Morgunblaðið - 09.06.2002, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 19
fara til Brussel sem síðan varð ekki
af.“
Tryggvi segir hvað varðar sam-
ráð Hagfræðistofnunar og utanrík-
isráðuneytisins varðandi fyrri
skýrsluna að núverandi utanríkis-
ráðherra hafi ekki verið í ríkisstjórn
á þeim tíma og því hvergi komið ná-
lægt gerð skýrslunnar. Í öðru lagi
hafi ekki verið haft samráð nema að
því leyti að ráðuneytið las skýrsluna
yfir og kom með góðar ábendingar
áður en hún var birt árið 1995.
„Meginupplýsingar komu úr sam-
bærilegri sænskri skýrslu. Þetta er
í samræmi við stefnu stofnunarinn-
ar, en of náin samvinna við verk-
kaupa býður upp á að hann geti haft
meðvituð, eða ómeðvituð, áhrif á
gerð skýrslu.“
Lítið breyst frá 1995
Það hefur verið gagnrýnt að þessi
skýrsla sé einungis framreikningur
á tölum frá 1995, en taki ekki mið af
nýjum forsendum.
„Hluti af hugsanlegum framlög-
um ESB til Íslands er leiðréttur
framreikningur á tölum frá 1995.
Við fórum yfir hvað hefur breyst í
reglum ESB bæði hvað varðar inn-
og útborganir úr bandalaginu og
komumst að því að þetta væri það
næsta sem við kæmumst réttum töl-
um.“
Tryggvi Þór segir að tölurnar
hafi komið úr skýrslu Hagfræði-
stofnunar 1995. Hann segir að þá
hafi verið gerð mjög nákvæm úttekt
og farið yfir alla liði sem skipta
máli. Nú var farið aftur yfir þessa
liði og í ljós kom að lítið hafði breyst
frá fyrri úttekt.
Það hefur einnig verið gagnrýnt
að skýrslan taki einungis á ríkisfjár-
málunum, en fjalli ekkert um áhrif
ESB-aðildar á lífskjör almennings,
starfsumhverfi atvinnulífsins eða
áhrif þess að taka evruna upp sem
gjaldmiðil?
„Eins og nafn skýrslunnar ber
með sér þá fjallar hún einungis um
ríkisfjármálin. Við gerð þessarar
skýrslu voru ekki skoðuð áhrif af
vöxtum, evru, áhrif aðildar á vöru-
verð eða rekstrarumhverfi fyrir-
tækja. Þetta er takmörkuð greining
og henni er alls ekki ætlað að vera
fullnaðargreining á hagfræðinni í
kringum Evrópusambandið. Þetta
er tekið skýrt fram í skýrslunni og í
lokaorðunum segir að hún nái ein-
ungis til ríkisfjármálanna og að það
séu margir aðrir kostir og gallar
sem fylgi ESB-aðild sem ekki sé
fjallað um í þessari skýrslu. Það ber
að skoða hana í því ljósi.“
En er það vinnandi vegur að gera
skýrslu um áhrif af ESB-aðild á alla
þessa þætti efnahagskerfisins?
„Eflaust væri það hægt en það
væri gríðarmikið verk sem þyrfti að
ná til mjög margra þátta. En það
sem snýr að gjaldmiðlum og vöxtum
myndi byggjast á mun fleiri for-
sendum og fyrirvörum en þessi
skýrsla byggist nokkru sinni á.“
Tryggvi segir að þær forsendur
þyrftu menn að gefa sér og yrðu
þær ávallt umdeilanlegar. En er
hægt að draga einhverjar ályktanir
af því sem hefur gerst, t.d. hjá þeim
þjóðum sem síðast gengu í Evrópu-
sambandið, um hver áhrifin af okk-
ar aðild yrðu á lífskjör almennings?
„Svo virðist sem sá galli hafi fylgt
upptöku evrunnar, án þess að hægt
sé að segja að það verði til lang-
frama, að kaupmenn hafi hækkað
vöruverð. Evrópa hefur ekki fengið
neina stóra efnahagsskelli, síðan
evran var tekin upp. Við vitum því
ekki hver áhrifin verða á hin ein-
stöku lönd þegar áföll dynja á sum-
um löndum en öðrum ekki. Í fram-
tíðinni verður hægt að dæma það af
reynslu, en í dag er mjög hæpið að
spá um það. Það þarf lengri tíma.
Það þarf mikið af gögnum til að geta
sagt fyrir um svona atriðið af al-
gerri vissu. En með því að gefa sér
vissar forsendur er hægt að spá fyr-
ir um í hvaða átt hlutirnir þróast.“
Hærra þak, eða lægri styrkir
Það var einnig gagnrýnt að þið
gefið ykkur í útreikningum ykkar
að aðildarkostnaður Íslands verði
hærri en þakið, 1,27% af landsfram-
leiðslu, er hjá ESB?
„Í þeirri rannsókn sem við styðj-
umst við frá Dresdner-bankanum
gefur bankinn sér að fjárframlögin
til ESB hækki upp í 1,4%. Það ætti
að vera hækkun um 0,11 prósentu-
stig af þjóðarframleiðslu. Miðað við
reglurnar sem eru í gildi í dag blasir
við að stækkun sambandsins gengur
ekki upp ef nýju ríkin fá sömu aðild
að sjóðum og gömlu ríkin hafa haft
og ef framlögin frá aðildarþjóðunum
verða eins og þau hafa verið. Sam-
bandið mun þá springa fjárhags-
lega. Þá eru tvær leiðir færar: Að
lækka styrkina og að hækka fram-
lögin. Það er ljóst að það er verið að
fara út í gríðarlega breytingu á Evr-
ópusambandinu. Því verður að end-
urskoða 1,27% regluna í ljósi stækk-
unarinnar. Að lokum er mikilvægt
að gera sér grein fyrir að framlög
Íslands til ESB yrðu að mestu eftir
samræmdum reglum sambandsins,
en yrðu ekki samningsatriði.“
ningsatriði
AUSTURSTRÆTI 17 4. HÆÐ,
BOX 104 121 REYKJAVÍK
SÍMI (354) 562 0400,
FAX (354) 562 6564,
KT. 540192-2279Aldrei áður jafnódýrt - né jafnauðvelt
KARÍBAHAFIÐ-GÓÐ VIÐBRÖGÐ!
Sigling - CARNIVAL PRIDE: 27. sept.- UPPSELT!
ÖNNUR HÓPBROTTFÖR 7. FRBRÚAR 2003 - SENN UPPSELT
Lýsing:
27. sept. 2002-fö. Flug frá KEF- FI 663 kl. 17.00 lendir í ORLANDO kl. 20.45. Flugvallar-
bíll frá Carib Royal Suites flytur farþega til gistingar með morgunverði inniföldum.
28. sept. lau. Frjáls tími í Orlando til hádegis. Flugvallarbíll skilar farþegum til flugvallar,
en þar bíður bíll frá CARNIVAL skipafélaginu og flytur farþega til PORT CANAVERAL,
þar sem farþegar fara um borð í hið nýja glæsiskip CARNIVAL PRIDE, sem fór jómfrúr-
ferð sína í jan. 2002, rúmar 2600 farþega á 12 þilförum, en starfsfólk er nærri 1000 manns.
Innréttingar skipsins eru með sérstakri listrænni útfærslu, sem minna sumpart á öndvegi
lista á Ítalíu renaissance tímans, en einnig með fjölþjóðlegum áherslum, s.s.
Japanski fílbeins barinn, bókasafn og lesstofa kennd við Svíann Nobel, hið Indverska leik-
hús Taj Mahal með glæsisýningum, sem eru upphaf rómantískra ævintýra að loknum dýr-
indiskvöldverði, áður en dansinn dunar fram eftir nóttu í Stjörnu næturklúbbnum. Fullt
fæði er innifalið og ókeypis aðgangur að öllum skemmtunum og uppákomum ásamt útivist-
ar- og íþróttaaðstöðu og stenst samanburð við flest fimm stjörnu hótel heimsins, þar sem
verðið væri allt að fimm sinnum hærra. - Skipið siglir úr höfn kl. 16.00.
29. sept. su. Komið til hins fræga KEY WEST. Syðsta borg U.S.,fræg fyrir dvöl rithöfund-
arins Ernest Hemingways. Skipið stendur við kl. 9.00-17.00.
30. sept. má. Hressandi skemmtisigling á bláum öldum Karíbahafs. Tími til hvíldar og úti-
vistar í sjávarloftinu.
1. okt. þr. Komið til BELIZE CITY í smáríkinu Belize í Mið-Ameríku kl. 07.00, dvalist til
kl. 17.00. Landið er frumstætt en mikil náttúruparadís og líf íbúanna forvitnilegt.
2. okt. mi. Komið til eyjunnar COZUMEL undan strönd MEXICO kl. 8.00 og dvalist til kl.
16.00. Eyjan er undan strönd YUCATAN skagans, gott dæmi um hitabeltisparadís.
3. okt. fi. Komið til hafnarborgarinnar PROGRESO á norðanverðum skaganum kl. 07.30
og dvalist til kl. 15.00. Ferð býðst til MERIDA, höfuðborgar Yucatan, spænsk borg frá 16.
öld, byggð á rústum gamallar Maya-borgar. Gott dæmi um forna og nýja menningu þessa
stórmerka svæðis.
4. okt. fö. Nú siglum við daglangt um hinn hlýja Mexíkóflóa, sem færir okkur Golfstraum-
inn og gerir lífvænlegt að búa á Íslandi. Njótum stórkostlegrar aðstöðu um borð og
skemmtum okkur.
5. okt. la. Komið að landi í Port Canaveral kl. 7.00. Um kl. 11.00 er gert ráð fyrir að allir
séu komnir í land, og þá ekur skipsrútan okkur til Orlando, þar sem við setjumst aftur að á
Carib Royal Suites í 3 nætur. Gististaðurinn er afar vel staðsettur til að kanna og njóta Or-
lando með sínum fjölbreyttu skemmtimöguleikum, söfnum, skemmtigörðum, s.s. DISNEY
WORLD, SEA WORLD o.fl.
6.-7. okt. - Dvalist í besta yfirlæti í ORLANDO.
8. okt. Við höldum gistiherbergjum okkar fram yfir hádegi, en síðdegis er haldið til flug-
vallar og beint heimflug með Flugleiðum, FI662 kl. 19.00.
9. okt. mi. Lent í Keflavík kl. 6.00 að morgni.
VERÐ: frá kr. 159.900.- Innifalið er flug Flugleiða KEF-ORL-KEF skv. áætlun. Flutningur
milli flugvallar-hótels og skips Sigling á CARNIVAL PRIDE með fullu fæði og allri aðstöðu
um borð. Hafnargjöld og þjórfé að upphæð kr. 23.750 innifalið. Staðfestingargjald kr. 30
þús. fylgi pöntun. Aðeins 4 pláss laus 27. sept. Næsta hópbrottför 7. feb. 2003. Einstaklings-
fargjöld vikulega á föstudögum. Flugvallarskattar kr. 7.230 bætast við.
Þú sparar helming - jafngildir 2 fyrir einn m.v. almennt verð!
Fylgist með! Siglingar eru ódýrasti tískuferðamáti nútímans
TILBOÐ ÓSKAST
Í Ford Windstar SE árgerð 1999,
7 manna vél V-6, 3,8 l. (ekinn 19 þús. mílur),
Chevrolet Monte Carlo Z-34 árgerð 1996
og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að
Grensásvegi 9 þriðjudaginn 11. júní kl. 12-15.
VÉLSÓPUR
Ennfremur óskast tilboð í
Clarke American Lincoln vélsóp gasknúinn.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA
SALA VARNARLIÐSEIGNA