði vegna
deilunnar við Indverja um Kasmír.
Atal Bihari Vajpayee, forsætisráð-
herra Indlands, féllst ekki á friðarvið-
ræður við Musharraf á leiðtogafundi
Asíuríkja, sem lauk í Kasakstan á
þriðjudaginn, og þeir kenndu hvor öðr-
um um átökin vegna Kasmírdeilunnar
sem hefur tvisvar sinnum leitt til stríðs
milli Indverja og Pakistana frá 1947.
Einræktun í lækn-
ingaskyni
VÍSINDAMENN hafa nú í fyrsta sinn
sýnt fram á að hægt er að græða ein-
ræktaðan líkamsvef og líffæri í menn
án þess að líkaminn hafni vefnum eða
líffærunum. Er þetta skref í þá átt að
hægt verði að nýta einræktun í lækn-
ingaskyni.
STJÓRN Georges W.
Bush Bandaríkjaforseta
hefur breytt áliti sínu á
áhrifum losunar gróður-
húsalofttegunda á um-
hverfið, og segir nú í
skýrslu sem hún sendi
Sameinuðu þjóðunum að
hækkun hitastigs muni
hafa umfangsmikil áhrif.
Er niðurstaða skýrsl-
unnar sú, að alveg sé
sama hvað gert verði til
að draga úr losun gróð-
urhúsalofttegunda í
framtíðinni, of seint sé að
bregðast við áhrifum ára-
tugalangrar losunar
koltvísýrings og annarra
gróðurhúsalofttegunda á
umhverfið.
TALIÐ er að milljón
manna hafi safnast sam-
an á götum miðborgar
Lundúna á þriðjudaginn
til að fylgjast með hátíða-
höldum af því tilefni að
hálf öld var liðin frá því
að Elísabet II Breta-
drottning var krýnd.
Drottningin kvaðst vera
djúpt snortin af þeirri
hlýju sem fólkið sýndi
henni á afmælishátíðinni
og sagði að Bretar og
þjóðir breska samveld-
isins fylltu hana „þakk-
læti, virðingu og stolti“.
JOHN Ashcroft, dóms-
málaráðherra Bandaríkj-
anna, kynnti á miðviku-
daginn nýtt fyrirkomulag
vegabréfaeftirlits en eft-
irlit með erlendum gest-
um til landsins verður
hert til muna. Er þetta
liður í tilraunum til að
verjast hættunni á frek-
ari hryðjuverkum í
Bandaríkjunum.
NÝ brú sem Landsvirkjun hefur lát-
ið reisa yfir Tungnaá og mun sinna
fyrirhugaðri Búðarhálsvirkjun var
vígð á föstudag. Brúin er 100 m löng
bogabrú úr stáli og steypu. Jarð-
vinna var í höndum Arnarfells hf.,
sem var aðalverktaki, en stál og
steypuvinna í höndum Höjgaard og
Schultz.
Þá var opnuð í Hrauneyjafossstöð
sýning á tillögum úr samkeppni um
útilistaverk við Vatnsfellsstöð og
niðurstöður dómnefndar kynntar.
Sýningin verður opin alla eftirmið-
daga í sumar.
Sex listamenn höfðu áður verið
valdir til að gera tillögu að úti-
listaverki og komst dómnefnd að
þeirri niðurstöðu að verkið „Tíðni“
eftir Finnboga Pétursson verði út-
fært frekar og sett upp. Verkið er
steinsteypt manngeng orgelpípa
sem með hjálp vindorku og blágrýt-
isfjöður myndar „eins konar hjart-
slátt rafstraumsins“, eins og segir í
tilkynningu. Þá mælti dómnefnd
jafnframt með því að verkið Móðir
Jörð eftir Gjörningaklúbbinn verði
útfært nánar og það hugsanlega
framkvæmt í áföngum.
Morgunblaðið/RAX
Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, gengur í broddi fylkingar yfir nýju brúnna.
Verðlaunahafar Landsvirkjunar tóku á móti viðurkenningum.
Ný brú yfir Tungnaá
Valið úr listaverk-
um við Hraun-
eyjafossstöð
HÁTTSETTIR eistneskir og lett-
neskir lögreglumenn sem Haraldur
Johannessen ríkislögreglustjóri
ræddi við kannast ekki við að þar-
lendar nektardansmeyjar hafi borið
að hafa stundað vændi hér á landi.
Slíkar upplýsingar fékk Ellisif
Tinna Víðisdóttir, fulltrúi hjá sýslu-
manninum á Keflavíkurflugvelli, hins
vegar hjá eistneskum og lettneskum
lögreglumönnum sem hún ræddi við
þegar hún sat ráðstefnu í Tallinn í
Eistlandi um baráttu gegn mansali
og kynlífsþrælkun.
Í kjölfar frétta af ráðstefnunni var
Haraldi falið að leita upplýsinga hjá
lögreglu í Eystrasaltsríkjunum um
hvort nektardansmeyjar hefðu sagt
lögreglu að þær hefðu stundað vændi
hér á landi, en hann var þá staddur í
Tallinn á Interpol-fundi. Ræddi hann
við háttsetta lögreglumenn í Eist-
landi og Lettlandi og sögðu þeir að
þarlend lögregluyfirvöld byggju ekki
yfir slíkum upplýsingum og engin
rannsókn væri í gangi um slík mál.
Telur Haraldur að þessir menn
ættu að hafa góða yfirsýn yfir þenn-
an málaflokk.
Hann hefur óskað eftir því við
sýslumanninn á Keflavíkurflugvelli
að hann láti sér í té upplýsingar sem
fulltrúi sýslumanns hefur vísað til.
Hafa ekki upplýsingar
um vændi hér á landi
Ríkislögreglustjóri ræddi við lögregluyfirvöld
í Eistlandi og Lettlandi um vændi nektardansmeyja
Ellisif Tinna Víðisdóttir hefur sent
frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
„Allt það sem ég hef greint frá í
viðtölum í tengslum við ráðstefnu
sem nýlega var haldin í Tallinn um
mansal og smygl á konum er auð-
velt að sannreyna. Ríkislögreglu-
stjórinn hefur óskað eftir nánari
upplýsingum varðandi þær upplýs-
ingar sem ég fékk frá baltneskum
lögregluyfirvöldum um meint vændi
á Íslandi. Það mun verða mitt
fyrsta verk þegar ég kem úr sumar-
leyfi erlendis frá að koma þeim upp-
lýsingum á framfæri við ríkislög-
reglustjórann.“
Auðvelt að
sannreyna
NETSÝNING var opnuð hjá
stofnun Árna Magnússonar í gær á
handritum sem aðgengileg verða á
vefsíðu stofnunarinnar.
Til sýnis eru Flateyjarbók, Skál-
holtsbók og tvö Jónsbókarhandrit.
Brugðið er upp mynd af leiðakerfi
um veröld handritanna og sýndar
stafrænar ljósmyndir af handritum
og efni handritanna skráð, útlit
þeirra, ásigkomulag, saga, aldur,
o.fl. Sýningin er afrakstur verk-
efna sem Árnastofnun hefur unnið
fyrir styrkjafé í samvinnu við hug-
búnaðarfyrirtækið Raqoon. Þróað-
ur hefur verið sérstakur hugbún-
aður sem talinn er sá fullkomnasti í
heimi á þessu sviði. Hægt er að
nálgast sýninguna á vefslóðinni:
www.am.hi.is.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning
opnuð á vefnum