Morgunblaðið - 09.06.2002, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.06.2002, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Breidd 60 sm. Verð frá kr. 29.880,- Breidd 90 sm. Verð frá kr. 44.820,- w w w .d es ig n. is © 20 02 Skeifan 2 • 108 Reykjavík S. 530 5900 • Fax 530 5911 www.poulsen.is Baðinnréttingar Spegill m. ljósi fylgir. Hvítt eða viðarlitt. „RÁÐHERRAR í Þýskalandi segja oft að þeir verði að gera eitthvað með ákveðnum hætti vegna þess að evrópskar reglur geri það óhjá- kvæmilegt. En þegar málið er skoð- að vandlega kemur í ljós að mikið svigrúm er gefið í evrópsku löggjöf- inni, ramminn er víður. Með því að vísa til evrópskra reglna er hins veg- ar þaggað niður í þeim sem kvarta,“ segir Markus Ferber, sem er Þjóð- verji og einn af 626 fulltrúum á þingi Evrópusambandsins (ESB). Ferber flutti nýlega erindi á fundi sem Félag stjórnmálafræðinga, fastanefnd Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og Háskóli Ís- lands stóðu fyrir í Reykjavík. Evr- ópuþingið heldur reglulega fundi sína í Strassborg, nefndafundir fara fram í Brussel og skrifstofa þingsins er í Lúxemborg. Þingið fjallar um fjárlög og laga- tillögur sem framkvæmdastjórnin í Brussel leggur fram en getur ekki sjálft lagt fram tillögur um ný lög. Þingið hefur þó talsverð áhrif, getur til dæmis samþykkt ályktanir og einnig verður að bera undir það til- lögur um liðsmenn í framkvæmda- stjórn sambandsins. Ferber er 37 ára gamall, frá Augs- burg í Bæjaralandi og hefur verið þingmaður frá 1994. Hann á sæti í sameiginlegri þingmannanefnd ríkjanna á Evrópska efnahagssvæð- inu. Ferber er rafmagnsverkfræð- ingur að mennt, hann er liðsmaður Kristilega sósíalsambandsins (CSU), sjálfstæðs hægriflokks sem í reynd er eins konar bæversk deild í flokki Kristilegra demókrata (CDU). Hann er spurður um samstarfið á Evrópu- þinginu, hvort oft verði menningar- legir árekstrar milli fulltrúa ólíkra þjóða, en hann neitar því. „Það er ekki nein sameiginleg þýsk menning til og við munum aldr- ei berjast fyrir því að hún verði til, hvers vegna ættum við þá að berjast fyrir sameiginlegri evrópskri menn- ingu? Margs konar munur er til staðar, hann á sér sögulegar rætur en það er líka margt sem við eigum sameiginlegt. Ef við tengjum saman það sem við eigum sameiginlegt og sættum okkur við að fólk fari ólíkar leiðir að takmarkinu og búi að mis- munandi reynslu held ég að við séum á réttri leið. Myndi aldrei kalla mig Þjóðverja Við Evrópumenn eigum sameig- inlega arfleifð á mörgum sviðum, við getum rakið hana alla leið til Forn- Grikkja, þar fundu menn upp lýð- ræðið. Heimspeki okkar er líka upp- runnin þar, jafnvel nafnið sjálft, Evrópa, er grískt. Margt er því sam- eiginlegt, hins vegar held ég að ís- lenskur sjómaður telji sig varla eiga margt sameiginlegt með grískum tóbaksbónda eða jafnvel með grísk- um sjómanni. Allir hafa þó lagt sitt- hvað fram til sameiginlega arfsins og Evrópumenn eiga líka sameiginlegt að hafa lagt grunninn að Bandaríkj- unum. Sjálfur er ég Bæjari og myndi aldrei kalla mig Þjóðverja. Ef ein- hver segist bara vera sannur Evr- ópumaður trúi ég honum ekki. Ræt- urnar og sameiginlega reynslan eru alltaf tengd heimahögum, þessa reynslu munu einstaklingarnir alltaf nota þegar þeir takast á við ný við- fangsefni. Þess vegna munum ekki verða einsleitir Evrópumenn þótt við viljum sameina Evrópu. Á þessu tvennu er mikill munur.“ – Evrópa verður þá ekki bræðslu- pottur ólíkra þjóða eins og sagt er um Bandaríkin? „Nei, þannig hugsa Evrópumenn ekki. Við getum byrjað að velta fyrir okkur tungumálunum. Það verður aldrei eitt, sameiginlegt tungumál. Ef til vill verður enska notuð mikið í vinnunni en enginn setur enskuna ofar móðurmáli sínu. Því er alltaf öf- ugt farið. Sjálfsvitundin verður alltaf nokkuð ólík innbyrðis, hún tengist tungu hverrar þjóðar og menningar- arfi. Þessum hlutum verður ekki kastað á glæ. Ég held að það þjóni alls ekki þörfum Evrópumanna að reyna að finna upp eina, sameigin- lega Evrópumenningu. Ef við ræðum hvað sé sameigin- legur grundvöllur allra þjóða sem ganga í sambandið, eins og gert var þegar við fjölluðum um sáttmálann um grundvallarréttindi, sjáum við að margt skilur okkur að. Ég held að fleira sé sameiginlegt í Bandaríkj- unum en í Evrópu og þess vegna tel ég að það sé fjarstæða að tala núna um bandaríki Evrópu. Með stækkun sambandsins sem nú er á döfinni held ég að sameiginlegi grundvöll- urinn okkar smækki enn. Sameigin- lega arfleifðin sem allir deila hlýtur að minnka. Eru það trúarbrögðin? Það held ég ekki og ekki heldur stað- setningin á landakortinu. Það sem eftir stendur eru efnahagslegir hagsmunir og ég held að þeir séu ekki öflugur grundvöllur til að búa til bandaríki Evrópu.“ Rétturinn til úrsagnar – Þyrfti að kveða skýrar á um réttindi einstakra aðildarríkja gagn- vart sambandinu, jafnvel hafa skýr ákvæði um úrsögn? „Þetta er athyglisverð spurning. Við settum á sínum tíma reglur í Þýskalandi um inngöngu nýrra sam- bandsríkja. Ákvæði um þessi mál féllu burt þegar Vestur-Þýskaland sameinaðist Austur-Þýskalandi 1990 og þess vegna er ekki lengur til nein lagaleg leið fyrir ríki til að ganga í sambandslýðveldið en ekki heldur fyrir einstakt sambandsríki til að ganga úr Þýskalandi. Svipað virðist vera upp á teningnum í Evrópusam- bandinu. Ef við ræðum þetta í alvöru þá tel ég að þjóð sem vill ganga í ESB ætti að gera það með langtímasamstarf í huga. Hugarfarið ætti ekki að vera: Ég beiti neitunarvaldi og dugi það ekki fer ég. Þá myndum við aldrei geta komist að nokkurri niðurstöðu í framtíðinni. En okkur hefur tekist að finna friðsamlegar lausnir á vandamálum án þess að þjóð hafi þurft að berjast fyrir því að fá að losna. Stundum er þetta tímafrekt, deila Spánverja og Breta um Gí- braltar er til dæmis enn óleyst og það á eftir að taka sinn tíma að leysa hana, einnig er deilt um það hvort Týról eigi að vera hluti Ítalíu, hvern- ig miðla eigi málum á Norður-Ír- landi. En einhvern tíma verður að leysa þessi mál og önnur. Evrópusamstarfið er ekki verk- efni fyrir aðra en þá sem hafa lang- lundargeð. Og menn mega ekki stara um of á vandamálin, tækifærin eru líka til staðar.“ Samkeppni milli aðildar- ríkjanna í skattlagningu – Er í lagi að aðildarríkin fái að keppa um hylli skattgreiðenda og fyrirtækja innan sambandsins með því að bjóða lægri skatta? „Svíar nota háa skatta til að halda uppi velferðarkerfinu. Við getum ekki sagt Svíum að framvegis verði kerfi þeirra skipulagt með öðrum hætti svo hægt sé að samræma virð- isaukaskattinn í öllu Evrópusam- bandinu. Eða ætti að hækka hann upp í 25% í öllu sambandinu til að varðveita samstöðuna? Þá myndu borgararnir segja að pólitíkusarnir væru geggjaðir. Það er ekkert vit í að stýra þessu hjá stofnunum ESB og út í hött að samræma alla skatta. Við þurfum ákveðnar reglur um skattlagningu fyrirtækja, sum aðild- arríkin beita ósanngjörnum reglum á því sviði. En á öðrum sviðum skatta kemur sér best fyrir borgar- ana að samkeppni ríki milli þjóð- anna. Ekkert ríkjanna í sambandinu getur staðið eitt á tímum hnattvæð- ingar en ég held að Evrópa sé svæði sem geti í sameiningu tryggt sam- keppnisstöðu sína og efnahag. Við gerum þetta á okkar hátt, á heims- svæði þar sem félagslegt öryggi er sett skör ofar en í Bandaríkjunum eða þriðja heiminum. Þetta er við- horf Evrópumanna og ég held að það sé ágætt. Félagsleg ábyrgð er hluti af arfleifð okkar.“ – Er stöðug valdabarátta milli þings, framkvæmdastjórnar og ráð- herraráðs ESB? „Venjulega er slík barátta í gangi milli þingsins og ráðherraráðsins. Framkvæmdastjórarnir eru hins vegar liðsmenn okkar gegn ráðinu, það er sameiginlegur óvinur!“ segir Ferber og hlær. „Ráðið er valda- mesta stofnunin þótt margir haldi að það sé framkvæmdastjórnin. Það heyrist oftast eitthvað frá fram- kvæmdastjórninni og það veldur misskilningnum; fréttatilkynning- arnar koma frá henni. En þingið á eftir að hafa meiri áhrif. Við höfum sótt í okkur veðrið nær stanslaust, samningurinn í Nice var eina undantekningin, en okkur tókst að koma framtíðarráðstefn- unni um ESB á koppinn. Hún er skipulögð þannig að við vonumst til að standa á endanum uppi sem sig- urvegarar. Um þessa baráttu eru menn sammála á Evrópuþinginu. Þegar við ræðum við kjósendur er- um við spurðir hvers vegna við ber- um ekki ábyrgð á stefnunni í til dæmis landbúnaði, sameiginlegum skattamálum sambandsins, hvers vegna við megum ekki leggja fram lagafrumvörp. Þing hafa venjulega þessi mál sinni könnu og við munum á endanum ná takmarkinu.“ – Litlar þjóðir hafa hlutfallslega fleiri fulltrúa á þinginu en stóru þjóðirnar. Er það réttlátt? „Myndi það vera réttlátt að Lúx- emborg hefði bara einn þingmann? Ef hver íbúi hefði eitt atkvæði og þau hefðu sama vægi og Lúxemborg fengi einn myndi heildarfjöldi þing- manna verða á annað þúsund sem væri fáránlegt, slíkt þing yrði svo stirðbusalegt. Lágmarksfjöldi þing- manna frá hverju ríki er nú sex og ég held að þetta sé ágæt millilending og í Nice var ákveðið að auka fulltrúa- fjölda stóru ríkjanna án þess þó að lækka sex manna þröskuldinn. Þetta er ekki fullt atkvæðajafnvægi en nógu sanngjarnt, að mínu mati. Framkvæmdastjórnarmenn eru nú 20, tveir frá stóru þjóðunum, einn frá litlu þjóðunum en í framtíðinni verður einn frá hverri þjóð. Ég held að mesti vandinn við að fjölga þeim, eins og verður raunin þegar sam- bandið stækkar, hljóti að vera að finna nógu valdamikið starfssvið fyr- ir þá alla. Þeir geta ekki viðurkennt í heimalandinu að þeir ráði í reynd ósköp litlu. Þess vegna verður að finna glæsilegan titil handa þeim öll- um!“ Mjólkurraunir og lýðræðishallinn í ESB – Hvernig á að lagfæra svonefnd- an lýðræðishalla í ESB, tryggja auk- in áhrif borgaranna á ákvarðanir? „Fólk á að fá færi á að kynna sér hver beri ábyrgð á ákvörðunum sem snerta borgarana. Það er ekki hægt núna. Ég get nefnt dæmi um bónda í kjördæmi mínu í Bæjaralandi. Hann spurði hver hefði tekið ákvörðun í máli sem skipti hann miklu, þetta snerist um framleiðslu á mjólk. Hann spurði landbúnaðarráð- herra Bæjaralands sem sagði að þetta væri ákveðið í Brussel. Bónd- inn spurði mig og ég sagði að það væri ekki Evrópuþingið sem réði þessu. Hann skrifaði nú þýska land- búnaðarráðherranum sem svaraði að málið væri ákveðið hjá fram- kvæmdastjórninni. Stjórnin svaraði umleitun bóndans með því að valdið í þessum málum væri hjá hverju að- ildarríki. Svona mál valda mikilli óánægju og fólk fer að biðja um eitt- hvað annað en Evrópusamband af þessu tagi. Gegnsæi í stjórnsýslu myndi merkja að hægt væri að ná í þá sem bera ábyrgðina og borgarar gætu í kosningum hafnað einstaklingum sem tóku þessa eða hina ákvörð- unina. Það er ekki hægt núna. Evr- ópskir kjósendur geta ekki sýnt skoðun sína á ákvörðunum fram- kvæmdastjórnarinnar milliliðalaust í kosningum. Framkvæmdavaldið er hjá stjórninni og ráðherraráðinu en atkvæðið ætti að vera mikilvægasta tækið í lýðræðissamfélagi. Tengja þarf betur ábyrgðina við þá sem ákveða og fólk verður að geta séð hverjir bera ábyrgðina,“ segir Mark- us Ferber, fulltrúi á Evrópuþinginu. Evrópa verður ekki bræðslupottur Þýski Evrópuþingmaðurinn Markus Ferber segir í samtali við Kristján Jónsson að þótt menn vilji sameina Evrópu merki það ekki að þjóðirnar eigi að verða einsleit- ar. Óþarft sé líka að samræma alla skatta, ríkin eigi að geta keppt innbyrðis á því sviði. Morgunblaðið/Ásdís Markus Ferber, þýskur fulltrúi á Evrópuþinginu: „Evrópusamstarfið er ekki verkefni fyrir aðra en þá sem hafa langlundargeð.“ ’ Ef einhver segistbara vera sannur Evrópumaður trúi ég honum ekki. ‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.