Morgunblaðið - 09.06.2002, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 09.06.2002, Qupperneq 24
24 SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ EINHVER versti lösturokkar mannanna erhefnigirnin. Lang-ræknin. Ná sér niðri áeinhverjum sem hefur gert á okkar hlut, erfa það og muna. Búa sér til óvini og ala sjálf- ur á óvild í annarra garð. Mikið skelfing og ósköp held ég að það sé erfitt hlutskipti. Og svo er það hitt sjálfskap- arvítið (sem er skylt hinu fyrra) að sjá eftir einhverju. Svekkja sig yfir því sem gerðist eða gerðist ekki. Öll erum við þessu marki brennd í meira eða minna mæli. Bölsótast yfir atburðarásinni, bölva öðrum sem hugsan- lega gerðu á hlut þinn og eyða hugarvíli og hug- arangri í hluti sem eru búnir að eiga sér stað og verða ekki aftur teknir. Aldrei. Þú, lesandi góður, ert ekki einn um þetta. Í morgun var ég að ergja mig yf- ir einhverju sem gerðist í gær. Á morgun verður eflaust eitthvað sem angrar mig yfir því sem gerð- ist í dag. Satt að segja erum við sí- fellt að velta okkur upp úr ein- hverju sem hefði getað farið öðruvísi ef við hefðum ekki gert það sem við gerðum. Eða gerðum ekki. Ef ég héldi áfram má segja að lífið geti verið samfelld mistök vegna rangra ákvarðana, vegna mistaka og víxlspora og timbur- manna af völdum seinheppni og axarskafta, samkvæmt þeirri klassísku lífsspeki að maður er aðallega vitur eftir á. Og þá er of seint í rassinn gripið. Ef ég hefði nú til dæmis tekið boði bóndans, þegar ég var ung- lingur í sveit, hefði ég orðið vetr- armaður og fjárbóndi. Ef ég hefði gengið á eftir stelpunni sem ég var skotinn í, þegar ég var í barna- skóla, væri ég öðruvísi settur en í dag; ef ég hefði verið þolinmóðari og skynsamari hefði mér kannske vegnað betur í mannvirðingarstig- anum. Hvað þá ef ég hefði tekið at- vinnutilboðinu sem mér bauðst eft- ir háskólaprófið eða látið það eftir mér að flytja til útlanda, þegar færi gafst, eða setið á þingi nógu lengi væri ég búinn að vera ráð- herra og fengi himinhá eftirlaun og sestur í helgan stein. Ef og ef og ef. Já, það er margt sem maður get- ur séð eftir og margt sem hefði getað farið öðruvísi en það fór. Í stuttu máli sagt: ef ég hefði beygt til hægri á gatnamótunum fyrir fjörutíu árum síðan, í staðinn fyrir vinstri, hefði ég komist inn á nýja götu á annarri akrein. Stefnt í aðra átt. En hvað svo? Hefðu ekki kom- ið önnur gatnamót, annað hring- torg og aðrar blindgötur á þeirri leið? Og hefði það endilega leitt til gæfusamara lífs? Hefði mér vegn- að skár? Og svo hitt: hvað hefur það upp á sig að hugsa í viðteng- ingarhætti? Ekkert verður aftur tekið. Þetta fór eins og það fór. Og rættist úr því öllu. Og hvað með þá sem hafa gert þér miska á lífsleiðinni, verið svik- ulir eða slóttugir, rægt þig og róg- borið, komið fæti fyrir frama þinn eða komið aftan að þér? Eru þeir þess virði að láta þá eitra líf þitt með illum hugsunum? Hver er sinnar gæfu smiður seg- ir máltækið. Satt að segja er það ekki allskostar rétt. Maður sullast þetta áfram og tekur ákvarðanir, sem oftast eru tilviljunum eða til- finningum undirorpnar. Kylfa ræður kasti, hvar við lendum í líf- inu. Eða hverjir verða á vegi manns. Unglingurinn stjórnast af geðþótta og draumum, hjónaleysin stjórnast af ástinni, barnsmóðirin fer ekki langt frá börnunum sín- um, fyrirvinnan er föst í vinnunni sinni, miðaldra fólkið situr ríg- bundið í kotinu sínu og gamla fólk- ið er víst ekki spurt um það hvar það vilji deyja. Örlög okkar eru oft- ast ekkert annað en vaninn og viðj- arnar, sem við festumst í, áður en við vissum hvað við vildum. Eða hvað heimurinn hafði upp á að bjóða. Eða hvað við gátum, hvað við þorðum, hvað við þekktum ekki af reynslunni. Reynslan kom seinna, kom of seint, kom okkur ekki að gagni, því okkur lá svo á. Enda hef ég alltaf sagt að reynslan er einskis virði nema maður hafi öðlast reynslu til að læra af henni! Og það gildir um ævina sem gildir um gærdaginn, að örlögin verða ekki umflúin. Ef þú slóst mann í andlitið í gær er það ekki aftur tekið. Ef þú valdir eitt í fyrra velur þú ekki annað í ár. Ef þú sagðir eitthvað ljótt um daginn eru þau orð ekki aftur tekin. Tökum kosningar. Úrslit í kosningum eru úrslit, hvort sem þér líkar betur eða verr. Jú, við getum sosum velt okkur upp úr því að kosningabar- áttunni hafi verið hagað með röng- um hætti og kannske hefðu úrslitin orðið öðruvísi ef annar hefði verið í framboði eða meiru lofað og fleira auglýst. En þú tryggir ekki eftir á. Þú spólar ekki til baka. Yesterday is gone, segir í bítla- laginu. Gærdagurinn er liðinn. Það hefur ekkert upp á sig að lifa í for- tíðinni og ergja sig yfir orðnum hlut. Hvað þá að láta illar hvatir stjórna gerðum sínum, hefni- girnina eða langræknina. Í raun og veru er það líka í góðu lagi. Það kemur dagur eftir þenn- an dag. Öll él styttir upp um síðir. Það kemur ætíð skin á eftir skúr. Lífið er auðvitað enginn dans á rósum og enginn sleppur við að gera mistök eða verða fyrir áföll- um. Tíminn græðir sárin og svefn- inn læknar sárustu kvalirnar. Timburmennirnir hverfa, sólin kemur áfram upp. Sól rís, sól sest. Og áfram líður lífið og við megun engan tíma missa, engan dag líða, án þess að horfa fram á við, njóta líðandi stundar. Bæta ráð sitt, bjóða góðan dag og ýta frá okkur böli og barlómi hins liðna. Það má nefnilega alltaf gera betur. Lang- rækni og eftirsjá, hefnigirni og böl- móður eru barasta myllusteinar um háls þess, sem enn er þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að vera til. HUGSAÐ UPPHÁTT Eftir Ellert B. Schram Gærdagurinn er liðinn Teikning/Andrés Bjóðum RC íbúðarhús, sumarhús og fjölnotahús, stór og lítil RC Hús Sóltún 3, 105 Reykjavík Sími: 511 5550 Veffang: www.rchus.is Netfang: rchus@rchus.is NÝTT FRÁ RC HÚSUM NÝJAR TEIKNINGAR, LÆGRA VERÐ! Vorum að fá nýja línu af íbúarhúsum með yfir 90 teikningum. Komið, eða hringið eftir upplýsingum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.